Morgunblaðið - 19.04.1988, Síða 48

Morgunblaðið - 19.04.1988, Síða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988 Kveðjuorð: Ásgeir Benedikts- son. Þorlákshöfn Kveðja frá Kiwanis- klúbbnum Ölver Með þessum fátæklegu orðum er ekki meiningin að rekja ævi og störf Ásgeirs Benediktssonar, held- ur að þakka góðum félaga sam- starfið í Kiwanisklúbbnum Ölver í Þorlákshöfn. Þegar farið var að ræða stofnun klúbbs í Þorlákshöfn, var Ásgeir ásamt fjölskyldu sinni nýlega flutt- ur til Þorlákshafnar, þó hann hefði ekki búið hér lengi, var það eðlileg- ur hlutur að hann var einn af þeim sem stóðu að stofnun Ölvers, þar sem hann hafði mikinn áhuga á félagsstörfum, og vildi hafa áhrif á mannlífíð í kringum sig og breyta því til betri vegar. Ásgeir heitinn varð því einn af stofnendum Ölvers og starfaði í klúbbnum til dauðadags. Hann setti oft svip á fundi klúbbsins með ræðum sínum um hin ýmsu málefni sem þar voru rædd, því ekkert mál var svo ómerkilegt að hann hefði ekki skoð- un á því, og skoðunum sínum hélt Ásgeir alltaf fram með einurð og festu, en blandaði mál sitt oft með kímni sem honum lá svo létt á tungu, og vakti hlátur og létti lund okkar félaganna. Ekki má gleyma þeim stundum sem ástæða var til að taka fram harmonikuna, var þá Ásgeir hrókur alls fagnaðar. Um störf Ásgeirs fyrir Kiwanis- hreyfinguna þarf ekki að fjölyrða, þau voru mörg, og þeir sem þekktu * Asgeir Benediktsson vita að hann tók aldrei að sér starf, nema vinna það vel. Við kveðjum góðan félaga með söknuði og þakklæti fyrir samstarf- ið. Eiginkonu og öðrum aðstand- endum viljum við votta samúð okk- ar og hluttekningu, þó erfítt sé að orða þær tilfínningar sem við vild- um koma á framfæri. Félagar í Kiwanis- klúbbnum Ölver. t Móðir mín, tengdamóðir og amma, GUÐMUNDA SIGRÚN SIMONARDÓTTIR, andaðist 4. apríl á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþeý að ósk hinnar látnu. Steinunn Gisladóttir, Sigurður Guðjónsson, Björgvin Sigurðsson, Alda Sigurðardóttir, Sigriður Rúna Sigurðardóttir. t Faðir okkar, ERLENDUR SIGURJÓNSSON, Viðivöllum 2, Selfossi, lést á Rauða krossheimilinu í Reykjavík sunnudaginn 1 7. þ.m. Jarðarförin verður auglýst siðar. Fyrir hönd aðstandenda, Erla Erlendsdóttir, Gísli Erlendsson, Jóhannes Erlendsson. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, DAGNÝ HALLDÓRSDÓTTIR frá Syðri-Steinsmýri, Meðallandi, Sólvallagötu 42, Keflavík, lést 7. apríl. Útförin hefur farið fram i kyrrþey að ósk hinnar látnu. Ingveldur Halla Sigurðardóttir, Sigurður G. Gestsson, Jóhann Grétar Sigurðsson, Hlöðver Sigurðsson, Valdís Sigurðardóttir, Halldór Sigurðsson, Lísa Dóra Sigurðardóttir, Linda Sjöfn Sigurðardóttir Þóra Karlsdóttir, Sigurður Bjarnason, Bryndís Víglundsdóttir, Páll Sigurbjörnsson, og barnabörn. t Móðir okkar, systir, tengdamóðir og amma, SVANHVÍT ÞORBJARNARDÓTTIR BENNETT, Faxabraut 31D, Keflavík, áður búsett í Flórida, lést í Landspítalanum 17. apríl. Þorbjörn Datzko, Sigurlaug Kjartansdóttir, Robert Bounds, Sara Bounds, Katrín Þorbjarnardóttir - og barnabörn. t Eiginmaður minn og faðir, BERGURLÁRUSSON, Vanabyggð11, Akureyri, andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri sunnudaginn 17. apríl. Jarðarförin auglýst síðar. Ásta Tryggvadóttir, . Gisli Bergsson. radauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar Rangæingar Árshátíð sjálfstæðisfélaganna verður hald- in í félagsheimilinu Skógum miövikudaginn 20. apríl nk. kl. 21.00. Húsið opnað kl. 20.00. Sætaferðir frá Vegamótum kl. 19.30. Dagskrá: 1. Ávarp forsætisráðherra Þorsteins Páls- sonar. 