Morgunblaðið - 03.08.1989, Síða 4

Morgunblaðið - 03.08.1989, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 1989 Keflavík og Njarðvík: Vilja viðræður um sölu- skattsmál lafVeituiuiar BÆJARYFIRVÖLD í Keflavík og Njarðvík hyggjast óska eftir við- ræðum við Qármálaráðuneytið um söluskattsmál rafveitunnar í bæjarfélögunum tveimur. Eins Magnús Friðgeirsson forstjóri Ice- land Seafood sagði við Morgunblaðið að Red Lobster hefði undirbúið ufsapöntun fyrir helgina. Red Lobst- er hefur einnig lagt inn pöntun hjá Coldwater, en fyrirtækið hætti að kaupa íslenskar sjávarafurðir í upp- hafi þessa árs vegna herferðar græn- og -kunnugt er greiddi rafveita þessara sveitarfélaga meinta söluskattsskuld sina vegna sölu á raforku til götulýsinga þegar skattayfirvöld hótuðu að grípa friðunga. Magnús Friðgeirsson sagði að Ice- land Seafood hefði tapað nokkrum viðskiptavinum vegna herferðarinn- ar, og hann sagðist þvf vera vera feginn að grænfriðungar hefðu látið af þessu ólöglega athæfi. til lokunaraðgerða vegna skuld- arinnar. Að sögn Jónasar Aðalsteinssonar lögmanns, sem annast málið fyrir bæjaryfirvöld þar syðra, er ætlunin að byggja viðræður við fjármála- ráðuneytið á ford^emi söluskatts- mála Rafveitu Hafnarfjarðar, sem voru af svipuðum toga. Rafveita Hafnarfjarðar fékk nýlega endur- greiddar 10,5 milljónir vegna of- greidds söluskatts, eftir að ríkis- skattanefnd hafði úrskurðað í mál- inu veitunni í vil. Ágreiningur í báðum þessum málum er þannig tilkominn að bæjaryfirvöld ákveða raforkuverð til götulýsinga, og greiða rafveitumar lögbundinn söluskatt af því. Fj ármálaráðuneyt- ið gengur hins vegar út frá öðru óg hærra raforkuverði við sína út- reikninga á söluskattsskuld veit- anna. Red Lobster pantar hjá Iceland Seafood Veitingahúsakeðjan Red Lobster hefur pantað ufsa hjá Iceland Seafo- od í Bandarikjunum í kjölfar þess að grænfriðungar hafa hætt herferð sinni gegn íslenskum sjávarafúrðum. VEÐUR Heimild: Veöurstofa íslands (Byggt á veðurspá kl. 16.15 I gær) ÍDAGkl. 12.00: VEÐURHORFUR í DAG, 3. ÁGÚST YFIRLIT í GÆR: Yfir austanverðu landinu er 990 mb lægð sem þokast austur. Veður fer lítið eitt kólnandi. SPÁ: Hæg norðvestan og norðanátt. Smáskúrir á Norðausturlandi en annars þurrt að mestu. Hiti 8-16 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR UM HELGINA: Fremur hæg breytileg átt um land allt. Lítilsháttar súld á annesjum norðan og vestanlands á föstudag og laugardag en annars þurrt. Víða sæmilega bjart inn til landsins aila dagana. Hiti á bilinu 8 til 17 stig. 10 HKastig: 10 gráður á Celsius Skúrir * V El — Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld OO Mistur —Skafrenningur |"^ Þrumuveður TAKN: Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað x Norðan, 4 vindstig: " Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrimar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. r f r r r r r Rigning r r r * r * r * r * Slydda r * r * * * * * * * Snjókoma * * * VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl tíma hlti veður Akureyri 14 skýjað Reykjavík 8 þokumóða Bergen 10 sóld Helsinki 15 skýjað Kaupmannah. 13 rigning Narssarssuaq vantar Nuuk vantar Osló 13 alskýjað Stokkhólmur 16 léttskýjað Þórshöfn 11 rigning Algarve 21 þokumóða Amsterdam 13 skúr Barcelona 23 alskýjað Berlin 12 rigning Chicago 18 heiðskírt Feneyjar 13 léttskýjað Frankfurt 11 skýjað Glasgow 13 skýjað Hamborg 12 skúr Las Palmas vantar London 11 léttskýjað Los Angetes 19 heiðskírt Lúxemborg 10 skýjað Madrid 19 heiðskirt Malaga 24 hálfskýjað Mallorca 24 alskýjað Montreal 22 alskýjað New Vork 21 heiðskfrt Orlando 24 léttskýjað París 11 heiðskírt Róm 17 heiðskfrt Vin 13 hálfskýjað Washington 21 mistur Winnipeg vantar Tveir bræður veija doktorsritgerðir Bræðumir Haraldur og Guðjón Atli Auðunssynir vörðu doktors- ritgerðir sínar, Haraldur í júlí síðastliðnum og Guðjón Atli í mars á síðasta ári. Haraldur lagði stund á jarðeðlisfræði í Bandaríkjun- um, en