Morgunblaðið - 29.03.1988, Page 65
unstjarnan nr. 11) — kirkjan og
stúkan voru hin stóru áhugamál
afa, en hann söng líka í karlakórn-
um Þresti, var stofnfélagi Leik-
félags Hafnarfjarðar og steig iðu-
lega á fjalir, bæði á vegum L.H.
og stúlkunnar.
Hann hringdi um árabil klukkum
í kirkjunni, þar sem hann í dag
verður jarðsunginn. Þá fór hann
fyrstur af stað niður í kirkjuna til
að opna og hringja til messu. Seinna
um daginn sátum við í eldhúsinu
og ég reyndi að læra að drekka
kaffí af undirskálinni. Hann horfði
yfir borðið til mín, brosti kankvís,
ævinlega í góðu skapi og hafði lag
á að njóta stundarinnar. Svo stigum
við á bak hjólhestinum, höfðum tré-
kassa með útsæðiskartöflum á
bögglaberanum og tókum stefnuna
upp á hraun. Þar hafði hann löngum
garðholu, ræktaði garðávexti, rabb-
arbara, sem maður fékk aldrei leið
á að stela, og kartöflur sem entust
langt fram eftir vetri. Svo stóðum
við hálfbognir í kalsaveðri, rigningu
jafnvel eða þá brækjuhita og settum
niður. Hann byijaði á að stinga upp
garðinn, búa til beð. Svo fór hann
af stað með sérstakt áhald til að
holusetja beðin og ég fékk að trítla
á eftir og velta kartöflumæðrunum
niður í moldina. Hann hafði lag á
að halda mér að verki, harður við
sjálfan sig, ákveðinn og vildi hespa
því af sem hann var að fást við.
Minningamar hópast að á kveðju-
stund.
En Jón Hjörtur er farinn á eftir
systkinum sínum tveimur, Margréti
(d. 1974) og Gunnari (d. 1954).
Eftir lifir stelpan sem hann hitti á
Hótel Hafnarfirði fyrir löngu. Þau
vom gift í 64 ár, eignuðust þijú
börn og ólu upp dótturdóttur sína.
„Sextíu og fjögur ár?“ sagði Guðríð-
ur þegar maður hennar var allur.
„Það er svo ótrúlega stuttur tíini.“
Gunnar Gunnarsson
Jón Hjörtur var innfæddur Hafn-
firðingur. Faðir hans hlaut hina
votu gröf þegar Jón var enn á
bamsaldri, og ólst hann því upp hjá
Gunnari afa sínum í Gunnarsbæ —
Gunnarssundi 1. Margirtöldu hann
fæddan þar, en það var ekki, en
raunar ekki langt undan.
Systkinin voru þijú og ólst
Margrét upp hjá Önnu föðursystur
sinni í Reykjavík, en bjó síðan hér
í Hafnarfírði, en þriðja systkinið,
Gunnar, naut áfram uppeldis og
umhyggju móður þeirra.
Fljótlega þurfti að taka til hendi
við störf í þá daga, og aldrei stóð
á Jóni Hirti til þeirra hluta. Ungur
annaðist hann útburð póstsins í
Firðinum, síðar kúskstarf hjá Sig-
fúsi Bergmann og var búðarmaður
hjá Ferdinand Hansen í sjö ár. Árið
1929 réðst hann til Ásmundar Jóns-
sonar bakarameistara og vann hjá
honum til 1940.
Tveim ámm síðar hóf hann störf
í Rafha. Skipti hann ekki um vinnu-
stað eftir það og vann þar hvorki
meira né minna en í 38 ár.
Árið 1923 kvæntist Jón Guðríði
Einarsdóttur frá Merkinesi í Höfn-
um og lifir hún mann sinn. Þau
eignuðust þrjú böm, sem öll em
lifandi og starfandi og ólu auk þess
upp dótturdóttur sína, Hjördísi, sem
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1988
65
nú er skólastjóri Engidalsskólans.
