Morgunblaðið - 29.03.1988, Page 68
8861 SflAM ,é§ íílJOAatiUllHí ,<II(IAJðlíUOHOM
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1988
fclk í
fréttum
SKEMMTANIR
Alltvitlaust
á Hótel Islandi
Rokksýningin Allt vitlaust átti
ársafmæli í febrúar. Hún er í
þann veginn að slá öll met hvað
fjölda sýninga varðar, en þær eru
komnar á sjöunda tug. Allt vitlaust
var sýnd á Broadway fyrsta árið,
haldið var upp á afmæli sýningar-
innar í Sjallanum á Akureyri og hún
hefur nú verið flutt í Hótel ísland.
Leikmynd og lýsing á sýningunni
hefur verið aðlöguð aðstæðum á
Hótel íslandi og þar er nú rokkað
og tjúttað á föstudagskvöldum.
Allt vitlaust er mannmörg sýn-
.ing; um þrjátíu manna hópur tekur
þátt í henni. Söngvarar, dansarar
og hljómlistarmenn bregða upp
svipmyndum frá „gullöld rokksins",
árunum frá 1956 til 1962. Um
sextíu vinsæl lög frá þessu tímabili
eru tengd saman með einföldum -
og dálítið hugljúfum - söguþræði.
Sýningin er afurð samstarfs þeirra
Bjöms Bjömssonar, Gunnars Þórð-
arsonar og Egils Eðvarðssonar, en
saman mynda þeir fyrirtækið
Grínland.
„Við þremenningar völdum lögin
og sömdum handrit, kynningar laga
og söguþráð," segir Björn Bjöms-
son. „Svo skiptum við með okkur
verkum. Gunnar útsetti lögin og
stjómaði hljómsveitinni fyrsta árið,
Egill er leikstjóri sýningarinnar og
ég hannaði leikmynd og búninga.
Þessi sýning er það alskemmtileg-
asta sem við höfum fengist við, hún
er mjög hröð og fjörug. Við upplifð-
um þessa tónlist á sínum tíma, spil-
uðum allir í skólahljómsveitum.
Lögin sem flutt eru i Allt vitlaust
hafa svo verið á toppi vinsældar-
lista í gegnum tíðina."
Bjöm Bjömsson er nú yfírmaður
innlendrar dagskrárgerðar á Stöð
2. Hann stofnaði fyrirtækið Hug-
mynd ásamt Agli Eðvarðssyni árið
1980, eftir að hafa starfað við Sjón-
varpið í áratug og verið í lausa-
mennsku við sjónvarp, kvikmynda-
gerð og leikhús. Bjöm og Egilí ráku
Hugmynd í átta ár, en starfssvið
fyrirtækisins var kvikmynda- og
auglýsingagerð. Egill vinnur nú
meðal annars við dagskrárgerð fyr-
Söngvarar í Allt vitlaust eru þau Björgvin Halldórsson, Eiríkur Hauksson, Felix Bergsson
og Sigríður Beinteinsdóttir.
ir Sjónvarpið, þannig að þeir félag-
ar eru komnir í nokkurs konar sam-
keppni.
Gunnar Þórðarson er landskunn-
ur tónlistarmaður og á heiðurinn
af útsetningum laganna í Allt vit-
laust. Hann stjómaði sjö manna
hljómsveit sýningarinnar fyrsta
árið, eins og fyrr segir, en hefur
nú snúið sér að öðru. Þegar sýning-
in var flutt í Hótel ísland í síðasta
mánuði urðu töluverðar manna-
breytingar í hljómsveitinni, og að-
eins tveir af þeim sem spiluðu áður
halda áfram. Það em saxofónleikar-
amir Stefán Stefánsson og Rúnar
Georgsson. Bjöm Thoroddsen hefur
tekið við stjórninni af Gunnari,
Birgir Hrafnsson leikur á gítar,
Jóhann Ásmundsson á bassa, Kjart-
an Valdimarsson á hljómborð og
Þorsteinn Gunnarsson á trommur.
Dansarar í sýningunni eru yfir-
leitt fimmtán talsins og dálitlar
mannabreytingar hafa orðið í hópn-
um. Þeir koma úr Dansstúdíói Sól-
eyjar, Kramhúsinu og Dansskóla
Auðar Haralds. Ástrós Gunnars-
dóttir og Nanette Nelms sömdu
dansana en Sóley Jóhannsdóttir,
Sæmi rokk og Didda gáfu góð ráð.
Sagan sem tengir saman lögin í
J
Reuter
Hljómsveitarstjórinn Jose Tamayo, tenórinn Placido Domingo og
Juan Carlos Spánarkonungur gantast baksviðs.
Reuter
Soffía Spánardrottning spjallar við Domingo eftir sýningu í Madríd
í vikunni.
SPÁNN
Kóngur,
drottning
og Domingo
Tenórinn Placido Domingo söng
í „Antologia de la Zarzuela" í
Madríd síðastliðinn þriðjudag.
Verkið verður ekki flutt oftar í bili,
en þetta var sérstök uppfærsla á
vegum Rauða krossins. Spánarkon-
ungur, Juan ' Carlos, og Soffía
drottning voru viðstödd sýninguna
og heilsuðu upp á Domingo bak-
sviðs að henni lokinni.