Morgunblaðið - 25.05.1989, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 1989
49
Minning:
Jón J. Símonar-
son, deildarsijóri
Fæddur 7. desember 1909
Dáinn 18. maí 1989
í dag verður kvaddur frá Há-
teigskirkju móðurbróðir minn, Jón
J. Símonarson. Mér er kært að
minnast þessa frænda míns, ekki
síst vegna þess að allt frá því að
ég var drengur og æ síðan sýndi
hann mér og viðfangsefnum
mínum á hverjum tíma einlægan
áhuga og af velvild sinni hvatti
hann mig ævinlega bæði í námi
og starfi. Segja má að fráfall hans
hafi komið skyndilega og á óvart,
þar sem útlit hans og heilbrigði
voru fram á síðustu daga í algjöru
ósamræmi við aldur hans. Jón
veiktist 10. maí sl., var fluttur á
sjúkrahús og reyndist vera með
kransæðasjúkdóm. Baráttan varð
ekki löng, því sjúkdómurinn lagði
hann að velli að rúmri viku liðinni.
Jón fæddist að Læk í Ölfusi 7.
desember 1909, næstyngstur 16
systkina. Foreldrar hans voru
Sigríður Jónsdóttir og Jón Símon-
arson sem stunduðu búskap að
Læk fram til ársins 1919 að þau
brugðu búi og fluttust til
Reykjavíkur. Jón elst því upp í
Reykjavík frá 10 ára aldri. Hann
innritaðist ungur í Menntaskólann
í Reykjavík og lauk þaðan stúd-
entsprófi árið 1930. Hann var
góðum gáfum gæddur og hugur
hans stóð til frekara náms. Hann
stundaði nám við norrænudeild
Háskóla íslands árin 1930-1932
en lauk ekki kandídatsprófi. Á
árunum 1934-1940 var hann þing-
skrifari, en meðfram því fékkst
hann við einkakennslu. Hinn 1.
júní 1940 réðst hann til Tollstjóra-
embættisins og vann þar síðan
allan sinn starfsaldur, fyrst sem
fulltrúi í skattadeild en frá 1962
sem deildarstjóri tollvörugeymsl-
unnar. Mér er kunnugt um að störf
hans hjá Tollstjóraembættinu voru
mikils metin, og er hann hafði náð
sjötugsaldri var hann beðinn um
að starfa áfram og gekk svo í
mörg ár, uns hann hætti störfum
í árslok 1985, þá 76 ára að aldri.
Jón kvæntist 9. janúar 1943
Guðrúnu Þorsteinsdóttur frá
Hafnarfirði, mikilli ágætiskonu.
Hjónaband Jóns og Guðrúnar var
með miklum ágætum. Þau sköp-
uðu sér og bömum sínum notalegt
og menningarlegt heimili, þar sem
andrúmsloftið einkenndist af sam-
heldni og gagnkvæmri virðingu.
Jón og Guðrún eignuðust fimm
mannvænleg böm, sem öll, hvert
á sínu sviði, bera vitni því uppeldi
sem þau hlutu í foreldrahúsum.
Þau em: Elín, fædd 1941, Jón
Birgir, f. 1943, Sigríður, f. 1945,
Þorsteinn, f. 1946 og Bragi, f.
1948.
Áhugamál Jóns spönnuðu vítt
svið og tel ég þar fyrst áhuga
hans á bókum. Hann átti mjög
gott safn af góðum bókum og
mörgum þeirra fágætum. Af þessu
leiddi að hann var vel heima í
bókmenntum, bæði erlendum og
innlendum, og í raun var hann
alæta á bækur þó ég persónulega
haldi að ljóðformið hafi staðið
Petrína Friðbjöms-
dóttir - Minning
Hún amma hét Petrína Frið-
bjömsdóttir, fædd 28. júlí 1895,
dáin 18. maí sl., hún hefði því orð-
ið 94 ára í sumar hefði hún lifað.
Foreldrar hennar vom Friðbjörn
Gunnarsson útvegsbóndi í Efstakoti
við Dalvík og Hólmfríður Sveins-
dóttir kona hans.
Amma var næstelst af fímm
systkinum en þau em nú öll látin.
Amma giftist Jóhanni Aðal-
bjömssyni sem dó 1966. Þau áttu
fimm böm, tvo syni, sem dóu ungir
og þijár dætur, Soffíu, gifta Jóni
Hjálmarssyni, Bám, gifta Viðari
Benediktssyni og Hólmfríði, gifta
Kristjáni Guðmundssyni.
Amma og afi bjuggu framan af
á Siglufírði en fluttust síðan til
Reylqavíkur. Þar bjuggu þau í
Skipasundi 35, með Soffíu og Jóni.
Álltaf þegar farið var í Skipa-
sundið fór amma með okkur „nið-
ur“ og gáukaði að okkur nammi
úr skápnum sínum, sem aldrei
tæmdist.
Á þessari stundu koma margar
sunduriausar minningar upp í hug-
ann um hana ömmu. Ekkert nema
ljúfar minningar um guðhrædda
góða konu sem alltaf var mild í
skapi.
Fyrir handan bíða hennar án efa
góðar móttökur og fylgd á
göngunni löngu, sem hún hefði
sennilega viljað byija fyrr.
Með þessum fáu orðum þökkum
við allar góðu stundirnar.
Hvíli hún í friði.
Systkinin á Háaleitisbraut.
Kransár, krossar, kistu-
skreytingar, samúðarvendir
og samúðarskreytingar.
Sendum um allt land á opnunartíma
frá kl. 10-21 alla daga vikunnar.
