Morgunblaðið - 19.04.1988, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988
Nýi tónlistarskólinn 10 ára:
Alltaf þörf fyrir
tónlistarskóla
Ragnar Bjömsson skólastjóri Nýja tónlistarskólans.
- segir Ragnar
Björnsson
skólastjóri
Nýi • tónlistarskólinn heldur
um þessar mundir upp á 10 ára
starfsafmæli sitt. í tílefni af þvf
verða haldnir tónleikar i Bú-
staðakirkju í Reykjavík í kvöld,
þriðjudagskvöld, og á sumar-
daginn fyrsta halda nemendur
ásamt nokkrum kennurum
sínum norður í land til tónleika-
halds á Akureyri, Hvamm-
stanga og í Hrafnagilsskóla.
Ragnar Björnsson er stofnandi
Nýja tónlistarskólans og hefur
verið skólastjóri frá upphafi.
Hann var spurður um tildrög
að stofnun þessa skóla:
„Eftir að ég hætti sem organ-
isti við Dómkirkjuna var mér boð-
ið að starfa í Svíþjóð og þegar ég
var á heimleið eftir að hadFa kann-
að málið ákvað ég að hafna því.
Ég taldi mig heldur jafnvel vilja
svelta á íslandi en starfa erlendis.
Fljótlega kom upp þessi hugmynd
að stofna nýjan tónlistarskóla og
ég hóf að vinna að undirbúningi
þess.“
Alltaf þörf
— Var ljóst að þörf væri á nýj-
um skóla?
„Það er alltaf þörf fyrir tónlist-
arskóla því það er eins og þeir
geti aldrei annað eftirspum. Ég
hafði lengi starfað við tónlistar-
kennslu, var skólastjóri Tónlistar-
skólans í Keflavík og vísbí að það
yrði ekki vandamál að fá nemend-
ur. Eftir að ríki og borg höfðu
samþykkt stofnun skólans og að
taka þátt í kostnaði eins og gert
er ráð fyrir í lögum var mér ekk-
ert að vanbúnaði. Ég fékk nokkra
reynda kennara til liðs við mig og
skólinn fékk inni í þremur stofum
í Breiðagerðisskóla.
Nýi tónlistarskólinn var fyrstu
þrjú árin í Breiðagerðisskóla en
flutti síðan í nærri 500 fermetra
húsnæði við Armúla þar sem eru
7 kennslustofur og allstór salur,
sem notaður er til hljómsveitaræf-
inga.“ Segir Ragnar húsnæðið vel
nýtt enda nemendur tæplega 300
og stundum þarf að kenna á skrif-
■stofu skólastjórans. Kennarar eru
24 og fer mikið af kennslunni fram
á eftirmiðdögum og einnig er
kennt á laugardögum. Yfirkennari
píanódeildar er Rögnvaldur Sigur-
jónsson, Pétur Þorvaldsson og
Ámi Arinbjamar eru yfirkennarar
strokdeildar og Sigurður Demetz
yfirkennari söngdeildar.
„Við höfum kennt á flest hljóð-
færi nema hvað nokkuð hefur
vantað á blásturshljóðfærin. í
haust verður þeim hins vegar
bætt við og þá getum við smám
saman bætt þeim í hljómsveit skól-
ans. Fram að þessu höfum við
lagt áherslu á að byggja upp strok-
hljóðfæradeild sem nú er orðin
nokkuð' öflug.“
Píanóið áhugavert
Tveir nemendur Ragnars
Bjömssonar _ í píanóleik eru þeir
Arinbjöm Ámason og Friðrik
Guðnason. „Ég er búinn að læra
í nærri 10 ár,“ segir Arinbjöm,
sem er 17 ára, „og tek ég burt-
fararpróf í vor og á tónleikaferða-
laginu norður spila ég eitt verk
af þeim sem ég leik á burtfarar-
prófstónleikunum. “
„Ég tek í vor próf upp í 7. stig,“
segir Friðrik, sem er 14 ára og
hefur verið 6 ár í Nýja tónlistar-
skólanum. „Ég valdi píanóið af því
að mér fannst það áhugavert
hljóðfæri og það verður bara að
koma í ljós hver ferillinn verður."
Nýi tónlistarskólinn starfar
þannig á svipaðan hátt og aðrir
tónlistarskólar, tekur nemendur
inn á byijunarstigi eða lengra
komna og kennir þeim allt fram
á háskólastig og reyndar áfram
ef svo ber undir. Skólinn hefur
þó lagt sérstaka áherslu á eitt
atriði umfram önnur:
Áhersla á hópkennslu
„Það er hópkennslan. Við tók-
um strax upp nýtt form í kennsl-
unni — það að hafa nokkra nem-
endur saman í tímum en það fer
eftir kennumm og nemendum
hvemig það er útfært nánar. Allir
nemendur fá vissulega einkatíma
sína eins og jafnan í hljóðfæra-
kennslu en hlutfall hóptíma er
meira hjá okkur.
