Morgunblaðið - 19.04.1988, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988
Heimavist Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki. Morgunbiaðið/Bjom Bjömsson
Sauðárkrókur:
Viljum gefa Islendingum tækifæri á
að njóta skagfirskrar náttúru og sögu
— segir Jón Gauti Jónsson um starfsemi nýstofnaðs
fyrirtækis, Áning — ferðaþjónusta hf.
^ Sauðárkróki.
Á SÍÐASTA ári stofnuðu fimm
fjölskyldur á Sauðárkróki hluta-
félag undir nafninu Aning —
ferðaþjónusta hf. Þetta hlutafé-
lag, þó ungt sé að árum, mun
þegar í sumar hasla sér völl á
Sauðárkróki i sambandi við gist-
ingu og veitingar fyrir ferðafólk.
Hefur Áning tekið á leigu heima-
vist fjölbrautaskólans til rekst-
urs sumarhótels, en einnig
kennslustofur í grunnskólanum
tíl svefnpokagistingar svo og
mun Áning annast tjaldsvæði
bæjarins.
í kynningarbæklingi um starf-
semina kemur meðal annars fram
að ýmislegt er innifalið í gistingu
á hótelinu og svefnpokagistingunni
sem ekki mun tíðkast annars stað-
ar, svo sem frír aðgangur að golf-
velli Sauðárkróks og sundlauginni,
veiði og óvæntar uppákomur undir
borðhaldi. Þá verður ávallt hægt
að fá leigða hesta til þess að bregða
sér á bak eftir kvöldmat, eða til
lengri útreiðartúra.
Til að fræðast litlu nánar um
starfsemi þessa nýja fyrirtækis var
leitað til Jóns Gauta Jónssonar leið-
beinanda við Fjölbrautaskólann, en
hann hefur einkum séð um undir-
búningsstarfíð og kynninguna það
sem af er.
Náttúruvemdarráð og
Ferðamálaráð góðír skólar
En í uppafí: Hver er Jón Gauti
Jónsson?
„Ætli sé ekki fyrst að geta þess
að ég er Þingeyingur, nánar tiltek-
ið eru foreldrar mínir Jón Sigur-
geirsson frá Helluvaði í Mývatns-
sveit og Ragnhildur Jónsdóttir frá
Gautlöndum. Eftir stúdentspróf frá
Menntaskólanum á Akureyri lá leið-
in í Bændaskólann á Hvanneyri í
almennt búfræðinám en síðan í
Háskóla íslands, þar sem ég lauk
BS-prófí í landafræði og sögu árið
1978. Síðustu árin í námi var ég
farinn að vinna hjá Náttúruvemdar-
ráði, þar sem ég ílengdist síðan og
starfaði meira og minna til ársins
1985, þar af síðustu þrjú árin sem
framkvæmdastjóri.
Á þeim tíma sat ég einnig í
Ferðamálaráði Islands. Báðar þess-
ar stofnanir voru mér mjög góður
skóli, varla hægt að hugsa sér hann
betri. Á þessum tíma ferðaðist ég
mikið, bæði innanlands og utan og
kynntist ótölulegum §ölda af góðu
fólki, sem ég veit að á eftir að koma
mér til góða hvað varðar þessa
starfsemi. Ég hætti síðan, eins og
áður sagði hjá Náttúruvemdarráði
og fluttist til Sauðárkróks, þar sem
ég hef sfðan verið leiðbeinandi við
Fjölbrautaskólann auk ýmissa ann-
arra hjáverka."
íslendingar geta tekið
við fleiri ferðamönnum
Nú ert þú farinn að vinna að
ferðamálum. Er það ekki í vissri
andstöðu við þitt fyrra starf að
náttúruvemdarmálum?
„Hrein, óspillt náttúra er auðlind,
auðlind sem langflestir eru sam-
mála um að eðlilegast sé að nýta
til hagsbóta, bæði fyrir þjóðfélagið
í heild og einstaklinginn með því
að gefa honum tækifæri á því að
ferðast um landið. Það er þó alveg
ljóst að viss takmörk eru fyrir því
hvað þessi auðlind þolir, eða getur
tekið við. Ferðalög og útivera eru
því alls ekki í andstöðu við náttúru-
vemd, þvert á móti. Það mun hins
vegar ávallt verða deiluefni hvenær
fullri nýtingu er náð á einhveru
afmörkuðu svæði. Að mínu mati
þurfum við í því sambandi að vera
örugglega vel réttu megin við strik-
>ð, og gæta þess eins og kostur er
að íslensk náttúra spillist ekki meira
en orðið er, vegna átroðnings, eða
hún menguð.
Það verður því miður að viður-
kennast að við höfum ekki sýnt
fulla aðgætni í þessum efnum fram
til þessa. Það er staðreynd, sem ég
held að allir viðurkenni, að sumar
af okkar hálendisvinjum hafa látið
vemlega á sjá á liðnum ámm, og
þar er ekki lengur að fínna þá kyrrð
og ró sem margir sækjast eftir. Við
þessu verðum við auðvitað að
bregðast á viðeigandi hátt, og það
má vart dragast lengur. Þetta þýð-
ir það hins vegar ekki að við höfum
þar með náð þeim ferðamannaflölda
sem landið í heild sinni þolir, síður
en svo. ísland getur tekið á móti
fleirum en hingað koma nú, en til
þess að svo megi verða þarf einkum
tvennt að koma til. í fyrsta lagi
stóraukin uppbygging 7l móttöku
ferðamanna hér innanlands, og í
öðm lagi ákveðin skipulagning, sem
felur meðal annars í sér aukna
dreifíngu á því ferðafólki sem vill
sækja okkur heim. Þetta hvom-
tveggja kostar fjármuni og þá tals-
verða.
Þær stofnanir sem falið hefur
verið að sinna þessum málum, Nátt-
úmvemdarráð og Ferðamálaráð,
em báðar ríkisstofnanir og þeim
hefur verið haldið í því fjársvelti
vegna skilningsleysiis stjómvalda,
að við þurfum að horfa upp á árin
renna hjá og ákveðna staði halda
áfram að spillast. Auðvitað má
færa rök að því að hagsmunaaðilar
eigi að sjá um aukna dreifingu
ferðamanna um landið, og vissulega
hafa þeir verið að gera það á und-
anfömum ámm, en fremur ómark-
visst og hefur alls ekki leitt til þess
að átroðningi hafí létt af hálend-
inu.“
Drangey seiðir, en ekki
má ofbjóða henni
Komi ferðamannastraumur til
með að aukast í Skagafírði, em þá
engin svæði eða staðir í hættu?
„Þau svæði em ekki mörg, því
að Skagafjörður er láglendur og
gróðursæll, og þolir því vel tals-
verða umferð. Vissulega em þeir
staðir til sem gætu látið á sjá við
verulega aukningu umferðar. í því
sambandi má nefna Drangey, en
þangað em nú famar fastar ferðir
yfír sumartímann. Er mjög vaxandi
áhugi fyrir eyjunni, enda held ég
að allir sem þangað fara séu sam-
mála um það að sú ferð er með
öllu ógleymanleg.
Þama þurfum við að vera vel á
verði, því að mjög er auðvelt að
fylgjast með og grípa í taumana
ef hætta vofír yfír. Með góðri skipu-
lagningu er ég þó viss um að eyjan
þolir talsvert fleiri en þangað koma
nú.“
Áhersla lögð á afþreyingu
sem ábót á kvöldverðinn
En um ykkar starfsemi, verður
þar um einhveija sérstöðu að ræða?
„Þungamiðja starfsemi okkar er
gisting og veitingar. Eins og fram
kom áðan emm við með auk hótels-
ins svefnpokagistingu f Gmnnskóla
Sauðárkróks og tjaldsvæði bæjarins
sem em norðan sundlaugarinnar. í
veitingasal hótelsins munum við
bjóða upp á almennan matseðil auk
sérrétta, sem ennþá hvílir leynd
yfír hvemig verða. Við gemm okk-
ur hins vegar mjög vel grein fyrir,
að Sauðárkrókur er ekki á hring-
Fjörutíu lóðir í boði í Vogum:
Kappsmál hvers sveitafélags að
íbúamir starfi innan marka þess
- segir Vilhjálmur Grímsson
Vatnsleysustrandarhreppur
hefur auglýst um 30 lóðir í Vog-
um og eru þær við fullgert gatna-
kerfi með bundnu slitlagi og
gangstéttum. Lóðirnar eru ætl-
aðar fyrir einbýlis-, rað- og lítil
fjölbýlishús og er hugsanleg
bygging um 50-70 íbúða sem
hefði f för með sér íbúafjölgun
allt að 200 manns. Um 450 manns
búa í þéttbýliskjamanum í Vog-
um og gæti fjölgun íbúanna þvf
numið rúmum 40%. Einnig eru
10 lóðir f boði ætlaðar undir at-
vinnustarfsemi. Morgunblaðið
ræddi við Vilhjálm Grimsson,
sveitarstjóra um fyrirhugaðar
framkvæmdir.
Vilhjálmur var fyrst inntur eftir
hvað ylli þessu mikla framboði
núna? Hann sagði ástæðuna marg-
þætta en þó fyrst ogfremst þá stað-
reynd að gatna- og holræsagerð
væri lokið. Enn væri töluvert af
óbyggðum lóðum inn á milli og það
væri dýrt fyrir sveitarfélagið að
liggja með tilbúnar lóðir sem ekki
væru greidd gjöld af. Hér væri því
ekki um að ræða lóðir utan bæjar-
kjamans, heldur stakar lóðir hér
og þar um bæinn, t.d. nokkrar sjáv-
arlóðir.
„Nú eru teikn á lofti um að hér
skapist góð atvinnutækifæri sérs-
taklega í laxeldi. Reksturinn horfir
vænlega hjá Vogalaxi, sem hefur
verið starfræktur hér í nokkur ár
og hefur átt við töluverða byijunar-
örðugleika að stríða. Annað fyrir-
tæki í laxeldi mun væntanlega
bætast við og verða þau meðal
stærstu laxeldisfyrirtækjum í heimi
með fleiri tugi manna f vinnu. Þá
er hugsanleg stóriðja á svæðinu,
t.d. eru uppi hugmyndir um að
stofna nýtt Stálfélag við Kúagerði.
Auk þessa verður sjálfsagt ein-
hvers konar atvinnustarfsemi á
þeim lóðum sem við bjóðum núna.
Við erum opnir fyrir hvers konar
starfsemi, svo fremi sem hún er
þrifaleg."
Vilhjálmur sagði að það hlyti að
MorgunblaðiA/Bjami
Vilhjálmur Grfmsson sveitarstjóri bendir á hluta þeirra lóða sem
lausar eru í Vogum. Þær eru rétt ofan fjörunnar og vfst er að sjávar-
lóðimar freista margra.
Nýja þjónustumiðstöðin f Vogum verður tekin í notkun f ár. Þar
verður til húsa á 600 fm, mestöll þjónusta við bæjarbúa; banki,
hreppsskrifstofur, heilsugæsla, apótek, bókasafn og verslun.
vera kappsmál hvers sveitafélags
að íbúamir ynnu innan marka þess.
„Sveitarfélag sem þarf að búa við
það að vera svefnbær hefur mjög
litlar tekjur. Útsvarstekjur íbúanna
standa vart undir kostnaði sveitar-
félagsins við þá. Þess vegna þurfum
við að fá atvinnurekstur sem borgar
aðstöðu- og fasteignagjöld. En við
höfum ekkert á móti því að hluti
þeirra sem hingað flytjist, starfí
utan svæðisins, t.d. í Reykjavík.
Hér búa þegar nokkrir sem það
gera. Þessi staður er góður kostur
vegna nábýlisins við þéttbýlið. Leið-
in til Reykjavíkur er greiðfær, tæp-
ur hálftími í keyrslu.
„Við bjóðum upp á ókeypis lóu-
konsert og sveitasælu," sagði Vil-
hjálmur er hann var inntur eftir því
hvað Vogar hefðu væntanlegum
íbúum upp á að bjóða. „Hér er einn-
ig mjög fallegt á sumrin og gaman
fyrir böm að vera hér. Þá eru vet-
umir snjóléttir. Frístundamöguleik-
ar eru margskonar; áætlað er að
byggja hesthús í nágrenni bæjarins
og hér er smábátaaðstaða sem er
kjörin fyrir trilluútgerð.
í næsta mánuði flytur kaupfélag-
ið inn f 600 fm þjónustumiðstöð
staðarins og seinna á árinu flytja
þangað hreppsskrifstofur, banki,
apótek, heilsugæsla og bókasafn.
Hitunarkostnaður hér er hag-
stæður, um 30-35% hærri en í
Reykjavík og mun lægri en víðast
hvar á landsbyggðinni. Hitaveita
Suðumesja sér okkur bæði fyrir
hita og rafmagni. Gmnnskólinn hér
er nú tvísetinn með um 150 böm
en við höfum þegar hafíð undirbún-