Morgunblaðið - 19.04.1988, Page 56
56
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988
Virðisaukaskattur leiðir til
1 % lækkunar vöruverðs
— sagði Jón Baldvin Hannibalsson í framsöguræðu á Alþingi
Hér fer á eftir síðari hluti
framsöguræðu Jóns Baldvins
Hannibalssonar, fjármálaráð-
herra, fyrir frumvarpi ríkis-
stjómarinnar um virðisauka-
skatt, sem flutt var á Alþingi sl.
miðvikudag.
Frumvarpi þessu fylgir ítarleg
greinargerð, þar sem útlögð eru
efnisatriði ftumvarpsins og ein-
stakra greina þess og gerð grein
fyrir forsendum þess og áhrifum á
þjóðhagsstærðir og ríkisútgjöld.
Með hliðsjón af því, að frumvarpið
liggur nú hér fyrir í lítt breyttri
mynd frá því sem var á árinu 1986
og öll meginatriði greinargerðarinn-
ar hin sömu tel ég ekki ástæðu til
þess að fjalla ítarlega um einstakar
greinar eða einstök efnisatriði, en
drep á helstu þeirra og geri grein
fyrir megináhrifum frumvarpsins.
Eins og áður segir er frumvarpið
í aðalatriðum hið sama og það frum-
— varp sem lagt var fram á Alþingi
1986. Nokkrar veigamiklar breyt-
ingar eru þó gerðar og eru þessar
helstu:
1. Lagt er til að skatthlutfallið
verði 22% í stað 24%, sem áður
var gert ráð fyrir.
2. í stað sérreglu um lægra hlut-
fall í viðskiptum milli bænda og
afurðastöðva, sem þó hafði eng-
in áhrif á endanlega skattlagn-
ingu eða verð, er í frumvarpinu
nú gert ráð fyrir sama skatthlut-
falli í þessum viðskiptum og
öðrum. Hins vegar er miðað við,
að almennt uppgjörstímabil í
landbúnaði verði 6 mánuðir í
stað 12 mánaða í fyrra frum-
varpi. Bændur geta þó valið
reglulegt 2 mánaða upp-
gjörstímabil eins og aðrir at-
vinnurekendur eiga jafnframt
kost á sérstöku uppgjöri innan
6 mánaða tlmabilsins, ef um er
að ræða stórfelld innkaup íjár-
festingarvöru eða rekstrarað-
fanga. Þá er gert ráð fyrir, að
um skil afurðastöðva á virðis-
auka af kaupum þeirra á land-
búnaðarvörum verði settar sér-
stakar reglur, sem afstýra því
að þörf verði á mikilli hækkun
afurðalána vegna upptöku virð-
isaukaskatts.
3. í stað sérstakrar úrskurðar-
nefndar í tilteknum málum varð-
andi skattskyldu og framkvæmd
er í þessu frumvarpi gert ráð
fyrir, að slíkir úrskurðir verði í
höndum ríkisskattanefndar eins
og nú er varðandi söluskatt.
4. Heimild til að veita gjaldfrest á
virðisaukaskatti í innflutningi er
vfkkuð frá því að taka einungis
til hráefnís og Qárfestingarvöru,
þannig að hún taki einnig til
almennrar vöru. Miðað við, að
heimild þessi verði takmörkuð á
sama hátt og heimild til að veita
gjaldfrest á aðflutningsgjöldum.
Samtök innflytjenda hafa bent
á að verðhækkunaráhrif af því
að greiða virðisaukaskatt í tolli
án gjaldfrests gætu orðið 2—4%.
5. Þá er lögð til sú breyting, að
gildistaka laganna miðist ekki
við áramót heldur 1. júlí 1989.
