Morgunblaðið - 07.04.1988, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 1988
27
Eþíópía:
Starfsmenn hjálp-
arstofnana fluttir
frá átakasvæðum
Addis Ababa, Reuter.
ÖLLUM erlendum starfsmönnum
hjálparstofnana i Eþíópíu var í
gær gert að hafa sig á brott af
þurrkasvæðunum i norðurhluta
landsins. Að sögn kommúnista-
stjórnarinnar í Addis Ababa er
ástæðan sú, að ekki er hægt að
tryggja öryggi þeirra vegna vax-
andi umsvifa uppreisnarmanna í
Erítreu og Tigray. í tilkynningu
frá Hjálpar- og byggðastofnun
Eþiópiu sagði að þessi ráðstöfun
væri til bráðabirgða „þar til
glæpamenn á svæðinu hafa verið
upprættir og daglegt líf alþýðunn-
ar komið á réttan kjöl“. Erlendar
hjálparstofnanir voru hvattar til
þess að eftirláta Hjálpar- og
byggðastofnuninni aðstöðu sina
svo hægt væri að sinna hjálpar-
starf i á meðan ástand þetta varir.
Undanfamar sex vikur hafa fregn-
ir borist af stórsókn uppreisnar-
manna í norðurhluta Eþíópíu og
kommúnistastjómin hefur tilkynnt
enn frekari hervæðingu landsins
undir kjörorðunum „Allt til vígstöðv-
anna“.
Frelsisfylking Tigray (TPLF) til-
kynnti á þriðjudag að allt héraðið
væri nú á þeirra valdi utan höfuð-
borgin Mekele og tveir bæir suður
af henni. Frelsisfylking Erítreu
(EPLF) hefur einnig unnið umtals-
verða sigra að undanfömu.
Kommúnistastjómin, sem studd
er með ráðum og dáð af Sovétríkjun-
um, hefur ekkert viljað láta uppi um
gang mála á átakasvæðunum, en
samkomulag, sem gert var við Só-
malíu síðastliðinn sunnudag þykir
benda til þess að stjómin hafi aukn-
ar áhyggjur af stöðunni þar nyrðra.
Starfsmenn hjálparstofnana hafa til
þessa verið helstu boðberar
stríðsfrétta af hinum hijáðu svæðum.
Að sögn starfsmanna hjálpar-
stofnana hafa bardagamir í norður-
hluta landsins nær stöðvað neyðarað-
stoð til þriggja milljóna fómarlamba
þurrka, sem geisað hafa á þessum
slóðum að undanfömu. Talið er að
alls kunni sjö milljónir að þola hung-
ursneyð ef aðstoð berst ekki í tæka
tíð.
Panama:
Viðræður stjórnar-
andstöðu off Noriega
Ponomohnro Snnfn Rnrhnrn Rpntor
Panamaborg, Santa Barbara. Reuter.
MANUEL Noriega, hershöfðingi
og ráðamaður i Panama, hefur
fallist á að eiga viðræður við
stjórnarandstöðuna í landinu fyr-
ir milligöngu kirkjunnar. Banda-
ríkjastjórn hyggst grípa til nýrra
aðgerða í baráttunni fyrir því að
Noriega láti af völdum. 800
bandarískir landgönguliðar voru
sendir í gær til æfinga í Panama.
í tillkynningu frá kirkjunni sagði,
að Noriega hefði fallist á það við
Marcos McGrath erkibiskup að eiga
viðræður við stjómarandstöðuna en
beðið er eftir, að hann staðfesti það
bréflega. Þjóðlega borgarahreyfíng-
in, samtök 200 hópa, stjómmála-
flokka og annarra, sem berjast gegn
Noriega, og stjómarandstaðan á
þingi féllust á það í síðustu viku að
ræða við Noriega og gerðu það fyrir
orð Oscars Ariasar, forseta Costa
Rica, og Felipes Gonzalesar, forsæt-
isráðherra Spánar.
