Morgunblaðið - 19.04.1988, Síða 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988
ÞINGBRÉF
STEFÁN FRIÐBJARNARSO N
Fimmtugur þingheimur
Sætaskipan í Sameinuðu þingi á 110. löggjafarþinginu, 1987-1988.
Gluggað í Hand-
bók Alþingis
Meðalaldur þingmanna, kjör-
inna 1987, var 49,8 ár. Þetta
er rúmlega fimm ára hærri
meðalaldur þingmanna en árið
1934, fimmtiu og þrem árum
fyrr. Lægstur er meðalaldur
þingmanna Kvennalistans, 44,7
ár, en hæstur Samtaka jafnrétt-
is og félagshyggju, sem hafa
raunar aðeins einn-þingmann;
68,5 ára, þá kjörinn var.
Þessar upplýsingar og fjöldi
annarra koma fram i Handbók
Alþingis 1987, sem hér verður
lítillega gluggað í.
I
Handbók Alþingis 1987 geymir
margháttaðan fróðleik um Al-
þingi, gamlan og nýjan, en einkum
um þing það er nú situr. Fyrst
er kafli um skipan þingsins. Þar
er að fínna upplýsingar um emb-
ættismenn þess. Listi er yfír al-
þingismenn, með og ásamt stutt-
um æviskrám. Þeir eru og dregn-
ir í dilka eftir flokkum og kjör-
dæmum. Þá eru stjómir þing-
flokka tíundaðar. Loks er greint
frá fcLstanefndum Alþingis.
Því næst er kafli um kosnin-
gaúrslit í öllum kjördæmum og
úthlutun kjördæmis- og jöfnunar-
sæta. Þá eru ýmsar upplýsingar
um þingmenn, meðalaldur, fæð-
ingarár, þingaldur, lengstu þing-
setu, yngstu þingmenn, sem og
hverjir hafí oftast gegnt forseta-
störfum. Skrá er um forseta
þingsins, tölu þinga og fleira.
Listi er yfír ráðuneyti og ráð-
herra 1904-1987. Þá er að fínna
upplýsingar um skrifstofu Al-
þingis, starfsmenn þingflokka,
sætaskipan í þingdeildum og sitt
hvað fleira.
Sem sagt fjölþættur fróðleikur
um Alþingi, framsettur vel og
smekklega. Helgi Bemódusson,
deildarstjóri á skrifstofu Alþingis,
og Láms H. Blöndal, fyrrverandi
bókavörður Alþingis, tóku hand-
bókina saman.
II
Meðalaldur karla í hópi þing-
manna er sagður 50,4 ár en
kvenna 47,5 ár. Meðalaldur þing-
manna í efri deild er 48,7 ár en
neðri deildar 50,3. Meðalaldur
nýrra þingmanna (kjörinna í
fyrsta sinni 1987) er 44,3 ár en
endurkjörinna 52,5 ár. Það ve'kur
athygli að meðalaldur ráðherra
(47,7 ár) er rúmlega tveimur ámm
lægri en meðalaldur þingmanna
(49.8 ár). Ríkisstjómin er sum sé
yngri en þingið í meðalaldursárum
einstaklinga mælt.
Meðalaldur þingmanna eftir
kjördæmum er frá 45,3 ámm upp
í 55,2. Meðalaldur þingmanna
Suðurlandskjördæmis er lægstur.
Hæstur er meðalaldur þingmanna
Vestfirðinga.
Meðaldur þingmanna eftir
flokkum er þessi: Samtök um jafn-
rétti og félagshyggju 68,5 ár,
Sjálfstæðisflokkur 54,8 ár, Fram-
sóknarflokkur 48,4 ár, Borgara-
flokkur 48,2 ár, Álþýðubandalag
47,2 ár, Álþýðuflokkur 47,0 ár
og Samtök um kvennalista 44,7
ár. Miðað er við aldur er kosning-
ar fóm fram.