Kostir virðisaukaskatts
Eins og að framan getur er meg-
inástæðan fyrir upptöku virðisauka-
skatts fólgin í eiginleikum þessa
skatts og kostum hans umfram
söluskatt. Þessa kosti má fyrst og
fremst rekja til þess aðaleinkennis
virðisaukaskattsins, að hann leggst
í raun aðeins einu sinni á sama
verðmæti, hversu oft sem það geng-
ur á milli viðskiptastiga. Skatturinn
er því hlutlaus í þeim skilningi, að
hann verður sama hlutfa.ll af endan-
legu söluverði vöru hvemig eða
hvar sem hún er framleidd svo fremi
að hún falli undir skattskyldusvið
laganna. Virðisaukaskatturinn fell-
ur til á hveiju og einu viðskipta-
stigi og er ætíð sama hlutfall af
virðisaukanum sem fram kemur á
viðskiptastiginu. Virðisaukinn, þ.e.
skattstofninn hjá hveiju og einu
fyrirtæki, er verðmæti vörunnar
eins og það birtist í söluverði henn-
ar, að frádregnu verðmæti allra
aðfanga, sem aflað var til þessarar
framleiðslu. Skattstofn virðisauka-
skatts á tilteknu tímabili er þess
vegna mismunurinn á söluverði
vöru og þjónustu á tímabilinu og
keyptra aðfanga og fjárfestingar-
vöru á sama tímabili, óháð því hvort
að þau hafa beinlínis verið notuð
til framleiðslu á söluvöru sama
tímabils eða liggja í birgðum eða
varanlegum rekstrarfjármunum. Til
lengri tíma litið er virðisaukinn eða
skattstofninn því hið sama og sam-
tala launagreiðslna til starfsmanna
og eigenda, hagnaðar og eigna-
aukningar.
Pramangreindir eiginleikar virð-
isaukaskattsins gera það að verk-
um, að honum fylgja ekki uppsöfn-
unaráhrif líkt og koma fyrir í sölu-
skatti. Með uppsöfnunaráhrifum er
átt við það, að söluskattsgreiðsla
fyrirtækja af ýmsum aðföngum og
fjárfestingarvörum, sem dæmi má
nefna rafmagn, kaup á fjárfesting-
arvörum, kaup á viðhaldsþjónustu,
skrifstofuvörum o.s.frv., hleðst upp
og verður hluti af þeirri verðmynd-
un sem verður að söluskattsstofni.
Þannig leggst söluskattur á sölu-
skatt ofan og í lokaverði vörunnar
er heildarskattgreiðslan meiri en
nemur skatthlutfallinu einu.
Með afnámi uppsöfnunaráhrifa
nást fram mikilvægir kostir virðis-
aukaskatts umfram söluskatt:
Hann mismunar ekki framleiðslu-
greinum eða framleiðsluaðferðum.
Hann bætir samkeppnisstöðu
íslenskra fyrirtækja gagnvart er-
lendum aðilum hvort sem litið er
til innflutnings eða útflutnings.
Hann hefur ekki áhrif á val neyt-
enda á neysluvörum eða þjónustu.
Hann veldur ekki tilviljanakenndri
hækkun framleiðslukostnaðar eftir
því hvort ffamleiðslustig eru fleiri
eða færri á sömu vöru né heldur
því hvort sölustaður er fjarri eða
nærri upprunastað vörunnar.
Auk þessara kosta virðisauka-
skattsins umfram söluskatts að því
er varðar efnahagsleg og viðskipta-
leg áhrif má gera ráð fyrir, að inn-
heimta og eftirlit með álagningu
verði öruggara en nú er í söluskatti.
Þrjár röksemdir
Af þrennum ástæðum má ætla,
að virðisaukaskatti fylgi bætt inn-
heimta. í fyrsta lagi dreifist inn-
heimtan á fleiri aðila, sem hver um
sig innheimtir minni hluta skatts-
ins. Ætla má, að freistingtil undan-
skots verði minni, þar sem fjár-
hæðin er lægri og í þeim tilvikum
að undanskot fer fram nær það ein-
ungis til þess hluta virðisaukaskatts
sem ætti að falla til í viðkomandi
fyrirtæki en ekki skattsins alls.
