Morgunblaðið - 09.12.1989, Page 7

Morgunblaðið - 09.12.1989, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 1989 7 Spáð er áframhaldandi sunnanátt og hlýindum Garðyrkj u slj ór i óttast ekki gróðurskemmdir Eyvindur Erlendsson GERT er ráð fyrir að hlýindin við landið haldist að minnsta kosti fram yfir helgi. Að sögn Braga Jónssonar veðurfræðings berst hlýtt loft með suðlægum vindum og því veldur hæð yfir Bretlands- eyjum. Hann sagði að veðurlagið myndi haldast óbreytt. Jóhann Pálsson, garðyrkjustjóri Reykjavíkurborgar, sagði að svipuð hlýindi hefðu verið um þetta leyti undanfarin þijú ár og taldi hann ekkert óvenjulegt við þessa tíð. Hann sagði að verið væri að planta tijám víðs vegar um borgina og yrði því haldið áfram allt fram að jólum að öllu óbreyttu. Hann kvaðst ekki ótt- ast skemmdir á gróðri vegna hlýind- anna fyrr en með útmánuðum. „Haldist stanslaus hlýindi fram í jan- úar fer ég að verða áhyggjufullur,“ sagði Jóhann. Hiti í nóvember var rétt fyrir ofan meðallag og mældist meðalhiti í Reykjavík 2,2 gráður á Celsius en á Akureyri var meðalhiti í nóvember -0,1 gráða, eða -0,3 gráðum undir meðallagi. Sólar naut við níu stundum lengur en í meðalári bæði í Reykjavík og á Akureyri. í Reykjavík mældust sólar- stundir 45 en 21 á Akureyri. Meðalúrkoma var 78 mm, % úr meðalúrkomu á Akureyri og aðeins helmingur meðalúrkomu á Homa- firði. Passíusálm- ar á hljóð- snældum Passíusálmar Hallgríms Pét- urssonar hafa verið geftiir út á hljóðsnældum í flutningi Ey- vindar Erlendssonar. Utgáfan er á sex snældum felldum inn í hvíta öskju í bókarlíki. Upplag er 500 eintök. Hljóðritunin var gerð á föstu- daginn langa síðastliðinn en þá flutti Eyvindur Passíusálmana í Hallgrímskirkju í samfelldri fimm stunda lotu. Útgefendur eru Eyvindur Er- lendsson ásamt Sigurði Rúnari Jónssyni með stuðningi Listvinafé- lags Hallgrimskirkju, Stúdíós Stemmu og Milljónarfjelagsins hf. Á einni snældunni er formáli ásamt sálminum „Um dauðans óvissa tíma“, sem jafnan er látinn fylgja útgáfum Passíusálma. Þessi útgáfa verður fyrst um sinn aðeins fáanleg hjá útgefend- um en fljótlega einnig í Hallgríms- kirkju. Islending- ar draga úr ferðalögum ALLS komu 13.705 ferðamenn til landsins í nóvember, 8.965 íslenskir og 4.740 erlendir. Það er rúmum 2.600 ferðamönnum færra en í sama mánuði í fyrra. Islendingum á ferð milli landa hefúr fiekkað um 2.360 en út- lendingar sem koma hingað voru 267 færri en í nóvember 1988. Fyrstu 11 mánuði ársins höfðu 13.667 íslendingar komið til lands- ins frá utlöndum en það er tæplega 6.000 manns færra en á sama tímabili í fyrra. Útlendingar sem komu til landsins á tímabilinu voru um 1.850 færri en í fyrra. Flestir erlendu ferðamannanna í nóvember voru bandarískir, 1.269 talsins, Danir voru 1.075 en þar næst komu Bretar; 431 þeirra kom til íslands í nóvember. Jólasveinar á Laugavegi í DAG, laugardaginn 9. des- ember, verður reynt að skapa góða jólastemmningu á Lauga- veginum. Jólasveinar verða í fylgd Grýlu og Leppalúða og munu þeir dreifa jólapökkum. Háskólakórinn geng- ur um bæinn og syngur jólalög og harmonikkuleikarar leika létt lög viða í miðbænum. Þannig ætla miðbæjarmenn að hafa jóla- stemmninguna fram að jólum, segir í fréttatilkynningu frá Gamla miðbænum og tekið er fram, að Laugavegurinn sé óvenju fallega skreyttur og jólalegur. í dag verða verslanir opnar frá kl. 10-18. yiÐ HJÁLPUM HJALPAÐU OKKUR! Látum börnin ekki gjalda þess hvar þau fæðast í þennan heim. Þau eiga öll sama rétt til lífsins. Neyðin er víða mikil en ábyrgðin okkar allra. Þitt framlag vegur þungt í markvissu hjálparstarfi. Svona kemst. þitt framlag til skila: Viö höfum sent söfnunarbauk og gíróseöil inn á flest heimili landsins. Auk þess fylgir bæklingur með þar sem viö kynnum fólki nýjan möguleika á því að gerast styrktarmeðlimir Hjálparstofnunarinnar. Þá peninga sem fjölskyldan hefur í sameiningu safnaö í baukinn má senda meö gíróseölinum í næsta banka, sparisjóð eða póstafgreiðslu. Einnig má skila söfnunarbaukum og fjárframlögum til sóknarpresta og á skrifstofu Hjálparstofnunar kirkjunnar, Suöurgötu 22 í Reykjavík. flHAUD UANDA jjlithÚÍUDUM Sparisjóður Reykjavíkurognágrennis styrkti landssöfnunina meö því að kosta birtingu þessarar auglýsingar. l#SSlIiflí'fIMSIII#iII414S4SÍlJl'lllli|Íá4ía4i4iiMi*4**WW'i*®lá#PI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.