Morgunblaðið - 03.08.1989, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUÐAGUR 3. ÁGÚST 1989
komulagi á öðrum eins og núver-
andi fyrirkomulagi veiðistjórnunar,
þ.e. kvótakerfinu.
Flestii’ eru samt sem áður sam-
mála því að núverandi fyrirkomulag
fiskveiðistjórnunar sé mun betra en
skrapdagakerfið sem áður ríkti. En
kvótakerfið var í upphafi hugsað
sem skammtímalausn því að svo
mikil verðmæti eru hér í húfi. Því
verðum við að halda áfram að þróa
fyrirkomulag fiskveiðistjórnunar-
innar.
Gagnrýni
Hagfræðingur LIÚ hefur einna
mest látið á sér bera hvað varðar
gagnrýni á hugmyndir þær sem
komið hafa fram opinberlega hjá
fiskihagfræðingum og öðrum
vísindamönnum um frekari fram-
þróun á fiskveiðistjórninni. Gagn-
rýni hagfræðingsins hefur að mínu
mati verið yfirborðsleg og hag-
fræðilegt vægi hennar lítið. Helstu
fullyrðingar hans eru í þeim dúr að
1 pyngju útgerðarinnar væri ekkert
að sækja vegna slæmrar rekstrar-
stöðu, að fiskihagfræðin sé úrelt
og óskynsamleg og að greiðsia fyr-
ir veiðirétt sé auðlindaskattur sem
fyrst og fremst leggðist á lands-
byggðinga.
Stærsta gjöf
íslandssögunnar?
Hagfræðingur LÍÚ virðist þó
hafa leitað í smiðju fiskihagfræð-
inga er hann segir álit sitt á fyrir-
komulagi fiskveiðistjórnunar í Nor-
egi. í tímaritinu Sjávarfréttum 3.
tbl. 1987 segir hann m.a. í grein
er hann kallar Stjórn fiskveiða í
nágrannalöndunum:
„Noregur er gott dæmi um land,
þar sem gætt hefur ýmissa ann-
arra viðhorfa í mótun fiskveiði-
stefnu en kröfunnar um fram-
leiðni og arðsemi.“ (BIs. 47.)
„Hingað til lands kom nýlega
nefnd frá Noregi til þess að kynna
sér hvernig sölu á kvótum er hátt-
að hér. Það er álit margra hag-
fræðinga, sem kynnt hafa sér
aflakvótakerfi að einmitt óheft
viðskipti með aflakvóta séu líkleg
til að auka stórlega hagkvæmni
í fiskveiðum.“
Og svo vísar hagfræðingurinn í
orð dr. Ragiiars Árnasonar í blaðinu
Vísbending nr. 22.5:1987.
„Þetta álit dr. Ragnars og fleiri
hagfræðinga er enn eitt dæmið,
sem ekki hefur enn náð. eyrum
norskra stjórnmálamanna, líklega
vegna þess að þeir eru uppteknir
af öðrum sjónarmiðum en þeim
sem snúa að arðsemissjónarmið-
um í sjávarútvegi.“ (B]s. 53.)
Hér er hagfræðingur LÍÚ því fylgj-
andi fijálsri sölu á kvótum þrátt
fyrir fyrri gagnrýni. Þar með er
hann fylgjandi fijálsri verðmyndun
markaðskerfis á kvótum, þ.e. sölu
á veiðileyfum.
Hann vill því að útgerðarfyrir-
tækin fái kvótana ókeypis, frá eig-
endum hans, íslensku þjóðinni, en
að þau hafi rétt til að selja hvort
öðru þessa kvóta.
Núverandi fyrirkomulag fisk-
veiðistjórnunar heimilar sölu fiski-
skipa og að með þeim fylgi fisk-
veiðirétturinn. Þetta fyrirkomulag
leiðir til hagkvæmari útgerðarhátta
í heild því þau útgerðarfyrirtæki
sem vel standa kaupa skip og veiði-
rétturinn fylgir. Hagræðingin felst
síðan í því að leggja skipinu (úrelda
það) og nýta veiðiheimild þess með
öðrum skipum.