í öðru lagi byggist kerfið á því,
að á hverju viðskiptastigi kemUr til
frádráttar þeim skatti sem reiknast
af sölunni sá skattur sem það fyrir-
tæki greiddi við kaup á aðföngum
sínum. Til þess að framkvæma
þennan frádrátt og fá hann viður-
kenndan þarf þannig greiddur
skattur af aðföngum að vera sér-
greindur og koma fram á reikning-
um. Með þessu skapast sjálfvirkt
eftirlitskerfí vegna viðskipta milli
skattskyldra aila, sem gera mun
auðveldara en nú er að rekja við-
skipti og fylgjast með hvort skatt-
skil eru með eðlilegum hætti. Það
er því hagur fyrirtækjanna og
reynsla fyrir því að þau ganga mjög
hart eftir því að skattur sé reiknað-
ur og tilgreindur í viðskiptum við
þau.
I þriðja lagi má nefna, að með
heilsteyptu og rökréttu skattkerfi
verður auðveldara að beita virku
eftirliti. Nútímatækni við skrán-
ingu, vörslu og samanburð upplýs-
inga munu gera það kleift, t.d. með
samanburði skila á virðisauka-
skatti, telquskattsskila og ársreikn-
inga að gera með skjótvirkum hætti
samanburð, sem gefur haldgóðar
vísbendingar um hvort skattskil eru
í lagi eða ekki.
Áhrif á verðlag
Óhjákvæmilegt er, að jafn stór-
felld breyting og upptaka virðis-
aukaskatts er hafi áhrif á verðlag,
enda er það beinlínis hluti af til-
gangi með upptöku kerfisins, þar
sem sú röskun verðhlutfalla, sem
stafar af uppsöfnun söluskatts,
verður ekki leiðrétt nema með
breytingu þessara verðhlutfalla.
Ennfremur breytast verðhlutföll af
þeim sökum að virðisaukaskattur
mun ná til sölu einhverrar þjónustu,
sem ekki er skattlögð nú eða bera
ekki fullan söluskatt og muni hún
þá að sjálfsögðu hækka í verði. Á
móti þessu koma áhrif af lækkun
skatthlutfallsins og lækkun verðs
vegna þess, að uppsöfnunaráhrif
hverfa.
Eins og áður hefur komið fram
er gert ráð fyrir, að skatthlutfallið
verði 22%. Með því hlutfalli er fyrir-
sjáanlegt, að tekjur af virðisauka-
skatti verða allmiklu lægri en tekjur
af 25% söluskatti eins og hann er
nú. Þessi lækkun skattsins kemur
að sjálfsöðgu fram í vöruverði og
er áætlað, að þessi munur einn sér
svari til um 1% lækkunar á vöru-
verði almennt. Þessi áhrif eru þó
mismunandi eftir vörutegundum og
öðrum forsendum. Gera má ráð
fyrir, að þær vörur, sem nú bera
fullan skatt, lækki vegna þessara
beinu áhrifa um 2,4% á meðan verð
á sumum þáttum einkaneyslu
hækki um nokkuð. Þessu til við-
bótar koma áhrif af brottfalli upp-
söfnunar á skatti. Þau áhrif hafa
verið metin til 2% í lækkun vöru-
verðs, þegar fram í sækir. Gangi
þessi áætlun eftir, sem væntanlega
mun taka nokkum tíma, er gert ráð
fyrir, að vísitala framfærslukostn-
aðar lækki um 3%, vísitala bygging-
arkostnaðar lækki um 1% og láns-
kjaravísitala um 2,3%. Eirts og að
framan greinir er um 1% af iækkun
framfærsluvísitölunnar að rekja til
lægri skattheimtu í heild og því
ekki afleiðing sjálfrar kerfísbreyt-
ingarinnar.
Að gefnu tilefni vil ég undirstrika
að hér er alls staðar átt við áhrif
þessarar kerfisbreytingar á verð-
lagsþróun, þegar litið er til lengri
tíma en ekki skyndilegrar verð-
breytingar, eða að tiltekin vara
lækki svo og svo mikið þar sem
aðrir þætti verðmyndunar en skatt-
ar eru sífellt að breytast. Breytt
áhrif skatta á verð koma fram í því
að verðið er á hveijum tíma hærra
eða lægra en ella hefði verið. Nauð-
synlegt er að taka þetta sérstaklega
fram þar sem í ljós kom um sl.
