Morgunblaðið - 25.05.1989, Síða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MAI 1989
"Eg var ab syna mógk'onu m'inni hvernig
'e9 klemmdi þumaUnn á bor\um meá biL-
hurðinnl."
*
Ast er...
.. .aðgleyma ekki að skrifa.
TM Reg. U.S. Pat Off. —all rights reserved
° 1989 Los Angeles Times Syndicate
Þú ert sá hamingjusami í
þetta sinn. — Til hamingju,
vinur minn.
Með
morgunkaffmu
Jæja. Hún er að koma. Þú
segir henni þá þetta allt
sjálf__
HÖGNI HREKKVÍSI
Þessir hringdu .. <
Léttari fæðing
bil milli láglaunafólksins og þeirra
sem njóta forréttinda. Þess vegna
ættu þeir síðarnefndu að stilla kröf-
um sínum í hóf. Ýmsar starfstéttir,
t.d. flugmenn, miða sig gjarnan við
launakjör erlendis og krefjast launa
í samræmi við það. En við erum
nú einu sinni hér á íslandi og verð-
um að sætta okkur við að þjóðar-
tekjurnar standa ekki undir þessum
kröfum. Þetta verða menn að gera
sér ljóst og stilla kröfum sínum í
hóf. Annars er hætt við að illa fari.“
sunnuhelgina. Kerran var hlaðin
álverkpöllum og sást til hennar aft-
an í bíl á Vesturlandsvegi. Þeir sem
hafa séð kerruna eða pallana eru
beðnir að láta lögreglu vita eða
hringja í síma 641050 eða 985-
29670.
Högni gefins
Fallegur átta vikna gamall rauð-
ur og hvítur högni fæst gefins.
Upplýsingar í síma 67107 eða síma
657107.
Kona hringdi:
„Ég vil taka undir með „Móður“
sem skrifaði greinina Léttari fæð-
ing í Velvakanda fyrir skömmu.
Ég missti af þessari mynd í sjón-
varpinu og vil eindregið hvetja til
þess að hún verði sýnd aftur. Mér
skilst að ljósmæður hér hafi sýnt
þessu máli áhuga og hafi áhuga
fyrir að svipað fyrirkomulag verði
tekið upp hér. Væri gaman að frétta
nánar af því.“
Léttari feeðinj
Til Velvakanda.
Það sem fær mig til að setjast
niður og taka penna í hönd, er
mynd sem Ríkissjónvarpið sýndi
að kveldi 11. apríi sl., „Léttari
fæðing“. Þar kom fram nýtt sjón-
armið á þeim atriðum sem snúa
að þeirri stórkostlegu lífsreynslu
sem manneskjan fær að vera þátt-
takandi i, fæðingu bams. Hugsun
mín snerist um þá þróun sem átt
hefur sér stað undanfama ára-
tugi, tæknivæðingin og ósjálfstæði
okkar kvenna nú á tímum. Eins
og kom fram í umræddri mynd,
sýnist mér þessi þróun sem lýst
var, vera í rétta átt og vonast til
að hún verði tekin upp hér á landi
einnig. Það vekur furðu mína að
ekki er um meira val á fæðingar-
aðferðum og umhverfi en er. Og
Miklar kröfur
Fólksbílakerra
Galvaniseruð fjórhjóla fólksbíla-
kerra með krossviðsskjólborðum
var tekin við Skemmuveg um hvíta-
Kettlingar
Fallegir og vel vandir kettlingar
fást gefins. Upplýsingar í síma
34573.
HEILRÆÐI
Markús hringdi:
„Það er eitthvað mikið að í þessu
þjóðfélagi, það sýna launakröfumar
sem gerðar vora í verkfallinu sem
nú er nýafstaðið. Það er mikið
launamisrétti í þessu landi og langt
Er hávaði á þínum vinnustað?
Láttu ekki það slys henda, að missa heyrnina vegna þess
að þú trassar að nota eyrnahlífarnar við vinnuuna.
Yíkverji skrifar
Ifyrrakvöld hélt Blaðamannafé-
lag íslands fund með Steingrími
Hermannssyni forsætisráðherra þar
sem fjallað var um samskipti stjórn-
málamanna og blaðamanna.
