Morgunblaðið - 09.12.1989, Page 3

Morgunblaðið - 09.12.1989, Page 3
 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 1989 3 STÓRBÓK EFTIR EINAR KÁRASON hefur að geyma „Eyja- sögurnar" þrjár: Þar sem Djöflaeyjan rís, Gulleyjuna og nýju bókina, Fyrirheitna landið. Þessar sögur hafa notið fádæma vinsælda, bæði hér og á Norðurlöndum fyrir leiftrandi frásagnargleði og ógieymanlegar mann- lýsingar. ÞOGLA HERBERGIÐ EFTIR HERBJÖRGU WASSMO er sjálfstætt framhald sögunnar „Húsið með blindu glersvölunum" sem færði Herbjörgu bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 1987. Hér er unglingsárum Þóru meðal fiskimanna í Norður-Noregi lýst á sérlega nærfærinn og áhrifarikan hátt. TVÖ TUNGL EFTIR GYRÐI ELÍASSON. í þessum Ijóðum nær skáldið sterkum tökum á lesandanum í ferð um furðuheima þar sem allt getur gerst. Þrátt fyrir ungan aldur hefur höfundur endur- nýjað og auðgað íslenska Ijóðahefð með afburða tökum á íslenskri tungu og ímyndunaraflið er þvilíkt að....Stundum minna Ijóð þessarar bókar á mynd eftir Fellini" ( Kjartan Árnason í DVL YFIR HEIÐAN MORGUN EFTIR STEFÁN HÖRÐ GRÍMS- SON Ljóð Stefáns einkennast af töfrum einfaldleikans, síferskri hugsun og undra- verðum hæfileika til að höndla hið ósegjan- lega. Hann er skáld fárra orða en þungvægra. Í FERÐALAGI HJÁ ÞÉR EFTIR KRISTÍNU ÓMARSDÓTTUR. Hér kveður sér hljóðs nýr höfundur með ólg- andi hugarflug, Ijóðrænan tærleik og húmor. Þessar smásögur fjalla um samskipti fólks, ekki síst togstreitu kynjanna og ástina. Frábært byrjandaverk. BRYNJÓLFUR BJARNASON. Þessi bók hefur að geyma samtöl EINARS ÓLAFSSONAR við hinn merka stjórnmála- skörung. Hann rekur hér pólitískan feril sinn og setur i samhengi við þróun alþjóðastjórn- mála. Ómissandi bók öllum áhugamönnum um stjórnmálasögu. SKShte BJ/tffTMARæW ANRJAÐRA ÁN FJAÐRA EFTIR SIGFÚS BJARTMARSSON. í þessari bók vitnar allt um trú á Ijóðmálinu til að túlka mikilvæg erindi. Ljóðin búa yfir seiðmagni og vitsmunum og þola því vel að vera lesin aftur og aftur. HaUdfrSte&ansóh Sögur ENGILL PÍPUHATTUR OG JARÐARBER EFTIR SJÓN. Saga um pilt og stúlku samtimans, ástir ■ þeirra og leiki - og skuggann sem lúrir þar ’ skammt undan. Þetta er Ijúf bók, fyndin og furðuleg, ærslafull og sorgleg. SÖGUR HALLDÓRS STEF- ÁNSSONAR. Halldór Stefánsson var einn mikilvirkasti og listrænasti smá- sagnahöfundur sem við íslendingar höfum átt. Bókin geymir allar smásögur hans. Þetta eru sögur sem orka sterkt á lesandann og samúð Halldórs með lítilmagnanum fer hvergi á milli mála. DRGUR glimu skjrlfti NÚ ERU AÐRIR TÍMAR EFTIR INGIBJÖRGU HARALDS- DÓTTUR hefur fengið frábæra dóma gagnrýnenda. Ljóð Ingibjargar eru innileg og leita lengi á huga lesandans I látleysi sínu. Þetta er þriðja bók höfundar, sem hefur einnig getið sér gott orð fyrir þýðingar sínar. mm BMll ÍRYALS GLÍMUSKJÁLFTI EFTIR DAG SIGURÐARSON. Hér eru komnar út á einni bók, allar bækur þessa baldna hrekkj- alóms íslenskrar Ijóðlistar, þar með talin ný Ijóðabók sem birtist hér I fyrsta sinn. Dagur er stóryrtur í Ijóðum sínum um fslenskan veruleika svo skjálfti hefur farið um margan góðborgarann, en jafnframt á hann til við- kvæma strengi. HOFINDA FRÁ MÁLIOG mmmm KAPPAR OG KONUNGAR, endursagnir á íslendingaþáttum. Bókin greinir frá höfðingskap og hetjulund forn- garpa sem sóttu heim konunga og sýndu hugvit og dirfsku á ferðum sinum. Sögurnar eru ríkulega myndskreyttar og skráðar á auð- veldu máli fyrir börn á skólaaldri. HEROtS EGtLSOómR BERNÐ OOROOHtK INNAN GARÐS EFTIR ÞÓRARIN ÓSKAR ÞÓRAR- INSSON OG EINAR KÁRA- SON. Ljósmyndabók úr undirdjúpum mannlífsins með texta eftir Einar Kárason. Þórarinn hefur lag á að láta eina mynd segja langa og dramatíska sögu og í myndum hans leynir sér ekki næmi höfundar fyrir hinu sérstaka í fari manneskjunnar. Mál IMI og menning Síðumúla 7-9. Sími 688577. Laugavegi 18. Sími 15199-24240. PAPPÍRS-PÉSI EFTIR HERDÍSI EGILSDÓTTUR OG BERND OGRODONIK. Maggi er einmana og teiknar strák á stórt blað og viti menn - strákurinn sprettur bráðlifandi upp af blaðinu. En pappír er viðkvæmur fyrir hnjaski og fullorðna fólkið getur með engu móti skilið að Pési er lifandi drengur. Allir krakkar þekkja Pappírs-Pésa úr sjónvarpinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.