Morgunblaðið - 03.08.1989, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST '1989
SYKURMOLARNIR luku fyrir skemmstu langi syrpu tónleika, en
sveitin ferðaðist um Sovétríkin og Vestur-Evrópu áður en haldið var
í fjörutíu daga ferð um Bandaríkin í för með bresku sveitunum New
Order og Pil. í þeirri ferð var New Order aðalsveitin, en Molarnir
og PIL sem upphitunarsveitir. Sykurmolarnir voru þó skörinni hærra
settir en PIL, enda selt mun fleiri plötur í Bandaríkjunum. Lokatón-
leikarnir í ferðinni voru í Meadowiands-íþróttahöllinni i New Jersey
19. júlí sl. og seldist upp á þá tónleika á undraskömmum tíma þeg-
ar og byrjað var að seija inn á þá.
Það voru margir Islendingar
staddir í New York 19. júlí og var
ásóknin í boðsmiða slík að Mol-
arnir keyptu miða til viðbótar við
þá boðsmiða sem sveitin átti rétt
á fyrir um 50.000 krónur. Á með-
> al þeirra sem sérstök ástæða
þótti til að bjóða voru meðlimir
Smekkleysusveitanna þriggja
sem staddar voru í New York til
tónleikahalds um þessar mundir.
Innihald
Molarnir voru fyrsta hljómsveit
á svið og voru áheyrendur enn
að tínast inn í salinn þegar þau
hófu leik sinn. Fyrsta lagið var
Dísill, svo Mótorslys og síðan lag
af væntanlegri plötu, Plast, en
textinn í því lagi er bráðskemmti-
leg upptalning á nokkrum helstu
gerfiefnum aldarinna. Sjötta lag
tónleikanna var einnig nýtt, fyrir-
taks lag sem heitir Býfluga. Þegar
á eftir því lagi kom eitt besta lag-
íb ið af plötunni væntanlegu,
Regína, sem gefið verður út á
smáskífu innan í mánaðarlok. Ekki
veit ég hvað sveitin hefur flutt
Ammæli oft á tónleikum, en það
vekur ætíð mesta hrifningu meðal
tónleikagesta og gæsahúðin var
á sínum stað þegar það var flutt
á hæla Regínu. Enn kom nýtt lag,
sem fjallar um dauðann, en eftir-
minnilegur er flutningur þess lags
í Tunglinu skömmu áður en Mol-
arnir fóru utan. Óðurinn til
mömmu var næstur og síðan
gamalt lag sem verður á plötunni
nýju, Af hverju ekki að skjót’ann?
Lokalögin voru svo þrjú af Life’s
too Good, Kaldur sviti, Heilagur
skratti og Blúæd popp.
Yfirleitt virðist meira í nýju lög-
in spunnið en lögin af Life’s too
Good og líklega verður það til
þess að platan væntanlega verður
seinteknari. Mín hyggja er þó sú
að Regína verði til að liðka fyrir
og það lag, býflugulagið og Am-
mæli voru hápukturinn á þesum
tónleikum, en Af hverju ekki að
skjót’ann, sem var eitt besta tón-
leikalag sveitarinnar á öndverðu
ári 1987, er í heldur þungri útsetn-
ingu.
Humar eða frægð
lék á í þessari Bandaríkjaferð. Til
viðbótar má svo geta þess að
ferðin varð til þess að 30.000 ein-
tök seldust af Life’s too Good.
Af þessum tónleikum og um-
stanginu í kringum þá má marka
að Sykurmolarnir eru búnir koma
sér vel fyrir á bandarískum tónlist-
armarkaði, þó næsta plata, sem
kemur út 2. október nk., eigi eftir
á ráða miklu um hvaða framtíð
verður á því. Eins og áður sagði
kemur næsta plata, sem ber heit-
ið Here Today, Tomorrow and
Next Week, út í byrjun október,
en fyrsta smáskífan, Regína, kem-
ur út 25. ágúst. Einnig verður
gefið út tónleikamyndband í mán-
uðinum og fyrir jólin kemur út
kassi með þeim tólftommum sem
hljómsveitin hefur gefið út auk
einnar tónleikaplötu. Söfnurum
má svo benda á að fyrir
skemmstu kom út í Þýskalandi
tónleikaplata, sk. „bootleg”, eða
ólöglég útgáfa.
