Morgunblaðið - 03.08.1989, Side 24
24
Tékkóslóvakía:
Havel tvisvar
handtekinn
Vínarborg. Reuter.
Tékkneska lögreglan hand-
tók leikritaskáldið Vaclav Ha-
vel í gær í annað sinn á einum
sólarhring. Þá var hann á leið
til hádegisverðar með vestur-
þýska sendiherranum í Prag.
Samkvæmt upplýsingum frá
vestur-þýska utanríkisráðu-
neytinu hefur mótmælum ver-
ið komið á framfæri við stjórn-
völd í Prag. Heimildarmenn
/ieuters-fréttastofunnar meðal
andófsmanna í Tékkósióvakíu
segja að einn lögreglumann-
anna sem handtók Havel í gær
hafi sagt við hann: „Þú verður
að koma með okkur til þess
að við getum haidið áfram
samtalinu frá því í gær.“ Dana
Nemcova sem er í mannréttin-
dasamtökunum Charta 77
sagði að Havel hefði í fyrra
skiptið verið á leið til fundar
þar sem stofna átti á nýja
Tékkóslóvakíudeild PEN-
klúbbsins, sem eru alþjóðleg
samtök rithöfunda. Hável var
látinn laus úr fangelsi í maí
eftir að hafa afpiánað íjóra
mánuði af átta sem hann hlaut
fyrir andóf gegn stjórnvöldum.
Bandaríkin:
Glens á
ögurstund
Dallas. Reuter.
Upptökur úr flugstjórnar-
klefa bandarískrar flugvélar
sem fórst í ágúst í fyrra voru
birtar í gær. Þar kemur fram
að áhöfn vélarinnar var með
glens og grín sín á milli
skömmu fyrir flugtak, í stað
þess að fara yfir gátlistann
svokallaða. Fjórtán manns fór-
ust með flugvél Delta Air Li-
nes. í upptökunni heyrist einn
úr áhöfninni segja að gleymst
hafi að fara yfir stefnumót
áhafnarinnar fyrir flugtak.
Flugstjóri vélarinnar, flug-
maður og vélstjóri voru allir
reknir frá Delta-flugfélaginu í
síðustu viku. Var þeim gefið
að sök að vængjabörð hefðu
ekki verið í réttri stöðu við
flugtak.
Sovétríkin:
Tvöfalt sið-
gæði í utanrík-
ismálum
Moskvu. Reuter.
Sovésk stjórnvöld voru ný-
lega sökuð um tvöfeldni í ut-
anríkismálum í grein í vikurit-
inu Moskvufréttum. Þrátt fyrir
fyrirheit um nýja og siðlega
utanríkisstefnu hafi stjórnvöld
þagað um ofbeidisverkin á
Torgi hins himneska friðar í
Peking í júní og ofsóknir
írönsku klerkastjórnarinnar á
hendur rithöfundinum Salman
Rushdie. Greinina skrifa hag-
fræðingurinn Alexej Ízíjúmov
og sagnfræðingurinn Andrej
Kortúnov. Þeir vitna í yfirlýs-
ingar Edúards Shevardnadze,
utanríkisráðherra Sovétríkj-
anna, um að utanríkisstefna,
sem ekki helgaðist af mannúð-
arsjónarmiðum, væri siðlaus.
Höfundar segja að langt sé í
land að þessari stefnu sé fram-
fylgt. Þeir segja að afstaða
sovéska þingsins, þegar það
hvatti til afskiptaleysis af inn-
anríkismálum Kína, hafi verið
skammarleg: „Og hvers vegna
var hvergi reifuð önnuð skoð-
un opinberlega? Ekki voru all-
ir fréttaskýrendur svo einhuga
í stuðningnum við kínversk
stjórnvöld?"
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 1989
Reuter
Grátur bannaður við Grátmúrinn
Tvær konur í samtökum ísraelskra kvenna, er
nefna sig „Konur við múrinn,“ sjást hér dregnar
á brott frá Grátmúrnum í Jerúsalem. Starfsmenn
einkafyrirtækis er tekur að sér öryggisgæslu á
staðnum Qarlægöu konurnar. Brot þeirra mun
hafa falist í því að þær fóru með bænir sínar
upphátt en ísraelsk lög kveða á um að ekki
megi biðja upphátt við grátmúrinn.