Ár segja að vísu ekki alla sögu
um „aldur". Sumir em gamlir frá
unga aldri. Aðrir ungir fram á
efri ár. Þetta verður að hafa í
huga þegar gluggað er í þá kafla
handbókarinnar, sem fjalla um
aldur þingmanna, enda skipta
þeir engu meginmáli í þessu vand-
aða, fróðlega og læsilega upplýs-
ingariti.
m
Á árabilinu 1904-1917 gengdu
fímm menn embætti ráðherra ís-
lands: Hannes Hafstein, Bjöm
Jónsson, Kristján Jónsson, Hann-
es Hafstein (öðm sinni), Sigurður
Eggerz og Einar Amórsson.
Fyrsta ríkisstjómin, ráðuneyti
Jóns Magnússonar, sat frá 4. jan-
úar 1917 til 25. febrúar 1920.
Ráðuneyti Þorsteins Pálssonar,
sem skipað var 8. JÚ1Í 1987, er
hið 28. í röðinni. Á rúmlega 70
áram hafa sezt að völdum 28
ríkisstjómir. Meðalstarfsævi
þeirra hefur verið um tvö og hálft
ár.
Lengsta starfsævi ríkisstjómar
á lýðveldistímanum (frá 1944) er
ellefu ár. Það var samstjóm Sjálf-
stæðisflokks og Alþýðuflokks
(viðreisnarstjómin). Hún var
mynduð 1959 og sat samfleytt til
ársins 1971, fyrst undir forsæti
Ólafs Thors, síðan Bjama Bene-
diktssonar (lengst af) og loks Jó-
hanns Hafsteins. Á starfstíma
hennar var horfíð frá höftum
heimsstyrjaldaráranna til svipaðs
frjálsræðis og verið hafði aflgjafí
framfara og velmegunar í V-
Evrópu og N-Ameríku. í lqölfarið
sigldu alhliða framfarir.
Ríkisstjóm Þorsteins Pálssonar
er Jórtánda ríkisstjóm lýðveldis-
tímans. Á árabilinu 1944-1987
sátu fímm tveggja flokka stjómir,
sex fjölflokkastjómir og tvær
minnihlutastjómir. — Tveggja
flokka stjómir sátu yfírleitt heilt
kjörtímabil. Viðreisnarstjómin
gott betur, sem fyrr segir. Engin
ríkisstjóm sem fleiri en tveir
flokkar hafa staðið að hefur lifað
heilt kjörtímabil. Spuming er,
hvort ríkisstjóm Þorsteins Páls-
sonar verður fyrsta „fjölflokka-
stjómin" sem það gerir.
IV
Forsetar þingsins, Þorvaldur
Garðar Kristjánsson (sameinað
þing), Jón Kristjánsson (neðri
deild) og Karl Steinar Guðnason
(efri deild) hafa á hendi hús-
bóndavald og verkstjóm í Al-
þingishúsinu. Stjómarandstaðan
hefur fyrsta varaforseta bæði í
sameinuðu þingi og þingdeildum.
Hún hefur því allnokkur áhrif á
verkstjómina. Vinnulag þingsins
mótast þó máske fyrst og fremst
af því, hvem veg ríkisstjóm og
þingflokkar raða málum á starfs-
tíma og þingdeildir Alþingis.
Veigamikill þáttur þingstarfa
fer fram í þingflokkum, einkum
þingflokkum ríkisstjómar á hverri
tíð. Þar — og raunar í ráðuneytum
— er bróðurpartur þingmála frum-
og fullunninn til flutnings í þing-
inu. í þingflokkum stýra þing-
flokksformenn störfum. Ólafur
G. Einarsson er formaður þing-
flokks sjálfstæðismanna, Páll Pét-
ursson formaður þingflokks fram-
sóknarmanna, Eiður Guðnason
formaður þingflokks jafnaðar-
manna, Steingrímur J. Sigfússon
formaður þingflokks Alþýðu-
bandalagsins, Þórhildur Þorleifs-
dóttir formaður þingflokks Sam-
taka um kvennalista og Júlíus
Sólnes formaður þingflokks Borg-
araflokksins.
