Morgunblaðið - 03.08.1989, Side 26
TÖKUM
UPP
DÓSIR
- að sjálfsögðu!
t » .r *..# t *
FRUIT
iiiiiiiiiji»
.\co
f
fi-amlchi iórsér.
ésamt nóttúiulcQum ^úaatiþ-
• manciaréttac<s3.5Ö^
Inníhaidt fc*ý*i*#
síírusaW'BtsaS.
ogsar&isýaffS^
BÓIVtnsÍíö^tó
rœ
YDDA F5.42/SÍA
MQRGtJNBLAÐIÐ :FIMMTU])AGUR 3. ÁGÚST 1989
Umferðaróáran í Svíþjóð:
Ökuleyfisaldurinn
hækkaður í 20 ár?
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins.
FJÖLDI umferðarslysa í Svíþjóð í
sumar hefur valdið því, að almenn-
ingsálitið þar í landi krefst þess
nú, að ökuleyfisaldur verði hækk-
aður í 20 ár. Þrátt fyrir auknar
hraðatakmarkanir heldur umferð-
Njósnir Felix Blochs;
KGB-maður
notaði fínnskt
vegabréf
Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara
Morgunblaðsins.
ÞAÐ hefur vakið töluverðá at-
hygli í Finnlandi að sovéskur út-
sendari KGB í Vínarborg, sem
átti um árabil samskipti við banda-
ríska njósnarann Felix Bloch, not-
aði finnskt vegabréf. Finnska ör-
yggislögreglan kannar nú hvernig
á þessu getur staðið.
Austurríska lögreglan hefur full-
yrt að KGB-maðurinn, sem sá um
tengslin við Bloch, hafi notað finnskt
vegabréf um áraraðir og þóst vera
finnskur kaupsýslumaður. Finnska
lögreglan hefur staðfest að um sé
að ræða fullgilt vegabréf en ekki
fölsun. Því hefur verið haldið fram
að KGB-maðurinn hafi fengið vega-
bréf sitt í finnska sendiráðinu í
Vínarborg en yfirvöld hafa ekki stað-
fest það.
aróáranin áfram og dauðaslysum
flölgar stöðugt.
Svíar geta nú fengið ökuskírteini
þegar þeir verða 18 ára gamlir og
mega hefja ökunámið sex mánuðum
fyrr.. Útlendingar, sem koma til
Svíþjóðar, þurfa aðeins að framvísa
ökuskírteini heimalands síns til að
fá sænskt skírteini. Ekkert eftirlit
er haft með því, hvers konar fræðsla
stendur að baki ökuprófi viðkomandi
né heldur hvernig ökukunnáttu hans
er háttað. Oft hefur komið í ljós, að
ökuskírteinin hafa hreinlega verið
fölsuð.
Sérfræðingar í umferðaröryggis-
málum eru dolfallnir yfir ijölgun
umferðarslysanna. Tilraun til að
lækka leyfilegan hámarkshraða á
nokkrum vegarköflum á sumrin úr
110 í 90 km/klst. hefur algerlega
mistekist. Fjöldi dauðaslysa á þess-
um köflum hefur tvöfaldast.
Hugsanleg skýring á þessu er tal-
in sú, að menn aki ójafnar og séu_
djarfari á 90 en 110 km hraða. Yfir-
völd umferðarmála ákveða einhvern
næstu daga, hvort haldið verður
áfram með fyrrnefnda 90 km tilraun
eða snúið til fyrra horfs.
Óháðir sérfræðingar í umferðar-
öryggismálum halda fram, að um-
ferðargæslan þurfi að verða mun
virkari en nú er og ekki beinast ein-
vörðungu að eftirliti með umferðar-
hraða. LÖgreglan krefst aukinna
fjárveitinga til mannaráðninga og
tækjakaupa.
Reuter
Flúið undan fellibyl
Fellibylurinn Chantal gekk yfir Texas-ríki í Bandaríkjunum í
gær og var veðurhæðin allt að 135 km á klukkustund. Margir
urðu að yfirgefa heimili sín um hríð til að stofha ekki lífí sínu
í hættu. Gífúrleg rigning fylgdi bylnum og á myndinni sjást
hjón flýja heimili sitt í vatnselgnum; maðurinn ber soninn á
bakinu en konan heldur á tveim hvolpum. Rafmagnslínur fóru
víða í sundur og byggingar urðu fyrir skemmdum áður en veðr-
inu tók að slota.
Sovétríkin;
Róttækir umbótasinnar
á þingi stoftia hreyfingu
Moskvu. Daily Telegraph.
BORÍS Jeltsín og dr. Andrej Sakharov voru kjörnir leiðtogar
nýrrar stjórnmálahreyfingar í Sovétríkjunum á sunnudag, en
stefhuskrá hreyfingarinnar er svo róttæk, að verði hún einhvern
tíma gerð að veruleika kynnu Sovétríkin að vera á braut jafhaðar-
stefnu fremur en kommúnisma. Sjálfir eru forystumenn hreyfing-
arinnar svo bjartsýnir, að þeir teija sig hafa brotist úr viðjum
70 ára óslitinnar einræðisstjórnar Kremlverja.