Leiðtogi námu-
manna í Síberíu:
Nauðsynlegt
að stofioa óháð
verkalýðsfélög
Moskvu. Reuter.
TEIMURAZ Avalíaníj, leiðtogi
verkfallsnefiidar námumanna í
Kúzbass í Síberíu lagði til í gær
í viðtali við vikuritið Moskvu-
fréttir að stofiiuð yrðu óháð
verkalýðsfélög í Sovét.ríkjunum
í stað hinna opinberu sem misst
hefðu öll tengsl við verkamenn-
ina sjálfa.
Avalíaníj sagði að vaxandi óá-
nægja væri meðal verkamanna
með opinberu verkalýðsfélögin og
margir ræddu um nauðsyn þess
að stofna óháð verkalýðsfélög lík
Samstöðu í Póllandi. Sjálfur var
hann rekinn úr forystu verkalýðs-
félags síns seint á 8. áratugnum
fyrir að gagnrýna Leoníd Brez-
hnev, þáverandi leiðtoga landsins.
í síðustu viku kom fram í um-
ræðum í Æðsta ráðinu í Moskvu
að þegar hefði verið stofnað óháð
verkalýðsfélag í Litháen með um
15.000 félögum. Vísar að slíkum
samtökum spryttu upp hvarvetna
í Sovétríkjunum, ekki síst eftir að
opinberu verkalýðsfélögin sýndu
getuleysi sitt og áhugaleysi um
kjör verkamanna í nýafstöðnum
verkföllum námumanna.
Gíslamálið í Líbanon:
Israelar og Bandaríkja-
menn snúa bökum saman
Beirút, Jerúsalem, Washinírton og: Róm. Reuter.
STJÓRNIR ísraels og Banda-
ríkjanna segjast ætla að hafa
nána samvinnu um lausn gísla-
málsins, sem upp er komið vegna
ránsins á hryðjuverkaforingjan-
um Abdel Karim Obeid. Banda-
ríkjamenn hafa enn ekki skýrt
frá því hvernig þeir hyggist
bregðast við fregnum um að
Bandaríkjamaðurinn William
Higgins, undirofursti, hafí verið
hengdur af líbönskum hryðju-
Ferjuslysið í Zee-
brugge 1987:
Skipstjóri
kærður fyr-
irmanndráp
af gáleysi
London. Reuter.
SKIPSTJÓRI bresku Ermarsunds-
feijunnar Herald of Free Enter-
prise, sem hvolfi fyrir utan haíhar-
mynnið í Zeebrugge í Belgíu 1987
með þeim afleiðingum að 193
menn drukknuðu, hefur verið
kærður fyrir manndráp af gáleysi.
Ásamt skipstjóranum voru þrír til
viðbótar úr áhöfn skipsins og þrír
fyrrum yfirmenn útgerðarinnar
kærðir fyrir manndráp af gáleysi.
Ferjan lét úr höfn með skutdyr opn-
ar og er talið að sjór hafi streymt inn
í bílalestina er feijan bakkaði frá
bryggju með fyrrgreindum afleiðing-
um.
Málið var dómtekið í fyrradag en
réttarhöld hefjast 10. október næst-
komandi. Hermt er að þetta sé í
fyrsta sinn sem skipafélag er dregið
til ábyrgðar með þeim hætti sem hér
er gert.
verkamönnum í heftidarskyni
fyrir ránið á Obeid. Hizbollah-
samtökin tilkynntu í gærdag að
hverri hernaðaraðgerð Banda-
ríkjanna yrði svarað á grimmi-
legan hátt.
John Kelly, aðstoðarutanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, sem sér-
hæfir sig í málefnum Miðaustur-
landa, sagði í gær að viðræður hans
og Moshe Arens, utanríkisráðherra
ísraels, hefðu verið mjög gagnleg-
ar, en vildi ekki tjá sig nánar um
eðli þeirra. Ráðherrarnir ræddu
gíslamálið á fundi sínum í Jerúsa-
lem, en menn hafa af því miklar
áhyggjur að hryðjuverkamennimir
hyggist myrða fleiri gísla.
