Morgunblaðið - 09.12.1989, Síða 4
G
4
es(?r naaMagsn .6 auoAanAouAJ aiaAjamioaoM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 1989
ísland - Lúxemborg:
Samningur um gagn-
kvæmt félagslegt öryggi
Brussel. Frá Krislófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgnnblaðsins.
SAMNINGUR um gagnkvæmt félagslegt öryggi á milli íslands og
Stórhertogadæmisins verður undirritaður í Lúxemborg á mánudag.
Samningurinn gerir ráð fyrir því að þegnar beggja rikjanna njóti fé-
lagslegs öryggis, s.s. trygginga, í hvoru landi um sig.
fyrir hönd Stórhertogadæmisins. Að
athöfninni lokinni gefst Guðmundi
Bjarnasyni tækifæri á að kynna séi
heilbrigðisþjónustu í Lúxemborg.
Stór íslendingabyggð hefur verið
um árabil í Lúxemborg, fyrst og
fremst í kringum flugstarfsemi
ýmiss konar. íslendingar sem hafa
verið búsettir þar hafa fyrirgert rétt-
indum sínum á íslandi og hafa þess
vegna ekki notið lágmarks öryggis
í tíðum heimsóknum sínum til föður-
landsins. Minniháttar' óhapp eða
sjúkrahúsvist á meðan á íslandsdvöl
stendur hefur kostað umtalsverða
peninga. Þorbjörg Jónsdóttir, sem
er í stjórn íslendingafélagsins í Lúx-
emborg, sagði að fljótt á litið væri
þessi samningur merkur áfangi fyrir
Islendinga þar. Enn hefði ekki gef-
ist tækifæri til að fara ofan i saum-
ana á samningnum en helstu
VEÐUR
áhyggjuefni íslendinga í Lúxemborg
hefðu auk öryggisleysis í heimsókn-
um til íslands verið skipan eftir-
launa, sérstaklega með tilliti til þess
að margir vildu flytja til íslands
þegar þeim áfanga væri náð.
Samningurinn tekur til sjúkra- og
fæðingartrygginga í báðum löndun-
um, sömuleiðis vinnuslysa- og at-
vinnusjúkdómatrygginga, elli- og
örorkulífeyris, lífeyris eftirlifandi
maka og atvinnuleysistiygginga.
Guðmundur Bjarnason, heilbrigðis-
og tryggingaráðherra, undirritar
samninginn í umboði Jóns Baldvins
Hannibalssonar, utanríkisráðherra,
fyrir hönd íslands, en Johny Lahure,
félagsmálaráðherra Lúxemborgar,
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Frá undirritun samningsins í Ráðherrabústaðnum. F.v. Knútur Halls-
son ráðuneytisstjóri í menntamálaráðneytinu; Markús Orn Antonsson
útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins, Hans Kristján Arnason stjórnarformað-
ur Stöðvar 2, Svavar Gestsson menntamálaráðherra og Kristín Jó-
------------------- hannesdóttir kvikmyndaleikstjóri.
Norrænn kvikmynda- og sjónvarpssjóður:
Sjónvarpið og Stöð tvö
standa saman að verkefiiinu
Sto&isamningur um norrænan
kvikmynda- og sjónvarpssjóð var
undirritaður af íslands hálfú í
gær. Samningurinn er gerður
milli norrænu ráðherranefhdar-
innar, kvikmyndastofiiana og
sjónvarpsstöðva á Norðurlöndum,
VEÐURHORFUR I DAG, 9. DESEMBER.
YFIRLIT í GÆR: Hæg suðvestan- og vestanátt víðast hvar á
landinu. Léttskýjað var á Suðaustur- og Austurlandi en annars
skýjað. Þokumóða var á suðvestanverðu landinu. Hiti var 0-8 stig.
