Morgunblaðið - 07.04.1988, Síða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 1988
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Veikleikar Meyjunnar
í dag ætla ég að fjalla um
veikleika Meyjarmerkisins
(23. ágúst-23. september).
Athygli er vakin á þvl að þó
hér sé sérstaklega Qallað um
veikleika, þýðir það ekki að
merkið búi ekki yfir mörgum
og góðum kostum. Einnig er
vert að geta þess að fyrst og
fremst er verið að tala um
mögulega veikleika sem hægt
er að yfírstíga og forðast.
Eftirfarandi á því ekki við um
alla í Meyjarmerkinu.
NeikvϚ
Einn helsti veikleiki Meyjar-
innar er fólginn í tilhneigingu
til að gagnrýna bæði sjálfa
sig og umhverfið. Það þýðir
að hún á til að vera heldur
neikvæð í viðhorfum. í sumum
tilvikum, sérstaklega ef Meyj-
an er þreytt eða illa fyrir köll-
uð, verður þetta að tuði og
nöldri, út í allt og ekkert.
Minnimáttarkennd
Það sem þó er einna verst
fyrir Meyjuna sjálfa má rekja
til gagnrýni, smámunasemi
og fullkomnunarþarfar. Það
er minnimáttarkennd og nei-
kvæð sjálfsímynd. Meyjan er
oft það kröfuhörð við sjálfa
sig að hún fyllist vanmáttar-
kennd. Ef verkið sem hún
hefur tekið að sér að leysa
er ekki fullkomlega gert verð-
ur hún óánægð. Þetta hindrar
Meyjuna einnig þegar lær-
dómur er annars vegar. Ef
hún gerir mistök í fyrstu þá
er ástæðan sú að hún hefiir
enga hæfileika, ekki sú að hún
þarf að læra og reka sig á, á
nýjum sviðum eins og aðrir.
Vanmat
Fullkomnunarþörf Meyjunnar
leiðir einnig oft til vanmats,
þess að hún gerir of lítið úr
sjálfri sér, lætur aðra ganga
framfyrir sig eða telur sig
ekki geta það sem hún er
fullfær um. Margar meyjar
þurfa að læra að slaka á og
varast að gera of miklar kröf-
ur.
Smáatriöi
Meyjan er skörp og eftirtekt-
arsöm og að öllu jöfnu
raunsæ. Henni hættir hins
vegar til að leggja of mikla
áherslu á smáatriði. Þetta
getur m.a. háð henni í vinnu
og samstarfí. Hvað varðar
vinnu á hún til að gera sér
störf erfíð með því að dunda
of lengi við smáatriði. í sam-
skiptum á hún til að láta
smáatriði í fari annarra fara
of mikið í taugamar á sér.
Smávægilegur kækur í fari
fólks getur þannig skyggt á
stóra mannkosti. Annar veik-
leiki Meyjunnar, sem varðar
samskipti, er að hún á til að
vera of afskiptasöm í garð
annarra, vera sífellt að gagn-
rýna, leiðrétta, segja öðrum
til og skipta sér af því sem
henni f raun kemur ekki við.
Það má segja að hana skorti
oft umburðarlyndi í garð ná-
ungans.
Aöal- ogaukaatriÖi
Einn veikleiki Meyjunnar er
sá að hún á til að sjá ekki
skóginn fyrir ttjánum. Hún á
til að festast í smáatriðum og
hengja sig á það sem ekki
skiptir máli. Þegar Meyjan er
að lesa stóra grein á hún t.d.
til að festa sig I einu orði.
Hún gerir því ekki alltaf
greinarmun á aðalatriðum og
aukaatriðum.
Fordómafull
Að lokum má geta hugsanlegs
veikleika sem er fólginn í trú
á hið jarðbundna og áþreifan-
lega. Það er að Meyjan á til
að vera fordómafull gagnvart
hugmyndum sem hún sjálf
hefur ekki kynnst eða getað
snert á.
GARPUR
LENGR/t KEMST pú EKKl MEÐ
M/G ... T/EJX, Hl/AR ER
GUC-L&Óf??/
GRETTIR
E£5 v/ElT UM Vi SPOAáSOKP SEAI |
KDNhJA AE> HJALPA PÉR. OPP ÚR. i
PONcSi-VNDINlJ '
JKJCA
STtNDUR. ER RETT TUfS\/ARÍ
'A SÓLARHRIN
‘ O, Fí2ÁBÆI?r..NÚ VAIO ÉG í
ALLA NÓTT TiL AE> fSEVNAj
/á& sotna í pessu
DYRAGLENS
Íp
I p,
pESSlR. EFTlie/MlE?-
VA6SLÚRAR ERjö
(fArAnle&ir .'
