Morgunblaðið - 07.04.1988, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 1988
3M
Diskettur
LÍFSTÍOAR ABYRGO
ÁRVÍK
AHMÚLI 1 - REYKJAVlK - SlMI 667222 -TELEFAX 667295
BV
Hcmd
lyfri-
vognor
Eigum ávallt fyrirliggjandi
i|' hinavelþekktuBV-hand-
lyftivagna með 2500
og 1500 kílóa lyftigetu.
UMBODS■ OG HEILD VEBSL UN
BÍLDSHÖFDA 16 SÍML6724 44
9^
eðaheilar
samstæour
Leitið upplýsinga
UMBODS OG HEILDVERSL UN
BÍLDSHÖFÐA 16 SIMI 6724 44
Atli Heimir Sveinsson
_____________Tónlist__________________
Jón Ásgeirsson
Sérstæðir tónleikar, eins konar „portrett"-
tónleikar, voru haldnir á Kjarvalsstöðum sl.
þriðjudag þar sem eingöngu var flutt tónlist
eftir Atla Heimi Sveinsson. Flutt voru fjögur
kammerverk og það elsta var frá 1976 og
nefnist Plutot blanche qu’azurée. Verkið er
samið fyrir klarinett, celló og píanó og voru
fljTtjendur Sigurður I. Snorrason, Amþór
Jónsson og Anna Guðný Guðmundsdóttir. Hér
mátti víða heyra fínlega mótuð blæbrigði hjá
flytjendum sem Atli er sérlega næmur á að
draga fram.
Annað verkið á efnisskránni var einleiks-
verk fyrir flautu er tónskáldið nefnir Tuttugu
og ein tónamínúta. Þættirnir em tuttugu og
einn að tölu og tekur hver þáttur því eina
mínútu í flutningi. Engin efnisleg tengsl eru
á milli þáttanna en hver fyrir sig er byggður
á mismunandi leiktæknibrellum er tengjast
breytilegum blæhugmyndum, sem tilgreindar
eru í nafngiftum kaflanna. Svo nokkur nöfn
séu nefnd Fuglatónar, Regntónar, Stormtón-
ar, Ástartónar og Næturtónar.
Martial Nardeau flautuleikari lék þessar
tónaleiks-„etýður“ mjög fallega en að upp-
færa þetta verk með tímavörslu truflaði undir-
ritaðan. Tímanákvæmni er engin nauðsyn
þegar um jafn fallega blæmótun er að ræða
eins og hjá Nardeau. Mótun blæbrigða er eitt
af því sem Atli leikur sérlega vel með en einn-
ig á hann til óvenjulega gamansemi sem birt-
ist vel í þriðja verkinu er hann nefnir Fant-
astic Rondos og byggt er á taktskiptum og
ýmsum tóntiltektum sem einkenna íslensk
rímnalög. Fantastic Rondos er bráðsmellið
verk og var vel leikið af þeim sömu og léku
fyrsta verkið, auk Odds Bjömssonar, básúnu-
leikara, er nú bættist í hópinn.
Síðasta verkið var svo kvintettinn langi,
Fimmhjóladrif, sem fluttur var fyrir stuttu á
tónleikum í Hamrahlíð og má láta þá umsögn
Atli Heimir Sveinsson
nægja er fylgdi þeim tónleikum. Blásarakvint-
ett Reykjavíkur flutti verkið einnig að þessu
sinni og hafa þeir félagar nú bætt inn ein-
staka nýjum atriðum í „revíu“-þáttinn, sem
gerðu mönnum gott, braut upp form verksins
á þægilegan hátt og kom hljómleikagestum
til að hlæja. Þama ástundar Atli í raun sams-
konar sjálfsgrín og Chaplin og Þórbergur
Þórðarson gerðu af miklu listfengi, með því
að gera góðlátlegt grín að yfírmáta alvarleg-
um heimsfrelsunarlistamönnum. í heild voru
þetta góðir tónleikar þar sem tónlistin spann-
aði mjög vítt svið og gaf skemmtilegt yfirlit
yfir kammerverk Atla Heimis Sveinssonar,
auk þess sem flutningur tónverkanna var vel
útfærður.
ri Jeep
Sigurvegari 4x4
bíla í Ameríku
afturog aftur
Jeep Cherokee og Wagoneer
bíll ársins 1984 og aftur 1987
Jeep Comanche
bíll ársins 1986
Jeep
EINKAUMBOÐ
Á ÍSLANDI
EGILL VILHJÁLMSSON HF.,
Smiðjuvegi 4, Kópavogi. Símar 77200 og 77202.