SPÁ: Suðaustangola eða kaldi og þokumóða við suðvesturströnd-
ina og sunnanverða Vestfirði, en hæg norðan- og norðvestangola
á Norðausturlandi. Annars staðar að mestu hægara og skýjað, en
úrkomulaust.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Suðaustanátt, víða all-
hvöss um sunnan- og vestanvert landið en hægari norðan- og
norðaustanlands. Úrkomulaust eða úrkomulítið á norðanverðu
landinu en rigning í öðrum landshlutum. Hiti 3-5 stig.
TAKN:
Heiðskírt
•á Léttskýjað
á HáHskýjað
Skýjað
Alskýjað
/ Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
*
* * * * Snjókoma
* * *
10 Hitastig:
10 graður á Celsíus
Skúrir
*
V El
— Þoka
Þokumóða
’, > Súld
CO Mistur
—J- Skafrenningur
Þrumuveður
m VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 f gær að ísl. tíma hlti veöur Akureyri 6 skýjað Reykjavík 7 þokumóða
Björgvin 6 skýjað
Helsinki +8 snjókoma
Kaupmannah. 6 skýjað
Marssarssuaq a-3 skýjað
Muuk +2 léttskýjað
Ósló 0 snjókoma
Stokkhólmur léttskýjað
Þórshöfn e alskýjað
Algarve 18 skýjað
Amsterdam 7 skýjað
Barcelona 15 mistur
Berlín 2 rigning
Chicago +10 hálfskýjað
Feneyjar vantar
Frankfurt vantar
Glasgow vantar
Hamborg vantar
Las Palmas 21 skýjað
London 7 alskýjað
Los Angeles 14 heiðskírt
Lúxemborg 2 hálfskýjað
Madrid 11 súld
Malaga 17 skúr
Mallorca 18 skýjað
Montreal +22 léttskýjað
New York +5 alskýjað
Oriando 20 alskýjað
Paris 5 léttskýjað
Róm 13 rigning
Vin 2 léttskýjað
Washington +3 snjókoma
Winnipeg +11 snjókoma
en firamlög skiptast jafht milli
þessara aðila. Þetta er fyrsta
norræna verkefhið sem Sjón-
varpið og Stöð tvö standa að í
sameiningu, en Kvikmyndasjóður
íslands á einnig aðild að samn-
ingnum. Stofiifé sjóðsins er 405
milljónir króna og gert er ráð
fyrir að fyrsta úthlutun fari fram
á fyrri hluta næsta árs.
Eiður Guðnason alþingismaður
hóf máls á stofnun sjóðsins innan
Norðurlandaráðs. „Þegar ljóst var
að ekki yrði af norrænu samstarfi
um Nordsat eða Tele-x fjarskipta-
hnettina tók hugmyndin um sjón-
varps- og kvikmyndasjóð að mótast.
Málið gekk sérstaklega fljótt og vel
eftir og á þremur árum varð hug-
myndin að veruleika," segir Eiður.
Sjóðurinn mun hafa aðsetur í
Stokkhólmi. Yfir honum er fimm
manna stjóm og fulltrúi íslands þar
Ólafur Ragnarsson bókaútgefandi
og fyrrum sjónvarpsmaður, en vara-
maður hans Kristín Jóhannesdóttir
kvikmyndaleikstjóri. Markmið sjóðs-
ins verður að efla framleiðslu kvik-
mynda og sjónvarpsefnis á Norður-
löndum og stuðla að tryggri dreif-
ingu þess.
Framleiðendur geta sótt um fjár-
veitingu úr sjóðnum og framlög
verða hvorki háð því að um sameig-
inlegt verkefni tveggja eða fleiri
Norðurlanda sé að ræða, né að við-
fangsefnið sé sérstaklega norrænt.
Við úthlutanir verður tillit tekið til
ljstrænna þátta og hvort verkin virð-
ist vel fallin til dreifingar á Norður-
löndum. Sérstök áhersla verður sam-
kvæmt reglum sjóðsins lögð á fram-
leiðslu efnis fyrir börn og unglinga.
