Morgunblaðið - 25.05.1989, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 1989
41
Ert þú sannur
Islendingur?
eftir Elías Jón
Sveinsson
Ef við göngum út frá því að hinn
sanni íslendingur sé maður sem ber
hag íslensku þjóðarinnar fyrir
bijósti og vilji veg hennar sem
mestan, er ég viss um að við viljum
mörg vera í þeim flokki. Þegar
íslenskir íþróttamenn ná langt á
erlendri grund erum við stolt. Við
flykkjumst á handboltalandsleiki
og/eða sitjum stíf fyrir framan sjón-
varpsskjáinn þegar um beinar út-
sendingar er að ræða frá keppnum
erlendis, þar sem hugsanlegt er að
landinn komi til með að ná langt.
Ekki er þetta þó það eina sem við
getum staðið saman um, er það?
Við erum jú „hörð í horn að taka“
þegar einhver erlend náttúruvemd-
arsamtök ætla að segja okkur fyrir
verkum um það hvort við megum
veiða hval eða ekki og reyna í því
sambandi að fá erlend fyrirtæki til
þess að hætta að kaupa íslenskar
fiskafurðir. Öll vitum við hvað þær
eru mikilvægar til þess að afla
gjaldeyris fyrir þjóðarbúið. En vit-
um við hversu miklu af þessum
gjaldeyri er sóað í innflutning á
vörum sem við framleiðum sjálf í
okkar landi.
Það er gamall draugur í mörgum
íslendingum að íslenskar vörur séu
ekki eins góðar og þær erlendu og
yfirleitt dýrari, það sé eitthvað fínna
að kaupa erlent, hefur breyst mik-
ið. íslenskur iðnaður er mjög ungur
miðað við iðnað í öðrum Evrópu-
löndum, en hann hefur þróast mjög
hratt. Það má vera að íslensk fyrir-
tæki hafi átt við einhveija byijuna-
rörðugleika að etja en vörur þeirra
flestra eru í dag orðnar mjög góð-
ar. Það er erfitt fyrir íslensk fyrir-
tæki að keppa við erlend stórfyrir-
tæki sem hafa aðgang að mjög stór-
um mörkuðum. Þau hafa efni á því
að lækka verðið á sínum vörum hér
á landi því hagnaðurinn er mikill
annars staðar. Auðvitað eru margar
vörur sem alls ekki mundi borga
sig að framleiða á íslandi vegna
smæðar markaðarins en við eigum
að framleiða sem mest innanlands
og þar með skapa atvinnu fyrir sem
flesta.
Ég veit um danskan mann er
flutti hingað til íslands og tók með
sér nokkuð af því sem hann var
alinn upp við í Danmörku. Þegar
hann fór í matvöruverslun keypti
hann alltaf íslenskar vörur en ef
íslenska varan var ekki til varð
ekkert af kaupunum, þetta var það
sem hann hafði verið alinn upp við
í Danmörku. Ekki vil ég nú segja
að fólk þurfi að vera svona þjóðern-
issinnað en fólk verður að gera sér
grein fyrir því að það er í okkar
þágu að kaupa íslenskar vörur. Á
hveiju ári flytjum við inn vörur fyr-
ir meiri gjaldeyri en við fáum fyrir
útflutning okkar, það er óhugguleg
Tíu nýjar íslensk-
ar hljómplötur
gefiiar út í sumar
AÐ MINNSTA kosti tíu nýjar íslenskar hjjómplötur eru væntanlegar
á markaðinn í sumar og þar af eru nokkrar safhplötur með Qölmörg-
um íslenskum listamönnum. Auk þess verða endurútgefhar nokkrar
eldri íslenskar hljómplötur á snældum, en þær hafa verið ófáanlegar
lengi.
Steinar hf. gefa út fjórtán laga
safnplötu, Bandalög, og eru lögin
flutt af níu íslenskum hljómsveitum.
Á meðal flytjenda eru Greifamir,
Sálin hans Jóns míns, Bítlavinafé-
lagið, Todmobile og Ný dönsk og
er áætlað að platan komi út 23. júní.
Einnig kemur út lítil plata með
Bítlavinafélaginu, Munið nafnskír-
teinin, á þjóðhátíðardag dana, 5.
júní. Sagði Jónatan Garðarsson hjá
Steinum hf. að sérstök ástæða væri
fyrir því að platan kemur út þennan
dag og hún væri sú að annað lagið
§allar um par sem kynntist í dön-
skutíma og er viðlagið sungið á
dönsku.
