Morgunblaðið - 03.08.1989, Síða 51
1
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 1989
Þú ættir að líta til okkar og athuga hvort þig vantar ekki hús-
gögn og skoða íjölbreytt úrval góðra og glæsilegra húsgagna í
smekklegu umhverfi. Húsgagnahöllin er hluthafi í tveimur stór-
um, erlendum innkaupasamsteypum sem tryggja okkur ekki
aðeins bestu vörurnar heldur líka besta verð.
IDE MÖBLER A/S stærsta innkaupahringur Danmerkur opnar
okkur milliliðalaus viðskipti við 120 framleiðendur á Norður-
löndunum og
ÞESSIVIÐSKIPTASAMBÖND TRYGGJA OKKUR
OG ÞÉR ÞAÐ NÝJASTA OG BESTA í HÚS-
GÖGNUM OG UMFRAM ALLT BESTU BERÐIN.
REGENT MÖBEL GMBH í Þýskalandi gerir okkur
á sama hátt möguleg bein og milliliðalaus viðskipti
með ströngu gæðaeftirliti við 400 þekkta framleiðend-
ur húsgagna á meginlandi Evrópu. (Yelta Regent
Möbel gmbh 1988 var 2.855 milljónir DM eða ríflega
90 milljarðar ísl. króna).
Húsgagna4iöllin
REYKJAVÍK
n^ðöilg
ekki fyrst
Til Velvakanda.
Ég vil taka undir með sundlaug-
argesti sem skrifaði í Velvakanda
þann 22.07 sl. um ónóga gæslu, ,
við annars hina ágætu Laugardals-
laug, varðandi það að hleypa fólki
ofan í laugina án þess að fylgst
væri nógu vel með að það baðaði
sig fyrst. Eins og sundlaugargestur
bendir á er það sérstaklega áber-
andi með útlendinga sem sækja
laugarnar, af hverju sem það svo
stafar. Vegna vinnu minnar er ég
MíáLMámámrnmáimaLJiiatdKBÉmtáLisíilKk
Hulda Jensdóttir á þakkir
skyld-
ar fyrir starf sitt í þágu mæðra
og barna á sínum starfsferli en
mestar þakkir á hún skildar fyrir
að taka málstað ófæddra barna
en það hefur verið henni baráttu-
mál. Ég sendi henni þakkir og
velfarnaðaróskir."
Einnota umbúðir
Einar hringdi:
„Hvað ætli hún kosti þjóðfélag-
ið þessi gífuriega notkun á ein-
nota umbúðum. Á sífellt fleiri
vinnustöðum eru einnota plastmál
notuð í stað bolla og einnig ein-
nota þurrkur. Það ætti að vera
hægt að spara mikið með því að
takmarka noktun einnota um-
búða.
Nú eru fjölmennar útihátíðir
framundan og af því tilefni vil ég
beina því til fólks að ganga vel
um í náttúrunni, skilja ekki eftir
dósir og annað rusl og sýna sér-
staka aðgæzlu við opinn eld.“
gengur svo fram af mér. Eignar-
skatturinn hjá móður minni, sem
er 77 ára ekkja, hefur hækkað
um hvorki meira né minna en
350%. í fyrra borgaði hún
219.501 kr. en nú þarf hún að
borga 757.327 kr. bara í eignar-
skatt. Þetta borgar hún fyrir hús-
eign í Reykjavík og landareign
úti á landi, sem gefur lítið af sér.
Gamla konan fer upp í hæsta
skattþrep (2,95%) við 7 milljóna
eign en væri eiginmaður hennar
á lífi, þyrfti 14 milljóna eign til.
Það sem eftir er árs, þarf hún að
borga 185 þús. kr. á mánuði í
skatta. Hvernig á hún að fara að
þessu? Er þetta hægt? Á sínum
tíma hafði verið greiddur fullur
tekjuskattur af þessu fé en nú er
verið að skattleggja hana aftur.
Fjölmiðlar ættu að gera úttekt á
því hvernig er farið með þetta
gamla fólk.“
Þakkir til Huldu
Jensdóttur
Anna Kristjánsdóttir hringdi:
„Mig langar að vekja máls á
þeirri staðreynd, að það var til
meira en vísir að Fæðingarheimil-
inu við Eiríksgötu áður en
Reykjavíkurborg tók við húsinu.
Helga Níelsdóttir, ljósmóðir,
byggði húsið og byggði þar full-
komið fæðingarheimili með tveim-
ur fæðingarstofum og skurðstofu.