Stofnfundinum lauk á sunnu- ,
dag með viðræðum fjölmarga
hópa, sem barist hafa fyrir hröð-
um umbótum á sovéska stjórn-
kerfinu, og varð úr að þeir samein-
uðust í ein „regnhlífarsamtök",
sem ætla að láta til sín taka á
ijölmörgum sviðum.
Kröfurnar — sem fela meðal
annars í sér algjört upplýsinga-
og ferðafrelsi, nýja stjórnarskrá
með sérákvæðum um sjálfstæða
þingflokka og beinar kosningar—
eru mun víðtækari, en umbætur
þær, sem Míkhaíl Gorbatsjov Sov-
étforseti hefur beitt sér fyrir.
Gorbatsjov hefur fram að þessu
talist vera í fylkingarbijósti um-
bótasinna, en nú virðist þessi hóp-
ur róttækra stjórnmálamanna,
menntamanna og fulltrúa verka-
manna hafa farið fram úr honum.
Meira en 300 þingmenn á hinu
nýja fulltrúaþingi Sovétríkjanna
hafa þegar skráð sig í hreyfing-
una.
Fundahöldin stóðu í tvo daga
og fóru þau yfirleitt vel fram. í
lok þeirra var kosin fimm manna
stjórn.
Jeltsín neita.ð um
leiðtogasætið
Borís Jeltsín , sem Gorbatsjov
rak úr flokksleiðtogaembætti
Moskvu fyrir tveimur árum og vék
síðan úr stjórnmálaráðinu, fékk
flest atkvæði og var tilnefndur til
þess að gegna formannsembætti
hreyfingarinnar fyrsta árið, Eftir
að einn fulltrúanna hafði gert at-
hugasemd við þetta, var hins veg-
ar ákveðið að enginn einn skyldi
vera leiðtogi hreyfingarinnar, en
Jeltsín hefur oft verið gagnrýndur
fyrir að fara offari í málflutningi
sínum.
í stjórninni með Jeltsín sitja
sagnfræðingurinn Júríj Afan-
asjev, hagfræðingurinn Gavríl
Popov og Viktor Palm, sem er
eistneskur fræðimaður. Dr. Sak-
harov, sem hlaut friðarverðlaun
Nóbels árið 1975, var í útlegð í
Gorkíj um nokkurra ára skeið og
nefndur hefur verið „samviska
þjóðarinnar", varð fimmti maður
inn í stjórnina og er það talið til
marks um hina víðtæku virðingu,
sem hann nýtur.
Hver ræðumaðurinn á fætur
öðrum hvatti Gorbatsjov til þess
að líta ekki á hreyfinguna sem
ógnun við kommúnistaflokkinn,
heldur sem öflugan málsvara
frjálslyndis innan fulltrúaþingsins
og Æðsta ráðsins (valdamesta
þings Sovétríkjanna), sem gæti
hleypt nýju blóði í umbótaáætlun-
ina.
Gorbatsjov verður að velja
á milli perestrojku og
nomenklatúru
Júríj Afanasjev hrósaði Gorb-
atsjov í hástert fyrir að hafa
hrundið perestrojku af stokkun-
um. „En sá tími er liðinn að Gorb-
atsjov geti bæði verið helsti leið-
togi perestrojku og aðalforingi
Andrej Sakharov.
Nomenklatúrunnar [forréttinda-
stéttarinnar],“ bætti Afansjev við.
„Hann verður að velja á milli.“
Bjartsýni róttæklinganna fékk
mikinn meðbyr eftir velheppnað
verkfall námamanna víðs vegar
um Sovétríkjunum fyrr í mánuðin-
um. Verkfallsaðgerðirnar krié-
settu kommúnistaflokkinn og
stjórnvðld og veittu róttæklingum
röksemdir fyrir því að umbótaá-
ætlunin væri ekki andstæð hags-
munum verkalýðsins.
Fram að verkföllunum höfðu
róttæklingar óttast að verkalýður-
inn væri svo langþreyttur á getu-
leysi stjórnvalda, að hann gæti
ekkT myndað órofa heild, sem
barist gæti fyrir hagsmunum
Borís Jeltsín.
verkamanna. Popov sagði aftur-
haldsmenn hafa beðið lægri hlut
fyrir umbótasinnum.
„Áður fyrr þurfti að velja milli
lausnar perestrojku og lausnar
kerfisins. Nú — þökk sé námu-
mönnum er kerfislausnin ekki
lengur fyrir hendi.“ Hann benti
einnig á að valið stæði milli
tveggja gerða byltingarsinnaðs
lýðræðis. Annars vegar væri
skipuleg bylting, en hins vegar
sjálfsprottin og hugsanlega blóð-
ug bylting.
Fulltrúarnir voru hins vegar
minntir á að verkfall námamanna
væri ekki gleðiefni eitt, en heyrst
hafa sögusagnir um verkfall járn-
brautastarfsmanna, sem kynni að
verða tylliástæða afturhalds-
manna fyrir því að ráðast gegn
umbótaöflum. Róttæklingarnir
gera sér fyllilega grein fyrir því
að hréyfing þéirra ógnar hags-
munum margra áhrifamanna í
flokknum, stjórninni og hernum.
Fari járnbrautastarfsmenn í
verkfall er talið að samgöngur
landsins muni lamast og kynni
það að hafa jafnvel enn meiri
áhrif heldur en verkfall náma-
manna.