Morgunblaðið - 14.06.1988, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 1988
61
Friðþjófur Helga-
son - Minning
Fæddur 28. febrúar 1917
Dáinn 5. júní 1988
Þegar ég hóf störf hjá Slökkviliði
Reykjavíkur fyrir rúmum fimmtán
árum, gekk ég inn í hóp góðra
drengja, sem ég hef bundist traust-
um böndum. Einn úr þeim hópi
hefur nú lokið jarðvistargöngu sinni
og er kvaddur í dag með þakklæti,
virðingu og trega.
Friðþjófur var að mennt bifvéla-
virki og bifreiðasmiður. Starfsheiti
hans innan Slökkviliðs Reykjavíkur
var umsjónarmaður slökkvitækja.
Starf hans var fólgið í að sjá svo
um, að öll tæki slökkviliðsins væru
ávallt í fullkomnu lagi og ynnu eins
og til er ætlast undir öllum kring-
umstæðum. Friðþjófur þekkti
skyldu sínar og gleymdi þeim ekki,
á því gátu mannslíf oltið.
Sem handverksmaður var Frið-
þjófur í fremstu röð. Átti hann til
að endurbæta ný tæki, ef honum
fannst ástæða til. Hafði hann dijúgt
gaman af fyrir allnokkrum árum,
þegar hann fékk í hendur nýja
slökkvidælu frá einum stærsta og
þekktasta framleiðanda á því sviði
í heiminum, og sá þá, að búið var
að gera á henni þær sömu endur-
bætur og hann hafði gert árum
áður á dælum slökkviliðsins. Árinu
áður hafði fulltrúi fyrirtækisins ver-
ið hér á ferð og skoðað búnað
Slökkviliðs Reykjavíkur.
Friðþjófur var hugsjónamaður og
átti sér margar draumsýnir, þar á
meðal þá, að vélbúnaður og jafnvel
stríðstól, kæmu í stað manna við
slökkvistörf. Jarðbundnari menn
brostu að slíku. En í dag keppast
við stórir hópar tækniliða víða um
heim að þróa vélmenni til slíkra
áhættustarfa. Þeirri vinnu miðar
það áleiðis, að víst má telja, að á
fyrri hluta næstu aldar verði menn
af holdi og blóði hættir að leggja
lif sitt og limi að veði við slökkvi-
störf. í slíkar áhættur verða notuð
vélmenni í líkingu við hugmyndir
Friðþjófs.
Ég held, að engum hafí ég
kynnst, sem er jafn vel lesinn í hinni
helgu bók, Biblíunni, og Friðþjófur
var. Lestur hennar var honum jafn
töm og okkur hinum dagblöðin. í
þeirri bók taldi hann sig fínna þá
smíðalýsingu er hann áleit sig þurfa
að fullgera meistarastykki sitt. En
það var að göfga sinn innri mann
öðrum til eftirbreytni. Höfuðsmið-
urinn mun örugglega meta það
meistarastykki að verðleikum.
Við hjónin sendum Dísu, börnun-
um og öðrum aðstandendum Frið-
þjófs innilegar samúðarkveðjur.
Ásmundur J. Jóhannsson
í dag er til moldar borinn tengda-
faðir minn, Friðþjófur Helgason,
bifvélavirki og fyrrurri brunavörður.
Hann fæddist 28. febrúar 1917 I
Reykjavík, sonur hjónanna Helga
Vigfússonar og Valgerðar Bjama-
dóttur og var hann elstur 4 bama
þeirra hjóna, en hin em Helga, Vig-
fús og Baldur. Friðþjófur nam
snemma bifvélavirkjun og hef ég
heyrt marga tala um hve góður
bifvélavirki hann var og einnig vann
hann töluvert við réttingar á bflum
og þá sérstaklega á Akranesi þegar
hann bjó þar og veit ég af eigin
raun að hann var hagleiksmaður
mikill á tré og járn.
Árið 1941 stígur Friðþjófur það
gæfuspor að giftast Bergdísi Ingi-
marsdóttur frá Akranesi og bjuggu
þau þar ein 16 ár, 1958 fluttu þau
til Reykjavíkur og Friðþjófur réðst
þá til starfa hjá Slökkviliði
Reykjavíkur sem brunavörður og
eftirlitsmaður með slökkvitækjum,
og starfaði hann hjá slökkviliðnu
þar til fyrir 2 ámm þegar hann lét
af störfum vegna sjúkleika.
Bergdísi og Friðþjófí varð 6 bama
auðið. Þau em: Valgeir, ókvæntur,
Auður, gift Eysteini Guðmunds-
syni, Hildur, gift Finnboga Bald-
vinssyni, Valgerður, gift Ólafí Jóns-
syni, Helgi, kvæntur Guðríði Daní-
elsdóttur, Fjóla, ógift, og em bama-
bömin orðin 11 og 1 bamabarna-
bam.
Friðþjófur var trúrækinn maður
og kveið hann ekki endalokum
sínum því hann vissi að dauðinn
yrði ekki annað en dyr inn í annan
heim sem beið hans og hann trúði
á, veit ég að sá sem öllu ræður
tekur vel á móti honum.
Friðþjófur var meðlimur f
Frímúrarareglunni, og fannst hon-
um reglan gefa sér mikinn styrk í
sinni trú, trúnni á Guð. Ég þekkti
Friðþjóf í 23 ár og reyndist hann
mér mjög vel hvenær sem ég leit-
aði til hans, hann var þannig gerð-
ur að hann vildi allt fyrir alla gera
ef hann gat. Friðþjófur var bam-
góður mjög og nutu bamabömin
þess og umhyggju hans.
