Morgunblaðið - 19.04.1988, Page 76

Morgunblaðið - 19.04.1988, Page 76
ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988 VERÐ í LAUSASÖLU 60 KR. Bjórfrtimvarpið samþykkt í neðri deild: Þjóðaratkvæði naumlega fellt Bjórfrumvarpið var samþykkt í neðri deild Alþingis í gær að lok- inni siðustu umræðu. Allar breytingartillögur að einni undanskilinni voru felldar og féll tillaga um þjóðaratkvæði naumlega eða með 19 atkvæðum gegn 18. í efri deild Alþingis þarf frumvarpið að hljóta samþykki óbreytt að loknum þremur umræðum áður en það verður að lögum. _ Tillaga Áma Gunnarssonar og fleiri þingmanna um þjóðarat- kvæðagreiðslu um bjórfrumvarpið var felld með 19 atkvæðum gegn 18. Tveir andstæðingar bjórsins greiddu atkvæði gegn þjóðarat- kvæðagreiðslu, en það voru þeir Albert Guðmundsson og Friðjón Þórðarson. Fjórir þingmenn sem voru fylgjandi bjómum greiddu hins vegar atkvæði með þjóðaratkvæði (Guðmundur Bjamason, Guðmund- ur G. Þórarinsson, Kristín Halldórs- dóttir og Ragnar Amalds). Tillaga frá Steingrími J. Sigfús- syni um 75 milljóna króna framlag úr ríkissjóði til áfengisvama var felld með 19 atkvæðum gegn 16, en hins vegar var samþykkt breyt- ingartillaga frá Ragnari Amaíds um skipan fimm manna nefndar til að gera tiliögur um það hvemig draga megi úr heildameyslu áfeng- is. Að afgreiddum breytingartillög- um var gengið til atkvæða um sjálft frumvarpið með áorðnum bréyting- um. Frumvarpið var samþykkt með 23 atkvæðum gegn 17. Tveir þing- menn, Málmfríður Sigurðardóttir og Sighvatur Björgvinsson, voru fjarstaddir. í samtali við Morgunblaðið sagði Karl Steinar Guðnason forseti efri deildar að hann reiknaði með því að bjórfrumvarpið kæmist fyrst á dagskrá deildarinnar næstkomandi miðvikudag. Þennan dag verður Karl fjarverandi og mun Guðrún Agnarsdóttir gegna störfum for- seta. Guðrún var hins vegar frekar svartsýn á það í samtali við Morg- unblaðið að málið kæmist á dag- skrá í þessari viku, enda væru mörg mál á dagskrá á undan bjór- málinu. Þrír Frakk- ar sóttir í Nýjadal Flugbjörgunarsveitinni á Hellu barst um klukkan 19.30 i gær beiðni um að sækja þrjá franska ferðamenn i skála Ferðafélags íslands í Nýjadal. Einn hafði slasast á fæti, annar hafði kalsár á hné en sá þriðji var þrekaður og treysti sér ekki til að halda áfram förinni. Frá Hellu fóru 7 flugbjörgunar- sveitarmenn til aðstoðar og klukkan 11 í gærkvöldi voru þeir staddir við Vatnsfell. Færi var sagt hart og gott og bjuggust björgunarmenn við að koma í Nýjadalsskálann um eða eftir klukkan 1 f nótt og aftur til byggða um níuleytið í morgun. Morgunblaðið/Rúnar Á VEIÐUM i Mávurinn átti sér ekki undankomu auðið eftir að fálkinn hafði læst klóm sínum í hann við Leiru- veginn fyrir innan Akureyri á sunnudaginn. Á minni myndunum sést hvar fálkinn gæðir sér á bráðinni, en á stóru myndinni situr hann makindalega, mettur og rólegur, á þaki húss við Aðalstræti. Fundað um fersk- fiskútflutning HALLDÓR Ásgrímsson, sjávarút- vegsráðherra, hefur boðað hóp manna á sinn fund f dag til að ræða um stýringu á ferskfiskút- flutningi á Bretlandsmarkað. Mikið framboð á ferskum fiski frá íslandi að undanförnu hefur vald- ið verðfalli á frystum fiski, þar sem fiskvinnslustöðvar í Bret- landi flaka og frysta islenska fisk- inn og geta boðið hann á lægra verði en íslendingar. Bjami Lúðvíksson, framkvæmda- stjóri