Morgunblaðið - 19.04.1988, Page 44
Morgunblaðið/RÞB
Frá sýningu Gallerí Allrahanda í Gamla Lundi þar sem um tuttugu listamenn sýna verk sín.
Bókval-Tölvutæki:
Fyrsti beini sölu-
aðili IBM úti á landi
Bókval-Tölvutæki á Akureyri
hefur nú fengið umboð frá IBM
til sölu á IBM-vörum og er versl-
unin þar með orðin viðurkenndur
söluaðili IBM. Áður seldi Bókval
IBM-vörur í gegnum Skrifstofu-
vélar.
Þegar IBM markaðssetti fyrst
IBM PS einvalatölvur, voru þrír við-
urkenndir söluaðilar á landinu, Skrif-
stofuvélar, Gísli J. Johnsen og Ört-
ölvutækni, en þegar Gísli J. keypti
Skrifstofuvélar, voru þeir aðeins
tveir. Nokkrum mánuðum síðar §ölg-
aði IBM söluaðilum sínum og út-
neftidi fyrirtækið Magnús sf. í
Reykjavík og Hjama hf. í Hafnar-
fírði sem beina söluaðila og er Bók-
val því sjötta fyrirtækið á landinu
sem fær beint umboð frá IBM og
eina fyrirtækið á landsbyggðinni sem
slíkt.
Eigendur Bókvals eru bræðumir
Jón Ellert og Unnar Þór Lárussynir
og hafa þeir nýlega innréttað hús-
næði fyrir tölvudeild sína sem er til
húsa á annarri hæð Kaupvangsstræt-
is 4, þar sem bóka- og ritfangaversl-
un er á neðri hæð. Jón Ellert ságði
í samtali við Morgunblaðið að tölvu-
markaðurinn fyrir norðan væri mun
minni en sunnanmenn gjaman
álitu.„Því vill oft brenna við að opin-
berar stofnanir og stærri fyrirtæki
senda vörur að sunnan til sinna
útibúa hér fyrir norðan svo sem
trygg>nKafélaga, olíufélaga og banka
-og ríkið til sinna stofnana, til dæmis
til skólanna. Þetta fínnst okkur hér
á landsbyggðinni síst til fyrirmyndar
fyrir uppbygginguna þegar litið er á
að hið opinbera þykist reka ákveðna
byggðastefnu. Fyrirtæki og stofnanir
vilja fá okkar þjónustu og okkar við-
skipti ,“ sagði Jón Ellert.
Gamli Lundur:
Sýning 20 listamanna
ÁKVEÐIÐ hefur verið að fram-
lengja kynningar- og sölusýn-
ingu sem nú stendur yfir í
Gamla Lundi á Akureyri. Það
er Gallerí Allrahanda sem
stendur að sýningnnni og eru
þar verk eftir ýmsa listamenn
að sunnan.
Um tuttugu listamenn eiga verk
á sýningunni. Skúlptúr og silfur-
munir eru eftir Jens Guðjónsson,
Hansínu Jensdóttur og Jón Snorra
Sigurðsson. Myndvefnaður er eftir
þær Ásu Ólafsdóttir og Guðrúnu
Gunnarsdóttur, leirmuni gerðu
þær Kogga, Kolbrún S. Kjarval,
Lísbet Sveinsdóttir, Guðný Magn-
úsdóttir og Bryndís Jónsdóttir.
Textílverk eru e'ftir Valgerði
Torfadóttur, ínu Salóme Hallgrí-
msdóttur, Steinunni Bergsteins-
dóttur, Jónu S. Sigurðardóttur og
Heiðu Björk Vignisdóttur. Grafík-
verkin em eftir Þórð Hall, Hörpu
Bjömsdóttur, Jenný Guðmunds-
dóttur og Guðrúnu G. Ólafsdóttur.
Sýningin verður opin í dag og
á morgun, þriðjudag og miðviku-
dag, frá kl. 17.00 til 21.00 og á
fímmtudaginn, sumardaginn
fyrsta, frá kl. 14.00 til 21.00.
Morgunblaðið/RÞB
Jón Eilert og Unnar Þór Lárussynir eigendur Bókvals.
Matf iskeldi mun í aukn-
um mæli flytjast í land
- segir Guðmundur Valur Stefánsson fram-
kvæmdastjóri Fiskeldisþjónustunnar hf.