Guillermo Cochez, leiðtogi sam-
takanna og Kristilega demókrata-
flokksins, fagnaði í gær ákvörðun
Noriegas um viðræðurnar en lagði
áherslu á, að þær myndu fyrst og
fremst snúast um valdaafsal Norieg-
as sjálfs. Einnig tók hann fram, að
stjómarandstaðan viðurkenndi ekki
starfandi forseta, Manuel Solis
Palma.
Colin Powell, ráðgjafi bandaríska
þjóðaröryggisráðsins, sagði í gær,
að til athugunar væm efnahagsleg-
ar, hemaðarlegar og stjómmálalegar
aðgerðir til að koma Noriega frá
völdum og eftir öðmm embættis-
manni var haft, að Bandaríkjastjóm
vildi gera allt til að herinn í Panama
steypti Noriega. Dró embættismað-
urinn síðar í land með þessa yfírlýs-
ingu og sagði, að ekkert hefði verið
gert til að ýta undir herbyltingu í
Panama.
Bandaríska vamarmálaráðuneytið
tilkynnti í gær, að 800 landgöngulið-
ar hefðu verið sendir til Panama til
æfinga í frumskógarhemaði og tók
fram, að þessir liðsflutningar væm
ekkert tengdir ástandinu í landinu.
Svíþjóð:
Setið um mann
sem drap fé-
lagsráðgjafa
Gavle í Svíþjóð, Reuter.
SÆNSKIR lögregluþjónar sátu
um vopnaðan mann sem hafði
skotið félagsráðgjafa til bana og
sært þijá aðra eftir að hafa tapað
dómsmáli um yfirráðarétt yfir
ættleiddum syni á miðvikudag.
Talsmaður lögreglunnar sagði að
fímmtugur maður hefði komið inn í
félagsmálaskrifstofu bæjarins Gavle
og skotið á félagsráðgjafa sem hefðu
komið við sögu í máli hans. Lögregl-
an umkringdi íbúð mannsins í gær,
um hundrað lögregluþjónar lokuðu
svæðinu í kring og herþyrla var til
taks. Maðurinn sagðist vera vopnað-
ur dínamítsprengju, auk byssu. Einn
félagsráðgjafanna sem hann skaut
lést samstundis, annar særðist alvar-
lega og tveir lítilsháttar.
Reuter
Reuter
Jesse Jackson má hafa sig allan við eigi hann að
halda hlut sinum í kosningabaráttunni.
Dukakis vaxm sigur í Wisconsin og takist honum
að leika sama leik í New York á hann útnefningu
flokks síns vísa. Hér sést hann útbúa mjólkur-
skammt fyrir vistfólk á elliheimili í Milwaukee.
Forkosningar í Bandaríkjunum:
Dukakis vinnur stundar-
sigur, en úrslit ráðast
vart fyrr en í New York
Milwaukee, Reuter. ___________
MICHAEL Dukakis, ríkisstjóri
Massachusetts, er á ný orðinn
forystusauður þeirra demó-
krata, sem sækjast eftir útnefn-
ingu flokks síns til forsetafram-
boðs. Þá stöðu tryggði hann sér
með sigri í forkosningunum í
Wisconsin, en þær fóru fram á
þriðjudag. Blökkumannaleið-
toginn Jesse Jackson mátti á
hinn bóginn þola ósigur þar.
Atkvæði féllu þannig að Dukak-
is hlaut um 47% atkvæða, Jack-
son um 27%, Albert Gore um
17%, en Paul Simon rak lestina
með um 5% atkvæða.
Dukakis tapaði fyrir Jackson í
forkosningunum í Michigan hinn
26. mars síðastliðinn og hafði þar
áður lent í þriðja sæti í Illinois.
Eftir sigurinn á þriðjudag gerir
hann sér hins vegar vonir um að
verða fremstur meðal jafningja í
New York-ríki, Pennsylvaníu og
Ohio. Er það mál manna að sá
frambjóðendanna sem vinni í New
York megi heita næsta viss um
útnefningu flokksins. Forkosning-
ar í New York eru hinn 19. þessa
mánaðar.
„Vitaskuld er ég í sjöunda himni
vegna úrslitanna," sagði Dukakis
á fréttamannafundi í New York-
borg, en hinn mikli sigur hans kom
fréttaskýrendum nokkuð á óvart.