í framhaldi af þessu vakna
nokkrar spurningar um framtíðar-
eignarhald og ráðstöfiinarrétt á
fískinum í liafinu í kringum
landið:
1. Útgerðarlyrirtæki sem
kaupir fiskiskip og því fylg-
ir veiðiréttur, sem því hefiir
verið úthlutað án gjaldtöku.
• Kaupverðið samsvarar tvö-
földu inarkaðsverði sam-
bærilegra skipa án veiði-
heimildar. Er útgerðarfyr-
irtækið búið að eignast
þennan veiðirétt er skipinu
fylgdu um aldur og ævi?
2. Hefur útgerðarfyrirtæki rétt
til að selja veiðiréttinn?
3. Ef sannað þykir að útgerðar-
fyrirtæki A hafi hagnast pen-
ingalega á því að láta veiði-
19.
réttinn sjálfan (með skipi) af
hendi til útgerðarfélags B, var
veiðirétturinn þá seldur? Og
hver á söluhagnaðinn?
Það er Ijóst að útgerðarfyrirtæki
og þar með eigendur þeirra hafa
ekki bara fengið í hendur ráðstöfun-
arrétt á veiðiheimildum þeim sam
aiþingi íslendinga hefur ákveðið.
Heldur eiga þau möguleika á að
selja skip sín á góðu verði ef þeim
fylgir veiðileyfi.
Því má segja að verðmæti fiski-
skipastólsins sé nú umtalsvert
vegna þeirra réttinda sem houm
fylgja og það er mitt mat að þessi
verðmæti sem íslenskum útgerðar-
mönnum eru hér afhent hljóti að
vera stærsta gjöf sem gefin hefur
verið í sögu okkar íslendinga.
Heimildir:
1. E.S. Russel, þýðing Árna Friðriksson-
ar,
Arðrán fískniiðanna,
Prentverk Akraness h/f., 1944.
2. Gylfi Þ. Gíslason
fískihagfræði, fyrri hluti
Bóksala stúdcnta, 1982.-
3. Skýrsla skipastólsncfndar,
sjávarútvegsráðuneytið.
4. Fiskvinnslan, fagblað fískiðnaðarins
4. tbl. 1987.
5. Minnisblað til ríkisstjórnarinnar frá
sjávarútvcgsráðherra í desember 1988
um sértækar aðgerðir vegna rekstrar-
vanda sjávarútvegsfyrirtækja.
Hvað er merkilegt við
þennan Candy kæliskáp?
(Annaö en veröiö?)
• 380 Ktra(240 I kælirog 1401 frystir)• Tvöaöskilin kælikerfi
(2 kæliþjöppur) • Orkusparandi • Hitamælir fyrir frysti
• Hæð 185 sm, breidd 60 sm, dýpt 60 sm.
AFMÆLISTILBOÐ: Áður kr. 61.900, nú kr. 55.710.
Staðgreidd kr. 52.925 — spamaður 8.975!
Borgartúni 20, sími 26788
Kringlunni, sími 689150
Sömu kjör hjá umboðsmönnum okkar um land allt
Skátabúðin býður ótrúlegt
úrvai af íslenskum og eriend-
um tjöldum. Allt frá eins
manns göngutjöldum til stórra
fjölskyldutjalda. Sérþekking
okkar í söiu og meðférð á
tjöldum sem og öðrum úti-
verubúnaði er þín trygging.
Við hjá Skátabúðinni viljum
geta sagt að „þú tjaldir ekki
til einnar nætur" í tjaldi frá
okkur.
-SkAMK FRAMMK
SNORRABRAUT 60 SÍM112045
l’HALCON
Þú tjaldar ekki til einnar nætur
ítjaldifm
Skátabúðinni