EKKI er vitað nákvæmlega
hversu góðar aðstæður eru til
fiskeldis í Norður-Þingeyjar-
sýslu. Samkvæmt niðurstöðum
Orkustofnunar hafa athuganir
við Oxarfjörð á síðustu árum
sýnt að úr jörðu má sækja hita-
orku, ferskt vatn og sjó, en ekki
vitað hversu mikið magn af
hveiju. Þetta kom meðal annars
fram i máli Guðmundar Vals
Stefánssonar framkvæmdastjóra
Fiskeldisþjónustunnar hf. á ráð-
stefnu um atvinnumál á Raufar-
höfn fyrir skömmu.
Guðmundur Valur sagði að ýmis-
legt benti til þess að strandeldi sé
besti kosturinn í fiskeldi miðað við
þær aðferðir sem þekkjast nú.
Norðmenn eiga um 700 sjókvíaeld-
isstöðvar sem framleiddu um
47.000 tonn af laxi í fyrra. Samt
sem áður er vaxandi áhugi fyrir
strandstöðvum 1 Noregi. Til marks
um þennan áhuga má nefna að fé-
lag norskra verkfræðinga hefur tvö
sl. ár verið með fjórar til sex ráð-
stefnur varðandi strandeldisstöðv-
ar, þar sem mætt hafa 100 til 300
manns í hvert skipti. Talið er að
eldistækni sé í mikilli þróun og
muni breytast mikið fyrir árið 2000.
Líklegt er að matfískeldi muni í
v&xandi mæli flytjast á land, vegna
vaxandi erfíðleika í sjókvíaeldi og
aukinnar tækni við strandeldi.
Þeir þættir sem mæla með
strandstöð framyfir sjókvíar eru
m.a. þeir, að sögn Guðmundar, að
minni smithætta er við strandeldið,
betra umhverfi eldisfísksins, auð-
veldari stjómun umhverfísþátta,
minni afföll, aukin framleiðslugeta,
lægri rekstrarkostnaður, betri
gæði, meiri sveigjanleiki með tilliti
til eldistegunda og möguleiki á að
yfirmetta vatnið með súrefni, en
eftir því sem yfírmettun _er meiri
verður vatnsþörfín minni. í strand-
eldisstöð þar sem hægt er að velja
hita, seltu og súrefnismagn er hægt
að velja á milli ýmissa eldisteg-
unda. Þær sem helst koma til greina
að frátöldum laxi eru bleikja í
fersku vatni eða sjóblöndu, sand-
hverfa í fullsöltum sjó og áll í fersku
vatni.
Heimskautadrottningin
Bleikja fínnst við og á íslandi,
Norður-Noregi, Grænlandi, Sval-
barða, Bjamarey, Novaja Zenilja,
Síberíu, Alaska og Kanada. Fyrstu
tvö til fjögur árin lifír hún í fersku
vatni en fer svo í sjó snemma að
vori þar sem möguleikar em til
þess. Hún heldur sig í nágrenni við
árósinn og fer sjaldan lengra þar
frá en 80 km. í sjónum dvelst hún
í einn til tvo mánuði og fer svo f
ána aftur. Bleikjan hrygnir í októ-
ber og nóvember. Erfítt er að stað-
hæfa um markaðshorfur fyrir eldis-
bleikju. Villt 200 til 500 gramma
bleikja hefur verið markaðssett í
Evrópu og skilaverð hennar hefur
Verið um 120 krónur kg. Útflutn-
ingsfyrirtækin Stefnir hf., Mar-
bakki hf. og fleiri hafa markaðssett
villta bleikju. Norðmenn eru þegar
bytjaðir að markaðssetja eldis-
bleikju til fyrsta flokks veitingahúsa
undir nafínu „Artic queen" eða
Heimskautadrottningin fyrir svipað
skilaverð og fyrir lax. Guðmundur
sagði að Fiskeldisþjónustan hefði
látið senda fyrirspumir varðandi
markaðshorfur á eldisbleikju til
dreifíngaraðila í Bandarílgunum, á
Norðurlöndum og víðar í Evrópu.
Eftir þeim viðbrögðum að dæma
má búast við að skilaverð liggi á
bilinu 250 til 440 krónur fyrir kg.