UOSKA
-2* Y
FERDINAND
pwnm ~T 171
|lg 7
‘ il
IIiEl 3
3o76
SMAFOLK
THE VET 5AIP WERE
60IN6 TO HAVE TO 5TART
WATCHIN6 VOUR PiET..
THAT5 EA5V FOR HIM TO
SAY.. HE POESN'T HAVE
TOEATINTHEME55 HALL
WITH THE TR00P5...
© 1987 United Feature Syndicate, Inc.
I AL50 HAP A LITTLE
TROUBLE EXPLAININ6
LUHV VOU UJERE WEARIN6
A HELMET ANP 6066LE5
CIV/ILIAN5 pont
UNPER5TANP ANVTHIN6'
l Ijí/f^/
y-30
Dýralæknirinn sagði að
við yðum að passa upp á
mataræði þitt...
Hann getur trútt um tal-
að ... ekki þarf hann að
éta með dátunum í mat-
salnum . . .
Ég átti líka i vandræðum Óbreyttir borgarar skilja
með að útskýra af hverju ekki neitt!
þú gengur með hjálm og
flugmannagleraugu.
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Flestum spilurum er skiljan-
lega meinilla við að fara með
„ás í bólið", en svo er það nefnt
þegar vömin missir af tækifæri
til að taka slag á ás, oftast með
því að dúkka einum of oft. Sum-
ir eru svo hræddir við þennan
draug, að þeir leggja niður ásana
sína við fýrsta tækifæri og segja
um leið, „ekki ætla ég að brenna
inni með þennan!" Slíkir spilarar
hefðu ekki hnekkt eftirfarandi
spili:
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♦ Á2
♦ KDG63
♦ D32
♦ 863
Vestur Austur
♦ KDG65 ......... ♦ 9874
♦ Á954 ♦ 872
♦ 76 ♦ 854
♦ K7 ♦ D109
Suður
♦ 103
♦ 10
♦ ÁKG109
♦ ÁG543
Vestur Norður Austur Suður
— — — 1 tígull
1 spaði 2 hjörtu Pass 3 lauf
Pass 3 spaðar Pass 4 lauf
Pass 4 tíglar Pass 5 tíglar
Pass Pass Pass
Útspil: spaðakóngur.
Setjum okkur nú í spor vest-
urs. Sagnhafí drepur fyrsta slag-
inn á ás blinds og spilar litlu
hjarta á tíuna. Austur lætur
tvistinn, sem sýnir þrílit.
Ef vestur er spilari með „ása-
innilokunarkennd" hvarflar ekki
einu sinni að honum að gefa
slaginn. Hann drepur, leggur
niður spaðadrottningu og spilar
sig út á trompi eða hjarta. Og
við það markast endalok vamar-
innar. Sagnhafí tekur trompin
og endar í blindum, fleygir svo
fjórum laufum niður í hjörtu
blinds.
Það er ekki erfítt að sjá þessa
stöðu fyrir. Því hefði vestur átt
að fóma hjartaásnum í þeirri von
að suður væri með tvo tapara á
lauf. Sagnhafí getur ekki mætt
þeirri vöm með því að taka tvisv-
ar tromp og spila laufás og
meira Iaufí, því vestur getur þá
skaðlaust spilað sig út á litlu
hjarta.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á alþjóðlega mótinu ! New
York um daginn kom þessi staða
upp í skák stórmeistaranna Al-
onso Zapata, Kólumbíu, sem
hafði hvitt og átti leik, og Levs
Alburts, Bandaríkjunum.
Hi
mm,
ífc A jk.
W l
1 A2
iK
ÉÍL
&
&
32. He5! - Bxe5 (Eða 32. -
Df3,33. d5! með hótuninni Hg5+)
33. dxe5 - Kh6, 34. Dh8+ o|
svartur gafst upp, því hann fæ
ekki varist máti. 19 ára gamal
Sovétmaður, Vas3ily fvantsjúk
sigraði mjög óvænt á mótinu
New York, hlaut 7'/2 vinning a
9 mögulegum og var vinningi j
undan næsta manni, Guiilermi
Garcia frá Kúbu.