Morgunblaðið - 14.04.1988, Blaðsíða 13
SI
88eí JÍH'ÍA .fel flUOAQUTMMIfl .UKíAJflHUOflOM
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 1988
13
JL húsið, H ringbraut 121. Reykjavík
Heimilistæki sf.;Sætúni, Reykjavík
Hagkaup, Skeifunni, Reykjavík
Hagkaup, Kringlunni, Reykjavík
HaukurogÓlafur.Ármúla 32, Reykjavík
Búbót, Nýbýlavegi 24, Kópavogi
Rafha hf, Lækjargötu, Hafnarfirði
Stapafell hf., Kcflavík
Versl. Bára, Grindavík
Rafþjónusta Sigurdórs, Skagabraut 6, Akranesi
Húsprýði, Borgamesi
Kaupfélag Borgfirðinga, Borgarncsi
Blómsturvellir, Hellissandi
Húsið, Stykkishólmi
Versl. EinarsStefánssonar, Búðardal
KaupfélagSaurbæinga, Skriðulandi, Dalasýslu
vrsA
Póllinn hf., ísafirði
Versl. EinarsGuðfmnssonar, Bolungarvík
Vcrsl. Sigurðar Pálmasonar, Hvammstanga
KaupfélagHúnvctninga, Blönduósi
Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðákróki
Rafsjá hf., Sauðárkróki
Kaupfélag Eyfirðinga, Akureyri
Rafland hf., Sunnuhlíð, Akureyri
Grimurog Ámi, Húsavik
Versl. SveinsGuðmundssonar, Egilsstöðum
Ennco sf., Neskaupsstað
Mosfcll sf, Hellu
VöruhúsKÁ.Selfossi
Rás, Þorlákshöfn
Kjarni, Vestmannaeyjum
HEIMILIS- OG RAFTÆKJADEILÐ
HEKIA HF
LAUGAVEGI 170-172 Simi 695550
Ol PUNGIS
hún er með berkla og á skammt
eftir ólifað. En hún tekur dauða
sínum ekki með harmi heldur gleði
því hún veit að hún mun fljótlega
sameinast drottni sínum á himnum.
Hún hélt dagbók, sem lýsti vel hinni
ástríku stúlku en hún var gefín út
eftir lát hennar og árið 1925 var
Teresa tekin í heilagra manna tölu.
Fyrir utan hina sérstöku sögu
Teresu er það aðferðin, sem leik-
stjórinn Cavalier beitir til að segja
hana, sem gerir hana eftirminni-
lega. Aðferðin fellur fíma vel að
efniviðnum. Myndin er öll tekin i
upptökuveri með sama grámósku-
lega vegginn í bakgrunni. Sviðið
er ekki afmarkað með neinu, sviðs-
myndin er nauðaeinföld og fábrotin,
eitt rúm eða stóll nægir, andlit fylla
uppí tjaldið lýst brúnleitum tónum,
mjúkum eins og flauel. Frásögnin
læðist að manni eins og hvísl, byggð
á svipmyndum sem birtast úr
myrkrinu og hverfa í það aftur eins
og maður lokar augunum, sumar
fá andartakslíf en deyja strax aftur
svo maður hefur varla tíma til að
skoða þær, aðrar lifa lengur.
Stærsti sviðsbúnaðurinn er stóreflis
trégrind sem skilur gesti klausturs-
ins og nunnumar og er táknræn
fyrir einangrun nunnanna.
Allur hinn myndræni fábreyti-
leiki er í stíl við hreinleika og ein-
faldleika nunnanna og klausturlífs-
ins. Myndin er gersneydd íburði og
veraldiegum gæðum, hún er eins
fábrotin og stílhrein og nunnu-
klæðnaðurinn. Það tala allir í lágum
hljóðum og þögnin undirstrikar enn
frekar samlíkinguna við klausturlíf-
ið.
