Morgunblaðið - 03.08.1989, Síða 41

Morgunblaðið - 03.08.1989, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ FJMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 1989 41 Jónína J. Jóns- dóttir - Minning Jónína Jensína Jónsdóttir var jarðsungin frá Fossvogskapellu 2. ágúst sl. og fór sú athöfn fram í kyrrþey, en hún lést í Borgarspítal- anum 25. júlí á 86. aldursári. Hún fæddist í Smiðjuvík í Norður-ísa- fjarðarsýslu 13. nóvember 1903. Foreldrar hennar voru Jens Jóns- son bóndi og smiður og Jónína Hagalínsdóttir og dó hún skömmu eftir að Jónína fæddist. Jónína fór sem kornabarn til móðurbróður síns Jakobs Hag- alínssonar í Grunnavík og Sveinsínu konu hans. Þar ólst hún upp í stórum barnahópi. Faðir Jónínu var góður smiður og út- skurður fór honum vel úr hendi. Alsystkini Jónínu voru þijú. Bróðir hennar Guðmundur drukknaði ungur, en systir hennar Guðrún er vistmaður á Sjúkrahúsi Bolung- arvíkur. Einnig átti hún nokkur hálfsystkini. Jónína átti tvær dæt- ur og dó sú eldri skömmu eftir fæðingu. Einnig missti Jónína unn- usta sinn á sjó um líkt leyti. Olst yngri dóttirin upp hjá Jónínu. Um tvítugt flyst Jónína til Reykjavíkur og bjó upphaflega í Unuhúsi við Garðastræti og var alla tíð-síðan búsett í Reykjavík. Fyrst vann hún í mötuneyti Hjálp- ræðishersins, en var síðan aðallega í fiskvinnu enda hafði hún vanist slíkum störfum í uppvextinum. Var hún hjá Hraðfrystistöðinni í Reykjavík 30 síðustu starfsárin. Eftir því var tekið í Hraðfrystistöð- inni hve snemma hún var á ferð- inni á morgnana, en það voru áhrif hins harða skóla sem hún varð að ganga í gegnum. Við fiskvinnuna i upphafi kynntist hún því að mætti fólk of seint til vinnu var það umsvifalaust látið fara og vinnuharkan var samkvæmt því. Hún varð snemma félagi í Verka- kvennafélaginu Framsókn. Vinna var stopul og verkakonulaunin lág, því var lífsbaráttan hörð fyrir ein- stæða móður, einkum á kreppuár- unum. Hún þurfti því að hafa aug- un opin fyrir tekjumöguleikum ef vinnu var að fá. Tók hún að sér þvotta fyrir fólk og sá um nratar- gerð. Veruleg veraldleg gæði voru aldrei hlutskipti Jónínu, en þau virtust heldur ekki skipta hana verulegu máli. Hún átti ávallt góða vini þ. á m. vinkonur hennar í Hraðfrystistöðinni, en flest af því fólki er nú fallið frá. Jónína var bæði orðvör og hógvær og gerði ekki að vana sínum að hallmæla sínum samferðamönnum. Hún var fulltrúi hófsamra lífsskoðana og trúarvitundin var ávallt rík hjá henni. Var það trúlega höfuðá- stæða þeirrar festu og rósemi sem eirikenndu hana. Jónína var ern og hélt sér vel síðustu árin þar til sá sjúkdómur heltók hana sem olli því að hún er ekki lengur á meðal okkar. Ég og konan mín, sem er dóttur- dóttir Jónínu, og sonur okkar von- um að nýtt líf taki við af þessu lífi, sem Jónína amma og lan- gamma virtist aldrei efast um. Okkur þykir vera svo stutt síðan liún sat á meðal okkar framan við ,sjónvarpsskjáinn og þótti syni okk- ar gaman að hve vel hún kannað- ist við sig þegar sýndar voru mynd- ir iiðins tíma úr Reykjavík eða myndir um gamla atvinnuhætti. Svo miklar breytingar áttu sér stað á ævi Jónínu. Við þökkum henni þá hlýju og fórnfýsi sem hún sýndi okkur. Gætu þessi vísuorð úr ljóði Guð- mundar Friðjónssonar um ekkjuna við ána átt vel við hana. „Um það sem gaf hin hægri, hin vinstri vissi ei hót; þeim vegmóðu og snauðu í dyrum tók hún mót. Með gestrisninnar einlægni saðning gaf hún svöngum og svalaði hinum þyrstu af næsta litlum föngum." Örn Gíslason habitat HEIMILISVERSLUN - LAUGAVEGI13 - SÍMI625870 INNGANGURIHÚSGAGNADEILD SMIÐJUSTÍGSMEGIN POTT- ÞETTAR PERUR AGOÐU VERÐI Allar RING bílaperur bera merkið (f) sem þýðir að þær uppfylla ýtrustu gæðakröfur E.B.E. Munið að ökuljósin eru öryggistæki. RING bílaperurnar fást á bensínstöðvum Skeljungs

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.