Guðjón Atli stundaði nám í lífeðlisfræði í Svíþjóð. Haraldur Auðunsson varði dokt- orsritgerð sína í jarðeðlisfræði við Oregon State University í Oregon í Bandaríkjunum 6. júlí síðastliðinn. Ritgerðin fjallar um hraunsegul- mælingar á norðurhveli jarðar og ber yfirskriftina „Paleomagnetism magnetic propertis and thermal history of a thick transitional polar- ity lava“. Haraldur lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Kópavogi og framhaldsnámi við Háskóla íslands og síðar við Oregon State Univers- ity í Corvallis. Haraldur vinnur nú þar að íslensku rannsóknarverk- efni, með styrk úr Vísindasjóði og frá Átlandshafsbandalaginu, í sam- bandi við hægsegulmögnun á Reykjanesi. Haraldur er fæddur 24. septem- ber 1956. Hann er kvæntur Sigur- björgu Guttormsdóttur og eiga þau tvo syni. Guðjón Atli Auðunsson, bróðir Haraldar, varði doktorsritgerð sína í lífefnafræði við háskólann í Lundi 25. marz 1988. Ritgerðin ber á ensku yfirskriftina „Trace Analysis of Amines by GLC with Special Emphasis on Sample Pretreatment, Particulary Supported Liquid Membranes" eða „Sporgreining amína með gasgreini með sérstakri áherslu á meðferð sýnis með sér- staklega studdum vökvahimnum." Guðjón Atli starfar hjá Rannsókna- stofnun fiskiðnaðarins þar sem hann veitir forstöðu snefilefnadeild. Guðjón Atli lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík, en stundaði síðan kennslustörf áður en hann fór til Lundar og lauk námi frá háskólanum þar. Eiginkona Guðjóns Atla er Jór- unn Siguijónsdóttir og eiga þau þijú börn. Foreldrar Haraldar og Guðjóns Atla eru Auðunn Bergsveinsson rafvirki og Ingibjörg Þorbergs- dóttir, búsett í Kópavogi. Grandi leigir Hjörleif Grandi hf. hefúr leigt Sæmundi Árelíussyni útgerðarmanni á Sigl- ufirði togarann Hjörleif RE 211 til fimm mánaða og á þeim tima mun togarinn veiða 600 tonn af blönduðum afla. Ölluni aflanum verð- ur landað erlendis, eftir því sem Morgunblaðið fregnaði hjá Granda hf. Áætlaðir eru sjö söluferðir til Bretlands og Þýskalands. Hjörleifur RE 211 er 442 brúttó- rúmlestir og var hann smíðaður i Dieppe í Frakklandi árið 1972. Skipið hefur verið mikið yfirfarið og lagfært síðustu tvö til þrjú árin. Jón Rúnar Kristjónsson fj'ármála- stjóri Granda sagði í samtali við Morgunblaðið, að vel kæmi til greina að framlengja leiguna ef um semdist. Stóra kókaínmálið: Varðhald framlengt Ætlunin að dæma fyrir septemberlok 35 ÁRA maður, sem setið hefúr í gæsluvarðhaldi frá 12. maí síðast- liðnum, grunaður um aðild að umfangsmesta kókafnsmygli sem upp hefúr komist hérlendis, hefúr verið úrskurðaður í áframhald- andi varðhald allt til 30. septem- ber næstkomandi en fyrir þann Geysisgos á laugardag BÚAST má við gosi í Geysi í Haukadal næsta laugardag, en þá verður sett sápa í hver- inn. ÍTréttatilkynningu frá Geys- isnefnd segir, að ákveðið hafi verið að setja sápu í Geysi kl. 15.00 laugardaginn 5. ágúst. Megi þá gera ráð fyrir gosi nokkru síðar, ef veðurskilyrði verði hagstæð. tíma mun áætlað að ljúka meðferð málsins fyrir dómi. Maðurinn hef- ur ekki játað aðild að málinu, að sögn Ásgeirs Friðjónssonar saka- dómara sem kvað upp úrskurðinn. Að.sögn Ásgeirs er maðurinn nú ekki í gæsluvarðhaldi heldur hefur hann réttarstöðu afplánunarfanga og sætir því ekki sömu einangrun og áður. Lögreglan krafðist áfram- haldandi gæsluvarðhalds vegna rannsóknar málsins og ríkissaksókn- ari gerði kröfu um að maðurinn yrði vistaður fram að dómsuppkvaðningu. Við því var orðið. Ákærur hafa ekki verið gefnar út og ekki liggur fyrir hversu margar þær verða í málinu en nokkur fjöldi manná hefur komið við sögu rann- sóknarinnar og fimm manns hafa setið í gæsluvarðhaldi. Nokkrar játn- ingar liggja fyrir að sögn Ásgeirs Friðjónssonar en lögreglan hefur lagt hald á 430 grömm af kókaíni og við yfirheyrslur var leitt í ljós að um var að ræða hluta af meira magni sem smyglað var til landsins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.