áramót að ýmsum gekk erfíðlega
að átta sig á þeim mun sem vera
kann á verðbreytingum á stuttu
tímabili og áhrifum á verðlagsþróun
á löngum tíma.
Á bekk með öðrum þjóðum
Með 22% virðisaukaskatti skipar
ísland sér á bekk með öðrum Norð-
urlandaþjóðum, bæði hvað skatt-
hlutfall varðar, og eins það að í
þeim löndum er skatthlutfall eitt
og hið sama fyrir alla sölu á vöru
og þjónustu með örfáum undan-
tekningum. f töflu á bls. 25 í grein-
argerðinni er yfirlit yfir skattþrep
í aðildarríkjum Efnahags- og þróun-
'arvinnustofnunar Evrópu.
í þessari töflu vekur athygli sú
sérstaða norðurálfuþjóða að halda
skattkerfi sínu hreinu og nota að-
eins eitt skattþrep. Þessar þjóðir
eru þó öðrum fremur þekktar fyrir
að leggja áherslu á jöfnuð og félags-
leg viðhorf. Þetta kemur að sjálf-
sögðu ekki á óvart með hliðsjón af
því sem ég hef áður sýnt fram á í
ræðu minni. Þessar þjóðir hafa val-
ið að halda þessum ' mikilvæga
tekjuöflunarþætti hreinum og und-
anþágulausum og sinna jöfnunar-
markmiðum með skilvirkari og ör-
uggari leiðum en undanþágur geta
nokkum tíma orðið. Sérstaða þess-
ara þjóða kann einnig að tengjast,
því að þar er almenningur allur
upplýstari en víðast annars staðar
og því meiri líkur á, að þar verði
skynsamleg rök lýðskrumi yfir-
sterkari.
Undanþágur
Frumvarp þetta gerir ráð fyrir,
að virðisaukaskattur verði lagður á
nær alla sölu á vöru og þjónustu.
Undanþágum er haldið í lágmarki.
Þó reyndist nauðsynlegt að gera
nokkur frávik af ýmsum ástæðum.
Ástæður þessar eru af ýmsum toga,
en eiga þó sammerkt, að þær hafa
leitt til sömu niðurstöðu í flestum
ríkjum, sem hafa virðisaukaskatt.
Frávik þessi eru af tvennum toga.
annars vegar er um það að ræða,
að tiltekin vinna og þjónusta —
ekki vörusala — er undanþegin
skattskyldu. Um það er íjallað í 2.
grein fhimvarpsins. Hins vegar eru
frávikin þau, að sala á tilteknum
vörum og þjónustu telst ekki til
skattskyldrar veltu.
Á þessu tvennu eru verulegur
munur. í fyrra tilvikinu nýtur sölu-
aðilinn ekki frádráttar á þeim virð-
isaukaskatti, sem hann kann að
hafa greitt við kaup á aðföngum
eða greiðslu á þjónustu. Þetta þýð-
ir, að sú þjónusta, sem hann selur,
ber virðisaukaskatt að öðru leyti
en því, að skattur af síðasta við-
skiptastiginu fellur niður. Þegar
sala telst ekki til söluskattsskyldrar
veltu, gildir hins vegar það, að við-
komandi fyrirtæki nýtur fullrar
heimildar til þess að draga frá
greiddan skatt af öllum kaupum á
aðföngum og þjónustu. Sala þess á
þeim tilteknu vörum sem um er að
ræða er því að fullu skattfrjáls.
Gildir þetta meðal annars um allan
útflutning.