Hér hefur nú verið sett á blað
ærið þurr upptalning og er les-
andinn litlu nær um hvern mann
Jón Hjörtur raunvemlega hafði að
geyma. Ég vann í Rafha á tánings-
ámnum og við áttum samleið mest-
an hluta leiðarinnar heim. Þeirri
samleið lauk þegar hann beygði upp
Smyrlahraunið. Mér er ennþá minn-
isstæður hlýleikinn sem alltaf fólst
í lokaorðum hans þá: „Vertu sæll,
Maggi minn.“
Jón Hjörtur var maður upplits-
djarfur, lengst af snar og snöggur
í hreyfíngum og vildi láta hlutina
ganga fljótt fyrir sig. Einn var sá
félagsskapur, eða nánast fjölda-
hreyfing í þá daga, sem Jón varð
virkur þátttakandi í, en það var
Góðtemplarareglan.
Hann gekk í barnastúku og árið
1919 i stúkuna Morgunstjörnuna,
þar sem hann síðan var virkur liðs-
maður alla tíð. Um fjölda ára var
hann í húsnefnd Góðtemplarahúss-
ins og notaðist vel að störfum hans
þar, svo úrræðagóðum og snöggum,
að segja má bæði til líkama og
sálar. Jón var einnig kirkjunnar
maður. Hann var í safnaðarráði
Fríkirkjunnar í Hafnarfirði í um 40
ár. Já, hann vildi svo sannarlega
gera sitt til að fegra og bæta
mannlífið.
Mig minnir að það sé talið ind-
verskt, spakmælið sem er eitthvað
á þessa leið: „Þú komst grátandi í
heiminn, en þeir sem umhverfis þig
voru, brostu og voru glaðir. Lifðu
lífinu þannig að þetta snúist við,
þ.e. að þú getir dáið með bros á
vör, en þeir sem umhverfis þig eru
hafí ástæðu til að tárfella."
Ég minntist á kveðjuorð Jóns
þegar við áttum ekki lengur sam-
leið í bókstaflegri merkingu. Nú
kveður hann alla og fer í síðasta
sinn „upp Smyrlahraunið“. Fari
hann í friði. Blessuð sé minning
hans.
Magnús Jónsson
Systir okkar, t SESSIUA GÍSLADÓTTIR,
Brekkubyggð 1,
Garðabæ,
lést í Landspítalanum 26. mars sl.
Sigurlaug Gísladóttir, Sigríöur Gfsladóttir, Guörún Gfsladóttir, Halldóra Gísladóttir.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaöir og afi,
SIGURÐUR GUNNAR ÓLAFSSON
húsasmiðameistari,
Hvassahrauni 2, Grindavik,
lést 20. mars sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Þökkum auðsýnda samúð.
Margrét Engilbertsdóttir,
Rut Sigurðardóttir, Magnús Páll Brynjólfsson,
Engilbert Sigurðsson, María N. Birgisdóttir Olsen,
Örn Sigurðsson, Svanhvít Másdóttir,
Gigja Sigurðardóttir
og barnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaöir,
ÁSGEIR BENEDIKTSSON,
Eyjahrauni 9,
Þorlákshöfn,
andaðist fimmtudaginn 24. mars.
Útförin fer fram laugardaginn 2. apríl kl. 14.00frá Þorlákskirkju.
Fyrir mína hönd og annarra aðstandenda,
Guðrún Sigurjónsdóttir.
t
Eiginkona mín,
JÓNÍNA JÓNSDÓTTIR
frá Tungufelli,
lést í Sjúkrahúsi Suðurlands 23. mars.
Útförin fer fram frá Hrunakirkju miövikudaginn 30. mars kl. 14.00.
Jarðsett verður í Tungufelli.