Sandhverfueldi er nú í mikilli
þróun. Heildar matfískframleiðslan
1987 var 200-300 tonn, framleidd
að mestu í flórum löndum. í Noregi
og Skotlandi er notast við kælivatn
úr málmbræðsluverksmiðjum en í
Suðvestur-Frakklandi og á Norð-
vestur-Spáni er náttúrulegt hitastig
sjávar, 13-18 gráður, hagstætt fyr-
ir sandhverfueldi. í Galiciu á Norð-
vestur-Spáni er búist við mikilli
aukningu í sandhverfueldi í náinni
framtíð. Ár hvert má ætla að
10.000 tonn af sandhverfu séu sett
á markað. í London er markaðsverð
sandhverfu 440-620 krónur, í París
620-990 krónur og í Madrid
500-760 krónur. Þess má geta að
markaðsverð er hærra yfír veturinn
en á sumrin.
Markaðshorfur áls góðar
Markaðurinn fyrir ál er talinn
góður og ekkert bendfr til að eftir-
spum minnki á næstu árum. Sölu-
verð á stórál er um 435 krónur
hvert kg. Að mörgu leyti er létt að
vinna með álinn. Hann þolir að vera
án vatns í langan tíma, súrefnis-
magn í vatninu getur verið lítið án
þess að hann saki og ásetning get-
ur orðið mikil. Evrópski állinn geng-
ur í ferskvatn í Skandinavíu, á
meginlandi Evrópu og Norður-
Afríku. Hingað til hefur ekki tekist
að láta álinn hrygna í eldi, eins og
gert er t.d. við laxfíska, þorskfíska
og flatfíska. Hrygningin fer fram á
100-200 metra dýpi í Saragosahaf-
inu. Þaðan rekur ungviðið með
Golfstraumnum til baka til Evrópu.
Þegar seiðin ná ströndinni hafa þau
þroskast mikið og kallast þá gler-
áll. Glerállinn andar einnig með
húðinni og getur þess vegna skriðið
tímum saman á rakp jörð. Við flutn-
ing getur glerállinn verið allt að
sólarhring án vatns, ef húðinni er
haldið rakri. Stærsta vandamálið
við álaeldi t.d. í Noregi og Svíþjóð
er að geta tryggt sér glerál. Reynsl-
an hefur leitt í ljós að miklar sveifl-
ur eru í göngum gleráls til Skand-
inavíu frá ári til árs. Einnig er
ótryggt að reiða sig á innflutning
gleráls því yfírvöld geta breytt inn-
flutningsreglum með litlum fyrir-
vara.
Vaxtarhraði álsins er mjög háður
hitastigi og miðað við t.d. lax þá
vex állinn hægt. Við kjörhita, 25-27
gráður, vex állinn einungis um 0,5%
til 0,7% á dag. Einnig er viðnáms-
kraftur gegn sjúkdómum háður
hitastigi, en hann minnkar verulega
þegar hitastig fellur niður fyrir 20
gráður.
Alheimsframleiðsla
Búist er við að heimsframleiðslar.
í fískeldi muni ná 30 milljónum
tonna árið 2000, en núverandi
framleiðsla er 10 til 12 milljón tonn.
Hjá mörgum þjóðum er fískeldi í
miklum vexti og framleiðslan vex
víða um 10-15% á ári. Stærsti hluti
eldis í heiminum fer fram með ein-
földum eldisaðferðum, í skurðum
og tjömum þar sem ásetning er
lítil. Umhirða er oft lítil og fóður
er oftast áburður til þörunga, t.d.
húsdýraáburður eða tilfallandi
gróður. Þannig eru t.d. oft alin sam-
an endur, svín og fískar. í Evrópu
eru fáar tegundir í eldi miðað við
Asíulönd. Japanir ala 40 til 60 teg-
undir. Þar af eni um 15 þeirra
umfangsmiklar. í Evrópu eru ein-
ungis 5 til 6 umfangsmiklar tegund-
ir í eldi. Evrópskar eldistegundir
em með hlutfallslega litla fram-
leiðslu í dag, en spáð aukinni fram-
leiðslu á nokkmm tegundum í
framtíðinni svo sem bleikju, ál,
sandhverfu, þorski og fleiri tegund-
um. Ýmislegt bendir til þess að
markaður fyrir eldisfísk, t.d. fyrir
Atlantshafslax, muni aukast jafnt
og þétt í framtíðinni og em ástæð-
umar fyrir því minnkandi fískur í
hafínu, heilsu- og hollustuástæður
þar sem fískur er hollur matur, eldi
á Atlantshafslaxi er á uppleið en
erfíðlega hefur gengið með hafbeit
á Kyrrahafslaxi vegna þurrka og
markaðssetning á Atlantshafslaxi
virðist ganga vel.