Sú vinna og þjónusta sem er
undanþegin skattskyldu og fjallað
er um í 2. grein, er þríþætt. í fyrsta
lagi þjónusta á sviði heilbrigðis- og
félagsmála, sem að meirihluta til
er rekin af opinberum aðilum. í
öðru lagi fólksflutningar, póstþjón-
usta, vátiyggingastarfsemi, banka-
þjónusta og þjónusta ferðaskrif-
stofa. Þessi síðasttalda starfsemi á
það raunar sammerkt að vera á
alþjóðlegum markaði og er ekki
unnt að beita hér öðrum reglum en
gilda hjá nágrannaþjóðum okkar. í
þriðja lagi leiga á íbúðarhúsnæði
skattfijáls, að undanskilinni leigu á
hótel og gistiherbergjum og sam-
komuhúsum. í sambandi við þetta
síðastnefnda skal það tekið fram,
að samtök veitinga- og gistihúsa-
eigenda og Ferðaskrifstofa ríkisins
hafa sent fjármálaráðuneytinu sér-
stök erindi þar sem lýst er áhyggj-
um vegna þessa atriðis frumvarps-
ins og þá einkum vegna stöðu hót-
ela á Iandsbyggðinni sem er slæm
fyrir. Bent hefur verið á það, að
ýmislegt mæli með því að líta á
leigu gistiherbergja sem útflutning.
Talið er, að 70—80% af gistisölu
sé til útlendinga og þar af dijúgur
hlutur, sem seldur er sem hluti svo-
kallaðra pakkaferða. Leiga gistiher-
Jón Baldvin Hannibalsson
„Á hinum Norðurlönd-
unum liggur fyrir sú
reynsla, að virðisauka-
skattskerf ið er rekið
fyrir innan við 1% af
því sem það aflar. Sú
áætlun, sem gerð hefur
verið um mannaf laþörf
hér á landi bendir til
svipaðrar niðurstöðu.
Með hliðsjón af mikil-
vægi þessa skatts verð-
ur varla annað sagt en,
að slíkur kostnaður sé
mjög viðunandi og að
sá kostnaður, sem kann
að falla til í atvinnulíf-
inu vegna upptöku
skattsins, muni fljótt
skila sér aftur í bættri
samkeppnisaðstöðu
íslenskra fyrirtækja,
lægra vöruverði, skil-
virkara skattkerfi,
betri innheimtu og
réttlátari niðurstöðu.“
bergja er einn örfárra þátta, sem
er með mismunandi hætti í virðis-
aukaskattskerfum Norðurlanda.
Gisting ber fullan skatt í Dan-
mörku, en skattlaus í Noregi og í
Svíþjóð ber hún svokallað skert
skatthlutfall, sem gildir þar fyrir
einstakar þjónustutegundir. Ég
vænti þess, að hæstvirt þingnefnd
taki þennan þátt til sérstakrar at-
hugunar og geri tillögur um breyt-
ingar í samræmi við þá niðurstöðu,
sem hún kemst að.
Ákvæði 12. greinar um þá sölu,
sem ekki telst til skattskyldrar
veltu, lúta fyrst og fremst að út-
flutningi svo og sölu, útleigu og
viðhald á haf- og loftförum að und-
anskildum skemmtibátum og einka-
loftförum. Útflutningsvara á sam-
kvæmt eðli skattsins ekki að bera
skatt og að öðru leyti ná ákvæði
þessarar greinar til sölu, sem í flest-
um tilvikum kæmi, ef skattlögð
væri, til frádráttar á síðara við-
skiptastigi. Frávik frá þessu er þó
sala dagblaða, landsmálablaða og
héraðsfréttablaða sem ekki verður
talin til skattskyldrar veltu. Hér
ráða þau sjónarmið, að verið sé að
tryggja eðlilega skoðanamyndun og
efla þá þjóðmálaumræðu, sem er
nauðsynlegur grundvöllur hennar.
Hliðarráðstaf anir
Þá skal hér getið þess, að í tveim-
ur tilvikum hefur verið ákveðið að
gera ráðstafanir til þess að hindra
það, að verðlagsáhrif af virðisauka-
skatti komi fram. Eru það einu hlið-
arráðstafanimar af þeim toga, sem
nú er gert ráð fyrir. Aðrar slíkarr
ráðstafanir komu til framkvæmda
með breikkun söluskattsstofnsins
nú í ársbyijun. Þau tilvik, sem hér
um ræðir, snerta annarsvegar
byggingarstarfsemi og hins vegar
hitun íbúðarhúsnæðis.
Eins og kunnugt er hefur vinna
á byggingarstað verið undanþegin