Jón Einarsson.
t
Móðir okkar,
KRISTfN ÞÓRÐARDÓTTIR,
Vallarbraut 2,
Ytri-Njarðvík,
lést í Landakotsspítala sunnudaginn 27. mars.
Börnin.
t
Faðir okkar,
HARALDURERLENDSSON,
Hamrahlfð 35,
lést í Landspítalanum að morgni laugardagsins 26. mars.
Erlendur Haraldsson,
Elfn Haraldsdóttir.
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
JAMÍ OKTAVÍA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Karfavogi 19,
andaðist að kvöldi 24. mars.
Jarðarförin ákveðin síðar.
Valgarður Magnússon,
börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
t
Systir okkar,
RÓSA STERCK,
St. Franciskusspítala
í Stykkishólmi,
sem lést 24. mars, verður jarðsungin frá kapellu spítalans mið-
vikudaginn 30. þ.m. kl. 14.30. Bílferö verður til Stykkishólms frá
Landakoti i Reykjavík kl. 9.00 um morguninn og eru þeir sem
vilja notfæra sér hana, beðnir að gera prestunum í Landakoti
aðvart sem fyrst (sími 25619).
St. Franciskussystur á íslandi.
t
Ástkær eiginmaöur minn, sonur, faðir, tengdafaðir og afi,
JÓN EIRÍKSSON,
Klapparstíg 12,
Njarðvfk,
verður jarðsunginn frá Ytri-Njarðvíkurkirkju miðvikudaginn 30.
mars kl. 14.00. Þeir sem vildu minnst hins látna er bent á Krabba-
meinsfélag íslands.
Rannveig Guðmundsdóttir,
Sveinbjörg Ormsdóttir,
Eyrún Jonsdóttir, Magnús Daníelsson,
Halla Jónsdóttir, Böðvar Halldórsson,
Guðmunda Jónsdóttir, Guðmundur Ólafsson,
Sigrún Jónsdóttir, Eyjólfur Guðlaugsson
og barnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
JÓN HJÖRTUR JÓNSSON,
Hrafnistu,
áður Smyrlahrauni 5, Hafnarfirði,
verður jarösunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn 29.
mars kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hans er bent á Frikirkjuna í Hafnarfirði.
Guðrfður Einarsdóttir,
Esther Jónsdóttir, Gunnar Guðjónsson,
Einar Jónsson, Þóra Valdimarsdóttir,
Þórður R. Jónsson, Ásthildur Eyjólfsdóttir,
Hjördfs Guðbjörnsdóttir, Karl Grönvold,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
EINAR GUÐNI TÓMASSON,
Auðsholti,
verður jarðsunginn frá Skálholtskirkju laugardaginn 2. april kl. 14.00.
Ragnheiður Guðmundsdóttir,
SigríðurÁsa Einarsdóttir, Hörður Sigurjónsson,
Guðmundur Gils Einarsson, Jarþrúður Jónsdóttir,
Unnsteinn Einarsson, Guðrún Kormáksdóttir,
Vilborg Einarsdóttir, Magnús Karlsson
og barnabörn.
t
Útför eiginkonu minnar, móður okkar og tengdamóður,
SIGRÍÐAR ÞÓRÐARDÓTTUR,
Bárugötu 37,
verður gerð frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 30. mars kl. 13.30.
Blóm og kransar afþökkuö en þeir sem vildu minnast hennar láti
Krabbameinsfélagið njóta þess.
Karvel Sigurgeirsson,
Sigríður Karvelsdóttir, Jón Hilmar Jónsson,
Þór Magnússon, María Heiðdal.
t
Móðir mín, amma okkar og langamma,
SIGURLAUG JÓNSDÓTTIR,
sem andaðist á Hrafnistu 18. mars sl. verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju í dag, þriðjudaginn 29. mars, kl. 15.00.
Jón Hilmar Jónsson,
Hilmar Jónsson og fjölskylda,
Gunnar R. Jónsson og fjötskylda,
Jón Grótar Jónsson.