Morgunblaðið - 07.04.1988, Síða 47

Morgunblaðið - 07.04.1988, Síða 47
47 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 1988 Grímur Engilberts ritstjóri-Minning Þeim fækkar nú óðum sem á fjórða áratugnum settu svip á bæj- arlífið í Reykjavík. Um það leyti er undirritaður kom til höfuðborg- arinnar frá sínum litla heimabæ og gerðist sendill á reiðhjóli hjá þekktu rafiðnaðarfyrirtæki í miðbænum, voru Kjarval og Steinn og Vilhjálm- ur í Skáholti jafn sjálfsagðir í Aust- urstræti og sjálft Pósthúsið og að jafnaldramir gengju í matrósaföt- um úr Braunsverslun eða Soffíubúð á hátíðum og tyllidögum. Þetta voru þeir tímar þegar kreppan margumtalaða þrúgaði líf landsmanna, stríð yfírvofandi í Evr- ópu og Hitler hét þrumandi ræður og kreppti hnefann, en Chamber- lane forsætisráðherra Breta veifaði regnhlífinni og lýsti yfir að friður væri tryggður um okkar daga. Langt í austri ríkti Stalín. Menn skiptust í flokka þá sem nú, en línumar vom skarpari í pólitíkinni, kommúnistar og nasistar fóm fræg- ar kröfugöngur 1. maí og það var slegist. Bömum bannað að fara í miðbæinn á svona dögum, enginn vissi hvað fyrir gat komið. Þetta og margt fleira rifjaðist upp þegar minnst er góðs vinar, Gríms Engilberts ritstjóra. Svona vom tímamir þegar hann var á mótunarskeiði, atvinnuleysi og landlæg fátækt. Lífsbaráttan var hörð. Hver og einn varð að hjálpa til við öflun lífsviðurværis. Hver sá sem hafði vinnu, enda þótt hún gæfi ekki ýkja mikið í aðra hönd, þótti hólpinn. Grímur fæddist á Njálsgötu 42 í Reykjavík hinn 19. maí 1912, fjórði sonur hjónanna Sigutjóns Grímssonar af Bergsætt og Birgittu Jónsdóttur frá Þurá í Ölfusi. Eldri bræður vom Bjami, Sigursteinn og Jón. Húsráðendur á Njálsgötu 42 vom mikið dugnaðar- og ráðdeild- arfólk. Heimilið mitt á milli fátækt- ar og bjargálna. Þess er áður getið að línumar í stjómmálunum vom skarpar og átökin á ritvellinum hörð og það vom þau einnig þar sem tekist var á um kaup og kjör. Menn skipuðu sér í sveitir lengst til hægri og lengst til vinstri. Grímur gerðist harður vinstrimað- ur, með því gæti hann best lagt lítil- magnanum í þjóðfélaginu lið. Hann starfaði um árabil með ýmsum þeim mönnum sem vom leiðandi á vinstri væng stjómmálanna og hafði þar varanleg áhrif. Þar kom þó að hann hætti afskiptum af stjómmálum, enda þótt hann fylgdist grannt með því sem fram fór á vettvangi þjóð- mála. Árið 1930 hóf Grímur prentnám í ríkisprentsmiðjunni Gutenberg, sem þá var til húsa við Þingholts- stræti. Námið sóttist vel því ungi maðurinn var duglegur og greindur vel. Á þessum ámm vom berklar landlægir. Grímur veiktist, senni- lega vegna smits á vinnustað. Hann átti við þennan erfiða sjúkdóm að stríða um nokkum tíma, en náði síðar fullum bata. Vegna færni í starfí og reglusemi var Grími ung- um falin verkstjóm í setjarsal og því starfí gegndi hann lengi. Árið 1956 gerðist Grímur rit- stjóri bama- og unglingablaðsins Æskunnar. Þetta aldna og virðu- lega blað dafnaði vel undir stjórn hans, ferskleiki og nýjar hugmyndir vom alls ráðandi á síðum þess og Qöldi áskrifenda óx jafnt og þétt. Fyrstu árin sem Grímur var rit- stjóri Æskunnar var hann jafn- framt enn verkstjóri í setjarasal prentsmiðjunnar Gutenberg. Að sinna þannig tveim umfangsmiklum og vandsömum störfum samtímis er afrek sem fáir leika eftir. Þar kom að ritstjórinn varð ein- göngu ritstjóri, gerðist starfsmaður Stórstúku íslands. Enda þótt þeir sem þekktu Grím vissu hve góður og mikilvirkur blaðamaður hann var, kom hugkvæmni hans og fersk- leiki í ritstjóm blaðsins mörgum á óvart. Hann innleiddi nýja nútíma- lega þætti sem undantekningalaust höfðuð til ungu lesendanna jafnt sem þeirra eldri og Æskan, þessi uppáhaldsgestur heimilanna í landinu um áratugi, blómstraði sem fífill í túni. Það var ekki einungis að efnistök Gríms á blaðinu væm á þann veg að afla Æskunni vinsælda. Hitt vissu færri að hann vann þama margra manna verk, með því að skipuleggja blaðið út í ystu æsar. Próf. Þorbjörn Sigur- geirsson — Kveðjuorð Mig langar í örfáum orðum að minnast þess mikilhæfa heiðurs- manns, Þorbjöms Sigurgeirssonar, sem kvaddur var í gær. Við kynnt- umst við heldur óvanalegar aðstæð- ur, í eldgosinu í Heimaey 1973. Þorbjöm átti, eins og heimsfrægt varð, hugmyndina og fmmkvæðið að því, að vatnskælingu hrauns var beitt til vamar höfn