Morgunblaðið - 19.04.1988, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988
53
Fyrirlestur um
meðferð blæðara
Til landsins eru komin próf-
essor Inga Marie Nilsson og
samstarf smaður hennar dr.
Erik Berntorp frá Malmö,
Svíþjóð. Þau munu flylja fyrir-
lestur um meðferð blæðara sem
myndað hafa mótefni gegn
storkuþætti VIII eða IX. Fyrir-
lesturinn verður fluttur í dag
klukkan 13 í Eirbergi, áður
Hjúkrunarskóli íslands, við
Landspítalann. Aðgangur er frá
Eiríksgötu.
Prófessor Nilsson er forstöðu-
maður fyrir Afdeling for coagulati-
onssjukdomar við Almánna Sjuk-
huset í Malmö. Hún hefur um ára-
bil verið meðal fremstu vísinda-
manna er starfað hafa við rann-
sóknir á storkukerfínu, blóðtappa-
sjúkdómum og meðferð blæðara
og enda er deildin ein sú stærsta
og virtasta á þessu sviði í Evrópu.
Þangað leita því læknar og aðrir
er starfa á þessu sviði til vísinda-
starfa eða sér til fróðleiks og þjálf-
unar svo og sjúklingar víðsvegar
að. För hennar hingað er einmitt
í tengslum við dreng með dreyra-
sýki sem hún tók til meðferðar
með mjög góðum árangri vegna
mótefnamyndunar gegn storku-
þætti VIII. Um 10—15% dreyra-
omRon
AFGREIÐSLUKASSAR
Inga Marie Nilsson prófessor.
sjúkra mynda mótefni gegn
storkuþættinum sem þeir hafa
fengið til að fyrirbyggja blæðing-
ar. Eftir það gagnar þeim ekki að
fá storkuþáttinn gefínn. Meðferðin
var erfíð og ófullnægjandi þar til
1983 er prófessor Nilsson tók upp
aðferð sína. Hún mun væntanlega
skýra frá árangri meðferðar
sinnar, en ef svo fer sem horfír
er um gjörbyltingu að ræða. Þá
mun hún einnig skýra frá niður-
stöðum á nýjum og mjög athyglis-
verðum rannsóknum á því hvemig
ónæmisþolun myndast hjá þeim
sem áður höfðu myndað mótefni.
EINKATÖLVUR 25.4.
INNRITUN TIL 22. APR. SÍMIs 621066 PÚ KEMSTAÐ LEYNDARDÓMUM TÖL VUNOTKUNAR OG PEIM MÖGULEIKUM SEM TÖLVAN GEFUR EFNI: Kynning á vélbúnaði einkatölva og jaðartækja • Notendaforrit • Ritvinnsla • Töflureiknir • Gagnasafnakerfi • Stýrikerfi. LEIÐBEINANDI: Ólafur H. Einarsson, kerfisfræðingur. TÍMI OG STAÐUR: 25.-28. apríl kl. 13.30-17.30 að Ánai * ' naustum 15.
VR OG STARFSMENNTUNARSJÓÐUR BSRB STYRKJA FÉLAGSMENN SÍNA
TIL ÞÁTTTÖKU í ÞESSU NÁMSKEIÐI.
Stjómunarfélag blands A
TÖLVUSKÓU A
— ■ Ánanaustum 15 - Sími: 6210 66 .
BAÐ
INNRÉTTING
Án vasks kr. 31.540
Með vaski kr. 39.050
Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7, 103 Reykjavík. Sími 686650