Morgunblaðið - 14.06.1988, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 1988
Flugvöllurinn á Akureyri minnti a stöðuvatn þegar flóðin
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Eyjafjarðará náðu hámarki.
Fulltrúar frá vina-
bæjum í heimsókn
FULLTRÚAR frá vinabæjum Ak-
ureyrar á Norðurlöndum voru í
heimsókn hér um helgina þar sem
m.a. var haldinn formlegur fund-
ur og ákveðið að efna til sérstakra
vinabæjavikna þessara bæjarfé-
laga í framtíðinni. Fyrsta vina-
bæjavikan verður haldin á þessu
ári í Randers í Danmörku en árið
1991 kemur röðin að Akureyri.
Gunnar Ragnars, forseti bæjar-
stjómar, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að hver vika yrði þannig upp-
byggð að hún innihéldi eitthvert
áhveðið þema, og yrði það þá gest-
anna jafnt sem gestgjafanna að
leggja til efni í hverja viku. Sagði
hann að þemað í Randers yrði í
tengslum við tónlist og að héðan frá
Akureyri færi m.a. Big band hljóm-
sveit. Þemað hér á Akureyri 1991
sagði hann að yrði hins vegar tengt
bókmenntum.
Vinabæir Akureyrar á Norður-
löndunum eru Álasund í Noregi,
Randers í Danmörku, Lathi í Finn-
landi, Vesteras í Svíþjóð og Narsakk
á Grænlandi. Fjórir fulltrúar voru
að þessu sinni frá hveiju landi, og
stóð heimsókn þeirra yfir helgina.
Farið var með þá í Laxdalshús eftir
fundinn á laugardag, og þar var
þeim boðið upp á hangikjöt og skyr,
en síðan var farið í gönguför í
blíðunni, og Lystigarðurinn m.a.
skoðaður.
Um kvöldið var síðan farið með
hópinn til Grímseyjar. Þar var geng-
ið norður á Grímseyjarbjarg þar sem
Gunnar Ragnars sagði að hefði verið
hægt að spóka sig i miðnætursólinni.
Vatnavextirnir í Eyjafjarðará:
Þjóðvegurimi simnan flug-
vallar hækkaður um 60 sm
Vatnavextirnir í Eyjafjarðará
eru nú í rénum. Einn viðmæl-
andi Morgunblaðisins taldi að
áin hefði aldrei flætt eins mikið
yfir bakka sína og nú, en Aðal-
steina Magnúsdóttir á Grund í
Eyjafirði taldi þó að flóðið í
ánni fyrir tveimur árum hefði
verið alveg jafn mikið, auk þess
sem vatnavextirnir hefðu verið
miklu meiri árið 1939, en að
hennar sögn var Eyjafjörður
þá eins og eitt stórt stöðuvatn.
Eins og fram hefur komið í
fréttum flæddi Eyjafjarðará yfir
gamla þjóðveginn sunnan flugvall-
arins og alla leið inn á flugvallar-
svæðið. Rúnar Sigmundsson, flug-
vallarstjóri, sagði í samtali við
Morgunblaðið að vatn hefði náð
inn á flugvallarplanið, þannig að
flugvélar í farþegaflugi hefðu
þurft að keyra alveg upp að flug-
stöðvarbyggingunni til þess að
fólkið kæmist inn þurrum fótum.
„Það flæddi inn í slökkvistöðina
og vélageymslu flugvélastjómar,
auk þess sem vatn fór inn í flug-
skýli Flugfélags Norðurlands,"
sagði Rúnar í samtali við Morgun-
blaðið. Sagði hann að það hefði
verið vegna snarræðis eins starfs-
manns, sem kom til starfa um
INNLENT
klukkan sjö á laugardagsmorgun,
að tekist hefði að bregðast skjótt
við og dæla vatni úr byggingunum
og veija þær síðan fyrir vatns-
flaumnum.