og byggð á Heimaey og var það í fyrsta sinn í veraldarsögunni sem vatnskæl- ingu var beitt til að hafa áhrif á rennslisstefnu hrauns. Hugmyndina setti Þorbjöm fram á allra fyrstu dögum gossins og var hún fyrst reynd með tiltölulega litl um dælum slökkviliðs Vestmanna- eyja. Árangurinn var strax augljós. Síðan var dælum fjölgað eftir föngum og með sívaxandi árangri. Allan tímann sem gosið stóð vann Þorbjöm nótt með degi að því að fylgjast með hraunstraumnum frá eldstöðvunum og við að ráðleggja hvemig tiltæku dæluafli skyldi beitt á hveijum tíma. Hann unni sér aldr- ei hvfldar og mörgum fannst hann oft hætta lífi sínu úti á rennand: hrauninu. Með þessu gaf Þorbjöm björgun- armönnum stórtækt vamarvopn í hendur sem breytti vonlítilli vöm í öfluga sókn áður en yfír lauk. Það er sannfæring mín og ann- arra sem vel hafa kynnt sér málin, að án þessara aðgerða væri byggð í Vestmannaeyjum nú aðeins svipur hjá sjón. Innsiglingin, mikill hluti hafnarinnar og mestur hluti mið- bæjarins hefði fyllst af hrauni. Eftir gos vann svo Þorbjöm ötul- lega að því að fínna ráð til að nýta hitann í hrauninu til upphitunar bæjarins. Ifyrir allt þetta standa Vest- manneyingar og þjóðin öll í mikilli þakkarskuld við Þorbjöm Sigur- geirsson. Blessuð sé minning hans. Ég sendi aðstandendum hans mínar innilegustu samúðarkveðjur. Magnús H. Magnússon Umbrot var svo nákvæmt að þegar til prentsmiðjuvinnunnar kom þurfti vart að breyta nokkurri línu. Þegar svo fagmannlega er að verki staðið verður setning og umbrot fljótlegra og ódýrara en ella. Með þessari miklu nákvæmnisvinnu, sem að vemlegu leyti var unnin heima á kvöldum og frídögum, sparaði rit- stjórinn útgáfunni mikla íjármuni. Það var á fyrstu ritstjómarárum Gríms að samstarf okkar hófst. Við efndum til verðlaunagetrauna í Æskunni, þar sem fyrstu verðlaun vom utanlandsferðir með Flugfé- lagi Islands, en aukaverðlaun flug- ferðir innanlands og bækur. Með þessa verðlaunahafa fómm við Grímur víða um Evrópu og Ameríku. Myndir og frásagnir birt- ust síðan í blaðinu. Þátttaka í verð- launagetraunum var mikil og ýmis ungmenni sem hlutu utanlandsferð héldu tryggð við Grím í mörg ár. í skrifum Gríms Engilberts og því efni sem hann tók til birtingar í Æskunni kom glöggt í ljós hve annt hann lét sér um hina upp- vaxandi kynslóð. Að hafa gott fyrir bömum, segja þeim sögur sem laða hið jákvæða fram í mannssálinni. Ég vissi að honum sárnaði þegar yngri bókmenntasnobbar af vinstri vængnum veittust að þessum rit- stjómarstíl. Hann lét það hins veg- ar ekki á sig fá og hélt uppeteknum hætti með mannbætandi lesefni í blaðinu. Annar ríkur-þáttur í fari Gríms Engilberts var kímnigáfa. Hann gerði óspart grín að sjálfum sér og öðrum, sagði sögur sem vom ógleymanlegar. Hann var manna glaðastur í góðra vina hópi, eftir- herma svo af bar og maður fór allt- af í góðu skapi af fundi hans. Ég hefí aldrei þekkt mann svo gjörsam- lega lausan-við snobb og höfðingja- dýrkun sem Grím. í hans augum vom allir jafnir, manngildið var það sem gerði einn öðmm meiri. Grímur Engilberts kvæntist hinn 4. apríl 1944 eftirlifandi konu sinni, Lauf- eyju Magnúsdóttur Engilberts, mik- ilhæfri konu og mikilla mannkosta. Þau eignuðust einn son, Birgi Engilberts rithöfund og leikmynda- smið. Laufey dvelur á sjúkrahúsi í þann mund er þessar línur em fest- ar á blað, hefír eins og Grímur átt við vanheilsu að stríða nú um hríð. Það ertil marks um samhekini þess- arar fjölskyldu og fágæta fórnar- lund, að þegar þau hjón misstu heilsu með stuttu millibili, tók Birg- ir sonur þeirra frí frá störfum í Þjóðleikhúsinu til þess að annast þau og hjúkra heima á Njálsgötu 42. Grímur lést hinn 15. mars sl. Hafði verið á sjúkrahúsi en komið heim til stuttrar dvalar. Hann lagði upp í þá ferð sem okkur öllum er búin frá æskuheimilinu, sem var heimili hans alla tíð. Við minnumst góðs vinar, mikils mannkostamanns. Við María, synir okkar og fjölskyldur þeirra sendum Laufeyju og Birgi dýpstu samúðar- kveðjur. Sveinn Sæmundsson Talaðu við ofefeur um eldhústæki Gódan daginn! iáLLEITSTOlLá 4ra vikna vornámskeið hefst 25. apríl. Fjölbreytt og skemmti- legt kerfi fyrir alla aldurshópa (yngst4ára). Innritun og upplýsingar í síma 25620 kl. 15-16. k\ Ballettskóli A. # Eddu ^ Scheving Skúlatúni 4

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.