íslenskar sjónvarpsstöðvar greiða
1% af framlagi norrænna stöðva í
sjóðinn og Kvikmyndasjóður íslands
greiðir 1%. Þetta þýðir 1,5 milljónir
á Kvikmyndasjóð og 750 þúsund
krónur á hvora sjónvarpsstöð. Hlut-
ur ríkisins greiðist hins vegar af
norrænu fé.
Kveikt á
jólatrénu á
Austurvelli
á morgun
JÓLASTEMMNING verður á
Austurvelli á morgun. Þá mun
Per Aasen, sendiherra Nor-
egs á íslandi, afhenda Davíð
Oddssyni, borgarstjóra, jóla-
tré frá Óslóarbúum. I rúm
þrjátiu ár hefur Óslóborg sýnt
Reykvík vinarbrag með þess-
um hætti.
Borgarstjóri mun veita trénu
viðtöku fyrir hönd borgarbúa
kl. 16, en þá verður kveikt á
jólatrénu. Lúðrasveit Reykjavík-
ur leikur jólalög á Austurvelli
frá kl. 15.30, en athöfninni lýk-
ur með því að Dómkórinn syng-
ur jólasálma.
Fyrstu jólasveinamir koma til
Reykjavíkur á morgun, en þeir
koma fram eftir að kveikt verð-
ur á jólatrénu. Yfimmboðsmað-
ur jólasveinanna, Ketill Larsen,
hefur frétt frá Askasleiki, for-
ingja jólasveinanna, að þeir
munu þá skemmta bömum jafnt
sem fullorðnum. Jólasveinarnir
koma fram á þaki Nýja Köku-
hússins strax að lokinni athöfn-
inni við jólatréð.
Framkvæmdastjórn EB:
Tillögur um innflutn-
ingsleyfi fyrir saltfísk
Strassborg. Frá Kristófer M. Kristinssyni
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evr-
ópubandalagsins (EB) gekk í gær
frá tillögum um innflutnings-
heimildir á salt fiski á lækkuðum
tollum til EB á næsta ári. Sam-
kvæmt tillögunum er gert ráð
fyrir að heimila innflutning á
49.000 tonnum af saltfiski með
Bjó til sögu
um hnífaárás
16 ARA piltur sem um síðustu
helgi sagðist hafa orðið vitni að
því er maður stakk annan með
hnifl, hefur játað að um tilbúning
sinn hafi verið að ræða.
Pilturinn gaf sig fram við lög-
reglu í miðbænum um síðustu helgi
og sagðist hafa séð menn í átökum
í porti BSR við Lækjargötu og hefði
einn tekið upp hníf og stungið anhan
í lærið. Við athugun lögreglu kom
ekkert í ljós sem renndi stoðum und-
ir frásögn piltsins og hefur hann nú
játað að hún hafi verið tilhæfulaus.
fréttaritara Morgunblaðsins.
9% tolli og 1000 tonnum af söltuð-
um flökum með 12% tolli. Jafh-
firamt leggur framkvæmda-
stjórnin til að leyfður verði inn-
flutningur á 500 tonnum af skreið
með 10% tolli.
Tillögur framkvæmdastjómar-
innar eru nokkuð í samræmi við
samþykktir ráðherrafundar um
sama efni í fyrra. Samkvæmt heim-
ildum í Brussel eru taldar góðar
líkur á því að tollur á blautverkuð-
um saltfiski lækki í meðfömm ráð-
herranefndarinnar í 6-7% en magn-
ið verði óbreytt.
Tillögumar vom til meðferðar í
vinnuhópi sérfræðingá frá aðild-
arríkjunum í Brussel í gær. Ekki
náðist samstaða um tillögurnar
fyrst og fremst vegna andstöðu
Suður-Evrópuríkja við 9% toll sem
þær telja of háan.
Reiknað er með því að fastafull-
trúar aðildarríkjanna fjalli um til-
lögumar á miðvikudag og þær fari
fyrir ráðherrafund sem verður í
Bmssel 18. og 19. desember nk.