Morgunblaðið - 14.06.1988, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 14.06.1988, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 1988 35 Mandela-tónleikar á Wemble v-leikvanaí London, Reuter. v J Reuter Turgut Ozal, forsætisráðherra Tyrklands (til hægri), og Andreas Papandreou, forsætisráðherra Grikklands (til vinstri), sjást hér kanna heiðursvörð hermanna á alþjóðaflugvellinum i Aþenu. Qzal í Grikklandi: Víðtæk mótmæli Kýpur-Grikkja Krefjast brottflutnings tyrknesks herliðs A^en IRISl enu, Níkosíu, Reuter. GRÍSKA lögreglan hafði mikinn viðbúnað í gær er Turgut Ozal, forsætisráðherra Tyrldands, kom í þriggja daga, opinbera heim- sókn til Grikklands. Þúsundir lög- reglumanna, þ. á. m. leyniskyttur, gættu ráðhcrrans á leið hans til hótelsins er hann gistir. Fjöldi Kýpur-Grikkja, i Grikklandi jafnt sem á Kýpur, notaði tækifærið til að mótmæla veru tyrkneska her- liðsins á svæði tyrkneska minni- hlutans á Kýpur. Markmið heimsóknar Ozals er að fylgja eftir friðarumræðum sem hann hefur að undanfömu átt við Papandreou, forsætisráðherra Grikklands. Ríkin eiga bæði aðild að Atlantshafsbandalaginu en sam- búðin hefur lengi verið stirð. Ýmsir hópar, sem telja sig eiga Tyrkjum grátt að gjalda, hafa hótað að trufla heimsóknina. Fyrir utan Kýpur-Grikki má nefna Armena og Kúrda. Nokkrir tugir kvenna af ættum Kýpur-Grikkja lokuðu í gær að- gönguleiðum að Akrópólis-hæðinni í höfuðborginni, Aþenu, og urðu er- lendir ferðalangar frá að hverfa en hæðin með hofum sínum er einn af merkustu sögustöðum landsins. Lög- reglu tókst að reka konumar á brott eftir þriggja stunda þóf. Þær vildu mótmæla því að þær misstu heimili sín á Kýpur er tyrkneski herinn hemam norðurhluta Kýpur árið 1974 til að vemda hagsmuni landa sinffa á eynni. Á Kýpur fóm þúsundir manna um götur höfuðborgarinnar, Nikósíu, og heimtuðu að Grikkir settu það að skilyrði fyrir bættri sambúð við Tyrki að tyrkneska herliðið yrði á brott. Ozal hefur lýst því yfir að ekki sé mögulegt að fmna lausn á þvi máli í snatri og Tyrkir myndu alls ekki láta undan þvingunum. MIKIÐ var um að vera á Wem- bley-leikvanginum í Lundúnum á sunnudag þegar þar voru haldnir tónleikar tíl heiðurs suður- afríska blökkumannaleiðtogan- um Nelson Mandela sjötugum en hann hefur verið í fangelsi í Suður-Afríku í 24 ár. Rúmlega 70.000 manns sóttu rokktónleik- ana sem stóðu yfir í 10 klukku- stundir og var sjónvarpað beint til 400 milljóna manna um allan heim. „Við emm hér öll samankomin í dag til að taka þátt í einstæðum atburði fyrir mikinn mann, þann sem er leiðtogi kúgaða svarta meiri- hlutans í Suður-Afríku," sagði bandaríski söngvarinn Harry Bela- fonte í upphafi tónleikanna og hann bætti við: „í dag höldum við upp á sjötíu ára afmæli hans. Það, sem við viljum, er að heiðra þig Nelson Mandela og við viljum sjá þig og samfanga þína, sem einnig em í haldi af stjórnmálalegum ástæðum, fijálsa." Að sögn skipuleggjenda era tón- leikamir ásamt bflarallíi sem á að fara fram í Glasgow um næstu helgi áskomn allrar heimsbyggðar- innar til stjómvalda í Suður-Afríku um að láta blökkumannaleiðtogann lausan á afmælisdegi háns, 18. júlí næstkomandi. Tónleikamir hófust með því að breska poppstjaman Sting sté á sviðið