Morgunblaðið - 19.04.1988, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988
Aðgerðir Greenpeace í Luxemburg:
Hefur ekki haft áhrif
á afkomu Flugleiða
„VIÐ getum ekki merkt að að-
gerðir hvalavina hér í Luxem-
borg hafi haft áhrif á afkomu
Flugleiða," sagði Einar Aakrann,
stöðvarstjóri Flugleiða í Lux-
emburg, en Greenpeace samtök-
in hafa haft sig nokkuð í frammi
þar í landi að undanförnu og
rekið áróður gegn hagsmunum
íslendinga og þar með Flugleiða.
Síðastliðinn laugardag voru sam-
Miðhúsum, Keykhólasveit.
Á BÆNUM Múla f Gufudalssveit
er sauðburður f fullum gangi og
er Magnús Helgason bóndi þar
með 360 fjár. Eru um 90 ær born-
ar og er um 90% tvílembt. Sam-
kvæmt viðtali við Magnús gengur
sauðburðurinn vel, en hann hefur
nóg og góð hús fyrir sauðfé sitt.
Magnús sagði að á föstudagskvöld
tökin með mótmælaaðgerðir í
flugstöðinni f Luxemborg, en
aðgerðirnar stóðu stutt og beind-
ust aðallega að farþegum, sem
voru að koma frá Islandi með
Flugleiðavél.
Að sögn Elínar Hansdóttur,
fréttaritara Morgunblaðsins í Lux-
emborg, sem kom með vélinni
frá íslandi þennan dag, höfðu Gre-
enpeace-samtökin strengt borða
hefði rafmagnið farið og hefði hann
orðið að sinna fénu við vasaljós. Við-
gerðarmenn komu frá Búðardal og
var rafmagnið komið um hádegið á
iaugardag. Eins og er er ófært að
Múla en til stóð að opna veginn á
þriðjudag. Magnús er með kýr fyrir
heimilið og er svo heppinn að þær
eru nýbomar svo nóg er af mjólk
og nóg að gera. Sveinn
eftir flugstöðvarbyggingunni þar
sem á var letrað „Ferðist ekki með
Flugleiðum því að þeir drepa hvali".
Eins var búið að koma fyrir upp-
blásnum hval á þaki byggingarinn-
ar. „Þetta var vægast sagt óvenju-
leg aðkoma því að svona aðgerðir
eru mjög fátíðar hér í Luxemborg,"
sagði Elín. Hún sagði að Green-
peace-samtökin hefðu að undanf-
ömu sent íslendingum, búsettum í
Luxemborg, bréf þar sem vakin er
athygli á baráttu samtakanna gegn
hvalveiðum íslendinga.
Einar Aakrann, stöðvarstjóri
Flugleiða, sagði að aðgerðimar á
laugardag hefðu varað í um það
bil tvær klukkustundir, eða á meðan
farþegar í Luxemborg komu til
brottfarar og þangað til vélin var
aftur farin áleiðis til íslands. Hann
sagði að Flugleiðir hefðu borið fram
kvörtun við þarlend yfirvöld, sem
fara með stjóm flugstöðvarinnar,
og skömmu síðar hefðu Greenpe-
ace-menn verið horfnir á braut með
allt sitt hafurtask.
Gufudalssveit:
90% tvílembt á Múla
VEÐUR
9
ÍDAGkl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa islands
(Byggl á veðurspá kl. 16.15 í gær)
VEÐURHORFUR í DAG, 19.4. 88
YFIRLIT í gær: Yfir Graenlandi er 1040 mb hæð en um 1300 km
suðvestur af Reykjanesi er nærri kyrrstæð 970 mb lægð. Hiti verð-
ur um frostmark syðst ó landinu yfir daginn en annars frost um
allt land.
SPÁ: í dag lítur út fyrir austan- og norðaustanátt allhvassa sunnan-
til á landinu og á annesjum fyrir norðan. Él verða um austanvert
landið og I útsveitum norðvestaniands en bjartviðri á Suövestur-
og Vesturlandi. Hiti 0—2° syðst á landinu en 2—7° frost fyrir norðan.
I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á MIÐVIKUDAG OG FIMMTUDAG: Austan- og norðaust-
anátt með éljum austanlands og á annesjum nyrðra. Slydduél við
suðurströndina en bjart veður vestanlands. Hiti um eða rétt yfir
frostmarki á Suöur- og Vesturlandi en annars 2—7° frost.