En það er enginn sérstakur hátí-
ðleiki ^rfír myndinni. Þvert á móti
lýsir hún klausturlífinu, þar sem
„fyrstu þrjátíu árin eru erfíðust", á
afar mannlegan og „sjarmerandi"
hátt. Nunnumar eru ekki síbiðjandi
strangar á svip og sneyddar per-
sónulegum tilfinningum heldur
elskulegar og vinalegar og þær eru
kátur hópur þegar þær fá að tala
saman. Þær em eins og hverjar
aðrar konur nema hvað eigin-
maðurinn er Jesús.
Þessi kyrrláta mynd Cavaliers
er Teresu sannarlega fallegur minn-
isvarði.
Frönsk kvikmyndavika
TERESA
Kvlkmyindir
Arnaldur Indriðason
Teresa. Leikstjóri: Alain Cavali-
er. Handrit: Alan Cavalier og
Camillie de Casablanca.
Franska kvikmyndin Teresa var
sýnd á franskri kvikmyndaviku í
fyrra og á Kvikmyndahátíð Lista-
hátíðar sl. haust. Hún er einnig
sýnd á franskri viku í Regnbogan-
um í ár og í tilefni þess birtist hér
útdráttur úr umsögn um hana í
Morgunblaðinu frá í haust.
Teresa, eftir Fransmanninn Alain
Cavalier, er kvikmyndalegur við-
burður, ekki vegna stórkostlegra
sviðsmjmda heldur lítillar sem engr-
ar sviðsmyndar, ekki vegna epískra
viðfangsefna heldur ljóðrænna svip-
mynda, ekki vegna ærandi hávaða
heldur ljúfrar þagnarinnar, ekki
vegna ljótleikans heldur fegurðar-
innar.
Hún segir sanna sögu nunnunnar
Teresu, sem var svo innblásin af
ást á Jesú Kristi og vilja til að
hjálpa mannkyninu með bænum
sínum, að hún ákvað að giftast
honum og ganga í klaustur hinna
ströngu Karmelítununna. Það má
vera að hún sé of ung og veikbyggð
til að þola harðræðið í klaustrinu
og hún verður að leita til páfans í
Róm til að fá leyfí til að ganga í
klaustrið en þangað kemst hún al-
sæl þar sem hún á tvær systur fyrir.
Teresa hin unga á ekki langt líf
fyrir höndum. Það kemur í ljós að
Gaddur í Öxarfirði;
Fyrstu skóg-
arþrestirnir
ráðþrota
í snjónum
Skinnastað, öxarfirði.
AU ST AN v onskuveður með skaf-
byl var i Öxarfirði i gær. Kulda-
veðrátta hefur verið i Öxarfirði
það sem af er aprílmánuði. Jörð
er alhvít flesta daga og frost
hart, oft átta til tiu gráður um
daga og meira um nætur. Er
þetta einstaklega kaldur og
veðrasamur aprílmánuður. Mars
var einnig fremur kaldur og sól-
arlítill, jörð oftast alhvít.
Krökkt er af ijúpu í skógarkjarri
og virðist bjargarlítil. Fyrstu skóg-
arþrestir sáust að Skinnastað 5.
apríl og virtust ráðþrota í snjónum.
Færð á vegum er oftast sæmileg
og oftast fært allt frá Akureyri til
Þórshafnar, nema Víkurskarð,
Tjömes og Hálsar í Þistilfírði tepp-
ast dag og dag í vondum veðrum.
Bændur bíða nú sauðburðar og
hafa sauðfé á gjöf.
Sigurvin
IIMUUrNCT
GESTAKENNARI
FRÁSAN FRANCISCO
GARÐABÆR BREIÐHOLT HAFNARFJÖRDUR
6 vikna námskeið hefjast 18. apríl.
Byrjenda- og framhaldsflokkar
(frá 7 ára aldri).
Minnum einnig á okkar vinsælu
leikfimi- og erobiktíma (með áherslu á maga, rass og læri)
og stöðvaþjálfun fyrir karla 30 ára og eldri.
LIÓSABEKKIR .... —NUDDPOTTUR
DANSSTIÍDÍÓ
DISU
OANSNEISTINN
Smiðsbúð 9, Garðabæ
rétt við nýju Reykjanesbrautina. Félagi í F.I.D.
oeótfI
KENWOOD C«
UMBOÐSMENN KENWOOD UM LAND ALLT: