Morgunblaðið - 14.06.1988, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 1988
•>3
Getur varðað sex ára
fangelsi að valda bana-
slysi í umferðinni
ÖKUMENN, sem verða valdir að banaslysum geta átt yfir höfði sér
allt að sex ára fangelsisdóm, sem er þyngsta refsing, sem lög leyfa
í slíkum málum. Árlega eru nokkrir ökumenn ákærðir fyrir mann-
dráp af gáleysi í umferðinni og mörg dæmi eru um að kveðnir hafi
verið upp skilorðsbundnir fangelsisdómar i málum af því tagi.
Að sögn Gylfa Jónssonar lög-
reglufulltrúa liggur fyrir að maður-
inn, sem varð valdur að banaslysinu
á Skúlagötu aðfaranótt laugardags-
ins, hafði verið við drykkju um
kvöldið og tekið bílinn sem hann
ók ófijálsri hendi. Hann kom að
bílnum ólæstum og með lyklum í
kveikjulás. Maðurinn, sem er rösk-
lega þrítugur, er ökuréttindalaus,
hafði áður verið sviptur ökuréttind-
um fyrir umferðarlagabrot. Talið
er að maðurinn hafi verið á mikilli
ferð er hann ók austur Skúlagötu
Umferðarslys:
á öfugum vegarhelmingi og lenti
framan á bíl hjóna sem voru á leið
vestur. Kona, sem var farþegi í
framsæti bílsins, lést en eiginmaður
hennar, sem ók bílnum, slasaðist
mikið og liggur nú á sjúkrahúsi.
Skömmu áður en slysið varð hafði
leigubílstjóra naumlega tekist að
forðast árekstur við ölvaða manninn
með því að aka upp á gangstétt.
Að lokinni aðgerð vegna lítils-
háttar meiðsla, sem maðurinn hlaut
við áreksturinn, var honum tekið
blóð til að ákvarða alkóhólinnihald
Ellefu banaslys
frá áramótum
í blóði hans en síðan hafði lögreglan
hann í vörslu sinni uns hann þótti
hæfur til skýrslutöku næsta dag.
Hann var síðan látinn laus þar eð
ekki var talið að rannsókn málsins
krefðist þess að hann yrði úrskurð-
aður í gæsluvarðhald. Mál mannsins
er enn til rannsóknar hjá Slysarann-
sóknadeild lögreglunnar í Reykjavík
en verður sent ríkissaksóknara til
ákvörðunar á næstunni.
Bragi Steinarsson vararíkissak-
sóknari neitaði í gær að svara
spumingum um hvaða refsingar
ákæruvaldið m'uni krefjast yfir
manninum og eins vildi hann engar
upplýsingar gefa um hvort dómar
hefðu áður fallið í hliðstæðum mál-
um og hvaða refsingar hefði þá
verið krafíst.
Á hveiju ári eru nokkrir öku-
menn, sem talið er að hafi valdið
banaslysum í umferðinni með gá-
leysi sínu, ákærðir fyrir manndráp
af gáleysi og eru þá dæmi um að
í slíkum málum hafi verið beitt skil-
orðsbundnum fangelsisdómum, auk
greiðslu sektar og ökuleyfissvipt-
ingar samkvæmt ákvæðum um-
ferðarlaga.
Morgunblaðið/Júlíus
Reykkafari slökkviliðsins kemur út úr ammoníakgufunum. Að baki
honum má sjá blásarann, sem notaður var til að blása eitraða loft-
inu út úr kæliklefanum. Reykkafarinn er klæddur einum hinna nýju
hlífðarbúninga slökkviliðsins, sem standast eitraða vökva og gufur
og auðvelda slökkviliðsmönnum því að fást við efnaslys eins ogþetta.
• •
Olvun átti þátt í fjórum slysanna
Sambandshúsið á Kirkjusandi:
Ammomaksrör sprakk
Nýir slökkviliðsbúningar komu að góðum notum
ÖLVUN er talin hafa átt hlut að
máli í fjórum af ellefu banaslys-
um sem orðið hafa í umferðinni
hérlendis í ár. Hinn 1. júlí í fyrra
höfðu orðið 9 banaslys i um-
ferðinni.
Pjórar konur og sjö karlar hafa
látist í umferðinni frá áramótum.
Fimm slysanna hafa orðið utan
Reykjavíkur en 6 í höfuðborginni.