Víkveiji sat fundinn og telur hann
tvímælalaust hafa verið fróðlegan
og gagnlegan. Ekki verður fjallað
frekar um fundinn á þessum vett-
vangi, enda vora menn sammála
um að það sem sagt var á fundinum
færi ekki í fjölmiðla.
í umræðum á fundinum bar all-
oft á góma fundarhús ríkisins í
Borgartúni 6, sem í daglegu tali
er kallað Rúgbrauðsgerðin. Víveija
hefur ætíð þótt þetta nafn hallæris-
legt og undrast að húsið skuli ekki
hafa verið nefnt stuttu, hentugu
íslenzku nafni. Hér með er gerir
Víkveiji þetta að tillögu sinni. Og
ef stjómarherrarnir hafa ekki gott
nafn á hraðbergi má einfaldlega
efna til samkeppni um bezta nafnið.
xxx
Friðrik Sigurbergsson læknir rit-
ar mjög athyglisverða grein hér
í Morgunblaðið á þriðjudaginn um
þyrlu Landhelgisgæzlunnar, en
Friðrik hefur starfað sem læknir á
þyrlunni sl. tvö ár.
í grein Friðriks kemur fram að
þyrlan hefur verið kölluð út 211
sinnum sl. þijú ár og rúmlega 300
manns hafa þurft á aðstoð hennar
að halda. Friðrik segir að 50 manns-
lífum hafi verið bjárgað og í mörg-
um tilvikum til viðbótar hafi verið
komið í veg fyrir meiri skaða og
þjáningar.
Friðrik segir að þyrlan hafi ótví-
rætt sannað gildi sitt. Hann leggur
til að þyrlan verði meira notuð í
sjúkraflutninga en verið hefur,
einkum á Suður- og Vesturlandi,
þar sem flestir búa og umferð er
þung og umferðarslys tíð. Loks seg-
ir Friðrik að íslendingar verði að
eignast stærri og öflugri björgunar-
þyrlu. Víkveiji hefur áður skorað á
stjórnvöld að ráðast í kaup á nýrri
þyrlu. Hin ágæta grein Friðriks er
kærkomið tilefni til að endurtaka
þessa áskoran.
xxx
Iljós kom í nýrri skoðanakönnun
að 60% þjóðarinnar horfðu á
knattspymuleik með Ásgeiri Sigur-
vinssyni á dögunum. Áhugi á knatt-
spymu er ótvíræður. Víkveija er
kunnugt um að Ríkissjónvarpinu
býðst að fá úrslitaleik ensku deild-
arkeppninnar annað kvöld í beinni
útsendingu. Þar mætast tvö beztu
lið Englands, Liverpool og Arsenal.
Þetta er leikur sem sjónvarpið verð-
ur að sýna.
Og að lokum er saga „úr hver-
dagslífinu":
„Ég lenti í rosapartíi í nótt,“
sagði kunningi fréttaritara Morg-
unblaðsins vestur á fjörðum einn
morguninn fyrir skömmu. „Okkur
var boðið nokkram saman í partí
hjá kunningja sem býr á annarri
hæð í húsi. I partíinu var kolvitlaus
Ameríkani sem sagðist vera búinn
að vera 6 ár í hernum. Hann var
búinn að gera allt vitlaust og það
endaði með því að hann sagðist
ætla að drepa sig. Hann opnaði
glugga og tróð sér út, en festist þá
á löppunum. Þar hékk hann grenj-
andi á hjálp og sagðist vera hættur
við. Húsráðandanum, sem þótti
sennilega lítið til Kanans koma,
sagði þá „annaðhvort drepur maður
sig með stæl eða ekki“. Svo losaði
hann lappimar á gæjanum og lét
hann detta.
Ég hljóp strax í símann og til-
kynnti lögreglunni um morð. Það
kom heilt lið á vettvang, ég held
að einir átta hafi verið við að grafa
líkið upp úr skaflinum í garðinum
bak við húsið. En þegar þeir voru
búnir að koma helvítinu á börar
reis hann bara upp og hristi sig og
sagðist ekki nenna þessu lengur og
stakk bara af.“
En hvað þá með húsráðandann?
spurði þá fréttaritarinn. Var hann
ekki ákærður?
„Það var ekkert hægt, maður.
Þetta var ekkert morð.“