Morgunblaðið - 14.06.1988, Page 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 1988
Bestu kaunin eru hiá okkur!
Hjá okkur fáið þið orginal pústkerfi í allar gerðir MAZDA
bíla á sérlega hagstæðu verði. Við veitum 20% afslátt ef
keypt eru heil kerfi með festingum. Kaupið eingöngu
EKTA MAZDA pústkerfi eins og framleiðandinn mælir með
- þau passa í
BÍLABORG HF.
FOSSHÁLSI 1.SÍMI 68 12 99
Þeir Gauti Már Gunnarsson og Ásgeir Björnsson sögðust hafa gam-
an af öllu á leikjanámskeiðinu, en sérstaklega sundinu.
Námskeið í Fellahelli:
Bægslagangur í sund-
laugunum í Laugardal
Reykjavíkurborg býður upp á
fjölbreytt íþrótta- og leikjanám-
skeið í Fellahelli í sumar. Alls
verða námskeiðin 5 og stendur
hvert þeirra í hálfan mánuð.
Um þessar mundir stendur fyrsta
námskeiðið yfir. Farið er með börn-
in í stuttar ferðir og þeim kenndir
ýmsir leikir. Blaðamenn Morgun-
blaðsins hittu um það bil 30 manna
hóp á aldrinum 6-11 ára í sundlaug-
unum í Laugardal nú fyrir skömmu.
Þar gekk mikið á eins og við var
að búast.
Morgunblaðið/Einar Falur
Unga sundfólkið skemmti sér hið besta í Laugardalslauginni eins
og sjá má.
Jón Emil Guðjónsson
fv. framkvæmdastjóri
gegni starfi sinu af trúmennsku
enda ferst stundum fyrir að full-
þakkað sé, ekki síst ef sá er gegndi
hefur ekki hug á að bera sig eftir
orðstír eða viðurkenningu. Það var
Jóni ekki lagið. Honum var nóg að
uppskera árangur erfíðis síns í vexti
og viðgangi þess fyrirtækis sem
honum var trúað fyrir. En íslenskir
bama- og unglingaskólar og nem-
endur þeirra um langt árabil standa
í þakkarskuld við hann. Skuld sem
hvorki var krafin né verður úr þessu
greidd.
Og er það ekki þannig sem best
er að kveðja þegar kallið kemur?
Það er að láta eitthvað eftir sig.
Ættingjum og vinum Jóns Emils
Guðjónssonar sendi ég samúðar-
kveðjur.
Kristján J. Gunnarsson
Kveðja frá Námsgagna-
stofnun
Jón Emil Guðjónsson fyrrverandi
framkvæmdastjóri Ríkisútgáfu
námsbóka er allur. Stjóm og starfs-
fólk Námsgagnastofnunar vilja með
þessum fáu línum votta honum virð-
ingu sína um leið og sendar eru sam-
úðarkveðjur til aðstandenda.
Jón Emil var ráðinn framkvæmda-
stjóri Ríkisútgáfu námsbóka eftir að
um hana höfðu verið sett ný lög árið
1956, en hafði þá um árabil haft
umsjón með afgreiðslu bóka útgáf-
unnar sem starfsmaður Menningar-
sjóðs. Löggjöfin 1956 markaði tíma-
Fæddur 21. júní 1913
Dáinn 5. júní 1988
Yfír moldum góðs drengs, vinar
og vinnufélaga í áratugi, fer ekki
hjáþví að margar minningar vakni.
Úr foreldrahúsum kom Jón Emil
Guðjónsson með hugsjónir aldamóta-
mannanna að leiðarljósi og kom það
í ríkum mæli fram í störfum hans,
sem hann sinnti af mikilli alúð og
trúmennsku.
Ég kynntist Jóni Emil er hann tók
við starfí framkvæmdastjóra
Ríkisútgáfu námsbóka 1956 og tók
þátt í uppbyggingu fyrirtækisins
undir hans stjóm. I því starfí komu
mannkostir og upplag Jóns vel í ljós.