Forðast skítkast og
sameinast gegn Bush
Bæði Dukakis og Jackson hafa
heitið því að forðast persónulegar
árásir hvor á annan, en um leið
þykir mönnum ólíklegt að fram-
bjóðendunum takist að byggja upp
þá spennu, sem fréttaskýrendur
segja að demókratar þurfí svo
mjög á að halda eigi þeir að geta
lagt George Bush að velli þegar
Forkosningar í
Wisconsin
DEMÓKRATAR
Atkvæöa-
hlutfall
Dukakis 47%
Jackson 28%
Gore 17%
Simon 5%
(95% kjördeilda)
REPÚBUKANAR
Atkvæða-
hlutfall
Bush 84%
Dola 8%
Robertson 7%
(95% kjördeilda)
HEIMILD: Associated Press
KRGN / Morgunblaðifi / AM
til alvörunnar kemur í nóvember,
en Bush á útnefningu Repúblik-
anaflokksins vfsa.
í viðtali við sjónvarpsstöðina
CBS sagði Jackson að hann hefði
mun meiri áhuga á að sigra Ge-
orge Bush heldur en Dukakis.
„Barátta okkar snýst í raun ekki
um hvom annan. Hún snýst um
George Bush og við munum ekki
missa sjónar á aðaltakmarkinu."
Sigur Dukakis hefur róað
„flokkseigendafélag" demókrata,
því þeir vom famir að óttast að
Jackson kynni að hljóta útnefningu
flokksins, en myndi svo tapa sjálf-
um kosningunum allhressilega;
meðal annars vegna kynþáttafor-
dóma, en ekki síður vegna hinna
sérdeilis fijálslyndu skoðana hans,
sem menn telja að eigi ekki upp á
pallborðið hjá hinum almenna kjós-
anda. Hefur verið minnt á orð
Richards Nixons, fyrrverandi for-
seta, sem sagði að Jackson myndi
tapa kosningum fyrir nær hvaða
mótframbjóðanda sem væri — ekki
vegna þess að hann væri svartur
heldur vegna „þriðja heims-stjórn-
málaskoðana" hans, sem hann vildi
heimfæra upp á Bandaríkin.
Á brattann að sækja
fyrir Jackson í New York
Samkvæmt skoðanakönnunum,
sem gerðar hafa verið í New York,
hefur Dukakis talsvert forskot á
Jackson, en á hinn bóginn má
minna á að um fjórðungur at-
kvæðabærra demókrata í New
York eru negrar, sem ætla má að
styðji sinn mann. í Wisconsin fékk
Jackson um 25% atkvæða hvítra
manna og takist honum að halda
því hlutfalli í horfínu þegar leikur-
inn berst til New York á hann
ágæta möguleika á að bera sigur
úr býtum.
Það mun þó vafalítið spilla fyrir
Jackson, að í New York eru gyð-
ingar innan Demókrataflokksins
álíka margir og svertingjar. Gyð-
ingar hafa hom í síðu Jacksons,
bæði vegna stuðnings hans við
Frelsissamtök Palestínu (PLO) og
vegna þess að í kosningabarát-
tunni 1984 talaði Jackson um New
York sem ,júðabælið“.
Ekkert fær nú stöðvað George
Bush, varaforseta Bandaríkjanna,
en hann fékk um 87% atkvæða í
forkosningum repúblikana í Wis-
consin. Síra Pat Robertson fékk
aðeins um 8% atkvæða, sem er um
einu prósenti minna en Robert
Dole fékk, enda þótt hann hefði
hætt þátttöku í síðustu viku.
Vegna breytinga á versluninni höldum við stórútsölu
á Laugavegi 91 (áður Domus) 2. hæð.
Dæmi um verð: Síðbuxur allar stærðir kr. 1.000, pils kr. 1.000, ullarjakkar
kr. 1.500, sumarjakkar, blússur og bolir frá kr. 500.
Útsalan verður opin virka daga frá kl. 1 -6,
laugardagafrá kl. 10-2.