Morgunblaðið - 25.05.1989, Blaðsíða 9
p»0| 1AA/i .1«? .VnriA' iTtTKn/VÍ U A. L4WTÍOflíOW
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 1989
9
STEFÁN HRAFN
STEFÁNSSON,
LÖGFRÆÐINEMI SPYR:
/
Eg GET VALIÐ
UM AÐ TAKA
VERÐTRYGGT
LÁN MEÐ 5%
FÖSTUM VÖXTUM EÐA
ÓVERÐTRYGGT LÁN MEÐ
MEÐALVÖXTUM. LÁNSUPP-
HÆÐ ER KR. 500.000 OG LÁNS-
TÍMI4 ÁR. AF HVORU LÁNINU
ER BETRA AÐ BORGA?
SIGURLAUG HILMARS-
DÓTTIR, VIÐSKIPTA-
FRÆÐINGUR í
FJÁR V ÖRSLUDEILD
KAUPÞINGS SVARAR:
„Greibslubyrbi verbtryggöra og óverðtryggðra lána er mjög mismun-
andi. Sé urn verðtryggð lán að rœða má segja að greiðslubyrðin sé
jafnari út allan lánstímann en sé um óverðtryggð lán að rceða þá er
hún hani í byrjun og lcegri í lokin. Við skulum gefa okkur að verð-
bólga haldist 19% nœstu 4 árin og tneðalvextir óverðtryggðra lána
haldist í um 25% og sjá þannig muninn á greiðslubyrði þessara
tveggja valkosta:
Árl Afborgun Vextir Verðbætur Satnta/s
Verðtryggf 125.000 25.000 28.500 178.500
Óverðtryggt Ár2 125.000 125.000 — 250.000
Verðtryggt 125.000 18.750 59.814 203.564
Óverðtryggt Ár3 125.000 93.750 — 218.750
Verðtryggt 125.000 12.500 94.209 231.709
Óverðtryggt Ár4 125.000 62.500 — 187.500
Verðtryggt 125.000 6.250 131.951 263.201
Óverðtryggt 125.000 31.250 - 156.250
Eins og sjá má á ofanrituðu kemur verðtryggða lánið mun betur út
fyrstu 2 árin, heildargreiðslan fyrsta árið yrði kr. 178.500 (í stað
250.000 ef lánið vœri óverðtryggj). Síðari tvö árin yrði hins vegar
léttara að greiða af því óverðtryggða."
Lesandi góður, ef þú hefur spumingar utn verðbréfatnarkaðinn eða
fjánnál almennt þá veitum við þér fúslega svör og aðstoð. Sítninn
okkar er 686988, en við t 'ókum líka gjaman á móti þér á 5. hæð í
Húsi verslunarinnar í Nýja miðbœnum við Kringlumýrarbraut.
SÖLUGENGI VERÐBRÉFA ÞANN 25. MAl 1989
EININGABRÉF 1 3.842,-
EININGABRÉF 2 2.137,-
EININGABRÉF 3 2.523,-
LÍFEYRISBRÉF 1.932,-
SKAMMTÍMABRÉF 1.325,-
KAUPÞING HF
Húsi verslumirinmir, sí/tii 686988
Stemgrímur Hermannsson, forsætisráðherra, tekur af vafa um heitasta málefni leiðtogafundar NAT0, sem hefst á mánudaginn:
Stöndum gegn endurnýjun
skammdrægu eldflauganna
Skammdrægu flaugarnar
Á mánudag og þriðjudag hittast leiðtogar aðildarríkja Atlants-
hafsbandalagsins í Brussel í tilefni af því, að 40 ár eru liðin frá
því að bandalagið var stofnað. Fyrir utan að flytja ræður um
mikilvægi bandalagsins munu leiðtogarnir ræða um afvopnunar-
mál og viðhorfin til skammdrægra eldflauga í Evrópu. Hefur
verið deilt um þær undanfarið einkum milli Vestur-Þjóðverja og
Bandaríkjamanna. Beinist athygli að því, hvort takist að jafna
þann ágreining. í Staksteinum er litið til þess, hvort ágreiningur
sé milli forsætisráðherra og utanríkisráðherra íslands um málið.
Afstaða Jóns
Baldvins
í Alþýðublaðinu birtist
laugardaginn 6. maí
síðastliðinn viðtal við Jón
Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra, þar sem
hann var spurður, hver
væri afstaða íslands til
skammdrægra eldflauga.
Ráðherrann svaraði
spurningunni með þess-
um orðum:
„í skýrslu utanríkis-
ráðherra til Alþingis kom
fram, að út frá okkar
bæjardyrum séð, væri
ekki útilokað að taka
ákvörðun nú um end-
umýjun, en við vildum
tengja það spumingunni
um árangur í hefðbundn-
um vopnum (svof). Mér
virðist því þessi mála-
miðlun [um að ákvörðun-
inni um enduraýjun
skammdrægra kjaraa-
vopna verði frestað þang-
að til betur verður séð
fyrir endann á niðurstöð-
um afvopnunarviðræðn-
anna í Vfn um hefð-
bundin vopn og á hinn
bóginn að í millitíðinni
verði ekki gengið til
samninga við Sovétmenn
um fækkun skamm-
drægra] sem virðist vera
að takast sé nyög ásætt-
anleg út frá okkar sjón-
armiðum. Vegna þess að
þar em þessi tengsl við-
urkennd og lögð til
grundvallar."
