Morgunblaðið - 09.12.1989, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 1989
15
r----1---;—i—i----"i---ii—'■ i' —rrr
Aðgangur að skólum
Menntatengslin við
Evrópu að rofiia
eftir Birgi ísl.
Gunnarsson
Umræðumar um tengsl íslend-
inga við Efnahagsbandalag Evr-
ópu hafa hingað til að mestu snú-
ist um viðskiptatengsl, þ.e. um
óhindraðan flutning milli landa á
vöru, þjónustu, fjármagni og
vinnuafli. í hinni opinberu umræðu
hefur minna verið fjallað um aðra
þætti sem skipta okkur íslendinga
miklu. Hef ég þar einkum í huga
skóla- og menntamál. Mun ég
fjalla stuttlega um það í þessari
grein.
íslendinga var sérstaklega fjallað
um þetta mál í viðtali við Guðjón
Tómasson, formann fræðslunefnd-
ar málmiðnaðarins. Þar dregur
hann í efa að nægilegur skilningur
sé á þessu hjá þeim sem stjórna
menntamálum hér á landi en bend-
ir jafnframt á að þessi breyttu við-
horf kalli ekki á veigamiklar breyt-
ingar á menntakerfi okkar. Styrkja
þurfi verulegá stærðfræði-, eðlis-
fræði- og tungumálakennslu í
grunnmenntuninni. Þá þurfi að
leggja áherslu á þann þátt námsins
sem lúti að sérhæfingu.
„Fjöldi íslendinga hefiir í
áranna rás sótt nám af
ýmsu tagi til Evrópulanda
og flutt þannig heim til
Islands hluta af evrópskri
hefð og menningu. Nú er
þetta samband í hættu og
því afar brýnt að íslensk
stjórnvöld taki þetta mál
upp sem forgangsmál við
ríki Evrópubandalags-
ins.“
Eins og þetta snýr að okkur
íslendingum er málið tvíþætt: Ann-
ars vegar aðgangur Islendinga að
skólum og menntastofnunum í
löndum Evrópubandalagsins. Hins
vegar hvernig íslenska mennta-
kerfið lagar sig að kröfum Evrópu-
bandalagsins.
Ljóst er að Evrópubandalagið
hefur þegar sett reglur þess efnis
að nemendur frá ríkjum innan
bandalagsins gangi fyrir um skóla-
vist á EB-svæðinu. Á þetta einkum
við um skóla sem veita atvinnurétt-
indi. Samkvæmt þessum nýju
ákvæðum er umsækjendum skipt
í hópa sem hafa mismunandi for-
gang. Fyrst koma íbúar landa inn-
an bandalagsins. Þeir hafa algeran
forgang. Næst koma flóttamenn í
því landi sem skólinn er í. Síðast
koma íbúar landa utan Evröpu-
bandalagsins.
íslendingum hafnað
Þarf að taka föstum tökum
Hann bendir og á að mörk milli
iðngreina séu að riðlast. Það þýðir
auðvitað að ekki má ríghalda um
of í gamla bása sem hver iðngrein
hefur skipað sér á. Að lokum legg-
ur Guðjón Tómasson áherslu á að
ábyrgð á iðn- og verkmenntun
verði í ríkari mæli færð út í atvinn-
ulífið.
Ég vildi með þessum línum
leggja áherslu á þennan mikilvæga
þátt í tengslum okkar við EB-
löndin. Ljóst er að við þurfum að
taka hann föstum tökum. Bæði
þurfum við að tryggja íslendingum
aðgang að evrópskum skólum og
laga okkar menntakerfi að þeim
breytingum sem eru að gerast í
Evrópu.
Hotundur er ewn at „. . ; , „
alþingismönnum Sjálfstæðisílokks Birgir Isl. Gunnarsson
fyrir Reykja víkurkjördæmi.
íslendingar lenda í þessum
síðasta hópi, en talið er að 5-10%
nýnema verði teknir úr þessum
hópi. Þessi regla virðist þegar kom-
in til framkvæmda, en árið 1992
verður lokið þriggja ára áætlun
um samræmda kennslu og lokapróf
frá framhaldsskólum sem veita
atvinnuréttindi.
Á þessu hausti urðu margir ís-
lendingar fyrir því að vera neitað
um skólavist í ýmsum löndum Evr-
ópubandalagsins vegna þessa. Sem
dæmi má nefna að þrátt fyrir mjög
góð og gömul samskipti íslendinga
við ýmsa skóla í Danmörku var
íslendingum nú neitað í ríkum
mæli um skólavist þar. Þegar leit-
að var skýringa var vísað í hinar
nýju reglur EB. Þetta er að sjálf-
sögðu mjög alvarlegt mál. Fjöldi
íslendinga hefur í áranna rás sótt
nám af ýmsu tagi til Evrópulanda
og flutt þannig heim til íslands
hluta af evrópskri hefð og menn-
ingu. Nú er þetta samband í hættu
og því afar brýnt að íslensk stjórn-
völd taki þetta mál upp sem for-
gangsmál við ríki Evrópubanda-
lagsins.