Steinar hf. ætlar að endurútgefa
fjölmargar hljóðsnældur sem lengi
hafa verið ófáanlegar. Þar á meðal
em Vinsælustu lögin með Rúnari
Gunnarssyni sem söng bæði með
Dátum og Hljómsveit Olafs Gauks.,
Lúdó og Stefán, Gamanvísur og
gamanþættir Ómars Ragnarssonar,
Ellý og Vilhjálmur syngja lög Sigf-
úsar Halldórssonar og fleiri. Auk
þess verða gefnar út safnsnældur
með eldri lögum.
Jónatan sagði að þessi útgáfa
væri fyrst og fremst hugsuð fyrir
sumarmarkaðinn. Fólk væri á ferð
og flugi um landið og þætti gott
að hafa létta tónlist á snældum með
í bílnum. Þá mun Steinar hf. dreifa
plötu sem Hljómverið Stöðin gefur
út með lögunum sem tóku þátt í
keppninni um Landslagið.
Steinar hafa gefið út eina stóra
plötu á þessu ári með Mezzoforte.
Auk þess gáfu þeir út lag Valgeirs
Guðjónssonar sem keppti í Söngva-
keppninni.
Skífan hf. gefur út tvær plötur
í sumar að sögn Péturs Kristjáns-
sonar útgáfu- og markaðsstjóra.
Önnur þeirra er ný plata með Stuð-
rnönnum en hin er safnplata með
íslenskum iistamönnum. Þeirra á
meðal eru Síðan skein sól, Bjartmar
Guðlaugsson, Strax, Geiri Sæm og
Hunangstunglið, Hemmi og Elsa,
Mannakorn og Skriðjöklar. Plötum-
ar koma báðar út í júní.
Á vegum Smekkleysu er nýkom-
in út platan Tóm ást með tónlist
eftir Þór Eldon við texta Sjón flutt
af Hljómsveitinni Pinko Witz úr
Menntaskólanum í Reykjavík.
Um mánaðamótin kemur út
fyrsta plata Risaeðlunnar. Að sögn
Ásmundar Jónssonar framkvæmda-
stjóra Smekkleysu hefur lengi verið
beðið eftir að þessi hljómsveit gæfí
út hljómplötu.
Auk þess gefur Smekkleysa út
hljómplötuna WC Monsters með
þungarokkshljómsveitinni Bootlegs,
en útgáfudagur hefur ekki verið
ákveðinn. Ásmundur sagði að hugs-
anlega yrði gefin út safnplata með
fyrrgreindum flytjendum auk
Langa Sela og skugganna, Sykur-
molanna, Ham og Bless.
Nýtt útgáfufélag, Geisli hf., mun
á næstunni gefa út þriggja laga
plötu með Bubba Morthens. Hún
heitir Hver er næstur og tengist
umferðarmálum.
VZterkurog
KJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Elías Jón Sveinsson
„Fjölbreytt úrval er nú
á íslenskum gæðavör-
um á markaðinum og
beri menn verð og gæði
vörunnar saman við
þær innfluttu, sér mað-
ur að þær íslensku eru
ekkert síðri.“
staðreynd. Það er hlutur sem við
getum lagað með því að kaupa
meira af íslenskum vörum. Nú þeg-
ar við siglum inn í erfiðari tíma en
verið hafa í mörg ár er enn mikil-
vægara að standa saman. Fjöl-
breytt úrval er nú á íslenskum
gæðavörum á markaðinum og beri
menn verð og gæði vörunnar saman
við þær innfluttu, sér maður að þær
íslensku eru ekkert síðri.
Byggjum upp blómlegri iðnað á
íslandi, gefum íslenskum iðnfyrir-
tækjum möguleika á að framleiða
meiri og betri vöru. Búum bömum
okkar bjartari framtíð með nægri
atvinnu.
Verum sannir íslendingar.
Höfundur er starfsmaður hjá Eim-
skip.
HEFURÐU VERÐSKYN?
Þá skaltu Ifla nánar á hessa...
KS 145 kæliskápur,
143 lítra kælir,
(fæst einnig með frystihólfi).
4 hillur,
2 grænmetisskúffur.
Lítil straumnotkun.
Biomberg
DS 120 frystiskápur
113 lítra djúpfrystir,
4 skúffur.
Lítil straumnotkun.
Blomberq
Verð kr. 22.900,- L Stoðpr. 21.760,- 1 GOÐ KJÖR Verð kr. 28.900,- L Staðpr. 27.460,- 1 GOÐ KJÖR
í ?l i f
Einar Farestveit&Co.hf. BORQARTÚN 29. SÍMAR: 1911 16995 OG 622900 - NÆG BÍLASTÆÐI
Helgamámskeió í keramik verða haldin í Hulduhólum í Mosfellsbæ. Gistiaðstaða ef með þarf. Upplýsingar í síma 666194. Steinunn Marteinsdóttir.