Kostir þess em einkum þeir að
nemandinn fær strax reynslu af
því að spila fyrir aðra, hlusta á
aðra spila og gagnrýna það og
hann lærir líka að venja sig við
sviðsskrekk ef svo má segja. Þetta
getur líka vakið upp nokkra keppni
meðal nemenda sem ég held að
sé holl í tónlistamámi, ekki síst
fyrir þá sem ætla að leggja tónlist
fyrir sig. Þeir þurfa sífellt að
standa í einhvers konar samkeppni
þegar þeir koma út á tónlistar-
brautina.
Hins vegar koma líka þau tíma-
bil í náminu að þetta hentar alls
ekki fyrir nemandann og þá leggj-
um við alla áherslu á einkatímana.
í þessu sambandi mætti þó minn-
ast á eitt atriði sem mér finnst
mikilvægt að nemendur kynnist
en það er að kenna sjálfir. Það
er holl reynsla fyrir þá að segja
yngri nemendum til, á því læra
menn mikið og ég reyni að gefa
nemendum tækifæri til þess á
hentugum tíma í náminu."
Tónleikaf erðalag
Sem fyrr segir minnist Nýi tón-
listarskólinn 10 ára afmælisins
með tónleikum í Bústaðakirkju í
kvöld og hefjast þeir kl'. 20.30.
Þar koma fram nokkrir nemendur
úr framhaldsdeild. Leikin verða
verk eftir Mozart, Granados, Beet-
hoven, Chopin, Deberiot, Áma
Harðarson, Ravel og Vivaldi. Eru
þetta bæði einleiks- og kammer-
verk, fram kemur strokhljómsveit
undir stjóm Áma Arinbjamar og
sinfóníuhljómsveit nemenda og
kennara skólans sem Ragnar
Bjömsson stjómar. Síðar í vikunni
verða síðan haldnir tónleikar á
nokkrum stöðum á Norðurlandi.
A æfingu.
Morgunblaðið/Þorkell
Sinfóníuhljómsveit skipuð nemendum og kennurum kemur fram á tónleikunum i
kvöld.
Gnmsnes:
Ný kolsýruverksmiðja
vígð á Hæðarenda
SdfowL
Ný verksmiðja, Kolsýruvinnsl-
an hf., á Hæðarenda i Grímsnesi
var formlega tekin i notkun fyrir
skömmu. Ársframleiðsla verk-
smiðjunnar er 320-400 tonn og
unnt er að auka hana. Kolsýran
er unnin úr borholu sem er
skammt frá verksmiðjunni og
gefur hún um eitt kiló á sólar-
hring.
Að undangengnum mælingum
sem búnaðarfélag hreppsins stóð
fyrir var borað á Hæðarenda 1983.
Rannsóknir á holunni sýndu að hún
gaf mjög hreina kolsýru og var því
mjög álitleg til virkjunar. 24. janúar
1987 var stofnað hlutafélag um
verksmiðjuna og reist 200 fermetra
verksmiéjuhús. Heildarkostnaður við
verksmiðjuna er um 15 milljónir
króna. Vélabúnaður verksmiðjunnar
er þýskur og mjög sjálfvirkur. Við
verksmiðjuna mun starfa einn maður
í fullu stÁrfi og annar í hálfu starfi.
Ársnotkun kolsýru hér á landi er
um 450-500 tonn, mest við iðnað.
Verksmiðjan á Hæðarenda framleið-
ir mjög ódýra kolsýru og getur boð-
ið hana á hagstæðu verði. Það getur
leitt til þess að gróðurhúsabændur
telji hana arðvænlega við gróður-
húsaræktun. Verði af því má gera
ráð fyrir að ársþörfin á kolsýru verði
1500 tonn.
Guðmundur Sigurðsson, Hæðar-
enda, er formaður stjómar Kolsýru-
vinnslunnar hf., Birgir Sigurðsson,
Hæðarenda, og Böðvar Pálsson,
Búrfelli, eru meðsjómendur. Birgir
fer með framkvæmdastjóm fyrir-
tækisins.
— Sig. Jóns.
Jón örn Bjamason efnafræðing-
ur hjá Orkustofnun, Pétur Sig-
urðsson efnafræðingur og
stjómarmennirnir Guðmundur
Sigurðsson, Hæðarenda, Birgir
Sigurðsson, Hæðarenda, og
Böðvar Pálsson oddvití, Búrfelli.
Séð heim að Hæðarenda, verk-
smiðjan er fremst á myndinni.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson