Morgunblaðið - 19.04.1988, Síða 33

Morgunblaðið - 19.04.1988, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988 33 IÐMAÐARMAMMAHÖSIIIU HALLVEIQARSTÍQ 1 „Líst mjög vel á að taka við þessu nýja starfi“ - segir Berglind Ásgeirsdóttir, sem hefur verið skipuð ráðuneytisstjóri í félagsmálaráðuneytinu „Mér líst mjög vel á að taka við þessu nýja starfi. í félags- málaráðuneytinu eru margir áhugaverðir málaflokkar og ég hlakka til að fara að starfa þar,“ sagði Berglind Ásgeirsdóttir, sendiráðanautur við íslenska sendiráðið Svíþjóð, en hún hefur verið skipuð ráðuneytisstjóri í félagsmálaráðuneytinu frá og með 1. september næstkomandi í stað Hallgríms Dalberg, sem lætur að störfum fyrir aldurs sakir. „Ég hef verið innan stjómarráðs- ins, þó ég hafi starfað erlendis, Fyrirhuguð sala Ferðaskrif stofu ríkisins til starfs- fólks: Líklegt að starfsfólk hafi áhuga - segirKjartan Lárusson for- sljóri „Engin afstaða hefur verið tekin meðal starfsmanna sjálfra um kaup á hlutafé ferðaskrif- stofunnar. Það er vegna þess hversu stutt er síðan frum- varpið var kynnt okkur í því formi sem það var lagt fyrir þingið,“ sagði Kjartan Lárus- son, forstjóri Ferðaskrifstofu ríkisins. En Matthías Á. Mathi- esen samgönguráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um sölu á ferðaskrifstofunni þar sem stefnt er að því að selja starfsfólki 2/s hlutafjár. Kjartan taldi starfsfólk hafa áhuga á kaupunum eins og þau væru sett fram í frumvarpi ráðherra. „Ég býstadð að starfsfólk komi saman fljótlega eftir helgi til að ræða málin,“ sagði Kjartan. Hann taldi ekki tímabært að taka loka- ákvörðun, hvort sem hún væri sam- eiginleg eða hvers og eins, fyrr en fyrir lægi í þinginu hvemig frnrn- varpið yrði afgreitt. Öll nánari at- riði sölunnar ættu eftir að skýrast og þangað til biði starfsfólk von- gott um að málið hefði farsælan endi. „Ég get ekkert staðfest um vilja starfsfólks fyrr en það liggur fyrir í krónum og aurum hvað fyrir- tækið kostar og hvers konar greiðslufyrirkomulag verður á kaupunum. Ýmsir þættir fmm- varpsins eiga eftir að skýrast og það gæti tekið breytingum í þing- inu. Eg held að starfsfólk vilji gjam- an starfa áfram í þessu fyrirtæki og vilji veg þess sem mestan. Því hlýtur að teljast eðlilegt að það vilji gerast eignaraðilar að þessu fyrir- tæki, en ég vil taka það fram að þetta er mín persónulega skoðun," sagði Kjartan. þannig að ég kem ekki alveg ókunn- ug að þeim málaflokkum sem þarna em. Erlendis emm við í utanríkis- ráðuneytinu _að sinna hagsmuná- gæslu fyrir ísland á hinym ýmsu sviðum. Málaflokkamir í félags- málaráðuneytinu em mjög áhuga- verðir og snerta mikið daglegt líf fólks, eins og húsnæðismál, sveitar- stjómarmál, atvinnumál og jafn- réttismál,“ sagði Berglind ennfrem- ur. Berglind er fyrsta konan til þess að vera skipuð ráðuneytisstjóri á íslandi. „Ég held að konum hljóti að fara fjölgandi í ábyrgðarstöðum og það er alveg greinilegt að konum er að fjölga í stjómarráðinu. Hvað þetta snertir hefur mjög merkileg þróun átt sér stað á síðastliðnum Ljósmynd Róbert Ágústsson Berglind Ásgeirsdóttir tíu ámm. Ég hef mikinn áhuga á jafnréttismálum og var varafor- maður Kvenréttindafélags íslands áður en ég fór erlendis. Það er ekki auðvelt að koma á fullu jafn- rétti, en ég held að það byiji inn á heimilunum í uppeldinu og verka- skiptingunni þar, því það er auðvit- að forsenda þess að báðir aðilar geti notið sín utan heimilisins. Auk þess gegna skólamir mjög þýðing- armiklu hlutverki. Þetta gerist ekki á einum degi, en það hefur geyilega mikið gerst í þessum efnum á und- anfömum 25 ámm,“ sagði Berg- lind. Hún lauk lagaprófi 1978 og hef- ur starfað síðan hjá utanríkisráðu- neytinu, þar af síðastliðin sjö ár erlendis. Hún sagðist hlakka til þess að flytjast heim, enda sæi fólk kostina við heimalandið við það að búa lengi erlendis, þó eflaust kæmi hún til með að sakna einhvers. AÐ NORÐAN VERKSMIDJUÚTSALA VÆRÐARVOÐIR - HAMDPRJÓMABAI1D - ULLARPEY5UR MÚFUR - TREFLAR - VETTLIMGAR - LEÐUR5KÓR ÍPRÓTTA5KÓR - JOGGIMG-GALLAR OG LEÐURFATMAÐUR Opið frá Kl. 12 til 18. Laugardaga frá kl. 10 til 16. Canon Ljósritunarvélar FC-3 kr. 36.900 stgr. FC-5 kr. 39.900 stgr. Skrifvélin, sími 685277

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.