Morgunblaðið - 07.04.1988, Qupperneq 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 1988
félk í
fréttum
Nýlega fór Sean Penn meira segja í lögreglubúning, í nýjustu kvik-
mynd sinni Colors.
Gorbatsjoff víða vinsæll!
Penninn
fékk
útrás.....
Leikarinn ungi og hæfleik-
aríki, Sean Penn, er pirraður
yfir því að vcra meira þekktur
fyrir að vera eiginmaður söng-
konunnar Madonnu og einhver
skapstyggasti piltur sem búsett-
ur er á vesturströnd Banda-
ríkjanna. Hann þolir illa spenn-
una sem fylgir frægðinni og hef-
ur oft orðið laus höndin við Ijós-
myndara og fleiri sem eiga til
að verða nærgöngulir. Nýlega
sat hann meira að segja inni fyr-
^ir líkamsárás og þá rambaði
hjónabandið á barmi giötunnar
eins og marg var tuggið á sinum
tíma.
En fyrir skömmu gerðist það, að
Sean fékk kærkomna útrás fyrir
ofbeldishneigðina án þess að lög-
reglan gæti sagt múkk. Það atvik-
aðist þannig að hann kom í glæsi-
villu þeirra hjóna á Malibuströnd-
inni í Kalifomíu ásamt mági sínum
og þar gat að líta ófagra sjón.
„Hópur ungmenna hafði brotist inn
í slotið og sat þar að sumbli. Hafði
brotið allt og bramlað. Þegar þeir
féiagar komu að fólkinu varð uppi
fótur og fít og hinir óboðnu vildu
komast leiðar sinnar með góðu eða
illu. Hljóp þá mikið kapp í þá félaga
og kom til harðvftugra áfloga þar
sem vinimir tveir höfðu stórum
betur þrátt fyrir að vera mun færri.
Lumbruðu þeir svo duglega á geng-
inu og m. a. barði Penn einn ungl-
inginn í höfuðið með salatskál. Þeg-
ar drengimir lágu allir stynjandi í
valnum, hringdi Penn svo í pólitíið
sem kom og sótti lýðinn og tók
skýrslur. Segir sagan að Penn hafi
þótt það skrítin og skemmtileg til-
Hfinnig að vera ekki sjálfur handjárn-
aður og hent inn í lögreglubflinn.
að má með sanni segja að
síðasta ár hafi verið ár hins
nýja Sovétleiðtoga Michails Gor-
batsjovs. Hvar sem hann fór,
lÖgðu menn við hlustir um nýjar
stefnur og hugmyndir. Voru
menn yfirleitt á einu máli um
ágæti þeirra, en mistrúaðir á ein-
lagnina svona eins og gengur og
nú er beðið átekta eftir efndum.
Einhvers staðar var sagt, að ef
gefnar væri einkunnir til þeirra
sem ætluðu sér að stofna fyrir-
tæki, þá fengist bara eitt stig af
tíu fyrir að eiga góða hugmynd.
Tíu fengjust einungis fyrir full-
klárað dæmi. Samkvæmt þvi er
Gorbi aðeins kominn með einn
komma núll, eða kannski ögn
meira allt eftir prófdómaranum.
En margur metur það sem hann
hefur þegar gert, t. d. fréttablaðið
virta Time, sem valdi Gorba mann
ársins. Fleiri blöð og stofnanir hafa
gert slíkt hið sama. Margret Thatc-
her, járnfrúin sjálf var í öðru sæti
á eftir Sovétleiðtoganum hjá Tirne,
svo og víðar í samskonar kjöri. Á
einum ólíklegum stað höfnuðu þau
í sömu röð, þ. e. a.s. Gorby var
númer eitt, Thatcher númer tvö.
Það var í vaxmyndasafni Maddams
Tussauds í Lundunum. Nú verður
Margret að taka sig saman í andlit-
inu vilji hún skjóta Mikhail ref fyr-
ir rass.
Sovétleiðtoginn getur verið án-
ægður með móttökurnar á Vest-
urlöndum.
Sean Young
þakkar guði
velgengni sína
í frægri spennumynd, Blade Runn-
er, þar sem Harrison Ford var allt
f öllu. Ásamt Young stigu tveir stór-
kunnir leikarar sín fyrstu skref af
viti í umræddri mynd, Rutger Hau-
er, sem lék óvenju illskeytt vél-
menni, og Darryl Hannah. Sjálf lék
Young einnig vélmenni. Þrátt fyrir
að fremur lítið hafi farið fyrir henni
hefur hún þó leikið á móti Ford,
Kyle Maclachlan, Peter Strauss,
Kevin Kostner og Michael Douglas
í gegn um árin.
Sean Young segist lifa fábreyttu
og rólegu lífi. Hún á unnusta sem
nýtur nafnleyndar og hún segir
kviksögur um lauslæti af sínu hálfu
úr lausu lofti gripnar. „Ég ætla
ekki að verða AIDS að bráð,“ segir
hún og klikkir út með þeim orðum
að hún sé mjög trúuð og velgengni
sína eigi hún því að þakka að ein:
urð hennar sé guði þóknanleg. í
upptökunum á „Wall Street“ þar
sem Young fer með eitt af aðal-
hlutverkunum, kallaði einn mótleik-
ara hennar, Charlie Sheen, einurð
hennar smámunasemi.....
Sean Young þykir
afar falleg kona og
um það bera
myndirnar vitni.
Það voru fleiri heldur en
Kevin Kostner sem sköruðu
fram úr í hinni eftirminnilegu
spennumynd „No way out“. Vart
minni athygli vakti fremur lítt
þekkt leikkona sem heitir Sean
Young 28 ára gömul. Hafi hún
verið tiltölulega lítt þekkt, þá
dugar sú lýsing ei meir, því eft-
ir frumsýningu myndarinnar á
síðasta ári hefur hún vart getað
dregið andann fyrir tilboðum
úr öllum áttum. Eftir því sem
heimildir herma, er ungfrúin
langt því frá hefðbundin Holly-
wood-týpa og af þeim sökum og
öðrum talin líklegri en ella til
að láta ekki skjótfenginn frama
stíga sér til höfuðs og rústa öllu
á methraða.
Raunar hefur Sean Young áður
sést á hvíta tjaldinu, fyrst árið 1983
BINGO!
Hefst kl. 19.30 í kvöld
Aðalvinninqur að verðmæti
________100 bús. kr.
Heildarverðmæti vinninqa um
__________300 þús. kr._______
TEMPLARAHÖLLIN
Eiríksgötu 5 — S. 200/0