Morgunblaðið - 07.04.1988, Blaðsíða 60
upplýsingar
£ uju vörur og
þjónustu.
bl ^
ttrgttttfrlnfetfe
WRIGIEY’S
FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 1988
VERÐ I LAUSASOLU 60 KR.
Fundi fulltrúaráðs KÍ fram haldið í dag:
Aðger ðum frest-
að til hausts?
EKKI fékkst niðurstaða á 8
klukkutíma löngum fundi fulltrú-
aráðs Kennarasambands íslands
í gær um frekari aðgerðir í lyara-
málum. Fundinum var frestað
skömmu eftir miðnættið og verð-
ur haldið áfram kl. 13 I dag.
Verði kosið á ný um boðun verk-
falls nú kæmi það til fram-
kvæmda eftir um það bil þijár
vikur. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins er einnig rætt
um að fresta slíkum aðgerðum
til haustsins.
“ Svanhildur Kaaber formaður KI
sagði við Morgunblaðið eftir fundinn
að miklum tíma hefði verið varið í
að ræða um úrskurð kjaradóms en
hann komst að þeirri niðurstöðu að
verkfallsboðun KÍ 11. apríl væri
ólögleg. Svanhildur sagði það al-
menna skoðun í fulltrúaráðinu að
hlýta beri þessum dómi þótt fulltrú-
aráðið telji að allra formsatriða hefði
verið gætt við boðun verkfallsins.
í yfírlýsingu frá fulltrúaráðinu
segir að af dómskjölum Félagsdóms
virðist mega ráða að ef verkfalls-
boðunin hefði ekki verið dæmd ólög-
mæt hefði verið 'fundið að því að
atkvæðagreiðslan hefði ekki verið
leynileg. Sú aðdróttun snúi ekki ein-
göngu að KÍ heldur sé þar vegið
að öllum félögum opinberra starfs-
manna sem falli undir lög um kjara-
samninga opinberra starfsmanna.
Ríkisvaldið hafi með þessu gengið
enn lengra en áður í hártogunum
og orðhengilshætti.
Gutenberg og Sementsverksmiðjan:
Ríkisfyr irtæki
að hlutafélögum
NÝ stjómarf rumvörp um
Sementsverksmiðju ríkisins og
Rikisprentsmiðjuna Gutenberg
em væntanieg á Alþingi innan
skamms. Samkvæmt þeim skulu
þessi ríkisfyrirtæki gerð að
hlutafélögum. Verða allar eignir
þeirra lagðar til hinna nýju
hlutafélaga, en öll hlutabréf i
þeim skulu vera eign rikissjóðs
við stofnun þeirra og fer iðnað-
arráðherra með umráð hluta-
bréfana.
y
í núverandi lögum um Sements-
verksmiðju ríkisins er kveðið á um
skattgreiðslur verksmiðjunnar, en
þau ákvæði eiga að falla niður,
þannig að verksmiðjan greiði skatta
eins og önnur hlutafélög. Hlutdeild
Akraneskaupstaðar í landsútsvari
Sementsverksmiðju ríkisins miðað
við árið 1987 verður rúmar 4 millj-
ónir króna en alls greiðir verksmiðj-
an 11,5 milljónir króna í landsút-
svar. Ef verksmiðjan greiddi að-
stöðugjald, myndu tekjur Akranes-
kaupstaðar af verksmiðjunni verða
meiri eða um 7 milljónir króna
Sjá nánar Viðskipti/atvinnulíf
bls. Cl.
*
Islenskir
tómatar
aðkomaá
markaðinn
Svðra-Langholti.
íslenskir tómatar eru að
koma á markaðinn um þessar
mundir. Kari Gunnlaugsson
garðyrkjubóndi á Varmalæk í
Hrunamannahreppi sendi
fyrstu tómatana á markað
skömmu fyrir páska en það
mun ekki hafa gerst áður hér
í sveit að tómatar hafi verið
sendir á markaðinn í marsmán-
uði.
Uppskeran er almennt um það
bil viku fyrr á ferðinni nú en í
fyrra. Að sögn Guðmundar Sig-
urðssonar, garðyrkjubónda á Ás-
landi í Hrunamannahreppi, er
þess þó ekki að vænta að full
afköst náist fyrr en um næstu
mánaðamót. Enn sem komið er
hafa aðeins verið seldir 12 kass-
ar, 72 kíló, á grænmetismarkaði
Sölufélags garðyrkjumanna en
þess er að vænta að framboðið
aukist eftir því sem líður á mánuð-
inn- Sig.Sigm.
Morgunblaðið/Sig. Sigm.
Karl Gunnlaugsson garðyrkju-
bóndi á Varmalæk í Hruna-
mannahreppi með kassa af
nýtíndum tómötum úr gróður-
húsi sínu.
VR boðar verkfall í matvöruverslunum:
20 stórmarkaðir og alls
100 vinnustaðir lokast
Trúnaðarmannaráð Verslun-
armannafélags Reykjavíkur
samþykkti í gær einróma að
boða til vinnustöðvunar í stór-
mörkuðum og matvöruverslun-
um á félagssvæði VR frá og
með fimmtudeginum 14. apríl
hafi samningar ekki tekist fyrir
þann tíma. Ef til verkfalls kem-
ur gæti það lokað um 20 stór-
mörkuðum og stærri verslunum
og um 80-100 vinnustöðum alls.
Fundur var haldinn hjá ríkis-
sáttasemjara í gær milli samn-
inganefnda VR og vinnuveit-
enda.
Ekkert þokaðist í samkomulags-
átt á fundi samninganefnda VR
r
Keflavík:
Maður skorinn á háls
Komst af sjálfsdáðum á sjúkrahús og er úr lífshættu
Keflavfk.
UNGUR maður var um tíma í
lífshættu í gær eftir að hafa
verið skorinn á háls af félaga
sinum. Maðurinn, sem er bú-
settur I Keflavík, gekkst undir
aðgerð í Borgarspítalanum í
gær og er nú talinn úr
lífshættu. Tvítugur félagi
mannsins sem er grunaður um
verknaðinn situr nú í gæslu-
varðhaldi í Keflavík.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar átti atburðurinn sér
stað á sjötta tímanum í gærmorg-
un á heimili mannsins sem fyrir
árásinni varð. Hann komst af
sjálfsdáðum í Sjúkrahúsið í
Keflavík þar sem honum var veitt
fyrsta hjálp og síðan var maður-
inn fluttur í gjörgæsludeild Borg-
arspítalans í Reykjavík þar sem
hann er nú.
Skömmu síðar kom annar
maður í Sjúkrahúsið í Keflavík
til að leita aðstoðar vegna áverka
á höndum og játaði hann síðan
við yfírheyrslu að hafa veist að
félaga sínum með hníf. Ekki voru
öll kurl komin til grafar í málinu
í gærkvöldi þar sem ekki hafði
verið hægt aó yfirheyra þann sem
fyrir árásinni varð, en talið er
fúllvíst að mennirnir hafí verið
undir áhrifum fíkniefna þegar
atburðurinn átti sér stað.
BB
og vinnuveitenda hjá ríkissátta-
semjara á þriðjudag, að sögn
Magnúsar L. Sveinssonar, form-
anns VR. „Ég vona það nú að við
náum samningum án þess að til
verkfallsins komi, en það var ekki
um neitt annað að ræða en að
boða verkfall,“ sagði Magnús.
„Það var samþykkt á félagsfundin-
um þann 24. mars si. að beina til
trúnaðarmannaráðsins að það boð-
aði verkfall til að knýja á um frek-
ari samningagerð."
„Það sem virðist brenna heitast
á fólki er vinnutíminn í verslunum,
sem er mjög slæmur," sagði Magn-
ús. „Það er ekki bara spuming um
lengd vinnutímans, heldur hvenær
unnið er; margt fólk verður að
vinna öll kvöld. Til viðbótar þessu
eru hin lágu laun og óánægja með
afgreiðslutímann."
Magnús E. Finnsson, fram-
kvæmdastjóri Kaupmannasam-
taka íslands, sagði að verkfallið
myndi hafa alvarleg áhrif. Afkoma
matvöruverslana hefði versnað á
síðustu árum vegna harðnandi
samkeppni og þær þyldu ekki
langa stöðvun. Magnús sagði að
langflestar matvöruverslanir á fé-
lagssvæði VR myndu loka vegna
verkfallsins, ef til þess kæmi, en
nokkrar verslanir væru þó reknar
af eigendum og fjölskyldum þeirra,
og væri þeim heimilt að hafa opið.
Bandaríkjamarkaður:
Undirboð á
eldislaxi
UNDIRBOÐ virðast vera í gangi
á íslenskum eldislaxi í Banda-
rikjunum þessa dagana og að sögn
Geirs Rögnvaldssonar hjá Sölu-
stofnun lagmetis eru dæmi um að
íslenskur lax sé seldur á lægra
verði en kanadískur lax.
íslenskur eldislax hefur verið seld-
ur fyrir svipað verð og norskur lax,
eða á um 4,45 dali pundið fyrir 4-6
punda lax. Nú munu vera dæmi þess
að íslenski laxinn sé boðinn á 30-40
senta lægra verði fyrir pundið.
Geir Rögnvaldsson sagði við
Morgunblaðið að þetta hefði eðlilega
mjög slæm áhrif á kaupendur og
gæti orðið til þess að þeir þyrðu aldr-
ei að kaupa íslenskan lax nema á
lægsta verði því þeir treystu ekki
íslenskum framleiðendum til að vera
ekki með undirboð. Auk þessa gætu
undirboðin haft þau áhrif að íslenski
laxinn yrði ósjálfrátt flokkaður í
sama gæðaflokk og sá kanadíski.