„Það þarf náttúrlega eitthvað
að gera til þess að koma í veg
fyrir að þetta endurtaki sig og ég
held að meiningin sé að hækka
gamla þjcðveginn sunnan flug-
brautarinnar um ca. 60 sm en þá
ætti hann hugsanlega að geta
myndað góðan vamargarð," sagði
Rúnar að lokum.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Fulltrúar vinabæjanna á Norðurlöndum fyrir framan Laxdalshús á
Akureyri.
Róbert B. Árnason, fram-
kvæmdastjóri Kísiliðjunnar.
Kísiliðjan 20 ára:
Björn Jósef ALrnviðarson, stjóm-
arformaður Kísiliðjunnar, í
ræðustól á aðalfundi.
Kísiliðjan í Mývatnssveit
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Hagnaður 12 milljóiiir og
staða fyrirtækisms sterk
HAGNAÐUR Kísiliðjunnar við
Mývatn nam á síðasta ári rúm-
Iega 12 milljónum króna en það
er um 4,8% af rekstrartekjum
STEFAHIA
96-26366 AKUREYRI 96-26366
fyrirtækisins. Á aðalfundi
Kisiliðjunnar, sem haldinn var
í gær, kom fram í máli sljórnar-
formannsins, Bjöms Jósefs
Araviðarsonar, að afkoma verk-
smiðjunnar hefði verið betri
fyrstu fjóra mánuði þessa árs
en á sama tímabili í fyrra og
væri það betri afkoma en reikn-
að hafði verið með. Sagði hann
að þrátt fyrir þetta væri ekki
séð að aðstæður á kísilgúrmörk-
uðum hefðu breyst til hins
betra; gengi Bandaríkjadals
væri enn lágt og margir söluað-
ilar bitust um markaðinn.
Á þessu ári eru liðin 20 ár síðan
Kísiliðjan var stofnuð og af því
tilefni komu hingað til lands 43
fulltrúar 18 landa, til að kynna
sér rekstur hennar, en hún er eina
kísilgúrverksmiðjan í heiminum
sem vinnur kísilgúr af botni vatns,
því annars staðar er hann unnin
úr þurrum námum.
Utflutningur Kísiliðjunnar nam
á síðasta ári tæplega 22 þúsundum
tonna af kísilgúr, en það er um
17% minni útflutningur en árið
1985, þegar metár var í útflutn-
ingi hjá fyrirtækinu. Björn Jósef
Arnviðarson sagði þó að rekstrar-
niðurstaða ársins 1987 yrði að
teljast viðunandi þar sem tekjur
milli ára stæðu nánast í stað. Þá
sagði hann að rekstarfjárstaða
Kísiliðjunnar væri mjög góð og að
heildarskuldir væru aðeins samtals
5,8% af eigin fé fyrirtækisins.
„Staða Kísiliðjunnar er sterk;
við skuldum sama sem ekki neitt
og því hefur íjármagnskostnaður
verið mjög lítill," sagði Róbert B.
Agnarsson, framkvæmdastjóri
Kísiliðjunnar, eftir aðalfundinn í
gær í samtali við Morgunblaðið.
„Gengisfellingarnar tvær, sem
urðu fyrir skömmu, bættu stöðuna
töluvert fyrir fyrirtækið, og maður
vonar bara að kostnaðarhækkanir
hér innanlands á næstunni verði
skaplegar, þrátt fyrir að útlit sé
fyrir 20-25% verðbólgu. Sam-
keppnin á þessum markaði er orð-
in verulega mikil. Bandaríkjamenn
selja mikið af kísilgúr á Evrópu-
markað, en það er sá markaður
sem við höfum aðallega selt á, og
þar hafa þeir boðið kísilgúrinn á
lægra verði en við. Við höfum hins
vegar verið mjög heppnir með selj-
endur fyrir okkur, Manville Corp-
oration, en þeir eru stærstu selj-
endur kísilgúrs í heiminum,“ sagði
Róbert.