Hann lagði áherslu á sterkan grund-
völl og traustan fjárhag og býr
Námsbókaútgáfan enn að þeim
grunni.
Áður gegndi Jón Emil starfí fram-
kvæmdastjóra Bókaútgáfu Menning-
arsjóðs og Þjóðvinafélagsins og kom
með góða þekkingu á bókaútgáfu í
sitt nýja starf auk þess sem kennara-
menntun hans og kennslureynsla
voru honum gott veganesti.
Mikill áhugi hans og dugnaður
kom ekki síst fram í þörf á að fylgj-
ast með nýjungum og reynslu ann-
arra í starfí og áhugamálum. Bóka-
útgáfa átti hug hans og námsbækur
skipuðu þar sérstakan sess. Ekki
kom það á óvart að opnar náms-
bækur voru við hlið hans síðustu
lífdagana og ekki heldur að hugur
hans var bundinn við þá hluti, sem
gera þyrfti, fram á síðustu stund.
Hér er ekki ætlunin að skrifa
margar og langar minningar heldur
stutta vinar- og þakklætiskveðju.
Systrum hans og ættingjum votta
ég dýpstu samúð við missi góðs bróð-
urs og mæts manns.
Bragi GuðjónssOn
Eitt af því besta sem fyrir nokk-
urn mann getur borið á lífsleiðinni
er að kynnast góðu fólki. Þegar
allt kemur til alls er það líklega
ennþá meira virði en margir þeir
kjarabótapakkar, uppfullir af
mannsæmandi lífskjörum sam-
keppnisþjóðfélagsins, sem ýmsir
miskunnsamir atvinnusamveijar
gauka öðru hvoru að þér til að
kaupa sér fylgi þitt.
Minningin um kynni mín af Jóni
Emil Guðjónssyni er minning um
mann sem mér þykir mikils um
vert að hafa kynnst. Hann var heill
hveijum manni sem hann átti skipti
við og vinur vina sinna. Óvini held
ég hann enga hafa átt en hefði svo
verið myndi hann ekki að heldur
hafa lagt þeim lastyrði.
Um nærfellt aldarfjórðungsskeið
störfuðum við Jón saman að mál-
efnum Ríkisútgáfu námsbóka þar
sem hann var framkvæmdastjóri.
Verkefnið var stórt og vissulega
var sá sem fór með framkvæmd
þess yfír mikið settur. Þar voru þó
í fullu gildi hin fomu spekiorð
Meistarans að fyrst og síðast er
nauðsynlegt að vera trúr yfír litlu
því að smátt skammtaði ríkisvaldið
alla fjármuni til ríkisútgáfunnar og
í engu samræmi við umfang og
þarfír. Varla get ég hugsað mér
nokkurn mann sem í þessu efni
hefði getað verið trúrri yfir litlu en
Jón Emil Guðjónsson var og þó með
framúrskarandi hagsýni og tals-
verðum metnaði náð þeim árangri
sem hann náði við að efla það van-
burða fyrirtæki sem ríkisútgáfan
var þegar hann tók við henni og
stórbæta námsbókakost skólanna.
Sjálfsagt er það í sjálfu sér svo
sem aldrei þakkarvert þó að menn
t6lvu Jt
t/IHDIID HUQBÚNAÐUfí
wvBKwlK. stm&Jmwmn
mmm « % m mkvkmnIk *
* Sterkbyggt og fallegt í
Ijósum litum.
* Hentar öllum gerðum
prentara.
* Hægt að hafa allt að 6
mismunandi pappírs-
form í einu.
* Þú skiptir um pappír
með einu handtaki án
þess að þurfa að
beygja þig.
* Ef þú þarft oft að
skipta um pappír, þá
erþetta prentaraborð
fyrirþig.
* íslensk hönnun —
íslensk framleiðsla.
* Styðjum íslenska
framleiðslu — kaupum
íslenskt.