Morgunblaðið - 03.08.1989, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST .1989
23
„Hjá ÓS fást sterkar og fallegar
hellur til að gera hvers kyns stéttir og
bflastæði. Ég mæli með hellunum frá
ÓS og byggi þau meðmæli á
reynslunni. Þær eru framleiddar úr
öldu hráefni og góðir kantar gera það
verkum að allar línur verða reglulegar.
Hellunum er pakkað í plast og þeim
ekið heim í hlað. í fáum orðum sagt:
Gæðavara og góð þjónusta.“
Markús Guðjónsson,
skrúðgarðyrkjumeistari,
eigandi Garðavals.
Suðurhrauni
Símar 65 1
Garðabæ
210
14
40
65
14
44
og
100 milljónir í tekjutryggingarauka til bótaþega:
Tæpar 9.000 krónur
koma á fiillar bætur
Ríkisstjórnin hefur ákveðið
að veija 100 milljónum króna í
sérstakan tekjutryggingarauka
til elli- og örorkulífeyrisþega.
Verður hann greiddur í tvennu
lagi, í september og desember
og fá þeir sem hafa fiillar bætur
tæpar 9 þúsund krónur í allt.
Uppbætur á laun, eins og
orlofsuppbót og desemberuppbót,
sem samið var um í síðustu kjara-
samningum, verða ekki greiddar
á bætur almannatrygginga. En að
sögn heilbrigðisráðuneytisins er
með greiðslu tekjuti-yggingarauk-
ans komið til móts við bótaþega
með hhðstæðum hætti og þá sem
eru starfandi úti á vinnumarkaðn-
um.
Tekjutryggingaraukinn sam-
svarar 30% hækkun á tekjutrygg-
ingu, heimilisuppbót og sérstakri
heimilisuppbót. Grunnlífeyririnn
er þar undanskilinn.
Guðmundur Bjarnason heil-
brigðisráðherra sagði við Morgun-
blaðið, að meginrökin fyrir því að
reiknuð er prósentutala á tekju-
tengda flokka almannatrygginga,
væru þau, að upphæðir í þeim
flokkum lækkuðu eftir því sem
bótaþegar hefðu meiri tekjur ann-
ars staðar. Og þeir bótaþegar, sem
væru á vinnumarkaði, hefðu þegar
fengið hluta launauppbótanna þar.
Greiðslur til þeirra sem njóta
fullrar tekjutryggingar, heimilis-
uppbótar sérstakrar heimilisupp-
bótar erú nú samtals 39.776 krón-
ur á mánuði. Af því reiknast tekju-
tryggingaraukinn af 29.565 krón-
um og er 8.870 krónur hjá þeim
sem fá fullar tíætur. Lágmarks-
laun eru nú 35.453 krónur á mán-
uði.
Fyrstu 5 mánuðir ársins:
Vöruskiptaj öfnuður
við útlönd hagstæður
FYRSTU 5 mánuði þessa árs var vöruskiptajöfhuður við utlönd hag-
stæður um röskar 2.700 milljónir króna. Á sama tíma var verðmæti
vöruútflutnings 11% meira en í fyrra ef miðað er við fast gengi.
Frá áramótum til maíloka voru
fluttar út vörur fyrir röska 30 millj-
arða króna, en á sama tíma nam
innflutningur rúmlega 27,6 millj-
örðum króna. Vöruskiptajöfnuður-
inn var því hagstæður _um rúmlega
2.700 milljónir króna. Á sama tíma
í fyrra var hann óhagstæður um
nær 700 milljónir króna. Þetta kem-
ur fram í fréttatilkynningu frá
Hagstofunni.
Fyrstu 5 mánuði þessa árs var
verðmæti vöruútflutnings 11%
meira en á sama tíma í fyrra. Sjáv-
arafurðir voru um 71% alls útflutn-
ings, sem er 5% minna en fyrir
ári. Útflutningur áls og kísiljárns
hefur stóraukist sé miðað við sömu
mánuði í fyrra. 35% meira var flutt
út af áli og 78% meira af kísiljárni.
í maímánuði síðastliðnum var
vöruskiptajöfnuður óhagstæður um
1.500 milljónir króna. Það stafar
af þotukaupum Flugleiða hf. sem
námu um 2.800 milljónum króna.
Að þeim frátöldum hefði vöni-
skiptajöfnuður verið hagstæður um
1.300 milljónir króna í maí.
Þú svalþr lestrarþörf dagsins _
ájsíöum Moggansþ
Torg í Mjóddina
Borgarráð Reykjavíkur hefur samþykkt að veita 4 milljónir króna
í aukafjárveitingu til að gera torg sunnan við nýju skiptistöðina,
sem SVR hefiir reist í Mjóddinni í Breiðholti. Að sögn Vilhjálms
Þ. Vilhjálmssonar formanns skipulagsnefhdar, er áætlaður kostnað-
ur 6,7 milljónir vegna torgsins og tenginga við nálægar göngugötur
en 2,7 milljónir króna koma í hlut Pósts- og síma, sem verður með
pósthús í skiptistöðinni. Hönnuðir torgsins og skiptistöðvarinnar
eru arkitektarnir Hilmar Þór Björnsson og Finnur Björgvinsson.
Einar Krislján Einarsson, gítar-
leikari.
Gítartónleik-
aráKjar-
valsstöðum
EINAR Kristján Einarsson
gítarleikari, mun halda tón-
leika á Kjarvalsstöðum í dag,
fimmtudaginn 3. ágúst, kl. 18.
Á efnisskrá eru verk eftir
Yocoh, Ponce, Henze, Villa-
Lobos og de Falla.
Tónleikarnir eru aðrir í röð
þriggja, sem Menningarmálanefnd
Reykjavíkurborgar hefur boðað til
í samvinnu við tónlistarmenn. Ein-
ar Kristján er fæddur á Akureyri
og stundaði þar nám í píanóleik,
ásamt sjálfsnámi í gítarleik. Hann
hóf gítarnám við Tónskóla Sigur-
sveins D. Kristinssonar árið 1977
og lauk þaðan burtfararprófi árið
1982. Aðalkennarar hans voru
Gunnar H. Jónsson og Joseph
Fung. Einar stundaði framhalds-
nám í Manchester í Englandi árið
1982-1988 og voru kennarar hans
þar Gordon Crosskey, George
Hadjinkos og David Russel. Auk
þess sótti hann meðal annars nám-
skeið hjá Alirio Diaz og José Luis
Gonzáles.
Einar lauk einleikara- og kenn-
araprófi frá Guildhall School of
Music árið 1987 og starfar nú sem
gítarkennari við Tónskóla Sigur-
sveins D. Kristinssonar og Tónlist-
arskóla Kópavogs. Hann hefur
haldið tónleika á Islandi, Englandi
og á Spáni.
(Úr fréttatilkynningu)
VISp'BSQ