Heimilið tók til starfa árið 1933
og var starfrækt til ársins 1940.
Þá varð hún að hætta vegna þess
að Sjúkrasamlag Reykjavíkur
hætti að borga fyrir fæðingar
nema á fæðingardeild Landspítal-
ans. Þá neyddist hún til að loka
heimilinu.
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Vandi fylgir vegsemd hverri
Ágæti Velvakandi.
Það er löngu þekkt, já talið hafa
átt sér stað frá örófi alda eftir að
móðir jörð byggðist hugsandi ver-
um, að alls kyns sjúkdómar hafi
heijað á misstóran hóp fólks. Menn
virðast hins vegar af gömlum sögum
hafa verið misjafnlega vel upplýstir
um hvernig bregðast skyldi við í
sérhveiju tilviki í því skyni að lækna.
Sem betur fer eru margir sjúk-
dómar löngu fyrir bí vegna meiri
skilnings og betri vísindaþekkingar
á eðli þeirra og framgangi öllum.
En nú í dag hefur að nokkru leyti
verið sagt skilið við gamla heilsu-
speki, þótt merkja megi ýmsar
hræringar meðal hópa, sem virðast
vera að vakna til skilnings og vit-
undar á gömlu góðu aðferðunum.
Það er löngu útbreidd skoðun
meðal ýmissa hópa og einnig mín,
að gömlu aðferðirnar og meðulin
við hinum og þessum krankleik hafi
verið laus við allar aukaverkanir.
Auk þess var engin hætta á að við-
komandi yrði háður lyfinu.
Mörg ný lyf hafa góðu heilli gert
mönnum lífið léttbærara en hafa oft
haft aukakverkanir í för með sér.
Þess vegna ættu vísindamenn að
horfa aftur til fortíðar og leita að
hinu náttúrulega við gerð geð- og
taugalyfja framtíðarinnar.
Gamalt máltæki segir, að vandi
fylgi vegsemd hverri. Mér finnst það
eiga vel við í sambandi við það sem
að framan hefur verið ritað. Ég
vona að réttir aðilar opni augu sín
til verka í þessum efnum í fram-
tíðinni.
Gunnar Sverrisson
Þessir hringdu . .
Borguðu of lítið
Konný Arthúrsdóttir hringdi:
„Ég vinn hjá Vorleik ’89 í Ár-
múla 16 en sú verzlun selur alls
kyns sumarvörur. Seinni part
mánudagsins 31.07 komu karl og
kona í verzlunina og keyptu gas-
grill. Þau áttu að greiða 22.160
kr. en þegar peningarnir höfðu
verið taldir kom í ljós að 2000
kr. vantaði. Þá voru þau hins veg-
ar farin á brott með grillið. Mig
langar því að biðja viðkomandi
að hafa samband við okkur í síma
686337.“
Óþrifí sundlaug
Sundlaugargestur hringdi:
„Það var verið að tala um óþrif
í Laugardalslauginni í blaðinu
nýlega. Ég vil taka undir það.
Ástæðan fyrir óþrifunum er hrein-
lega sú, að baðverðirnir (sumar-
vinnumennirnir) sitja og spila á
spil allan daginn og sinna ekki
starfi sínu.“
Óréttlátur ekknaskattur
Úlfar hringdi:
„Ég get ekki . lengur orða
bundizt, því að ekknaskatturinn
Hentar vel ef þú vilt gjörnýta plássið ( bað-
herberginu. Daufgrænt gler ( álrömmum; hvítur
botn. Traustur og þéttur klefi sem auðvelt er að
setja upþ. Tvær stærðir: 80x80 eða 70x90 sm.
Hæð 2 m.
Komdu við hjá okkur ef þú ætlar að breyta
baðherberginu.
S> VATNSVIRKINN HF.
'AMÁRMÚLA 21 SÍMAH 686455 — 685966
LYNGHÁLSI 3 SÍMAR 673415 — 673416
mi m
sturtuklefi
með rennihurðum
Karlmannaföt
kr. 5.500,- til 9.990,-
Terylenebuxur kr. 1.395,- til 2.195,-
Gallabuxur kr. 1.195,- og 1.420,-
Flauelsbuxur kr. 1 .'220,- og 1.900,-
Sumarblússur kr. 2.390,- og 2.770,-
Skyrtur, nærföt, sokkar o.fl. ódýrt.
Andrés,
Skólavörðustíg 22, sími 18250.