en á eftir honum tróðu ýmsar stjömur úr poppheiminum upp. Þeirra á meðal vom Stevie Wond- er, George Michael, dúettinn Eur- ythmics og Whitney Houston. Eins Reuter og áður segir var tónleikunum sjón- varpað beint til fjölmargra landa og má geta þess að á meðal þeirra sem keyptu beinan sýningarrétt af breska sjónvarpinu vom Japanir, Bandaríkjamenn og Sovétmenn. Forsvarsmenn BBC (breska sjón- varpsins) og leiðtogi Afríska þjóðar- ráðsins hafa tilkynnt að þeir fjár- munir sem safnast hafa með tón- leikunum muni renna til samtaka sem beijast gegn aðskilnaðarstefn- unni í Suður-Afríku og til sjö góð- gerastofnana sem hjálpa bömum í Suður-Afríku. Annie Lennox syngur fyrir rúm- lega 70.000 áhorfendur á Wembl- ey leikvanginum á sunnudag. Sovétríkin: Najibullah í heimsókn Moskvu, Reuter. NAJIBULLAH, forseti Afganist- ans, hitti Míkhaíl Gorbatsjov, leið- toga Sovétríkjanna, að máli i Moskvu í gær. Eftir þann fund sökuðu sovésk stjómvöld Pakist- ani um að leyfa afgönskum skæm- liðum að halda sovéskum stríðsföngum í Pakistan og kröfð- ust þess að Sovétmennimir yrðu þegar i stað leystir úr haldi. Fréttastofan Tass skýrði frá því að Gorbatsjov hefði efnt til morgun- fundar með Najibullah, sem kom til Moskvu á sunnudag eftir að hafa verið í heimsókn í Kúbu. Najibullah lagði af stað til Afganistans eftir Kremlarfundinn og á meðan ræddi aðstoðamtanríkisráðherra Sovétríkj- anna, Júlí Vorontsov, við sendiherra Pakistans í Moskvu og krafðist þess að Pakistanir tryggðu að sovéskir stríðsfangar yrðu leystir úr haldi og fluttir til Sovétríkjanna. Tass greindi frá því að sovésk stjómvöld hefðu ítrekað hvatt stjóm Pakistans til að beita sér fyrir því að stríðsfangamir yrðu leystir úr haldi eftir að samning- urinn um Afganistan var undirritað- ur í aprfl. Fórnarlömb hreinsana fá uppreisn æru Gregoríj Zínovíev (til vinstri) og Lev Kamenev sem vom skotnir eftir að hafa verið dæmdir til dauða sem „óvinir verkalýðsins" á fjórða áratugnum, vom hreins- aðir í gærmorgun af ákærunum, að þvi er sovéska dagblaðið íz- vestía greindi frá í gær. Að sögn blaðsins hreinsaði æðsti dómstóll Sovétríkjanna Kamenev, Zínovíev og tvo aðra andstæðinga Stalíns, Júri Pjatakov og Karl Radek, sem dæmdir vora til dauða í sýndar- réttarhöldunum á árunum 1936 og 1937. „Rétturinn úrskurðaði að þeir væm saklausir fyrir lög- unum, ríkinu og verkalýðnum,“ segir í blaðinu. „Ríkið sem þeir áttu þátt í að skapa fyrir 50 ámm hefur veitt þeim uppreisn æra.“ Voc/o. ERMILLJON! KLASSÍKER í HEIMIBÍLANNA Verödœmi: VOLVO 240 GL 4ra dyra.m / sjálfskiptingu 3 þrepa + yfirgfr kr. 1.014.000.- Útborgun 25% kr. 253.000.- Eftirstöövar á 30 mánuöum. Eöa notaöa bílinn uppí sem útborgun og eftirstöövar á 12—30 mánuöum. ÞÚ KEMUR Á GAMLA BÍLNUM OG EKUR ÚT Á NÝJUM! ÞÚ GETUR LÍKA FENGIÐ ÓDÝRARI VOLVO! Verö trá kr. 641.000,- Útborgun 25% — eftirstöðvar allt aö 30 mánuöir. Clfeiár 1968-1988 Innifaliö í veröi: Vökvastýri • klukka • lituðgler • upphltuöframsœti púöar á fram- og aftursœtum • þokuljós i afturljósum 2 útispeglar (stillanlegir innanfrá) • purrkuráframljósum • upphituö afturrúöa • höfuö- barnalœsing • 5 öryggisbelti • ryövörn. Allt þetta á kr. 1.014.000.-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.