Síðar í samtalinu segir
Jón Baldvin, að sú mála-
miðlun sem líklega verði
ofan á sé í „samræmi við
það sem við getum skil-
greint sem íslenska hags-
muni. Hún myndi aun.k.
bægja frá hættunni á
því, að um verði að ræða
frekari (jölgun kjaraa-
vopna í hafinu í kjölfer
ákvörðunar um afiiám
eða fækkun slíkra vopna
á landi."
Þetta birtist sem sé
eftir utanríkisráðherra
hinn 6. maí. Spá hans um
efhi málamiðlunarinnar
hefur ekki gengið eftir.
Enn er óbrúað bil milli
sjónarmiða Þjóðverja og
Bandarikjamanna, þótt
talið væri um helgina að
sættir hefðu tekist. Þá
var talið að Bandaríkja-
menn sættu sig við við-
ræður um skammdrægar
flaugar við Sovétmenn
enda næðist árangur í
viðræðunum um venju-
legan herafla í Vfn og
ekki yrði fiallið frá áform-
um um endumýjun. Með
hliðsjón af orðum Jóns
Baldvins mætti ætla að
hann ætti ekki erfitt með
að sætta sig við mála-
miðlun af þessu tagi.
i
Afstaða
Steingríms
í Tímanum f gær segir
Steingrímur Hermanns-
son forsætisráðherra
sem verður í forsvari
fslensku sendinefhdar-
innar á fundinum í Bmss-
el, að „afstaða íslendinga
á leiðtogafundi NATO,
sem hefst á mánudaginn
kemur, sé skýr hvað
varðar endumýjun á
skammdrægum kjara-
orkueldflaugum f
V-Þýskalandi. Segir
hann að það hafi komið
fram f máli sfnu og einn-
ig hafi utanríkisráð-
I herra, Jón Baldvin
Hannibalsson, lýst þvf
yfir, að ísland mim styðja
kröfu V-Þjóðveija um að
endumýjun þessara
vopna verði frestað
ajn.k. til ársins 1992.
„Enduraýjun skamm-
drægra Lancing [rétt
Lancer] eldflauga sam-
ræmist illa þeim viðræð-
um sem f gangi em um
afvopnun," sagði forsæt-
isráðherra."
Hver er af-
staðan?
Ef reynt er að meta
það á grund velli ummæla
þeirra Steingríms Her-
mannssonar og Jóns
Baldvins Hannibalssonar
hver afstaða íslands er,
kemur i \jós, að tima-
bundið em þeir á móti
endumýjun skamm-
drægu eldflauganna en
ekki alfarið. Virðist
Steingrimur túlka orð
Jóns Baldvins áþann veg,
að utanríkisráðherra vi[ji
láta á það reyna til 1992,
hvort venjulegum vopn-
um verði fækkað með
.samkomulagi i Vínar-
borg.
Islenska sendinefhdin
virðist þvi vera þeirrar
skoðunar, að skamm-
dræg kjarnorkuvopn eigi
að vera áfram í Vestur-
Evrópu. Spumingin sé
hins vegar, hvenær eigi
að endumýja þau og við
hvaða aðstæður það telst
heppilegt. Á hinn bóginn
hefúr ekkert verið sagt
um það, hvort hefja eigi
viðræður við Sovétmenn
um skammdrægu flaug-
amar annað en það sem
Jón Baldvin sagði í sam-
talinu við Alþýðublaðið,
að meðan beðið væri eftir
viðræðunum í Vín ætti
ekki að ganga til samn-
inga við Sovétmenn um
fækkun skammdrægra
eldflauga.
Nú á eftir að koma í
[jós, hvort þessi túlkun á
ummælum ráðherranna
tveggja sé rétt eða hvort
þeir eiga eftir að koma
sér saman um eitthvað
annað fyrir mánudaginn
eða hvort þeir hafi
kannski alls ekki komið
sér saman um neitt. Þótt
Tfminn hafi sagt i gær,
að forsætisráðherra hafi
tekið af „allan vafa um
heitasta málefhi leið-
togafundar NATO“ og
birt samtal við hann und-
ir fyrirsögninni: Stönd-
um gegn endumýjun
skammdrægu flauganna,
er ýmislegt enn grugg-
ugt í afstöðu þeirra ráð-
herranna.
....Vissir þú að vextir
Ábótarreikmnga Útvegsbankans
fara stigiiækkandi eftir
sparnaðartímamim. . . .?
úo
op
Útvegsbanki íslands hf
Þar sem þekking og þjónusta fara saman