Þegar ég og fjölskylda mín kveðj-
um Friðþjóf þá kemur svo margt
upp í hug'ann, sem við munum
geyma og varðveita hann. Við biðj-
um Guð að styrkja þig, tengda-
mamma, og varðveita minningu um
góðan eiginmann.
Eysteinn Guðmundsson
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
MAGNEU JÚLÍU ÞÓRDÍSAR ÓLAFSDÓTTUR,
Njálsgötu 72.
Sérstakar þakkir til starfsfólks í Hátúni 10b fyrir góða umönnun.
Börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug
og samúö við andlát og jarðarför móður minnar, ömmu, tengda-
ömmu og langömmu,
KETILFRÍÐAR DAGBJARTSDÓTTUR
Seljahlíð.
Sigurbjörg Guðjónsdóttir
Fríða H. Steinarsdóttir, Sigurbjörn Bárðarson,
Agnes Steinarsdóttir, Sigurður P. Ólafsson,
Snjólaug Steinarsdóttir, Guðjón Steinarsson
og barnabörn.
t
Þökkum innilega samúö og hlýhug viö andlát og útför
GUÐMUNDU RÓSMUNDSDÓTTUR,
Tangagötu 10,
ísafirði.
Sigurður Björnsson,
Ástvaldur Björnsson,
Marfas Björnsson,
Sigríður Guðmundsdóttir,
Friðgerður Hogan,
Elfnóra Guðmundsdóttir,
Matthfas Guðmundsson,
Ingileif Guðmundsdóttir,
Elfsabet Guðmundsdóttir,
Hákon Vilhjálmsson,
Richard Hogan,
Konráð Guðbjartsson,
Aldfs Höskuldsdóttir
og barnabörn.
t
Innilégar þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og jarðarför
eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa,
STEFÁNS G. SIGURÐSSONAR
kapmanns,
Hafnarfirði.
Laufey Jakobsdóttir.
Sigrfður Stefánsdóttir, Garðar Astvaldsson,
Etfnborg S. Kjærnested, Sfmon Kjærnested,
Borghildur Stefánsdóttir, Sverrir Stefánsson,
Hrefna Stefánsdóttir
og barnabörn.
t
Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför eiginkonu minnar, dóttur, móður okkar og systur,
ELINAR DAVÍÐSDÓTTUR GREIF.
Robert Greif,
Stefán Greif,
Örn Greif,
Hulda Björnæs,
Hildur Davfðsdóttir,
Marit Davfðsdóttir.
t
Við sendum öllum kærar kveðjur með innilegu þakklæti fyrir auð-
sýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ástvinar okkar,
HERDÍSAR HÁKONARDÓTTUR,
Þinghólsbraut 12,
Kópavogi.
Ennfremur sendum við læknum, hjúkrunarkonum og öðru starfs-
fólki á kvennadeild 21 a innilegustu þakkir fyrir einstaka hjúkrun
og alúö sem aldrei verður fullþökkuð.
Guð blessi ykkur öll.
Petrfna Narfadóttir,
Guðmundur Jónsson,
Konný Arthúrsdóttir, Kristinn Benediktsson,
Jóhanna Guðmundsdóttir, Jóhann Magnússon,
Hafsteinn Guðmundsson,
Haraldur H. Guðmundsson,
Hlynur Guðmundsson
og barnabörn.
t
Þökkum innilega samúö og hlýhug við andlát og jaröarför eigin-
konu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu,
LOVÍSU DAGMAR HARALDSDÓTTUR,
Birkiteigi 6,
Keflavfk.
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks Sjúkrahúss Keflavíkur.
Guð blessi ykkur öll.
Gísli Halldórsson,
Kristjana Björg Gfsladóttir, Ólafur Eggertsson,
Helga Gfsladóttir,
Haraldur Gfslason, Þorbjörg Þórarinsdóttir
og barnabörn.
t
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
GUÐRÚNAR ELÍNAR GUÐMUNDSDÓTTUR
Ijósmóður
frá Pétursey.
Jóhann Guðmundsson,
RagnarJóhannsson,
Sigurlfn Jóhannsdóttir, Sigurður Guðmundsson,
Ragnhildur Jóhannsdóttir, Guðmundur Sigurjónsson
og barnabörn.
t
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför bróður okkar,
KARLS JÓNSSONAR
frá Helgadal,
Kleppsvegi 6.
Systkini hins látna.
t
Þökkum innilega samúö og hlýhug við andlát og jarðarför móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
GUÐRÚNAR JÓNSDÓTTUR,
frá Súðavfk.
Jón B. Guðjónsson,
Ólafur Guðjónsson,
Margrét Guðjónsdóttir,
börn og barnabörn.
Geirþrúður Charlesdóttir,
Svava Guðmundsdóttir,
t Hjartans þakkir til allra þeirra sem vottað hafa okkur samúð og t Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð við fráfall ástkærr-
ar systur, frænku og mágkonu,
hlýhug við andlát og útför eiginmanns, föður, tengdafööur og afa, JENS ÞÓRARINS KARLSSONAR fyrrv. vélstjóra, Þorlákshöfn. HELGU ARNGRÍMSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til allra starfsmanna á deild 11-G Landspítala
fyrir frábæra hjúkrun og kærleika, sem þið sýnduð Helgu í veikind- um hennar.
Fyrir hönd aðstandenda, Fyrir hönd aöstandenda,
Marta Bára Bjarnadóttir. Sigurður Arngrímsson.