Morgunblaðið - 14.06.1988, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 1988
Vinningstölurnar 11. júní 1988.
Heildarvinningsupphæð: Kr. 4.061.189,-
1. vinningur var kr. 2.033.628,- og skiptist hann á milli 3ja
vinningshafa, kr. 677.876,- á mann.
2. vinningur var kr. 608.612,- og skiptist hann á milli 142
vinningshafa, kr. 4.286,- á mann.
3. vinningur var kr. 1.418.949,- og skiptist hann á milli 4.683
vinningshafa, sem fá 303 krónur hver.
Sölustaðirnir eru opnir frá mánudegi til laugardags og loka
ekki fyrr en 15 mínútum fyrir útdrátt.
Milljónir á hverjum laugardegil Upplýsingarsími: 685111
Söíustaðirnir eru opnir frá
mánudegi til laugardags
°g loka ekki fyrr en 15 mínútum
fyrir útdrátt.
Milljónir á hverjum laugardegi! Upplýsingasími: 685111
Orðsending frá
forsetum Alþingis
Morgunblaðinu hefur bonzt eft-
irfarandi orðsending frá forset-
um Alþingis:
Að gefnu tilefni vilja forsetar Al-
þingis taka eftirfarandi fram:
Samkvæmt reglum um grenndar-
rétt gaf byggingarfulltrúi
Reykjavíkurborgar Alþingi kost á,
sem eiganda húsanna Vonarstrætis
12 og Tjarnargötu 5a og lóðanna
nr. 10 (hluti) og lOb við Vonar-
stræti, að tjá sig um framkvæmd
ráðhúsbyggingar á lóðinni Tjarnar-
götu 11.
Byggingarfulltrúa var sent svo-
fellt bréf:
24. mars 1988.
Alþingi hefur borist bréf yðar
dags. 25. febrúar sl., þar sem því
er gefinn kostur á að tjá sig um
fyrirhugað ráðhús á lóðinni nr. 11
við Tjarnargötu.
Af þessu tilefni skal eftirfarandi
tekið fram:
Alþingishúsið er nú of lítið fyrir
Alþingi. Úr þessu er nú bætt með
því að koma starfsemi þingsins fyrir
í sex húsum, auk Alþingishússins.
Eru hús þessi bæði ófullnægjandi
og óhentug. Jafnframt er búið við
þrengsli í sjálfu Alþingishúsinu.
Gert er ráð fyrir að núverandi
Alþingishús verði notað til frambúð-
ar. En til þess að svo megi verða
er nauðsynlegt að byggja hús í ná-
lægð Alþingishússins fyrir þá starf-
semi sem rúmast ekki þar. Þeim
húsum er ætlaður staður á landspil-
dunni sem Alþingi hefur til umráða,
annars vegar milli Kirkjustrætis og
Vonarstrætis og hins vegar milli
Templarasunds og Tjai'nargötu.
Alþingi leggur áherslu á að tekið
verði fullt tillit til þarfa þess við
ráðstöfun byggingalóða í næsta ná-
grenni Alþingishússins
Framangreint bréf yðar hefir ver-
ið fengið Garðari Halldórssyni hú-
sameistara ríkisins til umsagnar, en
embætti hans hefir umsjón með hús-
eignum Atþingis, og Sigurði Einars-
syni arkitekt, sem hlaut 1. verðlaun
í samkeppni um nýbyggingu Al-
þingis. Umsagnir þessara manna eru
yður hér með sendar.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
forseti sameinaðs Alþingis.
Karl Steinar Guðnason
forseti efri deildar.
Jón Kristjánsson
forseti neðri deildar.
Hjálagt fylgir:
1. Úmsögn Garðars Halldórssonar
húsameistara rikisins.
2. Umsögn Sigurðar Einarssonar
arkitekts.
Til hr. byggingarfulltrúa Gunnars
Sigurðssonar,
Skrifstofu Reykjavíkurborgar,
Borgartúni 3.
Umsögn
Varðar: Grenndarkynningu vegna
fyrirhugaðrar byggingar ráðhúss
Reykjavíkurborgar við Vonarstræti.
Skv. sérstakri ósk forseta samein-
aðs Alþingis, Þorvaldar Garðars
Kristjánssonar, hefur undirritaður
tekið saman eftirfarandi álit á þeim
þáttum, er varða hagsmuni Alþingis. ,
Með staðfestingu aðalskipulags
Reykjavíkur frá 1967 er stigið það
skref, að ákveða staðsetningu ráð-
húss við norðurenda Tjarnarinnar í
Reykjavík, þ.e. sunnan Vonarstræt-
is. í því deiliskipulagi, af miðborg
Reykjavíkur, sem staðfest var af
félagsmálaráðherra nú nýverið, er
hin nákvæma staðsetning ráðhúss
endanlega ákveðin. Á grundvelli
þeirrar staðsetningar, þ.e. við norð-
vesturhorn Tjamarinnar, var haldin
samkeppni meðal arkitekta um lausn
á ráðhúsi. Nú hefur verið ákveðið
að byggja eftir þeirri tillögu, sem
hlaut fyrstu verðlaun, og er leitað
álits Alþingis á þeim fyrirhuguðu
framkvæmdum.
Sjúkraþjálfun
Reykjavíkur:
Þjálfunar-
stöð opnuð
SJÚKRAÞJÁLFUN Reykjavíkur
opnaði þann 3.júní þjálfunarstöð
á annarri hæð Héðinshússins,
Seljavegi 2.
Samkvæmt upplýsingum eigenda
stöðvarinnar starfa þar fjórir sjúkra-
þjálfarar og þarf tilvísun frá lækni
til að komast í endurhæfingu. Stöðin
er opin frá 8 til 16 virka daga.
Fyrirtækið heldur fundi á vinnu-
stöðum um rétta líkamsbeitingu við
vinnu og hyggur á forvamarstarf í
skólum.
Morgunblaðið/KGA
Eigendur stöðvarinnar, f.v.: Þorleifur Stefánsson, Ingólfur Ingólfs-
son, Gauti Grétarsson og Þorgeir Oskarsson sjúkraþjálfarar.
KLM
Royal Dutch Airlines
Hollendingamir eru komnir
Með því að Arnarflug er nú farið að fljúga daglega fil Amsferdam
aukast möguleikar þeirra sem ferðast í viðskiptaerindum til að hagnýta
sér tengiflug KLM til yfir 130 borga í 76 löndum. ■ Framhaldsflug er
hvergi þœgilegra en frá Schiphol flugvelli sem ár eftir ár er kjörinn
besti flugvöllur íheimi. ■ 77/ oð sinna auknum markaði hafa Arnarflug
og KLM opnað nýja upplýsinga- og söluskrifstofu að Ausfursfrœti 22,
sími 62 30 60. - Verið velkomin.