íslenska menntakerfið
Hinn þáttur þessa máls snýr að
okkur sjálfum. Þar vaknar fyrst
og fremst spurningin um það
hvernig okkar menntakerfi sé búið
undir breyttar kröfur í EB-löndum.
Þetta á ekki síst við um iðn- og
verkmenntun. Nám á því sviði þarf
að samræma þeim kröfum sem
gerðar eru í Evrópu. Að öðrum
kosti verða íslenskir iðnaðarmenn
og tæknimenn ekki gjaldgengir á
vinnumarkaði í öðrum Evrópulönd-
um.
í Tímariti iðnaðarmanna sem
kom út í tilefni af 32. Iðnþingi
StÖID
steinsteypu.
C5s — Léttir
* "IToSST" --jvf f meöfœrilegir
Ý \ viöhaldslitlir.
000 w*hluUwónu,'°
b bnRRRÍMSSnN R CD
hh 000 VB,aniu,aPiomj*ia- **
CO Þ. Þ0BGRÍMSS0N & C0 Armúi. 29. .rrtw 39940
FTiuictiMK ttusilmiiu ■ wru Mmtiaii
uiTmitii iiiiiTtiu muuii
Samvinnuferðir-Landsýn hefur nú sett stefnuna á skíðalönd Austurríkis í vetur
og býður uppá ýmsa frábæra kosti fyrir alla,
byrjendur jafnt sem skíðakappa, fjölskyldur sem einstaklinga.
FL2M00S
SAALBACH-WNTHtGLHIðM
Nýr valkostur fyrir fjölskyldur og byrjendur. Endalausir möguleikar.
Filzmoos er fallegur skíðabær 70 km frá Salzburg við
rætur hins mikilfenglega Dachsteinjökuls. Aðstæður
allar henta byrjendum einkar vel. Auk þess finna þeir
sem náð hafa meiri færni verðugar brekkur við sitt hæfi.
Þarna er einnig að finna fallegar gönguleiðir. Öll önnur
aðstaða er til hreinnar fyrirmyndar: Sundlaugar,
gufuböð, frábærir veitingastaðir, dýrleg tónlist og
austurrísk rómantík svífur um brekkur. Möguleiki er á
að fara í skíðaskóla sem einnig rekur leikskóla fyrir börn
frá 3 ára aldri. (slenskur fararstjóri verður með í för. Um
er að ræða viku- og hálfsmánaðarferðir.
Brottfarardagar eru 20. janúar og 3. febrúar
Þetta er eitt allra besta skíðasvæði Austurríkis og eru
möguleikarnir þar nánast endalausir fyrir skíðafólk á
öllum stigum. Bæirnir Saalbach og Hinterglemm standa
í dalbotni í Salzburgarlandi, í um 1000 metra hæð. Fólk
skíðar milli þorpanna og alit um kring. Báðir bæirnir búa
vel að gestum sínum: Skautasvell, sundlaugar, gufuböð,
tennisvellir, veitingahús, barir, diskótek og ótalmargt
fleira.
Brottfarardagar eru 27. janúar og 10. febrúar
44.650 kn.
46.850 kl*.
Vikuferð kostar
Þá er miðað við tvo fullorðna og tvö börn 2-12 ára. í
verðinu er innifalið flug til og frá Salzburg, akstur til og
frá Filzmoos, gisting í 7 nætur á 4 stjörnu hóteli,
morgunmatur, 4 rétta kvöldmáltíð og íslensk fararstjórn.
Vikuferð kostar
Þá er miðað við tvo fullorðna og tvö börn 2-12 ára. í
verðinu er innifalið flug til og frá Salzburg, gisting í 7
nætur í fyrsta flokks íbúðum og akstur til og frá flugvelli
erlendis.
F/S4
FLUGLEIÐIR
Verð miðast við gengi 2.10.1989.
Samvinnuférdir-Landsýn
Austurstrœti 12 *91-69-10-10 ■ HótelSöguviöHagatorg■ »91-62-22-77
Suöur1andsbraut18'*91-68'91'91 • AKureyri: Skipagötu 14 •» 96-27200
SÍDUSTU FOBtfðO flÐ BÓKfl í JAWÚARFBHUB.
y