Arens sagði að Kelly hefði ekki
Iátið í ljós neina gagnrým stjórnar
sinnar á ránið á Obeid. „Ég tel að.
Bandaríkin og ísrael séu sameinuð
í baráttunni gegn hryðjuverkum og
fylgi sameiginlegri hernaðarlist í
þeirri orrustu."
George Bush Bandaríkjaforseti
kallaði Þjóðaröryggisráðið saman í
gær, þriðja daginn í rö'ð, og er talið
að bandarísk stjómvöld hafi krafist
þess í leynilegum orðsendingum til
ríkisstjórna Sýrlands og írans að
Abdel Karim Obeid, sem ísraelsk
sérsveit rændi í síðustu viku.
Stærri myndin var tekin á fiindi
í Túnisborg árið 1982, en á inn-
felldu myndinni má sjá hann bú-
inn sem trúarleiðtoga shíta.
þær tryggðu öryggi þeirra 17 vest-
rænu gísla, sem eru í haldi í Líban-
on.
„Þegar við lögðum mat á hugsan-
legar afleiðingar handtökunnar
gerðu við ráð fyrir öllum möguleik-
um, þar á meðal þeim, sem hryðju-
verkamennirnir gripu til, og öðrum
verri,“ sagði Yitzhak Rabin, varnar-
málaráðherra ísraels, í ræðu í
Knesset, ísraelska þinginu, en þar
hlaut hann nokkra gagnrýni fyrir
ránið á Obeid. Rabin sagði að áætl-
unin um ránið hefði verið samþykkt
á ríkisstjórnarfundi fyrir tveifnur
mánuðum í von um að hægt yrði
að hafa skipti á Obeid og þremur
ísrelskum hermönnum, sem talið
er að liðsmenn Hizbollah (Flokks
guðs) hafi í haldi í Líbanon.
Rabin sagði að áætluninni hefði
verið frestað fyrir mánuði, þegar
vonir um fangaskipti þóttu aukast,
en eftir að þær dvínuðu aftur hefði
verið ákveðið að hrinda henni í
framkvæmd.
Að sögn Rabins hefur lík Higgins
enn ekki fundist og ógerlegt að
segja fyrir um hvort hann var myrt-
ur á mánudag eða löngu fyrr. Higg-
ins var rænt í febrúar á síðasta ári.
ítalskir spítalar:
Músaskítur í kartöflumús
Kóm. Keuter.
LÖGREGLUSVEITIR, sem
gerðu skyndikönnun á ítölskum
spítölum í þessari viku, komust
að raun um, að þar var ekki
allt með felldu: óþrifaleg eldhús,
músaskítur í kartöflustöppu,
kakkalakkar og Iangstaðin mat-
væli.
Talsmaður heilbrigðisráðuneyt-
isins sagði, að 190 heilbrigðisfull-
trúar yrðu kærðir fyrir brot á heil-
brigðis- og hreinlætisreglugerðum.
Könnunin yrði einnig látin ná til
hótela, veitingahúsa, skyndibita-
staða og kráa.
Francesco de Lorenzo heilbrigð-
isráðherra Iagði svo fyrir 22. júlí
síðastliðinn, aðeins viku eftir að
hann tók við embætti, að skyndi-
könnun skyldi gerð á 530 heilsu-
gæslustöðvum í landinu, þar á
meðal 224 ríkisspítölum og 136
læknamiðstöðvum.
Lögreglan gerði athugasemdir
við 776 reglugerðarbrot, auk þess
sem hún lét henda heilu bílhlössun-
um af kjöti, grænmeti og öðrum
matvælum, sem komin voru fram
yfir síðasta leyfilegan neysludag.
Þegar De Lorenzo tók við emb-
ætti, lýsti hann stríði á ’ hendur
„öllum stofnunum, þar sem heilsu
fólks er beint eða óbeint stefnt í
voða“.