Þrír gangandi vegfarendur hafa
látist, allir í Reykjavík.
Að sögn Sigurðar Helgasonar
fulltrúa hjá Umferðarráði hefur ölv-
un undanfarin ár komið við sögu í
um fjórðungi umferðarslysa hér-
lendis. Sigurður sagði að sumar-
mánuðurimir væru jafnan tími al-
Anna Jóna Jónsdóttir.
Lést í um-
ferðarslysi
Konan sem lést í umferðar-
slysi á Skúlagötu aðfararnótt
laugardagsins hét Anna Jóna
Jónsdóttir, 31 árs gömul til
heimilis að Ásvallagötu 15 í
Reykjavík. Hún starfaði sem
búningahönnuður og lætur eftir
sig eiginmann og 10 ára gamlan
son.
Eiginmaður Önnu Jónu, Jó-
hann Sigurðarson, leikari, slas-
aðist alvarlega og liggur þungt
haldinn í sjúkrahúsi.
varlegustu umferðarslysanna og þá
væri einnig meira um ölvunarakstur
en ella. Hann kvaðst telja að mikil
þörf væri á að efla forvarnar- og
áróðursstarf í umferðarmálum en
sagði að til þess að svo mætti verða
þyrftu að koma til auknar Ijárveit-
ingar.
Umferðarmál:
Þarf sam-
stillt átak
- segir lögreglustjóri
„ÞAÐ MÆTTI herða viðurlög við
alvarlegum umferðarbrotum en
vandinn í umferðarmálum verð-
ur ekki eingöngu leystur með
hertum viðurlögum, heldur þarf
að koma til samstillt átak margra
aðila,“ sagði Böðvar Bragason
lögreglustjóri í Reykjavík.
„Ölvunarakstur er mikill á is-
landi samanborið við nágrannalönd-
in og það virðist ekki slá á fjölda
þeirra sem gerast sekir um slík
brot. Miklar umræður og áróður í
þessum málum virðist því miður
ekki hafa borið tilætlaðan árang-
ur,“ sagði lögreglustjóri. Böðvar
Bragason sagði að það sem af er
árinu hafi lögreglan í Reykjavík
kært um 460 ökumenn fyrir ölvun
við akstur og einnig hafi kærum
vegna réttindaleysis við akstur
fjölgað verulega frá fyrra ári.
A VEGUM dómsmálaráðherra
hefur undanfarnar vikur verið
unnið að könnun á refisákvæðum
vegna alvarlegra umferðarlaga-
brota. Jón Sigurðsson dómsmála-
ráðherra skipaði í vetur nefnd
til að vinna að þessari könnun
og sagði hann i samtali við Morg-
unblaðið að hann teldi fulla
ástæðu til að kanna hvort þörf
sé á að endurskoða löggjöf hvað
SLÖKKVILIÐIÐ var í gær kallað
að hinum nýju aðalstöðvum SÍS
á Kirkjusandi. Þar er nú verið
að vinna að uppsetningu nýs
kælikerfis sem notar ammoníak
sem kælivökva og hafði lyftari
ekið á ammoníaksrör og það
sprungið. Eitraðar gufur stigu
upp af pollinum sem myndaðist
og megnan fnyk lagði um ná-
grennið. Slökkviliðið komst fyrir
lekann og að sögn Rúnars
Bjarnasonai, slökkviliðsstjóra,
Hafnarfj ör ður:
Átta ölvaðir
við stýri
ÁTTA ökumenn voru stöðvaðir
vegna ölvunar við akstur í Hafn-
arfirði um helgina og er það
óveiyu há tala þar í bæ.
Tvö slys urðu í bænum, annað á
laugardag og hitt á sunnudags-
kvöld. Á laugardag hjólaði 4 ára
bam fyrir bifreið á Grænukinn, en
meiddist þó lítið. Á sunnudagskvöld
um kl. 20 varð unglingspiltur á
skellinöðru fyrir bifreið á mótum
Mjóasunds og Austurgötu. Pilturinn
meiddist nokkuð á fæti.
þetta varðar.
Ráðherra sagði að undanfarnar
vikur hefðu orðið hörmulegir at-
burðir sem, þótt ólíkir séu, beri vitni
um skeytingarleysi fyrir velferð
samferðarmanna í umferðinni.