Olíklegt verður að telja að Syk-
urmolarnir eigi eftir að leika sem
aðalsveit á stöðum eins og Me-
adowlands Arena á næstunni, en
það er vart langt undan. Það er
þó sem fyrr undir sveitinni sjálfri
komið og texinn um Regínu sýnir
vel tvíbenta afstöðu til frægðar-
innar:
Ég veit ekki hvað á ég ætti
svosem að gera,
af hverju ekki bara fara beint
til Eyja,
eða fara bara að reyna að gera
eitthvað annað.
Af hverju ekki bara vera hérna
bara,
eða bara fá sér humar eða
frægð?
Ég vil ekki neinn,
humar eða frægð!
Texti: Árni Matthíasson
Myndir: Björg Sveinsdóttir
Það var kannski helst til marks
um það að Molarnir voru í upphit-
unarhlutverki að sveitin flutti öll
lög á ensku og Einar lagði ekki
eins hart að sér við að hvekkja
óstöðuga áheyrendur og oft áður.
Sveitarmeðlimir virtust afslapp-
aðir og greinilegt að ferðin hefur
gengið að óskum. Hljómburður
var mjög góður og einkar gott
jafnvægi á milli Einars og Bjarkar,
en sá er þetta ritar var smá tíma
að átta sig á stærð staðarins.
Umgjörð
Meadowlands íþróttahöllin er
rúmgóð og hermdi starfsmaður
að þar rúmuðust um 27.000
manns þegar best léti, en á þess-
um tónleikum var ekki selt í öll
sæti, því sviðið skyggði á allmörg
sæti. Áætlaði hann að seldir
hefðu verið um 22.000 miðar,
sem gefur víst aðgangseyri upp á
um 25 milljónir króna. Ekki rennur
nema lítill hluti þessa fjár til Mol-
anna, sem voru reyndar í upphit-
unarhlutverki þetta kvöld, en New
Order fékk bróðurpartinn, þá
Molarnir og PIL rak lestina.
Stór hluti tekna hljómsveita af
tónleikahaldi er sala á bolum
merktum hljómsveitinni og viðlíka
minjagripum og er jafnan mikil
ásókn í slíkt. Söluhæstur í þess-
ari ferð var bolur Sykurmolanna
og seldust bolir fyrir hálfa aðra
milljón að meðaltali á hverjum
hinna þrjátíu tónleika sem sveitin
Vogar:
Myndlistar-
Vognni.
„VIÐ erum mjög ánægðar með
aðsóknina að sýningunni,“ sögðu
Aldís Hugbjört Matthíasdóttir og
Unnur Karlsdóttir . í samtali við
Morgunblaðið um fyrstu r/iyndlist-
arsýningu þeirra sem var haldin í
þjónustumiðstöðinni í Vogum um
helgina.
Aldís sýndi 24 myndir sem flestar
eru unnar með vatnslitum, en nokkr-
ar með pastellitum. Unnur sýndi 27
myndir sem eru unnar með vatnslit-
um og tússi. Sýningin var sölusýning
og seldist um helmingur myndanna
en flestar eru málaðar á þessu ári.
Meðal gesta á sýningunni var lista-
maðurinn Baltasar sem hvatti lista-
konurnar til að halda áfram á lista-
brautinni.
Unnur Karlsdóttir lauk námi frá
-textíldeild . Myndlista- og handíða-
og s kr antskr i ftarsýning'
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson
Listamennirnir Aldis Hugbjört Mattliíasdóttir og Unnur Karlsdóttir
ásamt Auði Matthíasdóttur skrautskrifara.
skóla íslands 19'88. Áhugi Aldísar sýndi Auður Matthíasdóttir skraut-
fyrir myndlist vaknaði er hún var á skrifari sýnishorn af ýmsum gerðum
Spáni þar sem hún bjó í átta ár. skrautskriftar.
-AamWÍða^^myndlistarsýningunni - EG.