Fastanefndir Alþingis gegna og
stóm hlutverki í þingstörfum,
enda ganga öll eða flest þingmál
til gagngerðrar skoðunar og um-
fjöllunar í einhverri þingnefnd.
Hver nefnd kýs sér formann sem
jafnframt er verkstjóri hennar.
Helztu nefndir sameinaðs þings
em fjárveitinganefnd (fjárlög),
utanríkismálanefnd, allsheijar-
nefnd, félagsmálanefnd og at-
vinnumálanefnd. í þingdeildum
starfa fjárhags- og viðskipta-
nefndir, sjávarútvegsnefndir,
landbúnaðamefndir, iðnaðar-
nefndir, samgöngunefndir, fé-
lagsmálanefndir, menntamála-
nefndir, heilbrigðis- og trygginga-
nefndir, auk allsheijamefnda.
Sá hluti þingstarfa sem mótað-
ur er og unninn á fundum forseta
þingsins, á fundum þingflokka og
þingnefnda fer ekki fram fyrir
opnum tjöldum, það er ekki í
fréttaljósi fjölmiðla. Það er aðeins
sá „hluti ísjakans sem upp úr
stendur", það er fundir í samein-
uðu þingi og þingdeildum sem
speglast út í þjóðfélagið — í fjöl-
miðlum. Stundum er sá spegill
spéspegill, ekki sízt þegar pólití-
skir fjandvinir em leiddir til fjöl-
miðlaats um hitamál. Stundum
sést aðeins hluti raunvemleikans
í spegilmjmdinni. Flestir frétta-
menn vinna þó starf sitt trúverð-
uglega.
V
Handbók Alþingis veitir þeim,
sem kynna sér hana, margvísleg-
an fróðleik um Alþingi íslendinga
á 1057. ári frá stofnun þess.
Alþingistíðindi, sem geyma
þingslqöl og ræður þingmanna,
em og ómissandi þeim sem hafa
vilja „það sem sannara reynist"
um þing og þjóðmálin.
Útgáfumál Alþingis hafa
breytzt mjög til hins betra hin
síðari árin. Vonandi heldur sú
þróun áfram.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Eigendaskipti á Aþenu
Eigendaskipti urðu nýlega á hárgreiðslustofunni Aþenu, Leiru-
bakka 36 t Breiðholti. Hinn nýi eigandi er Hrafnhildur Magnús-
dóttir og með henni á myndinni er Alda Kristinsdóttir. Hár-
greiðslustofan Aþena býður upp á alhliða hársnyrtingu fyrir
dömur og herra. —-
Stykkishólmur:
Endurbyggingu
Egilsenshúss
senn lokið
Stykkishólmi.
NÚ ER senn lokið endurbyggingu
á Egilsenshúsi f Stykkishólmi og
er það á ný orðið prýði við aðal-
götu bæjarins.
í húsinu hefur verið rekin veitinga-
þjónusta o.fl. frá því í júní sl. en hún
hefur verið til húsa á neðstu hæð.
Þá er fyrirhugað að tvær efrí hæðir
hússins verði teknar í notkun í byijun
júní nk. og þar er verið að innrétta
10 herbergi til gistingar í svefnpoka-
plássum. Afgreiðsla Eyjaferða sf. er
í Egilsenshúsi og er rekstur hússins
því samtengdur Eyjaferðum.
Með þessu húsi og þeirri þjónustu
sem það verður er mikill vandi leyst-
ur fyrir þá sem þurfa á svefnpoka-
plássi að halda, en þeim fer Qölg-
andi ár frá ári, með því að fólk er
farið í ríkara mæli að nota sumar-
leyfi sitt til að skoða sitt eigið land
og kynnast því nánar. Einnig hafa
erlendis gestir sóst eftir slíkum pláss-
um.
- Arni
Egilsenshús i Stykkishólmi.
Morgunblaðið/Ámi Helgason