MIKLUBRAUT 68 ð 13630
hjarta hans næst. í því sambandi
minnist ég þess, að þær voru ófá-
ar ljóðabækurnar sem hann færði
mér þegar ég var drengur. Sam-
fara áhuga Jóns á bókum var einn-
ig áhugi á öðrum listgreinum og
menningu almennt og ekki síst á
þjóðfélagsmálum. En þrátt fyrir
þetta var hann ekki maður síns
tíma, verðmætamat hans var á
öðrum sviðum en tíðkast í dag,
því hann hafði aldrei áhuga á að
eignast einbýlishús, hvað þá bíl
né annað það sem einkennir okkar
neysluþjóðfélag.
Útivist og hreyfing voru honum
nauðsynleg og er ég viss um að
þeir voru fáir dagamir sem hann,
og þau hjón bæði, hafa ekki farið
í gönguferð eða fengið sér sund-
sprett. Þau hjón ferðuðust mikið,
mest innanlands, en einnig erlend-
is.
Af framangreindu hljóta að
koma upp í hugann þær ánægju-
stundir, sem ég átti með frænda
mínum í veiðiferðum. Þar urðu
kynni okkar nánust, og þannig
mun ég eflaust lengst af minnast
hans, við á eða vatn á fögm sum-
arkvöldi, þar sem margt bar á
góma og leitað var svara, jafnvel
við sjálfri lífsgátunni.
Ég gæti eflaust haldið áfram
að skrifa lengi, án þess að finnast
ég hafa sagt nóg um frænda minn,
en ég læt þessi fátæklegu kveðju-
orð duga, en um leið og ég kveð
með þakklæti góðan mann, harma
ég að samverustundir okkar á
síðustu ámm skildu ekki verða
fleiri, — en það er sjálfsagt eðlileg
afleiðing af þjóðfélagsháttum, þar
sem vinnustundum fjölgar stöðugt
en samvemstundum vina óg
vandamanna fækkar að sama
skapi.
Eg vil að lokum senda Guðrúnu
og börnum, svo og öðmm aðstand-
endum Jóns samúðarkveðjur frá
mér og konu minni.
Vilhjálmur Ólafsson
t
Elskuleg mófiir, tengdamóðir og amma,
Asta þórhallsdóttir,
Norfiurbrún 1,
verður jarðsungin frá Áskirkju föstudaginn 26. maí kl. 13.30.
Þeir, sem vilja minnast hennar eru vinsamlegast beðnir um að
láta Krabbameinsfélagiö njóta þess.
Björn Guðmundsson, Ólafía Ásbjarnardóttir,
Ásbjörn Björnsson, Halga Elnarsdóttlr,
Ásta Fr. Björnsdóttlr, Ásgair R. Raynlsson,
Guðmundur K. Björnsson,
Gunnlaugur R. Björnsson,
Ólafur B. Björnsson.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ÁSTHILDUR GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Ólafsvlk,
andaðist f sjúkrahúsinu í Stykkishólmi laugardaginn 20. maí.
Jarðarförin fer fram í Ólafsvfkurkirkju laugardaginn 27. maf kl.
14.00.
Guðmundur Alfonsson,
Ingvaldur Alfonsdóttlr,
Krlstján Alfonsson,
Randver Alfonsson,
Svava Alfonsdóttlr,
Slgrföur Alfonsdóttlr,
Aldfs Alfonsdóttlr,
barnabörn
Matthlldur Krlstjánsdóttlr,
Sólbjartur Júlfusson,
Jóhanna Elfasdðttlr,
Inglbjörg Hauksdóttlr,
Flnnur Gœrdbo,
Traustl Guðjónsson,
James Snowdon,
barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega aufisýnda samúð og vinéttu viö andlát og útför
systur okkar,
ÁRNÝJARINGIBJARGARINGIBERGSDÓTTUR
frá Sandfalll,
Vestmannaeyjum.
Sórstakör þakkir til starfsfólks ó Kópavogshaeli fyrir góða umönn-
un og hlýhug.
Systklnl hlnnar látnu
og aðrlr aðstandendur.
t
Þökkum innilega aufisýnda samúð og vinóttu við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
SIGURBJARGAR ÁMUNDADÓTTUR,
Hátúnl 10b.
Sérstakar þakkir til starfsfólks og lækna dagvistunar- og öldrunar-
deildar Landspftalans, Hátúni 10b.
Ámundi R. Gfslason, Inga L. Guðmundsdóttlr,
Ingigerður K. Gfsladóttlr, Hallgrfmur Slgurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ég þakka hjartanlega fyrir þó samúð sem mór og okkur var sýnd
með blómum og skeytum vegna andláts og jarðarfarar,
ÁSGEIRS HELGA GUÐMUNDSSONAR,
fyrrum hótelstjóra á BJargi f Búðardal.
Þakka óg þeim mörgu sem hjálpuðu mór.
Sömuleiðis þakka ég Steinunni og fólki hennar fyrir þó yndislegu
framkomu og styrk sem þau gófu honum.
Guð blessi ykkur öll
Borghlldur HJartardóttlr,
Elfsabet Ásgelrsdóttir,
Hllmar Ásgelrsson,
Huldfs Ásgelrsdóttlr,
Hugrún Hllmarsdóttlr,
Gelr Þórðarson,
og barnabörn.
SUMARAÆTLUN 1989
Frá Frá
Vestm: Þorlhöfn:
ANa daga, nema laugardaga og mánudaga ....7.30 12.30
Laugardaga og mánudaga.10.00 14.00
Aukaferðir:
Föstudaga og sunnudaga.17.00 21.00
Aukþessáfimmtudögum íjúní/júlí.17.00 21.00
Éjtem
fRRVR7f ▼ ▼ ▼ VESTMANNAEYJUM
og 91-686464
GÓD FERD
ÓDÝR FERO
ÖRUGG FERD