Nauðsynlegt sé að stemma stigu
við þessu viðhorfi og auk hertra
viðurlaga geti virk upplýsinga- og
áróðursstarfsemi verið mikilvæg í
því skyni.
var ekki veruleg hætta á ferðum
og enginn slasaðist. Ammoníak
getur haft skaðleg eituráhrif.
Að sögn slökkviliðsstjóra var
slökkviliðið vel í stakk búið að fást
við lekann, enda hafði það í fyrri-
nótt vaktað í fyrsta skipti löndun
ammoníaksskips í áburðarverk-
smiðjunni í Gufunesi til þess að
gæta fyllsta öryggis við áfyllingu
ammoníakstanks verksmiðjunnar.
Rúnar sagði að slökkviliðið væri
nýbúið að fá sér efnaþolna búninga
til þess að auðvelda sér viðureign
við eiturefnaleka á borð við þennan.
„Fólk veit oft ekki almennilega
hvert það á að snúa sér ef efnaleki
kemur upp, og til dæmis báðu þeir
sem hringdu héðan ekki um annað
en að fá blásara að láni til þess að
þurrka upp ammoníakspollinn,"
sagði Rúnar. „Hins vegar er
slökkviliðið rétti aðilinn til þess að
fást við svona hluti.“
Slökkviliðsstjóri vildi taka fram
að við meðferð ammoníaks og ann-
Heimsbikarmót í
skák hefst í dag:
Jóhann mæt-
ir Spasskíj
ANNAÐ heimsbikarmót Stór-
meistarasambandsins í skák
hefst í dag í Belfort í Frakk-
landi. Jóhann Hjartarsson tek-
ur þátt í mótinu, sem er í 15.
styrkleikaflokki af 16 mögu-
legum og er því eitt sterkasta
skákmót sem haldið hefur ver-
ið.
í fyrstu umferðinni teflir Jó-
hann við Boris Spasskíj og í ann-
arri umferðinni, sem tefld verður
á morgun, hefur hann svart á
móti Anatoly Karpov, fyrrum
heimsmeistara, og andstæðingi
sínum í næstu umferð áskorenda-
einvíginna. Auk Karpovs tekur
Garrí Kasparov, núverandi heims-
meistari, einnig þátt í mótinu, en
alls eru þáttakendur sextán.
Sjá ennfremur skákþátt Mar-
geirs Péturssonar á bls. 25.
arra hættulegra efna væri ástæða
til að sýna fyllstu varúð, til dæmis
að vera með gasgrímu og í góðum
hlífðarfatnaði.
Vesturbæjar Apótek:
Kristján P.
Guðmunds-
son fær lyf-
söluleyfið
Heilbrigðisráðherra hefur veitt
Krisjáni P. Guðmundssyni, lyfsala
í Borgamesi, lyfsöluleyfi Vestur-
bæjar Apóteks. Tekur Kristján við
stöðunni um áramót af Birgi Ein-
arssyni.
Fjórtán sóttu um stöðuna auk
Kristjáns. Þeir voru: Ríkharður Axel
Sigurðsson forstöðumaður, Bessi
Gíslason lyQafræðingur, Einar Magn-
ússon lyfjafræðingur, Einar Ólafsson
forstöðumaður, Freyja M. Frisbæk
forstöðumaður, Gylfí Garðarsson lyf-
sali, Halldór Magnússon forstöðu-
maður, Ingolf J. Petersen lyfjamála-
stjóri, Jón Björnsson lyfsali, Jón
Zimsem lyflafræðingur, Jón R.
Sveinsson lyfsali, Kristinn R. Gunn-
arsson lyfsali, Þorgils Baldursson
lyfjafræðingur og Þórdís Kristmunds-
dóttir prófessor.
Þyrlan sótti
sjómann
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar
sótti sjúkan sjómann um borð í
togarann Engey frá Reykjavík á
sunnudagskvöld.
Togarinn var staddur um 20
sjómílur suð-vestur af Reykjanesi.
Talið var að maðurinn væri með botn-
langabólgu og því ákveðið að koma
honum á sjúkrahús. Þyrlan lenti við
Borgarspítalann um kl. 23 og sam-
kvæmt upplýsingum Landhelgis-
gæslunnar gekk ferðin í alla staði vel.
Dómsmálaráðherra:
*
Astæða til að endur-
skoða refsilöggjöfina