Sölumiðstöðvar hraðfrystihú- sanna, kvað ensku vinnslustöðvam- ar geta boðið afurðir sínar á 10-15% lægra verði en íslensk frystihús. Hann sagði að það yrði að stýra framboði á ferskum fiski ef halda ætti hæsta mögulega verði. Sigurður Á. Sigurðsson, framkvæmdastjóri Iceland Seafood Limited, dótturfyr- irtæki SÍS í Bretlandi, tók í sama streng og sagði brýnt að takmarka útflutning á ferskum fiski til Bret- lands, þar sem offramboð á honum sé að eyðileggja freðfískmarkaðinn og stríði gegn íslenskum hagsmun- um. Á fundinum í dag verða fulltrúar sjávarútvegsráðuneytisins, utanrík- isráðuneytisins og Fiskifélags ís- lands, auk fulltrúa hagsmunaaðiia í sjávarútvegi, svo sem samtaka út- vegsmanna og sjómanna og fulltrúar fískvinnslunnar. Sjá viðtöl á bls. 7. Nýr fuiidur ekki boðaður í deilu verslunarmanna FUNDI samninganefnda þeirra félaga verslunarmanna, sem felldu samningana, og viðsemjenda þeirra, lauk hjá ríkissáttasemjara i gær án þess að til nýs fundar væri boðað og er óvíst hvenær af næsta fundi verður að sögn Guðlaugs Þorvaldssonar, ríkissáttasemjara. Átta félög verslunamanna hefja verkfall á föstudaginn kemur og tvö bætast í hópinn strax eftir helgina, en alls felldu fjórtán félög samningana, sem gerðir voru fyrir tæpum tveimur vikum. Magnús L. Sveinsson, formaður Verslunarmannafélags Reykja- víkur, og Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri Vinnuveitenda- sambands íslands, segja að fundur- inn í gær hafi verið árangurslaus með öllu og Þórarinn segir þessa deilu alvarlegustu atlöguna að þeirri launa- og efnahagsstefnu, sem mótuð hefur verið í kjarasamn- ingum undanfama mánuði. Magnús L. Sveinsson, formaður Verslunarmannafélags Reykjavík- ur, sagði að ekkert hefði komið út úr fundinum í gær og þvf stefndi í verkfall á föstudaginn. Hann sagði að vinnuveitendur höfnuðu öllum kröfum VR, en VR stæði fast við kröfuna um 42.000 króna mánaðar- laun, það væru skilaboð félaga til forystunnar. Magnús sagði að þeg- ar verið væri að bera saman laun verslunarmanna við ófaglært verkafólk láðist oft að geta þess að meginþorri þeirra sem tækju laun samkvæmt samningum Verka- mannasambandsins fengju veru- lega auknar tekjur í gegnum bónus- kerfi, sem verslunarmenn fengju ekki. „Þessi fundur jók fremur áhyggj- ur mínar heldur en hitt og mér sýnist að framundan sé mjög erfið deila,“ sagði Þórarinn V. Þórarins- son. „Við horfum til þess að hafa samið við þorra félaga ófaglærðs fólks um launabreytingar á bilinu 14-20% mismunandi eftir því hver Iaunaþróunin var á síðasta ári. Laun fyrir afgreiðslustörf eru orðin mjög svipuð því sem gerist í framleiðslu- iðnaði og ýmsum öðrum greinum. Við getum ekki horft á kröfu sam- taka verslunarfólks um upphafs- hækkun launa um 27% sem sérmál þeirra heldur lítum við á það sem kröfu um almenna hækkun þeirra launa sem við semjum um,“ sagði Þórarinn. Hann sagði að það væri tómt mál að tala um frekari almenna kaupmáttaraukningu, hækkun um- fram það sem þegar hefði verið samið um leiddi til jafnmikillar aukningar verðbólgu. „Ég á fast- lega von á því að það komi til verk- falls og ég get ekki sagt fyrir um hvað það varir lengi. Ég hlýt hins vegar að ráðleggja fólki að byrgja sig vel upp, því það er alveg ljóst að vörudreifíng lamast að verulegu leyti,“ sagði Þórarinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.