2. Slegiö á létta strengi. Hljómsveitin Lög- menn úr Vik leikur fyrir dansi frá kl. 23.00. Mætum öll og tökum með okkur gesti. Stjórnirnar. Haf narfjörður - árshátíð Arshátíð sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfriöi verður haldin i Garðaholti föstudaginn 29. apríl og hefst kl. 19.00. Gestur hátíðarinnar verður formaður Sjálfstæðisflokksins Þor- steinn Pálsson. Fjölbreytt skemmtiatriði. Diskótekið Dísa sér um músík til kl. 02.00. Aðgöngumiöar seldir hjá Sigurði Þorleifs- syni, Strandgötu 11. Fram. Sjálfstæðisfólk Laugardaginn 23. april verður Sjálfstæðishúsið, Húnabraut 13, Blönduósi, tekið í notkun. Mætið öll til fagnaðarins sem hefst kl. 17.00 með ræðu Þorsteins Pálssonar, forsætisráðherra. Ávörp flytja Pálmi Jónsson og Vilhjálmur Egilsson. Tökum öll þátt i glæsilegum áfanga sjálfstæðisfólks i kjördæminu. Sjálfstæðisfélögin. Frá viðskipta- og neyt- endanefnd Sjálfstæðis- flokksins Almennur kynning- arfundur um starf og verkefni nefndar- innar verður haldinn í Valhöll miðviku- daginn 20. april kl. 20.00. Dagskrá: ★ Markmið og skipulag nefndar- starfsins fram að næsta lands- fundi. Framsaga: Steingrimur A. Arason, nefndarformaður. ★ Viðskipta- og neytendamál á Alþingi. Framsaga: Guðmundur H. Garðarson, alþingismaður. ★ Hringborðsumræöur. Allir sem áhuga hafa á að starfa með nefndinni eru velkomnir og hvattir til að mæta. Stjórnin. Huginn, FUS, Garðabæ, heldur Hrafnaþing Ungir sjálfstæðismenn i Garðabæ ætla að kveðja Vetur konung á viðeigandi hátt mið- vikudagskvöldiö 20. april, siðasta vetrardag kl. 20.00. Hrafnaþing er nýjung i starfi félagsins, þar sem málefnastarfi og skemmtun er hrært saman í góðan kokkteil. Gestir Hrafnaþinga munu ávallt vera ungir og umfram allt hressir sjálfstæðismenn, sem eru að gera góða hluti. Það verður Jón Snæhólm, form- aöur Týs i Kópavogi, sem ríður á vaðiö. Dagskráin verður óformleg. Allir góðir menn velkomnir meðan húsrúm ,Munið okkar sivinsælu léttu veitingar. Hátiðarnefnd Hugins. leyfir. Kópavogsbúar - Reyknesingar Borgarafundur um hið nýja dómsmálafrumvarp verður haldinn i félagsheimili Kópavogs, þriðjudaginn 19. apríl kl. 20.00. Frummælendur verða: Jón Sigurðsson, dómsmálaráðherra, bæjar- fógetarnir Ásgeir Pétursson og Már Pétursson og Arnþór Ingólfs- son, aðstoðaryfirlögregluþjónn. Frummælendur svara fyrirspurnum fundarmanna. Fundarstjórar: Arnór Pálsson og Magnús Bjarnfreösson. Sjálfstæðisfélögin iKópavbgi. Framsóknarfélögin i Kópavogi. Frá sjávarútvegsnefnd Stjórn málefna- nefndar Sjálfstæðis- flokksins um sjávar- útvegsmál boðar nefndina til fundar föstudaginn 22. apríl í Valhöll kl. 15.30. Dagskrá: Þingmál í vetur tengd sjávarútvegi: Matt- hias Bjarnason, al- þingismaður. Afkoma sjávarút- vegsins um þessar mundir: Sigurður Einarsson, útgerðarmaður. Núgildandi fiskveiðireglur: Guðjón A. Kristjánsson, skipstjóri. Markmið og áform nefndarinnar: Björn Dagbjartsson, framkvæmda- stjóri. Fundarstjóri: Eövarð Júliusson, útgerðarmaður. Allir sjálfstæðismenn sem hafa áhuga á þessum málaflokki eru vel- komnir á fundinn þó að þeir hafi ekki enn skráð sig í málefnanefndina. Stjórnin.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.