Nýtt námskeið Innhverf íhugun er einföld tækni sem allir geta lært. Áratuga rannsóknir staðfesta að iökun henn- ar stuðlar að andlegum þroska, heilbrigði og lífsgleöi. Nýtt námskeiö hefst með kynningarfyrirlestri í nýju húsnæði félagsins á Laugavegi 18a í kvöld, fimmtudag kl. 20.30. (Aðgangur ókeypis). (slenska íhugunarfélagiö. Maharishi Mahesh Yogi
HASKOLIISLAIMDS
Endurmenntunarnefnd
og Reiknistofnun
TÖLVUNÁMSKEIÐ
SUMARID 1989
ávegum Endurmenntunarnefndar og Reiknistofnunar. Skráning ferfram
á aðalskrifstofu Háskólans í síma 694306, en nánari upplýsingar eru
veittar á skrifstofu Endurmenntunarnefndar í símum 694923,694924
og 694925.
TðlVBDOtkHR lyiir PC-tilfir (30 klit.)
Lýsing: Þetta er eitt af vinsælustu námskeiðum okk-
arr þar sem byrjendum eru kennd undirstöðuatriði
í tölvunotkun. Námskeið, sem standa í nokkrar vik-
ur, hafa reynst mjög vel, því þau gefa fólki kost á
að prófa sig áfram samhliða námsefninu. Farið verð-
ur í ritvinnslu (WordPerfect), töflureikni (Plan-
Perfect) og gagnagrunn (dBase III+). Einnig verður
kynnt stýrikerfið MS-DOS, skipulagning á undirsöfn-
un og afritun.
Leiðbeinendur: Bergþór Skúlason, tölvunarfræðing-
ur, og Karl Roth, tölvunarfræöingur.
Tími og verð: Námskeiðið hefst 6. júní og stendur
í fjórar vikur, þrjú kvöld i viku, kl. 20.00-22.30, sam-
tals 30 klst. Þátttökugjald 15.000 kr.
Orðsnllld (WordPerfect fyrir PC-lilvnr)
Lýsing: Þetta er mjög fullkomið ritvinnslukerfi með
fjölbreytta möguleika á uppsetningu texta. Word
Perfect er hentugt fyrir þá sem skrifa mikið, s.s.
bækur eöa langar greinar. Einnig má benda á að í
vaxandi mæli geta prentsmiðjur tekið við texta á
WordPerfect formi.
Leiðbeinandi: HildigunnurHalldórsdóttir, framhalds-
skólakennari.
Tími og verð: 29. mai - 1. júní kl. 8.30-12.30.
Verð kr. 9.000 kr.
Forrltun í dBase III+ (fyrir PC-tölvur)
Lýsing: Þetta er beint framhald af námskeiðinu um
skrárvinnslu í dBase III+.
Leiðbeinandi: Halldóra Magnúsdóttir, tölvunar-
fræðlngur.
Tími og verð: 12.-15. júní kl. 8.30-12.30.
Verð 9.000 kr.
Unli kynoing
Lýsing: Þessi kynning er ætluð þeim, sem hafa
nokkra reynslu af tölvuvinnslu og forritun. Kynnt
verður sérstaða Unix stýrikerfisins, samskiptamögu-
leikar og nokkur notendaforrit.
Umsjón: Bergþór Skúlason, tölvunarfræðingur.
Tími og verð: 29.-31. maí kl. 8.30-12.30.
Verð 8.500 kr.
..Leikstjórinn** (lyrtr PC-tölvnr)
Lýsing: Kynning á norsku forriti, „Regissaren", sem
er notað til að búa til ævintýraleiki. Áhugavert fyrir
kennara á grunn- og framhaldsskólastigi, einkum
íslensku- og tölvufræðikennara. Engin forritunar-
kunnátta nauðsynleg.
Leiðbeinandi: Hildigunnur Halldórsdóttir, framhalds-
skólakennari.
Tími og verð: 15. júní kl. 8.30-17.00. Verð 6.000 kr.
Sanskiitl. Phtir og ráðstetoir
Lýsing: i vaxandi mæli nota menn tölvupóst til að
skiptast á skilaboðum innan skólans eða vaxandi
og þá er tölvupóstur alveg ómissandi. Einnig fer
notkun ráðstefnukerfa vaxandi, en þau gera mönnum
kleift aö fylgjast náið með þróun einstakra mála-
flokka, sem þeir hafa áhuga á. Kynnt verða póst-
og ráðstefnukerfi á tölvum Reiknistofnunar, sem
gera mönnum mögulegt að ná þessum markmiðum.
Leiðbeinandi: Bérgþór Skúlason, tölvunarfræðingur.
Tfmi og verð: 13.-14. júní kl. 8.30-12.30.
Verð 6.000 kr.
ii mm
r mm
—
—