t 1.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
~kl. 12:00 ígær að ísl. tíma
Hhi veður
Akureyri +3 alskýjað
ReykjaviV 0 léttskýjað
Bergen 7 lóttskýjað
Helslnki 2 skýjað
Jan Mayen +7 skafrenningur
Keupmannah. 13 þokumóða
Narssarssuaq +7 léttskýjað
Nuuk +2 léttskýjað
Osió 7 skýjað
Stokkhólmur 6 skýjað
Þórshöfn 2 alskýjað
Algarve 18 skúr
Amsterdam 18 mistur
Aþena vantar
Barcelona 18 mistur
Berlin 16 mistur
Chicago 2 alskýjað
Feneyjar 16 þokumóða
Frankfurt 19 hélfskýjað
Glasgow 9 rigning
Hamborg 16 skýjað
Las Palmas 21 skýjað
London 18 skýjað
Los Angeles .16 skýjað
Lúxemborg 18 léttskýjað
Madrld 20 skýjað
Malaga 22 skýjað
Mallorca 20 hálfskýjað
Montreal 8 skúr
New York 14 skýjaö
Parfs 20 skýjað
Róm 18 léttskýjað
Vln 17 heiðskfrt
Waahíngton 14 alskýjað
Wlnnipeg
Morgunblaðið/Ingvar Guðmundsson
Tveir menn slösuðust þegar mótorhjól, sem þeir voru á, ienti á
hesti á Elliðavatnsvegi á sunnudag. Hestinn varð að aflífa, þar
sem hann fótbrotnaði.
Arekstur mótorhjóls og hests:
Tveir slösuðust og
hesturinn aflífaður
HESTUR og mótorhjól skullu
saman á Elliðavatnsvegi
siðdegis á sunnudag. Tveir pilt-
ar voru á hjólinu og slösuðust
báðir. Hestinn varð að aflífa,
þar sem hann var fótbrotinn.
Slysið varð um kl. 16.30, á
Elliðavatnsvegi við Vífílsstaða-
vatn. Hópur pilta var þar á ferð
á mótorhjólum. Hesturinn fældist
vegna hávaðans í hjólunum, hljóp
út á veginn og varð fyrir einu
þeirra. Tveir piltar voru á hjólinu
og fótbrotnaði annar, en hinn
meiddist minna. Hesturinn fót-
brotnaði illa, svo beinið stóð úti
og varð að aflífa hann. Knapinn
hlaut lítil sem engin meiðsli. Hjól-
ið er mjög mikið skemmt.
Þetta er í þriðja sinn á hálfum
mánuði sem ekið er á hest á þess-
um slóðum. í hinum tveimur til-
vikunum urðu hestar fyrir bifreið-
um og varð að aflífa annan þeirra.
Lögreglan bendir vegfarendum á
að fara varlega, því um helgar
er einatt margt hesta þarna á ferð.
Fiskmarkaðurinn í Hafnarfirði:
Lægsta verð á karfa
ÓVENJU lágt verð fékkst fyrir
karfa á Fiskmarkaðinum hf. í
Hafnarfirði í gær, en meðalverð
var 12,96 krónur á kílóið. Alls
voru seld rúm 43,1 tonn fyrir
rúmar 623.500 krónur og var
hæsta verð 13,50 krónur og fór
allt niður í 12,50 krónur fyrir
kílóið. Er þetta iægsta verð sem
fengist hefur fyrir karfa sfðan
Fiskmarkaðurinn hf. hóf starf-
semi.
Að sögn Einars Sveinssonar,
framkvæmdastjóra Fiskmarkaðar-
ins hf., var ástæðan fyrir þessu lága
verði sú að fiskurinn var óvenju
smár. Hann sagði að hið sama hefði
gilt um ufsann, en meðalverð fyrir
hann í Hafnarfirði í gær var 13,41
króna fyrir kflóið, lægsta verð var
12 krónur og hæsta verð 15,50
krónur. Alls voru seld rúm 50 tonn
af ufsa fyrir rúmar 675.600 krónur.
Sjá fiskverð á uppboðsmörk-
uðum á bls. 40.
Kona í Reykjavík:
Fjögurra ára fang-
elsisvist fyrir til-
raun tíl manndráps
KONA í Reykjavík, Þorbjörg
Sonja Aðaisteinsdóttir, 39 ára,
var á föstudag dæmd f 4 ára
fangelsi fyrir tilraun til mann-
dráps. Hún stakk fyrrum sambýl-
ismann sinn með hnffi f bijóst
og háls á heimili sínu að
Tryggvagötu 6 f Reykjavík þann
11. febrúar f fyrra.
Deilt var um það í málinu hvað
fólkinu fór á milli áður en konán
stakk manninn. Hún hélt því fram
að hann hefði ætlað að leggja á sig
hendur, en hann neitaði því. Hún
stakk hann með hníf í bijóst, rétt
hægra megin við bringubein og í
hálsinn, þannig að hann hlaut 1 cm
grunnt sár á hálsi við barkann og
lífshættulegt stungusár á bijósti,
þar sem hnífurinn gekk inn úr
bijóstholi í gegnum slagæð og risp-
aði lunga. Við komu á Landakots-
spítala skömmu síðar "ar maðurinn
í losti sökum mikilla innvortis blæð-
inga, sem læknum tókst að stöðva
með skurðaðgerð. Þorbjörg Sonja
var ákærð fyrir tilraun til mann-
dráps og til vara fyrir stórfellda
líkamsárás.
Dómarinn, Sverrir Einarsson
sakadómari, dæmdi Þorbjörgu
Sonju seka um tilraun til mann-
dráps, enda hefði manninum verið
bjargað af læknum með snöggum
viðbrögðum og leiðin á næsta
sjúkrahús hefði verið stutt. Taldi
dómarinn refsingu hennar hæfilega
4 ára fangelsi. Frá þeim tíma dregst
33 daga gæsluvarðhald.