Morgunblaðið - 09.12.1989, Page 22

Morgunblaðið - 09.12.1989, Page 22
22 *ei 'aaa'jflassci .e flUíiAdHADUAj cnaAjaH'j;>HOM MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 1989 Orbylgiuofn með einstakt plóss. Tveir diskur í einu. PHILIPS Space Cube, örbylgjuofninn er einstakur vegna þess aö í honum má matreiða á tveimur diskum í einu. Engin biö eftir seinni diskinum þegar tveir boröa saman. Og ekki þarf aö eyða orku og plássi í fyrirferðamikinn snúnings- disk sem gera þrif mun auðveldari. Bylgjurnar dreifast jafnt um allan ofninn svo hann nýtist til fulls. Nú er á auga bragði hægt að þíða heilt læri eða Heimilistæki hf Sætúni 8 SÍMl 69 1515 . Kringlunni SÍMl 6915 20 f/cd t/uutoSveúfc/attflegrt, í scmuuttgMHc heilan lax. Innanmálið er nefnilega 49,5 cm og utanmálið 50. Plássnýtingin eykst líka vegna þess að hurðin myndar plötu framan við ofninn. Þetta er öflugur ofn fyrir skjóta, hagkvæma og holla matreiðslu. Varðveitir safann og ferskleikann í matnum. Hver sem hann er. ■ JÓLASÝNING verður opnuð í listasalnum Nýhöfn, Hafnarstræti 18 í Reykjavík, laugardaginn 9. desember. Verk eftir ijölda lista- manna eru til sýnis og sölu. Opnun- ardaginn verður boðið upp á veit- ingar og sungin verða jólalög. Sýn- ingin er opin virka daga klukkan 10 til 18, laugardaga frá klukkan 14 til lokunartima verslana og á Þorláksmessu kiukkan 10 til 23. Sýningin stendur fram yf ir áramót. ■ TAFLFÉLAG KÓPAVGGS heldur desemberhraðskákmót næstkomandi sunnudag, 10. desem- ber, klukkan 14 í Hjallaskóla við Álfhólsveg. Jólahraðskákmót fé- lagsins verður haldið 26. desember klukkan 14 í Hjallaskóla og eru glæsileg verðlaun í boði. ■ LEIKFÉLAG MOSFELLS- BÆJAR, Karlakórinn Stefiiir og Stefnurnar halda jólavöku í Hlé- garði í Mosfellsbæ næstkomandi sunnudag, 10. desember, og hefst vakan klukkan 20.30. Dagskrá verður blönduð og með svipuðu sniði og undanfarin ár. Félagar úr Leikfélaginu flytja leikþátt og lesa ljóð, Stefiiir syngur undir stjórn Lárusar Sveinssonar og séra Birgir Ásgeirsson flytur hugvekju. Skólahljómsveit Varmárskóla leikur í byijun vökunnar og börn úr Varmárskóla syngja. Stefnurn- ar bjóða upp á kaffi í hléi. Aðgangs- eyrir er 600 krónur. ■ BYGGÐASAFN HAFNAR- FJARÐAR og Hafnarborg hafa samvinnu um sýningu á fjölmörgum söfnum í eigu einstaklinga og verð- ur sýningin opnuð laugardaginn 9. desember. Söfnin eru íjölbreytt og forvitnileg, segir í fréttatilkynn- ingu, og verða þau til sýnis klukkan 14 til 19 alla daga nema þriðju- daga. Lokað verður 23. til 26. des- ember og 31. desember til 1. jan- úar. Sýningunni lýkur 15. janúar næstkomandi. ■ HEIDI KRISTIANSEN sýnir um þessar mundir myndteppi í Galleríi Hlaðvarpanum. Teppin eru saumuð með ásaums- og quilt- tækni. 25 teppi eru á sýningunni, flest saumuð á þessu ári. Heidi er frá Noregi og lærði þar, en hefur verið búsett hér á landi síðan 1980. Sýningin er opin alla daga til klukk- an 18 fram til 17. desember, að- gangur er ókeypis. M SELKÓRINN á Seltjarnar- nesi heldur afmælistónleika í Selt- jarnarneskirkju næstkomandi sunnudag, 10. desember, klukkan 20.30. A efnisskrá er kirkju- og jólatónlist. Stjórnandi er Friðrik Guðni Þorleifsson. ■ HVAMMSTANGI. Aðventu- kvöld verður í Hvammstanga- kirkju, mánudagskvöldið 11. des- ember og hefst kl. 20.30. Þar mun verða flutt ijölbreytt efni, lúðra- blástur, kórsöngur og upplestur, en ræðumaður kvöldsins verður frú Guðrún Lára Ásgeirsdóttir á Prestbakka við HrútaQörð. Þótt hér við Miðfjörð sé veður og tíð eins og á sumardegi, minnir skammdegið okkur á nálægð jól- anna. Því er gott að koma til kirkju á aðventu, til að undirbúa hugann fyrir jólahátíðina. HvammsLmgakirkja ■ FYRIRTÆKIN sem staðsett eru á Bernhöftstorfu hafa tekið höndum saman um að skapa jóla- stemningu á svæðinu. Til að auð- velda foreldrum jólainnkaupin munu fóstrur sjá um bamagæslu á Berhöftstorfu alla föstudaga í des- ember frá kl. 14-18 og laugardaga frá kl, 10 til loka verslanna en þó ekki lengur en til kl. 20. Skífan verður með hljómplötukynningu. Á föstudögum og laugardögum verða uppákomur með lifandi tónlist. Á Þorláksmessu muh Dómkórinn koma fram á útitaflinu auk þess mun hluti kórsins koma fram á Bernhöftstorfu nokkram sinnum á laugardögum til jóla. Útimarkaður verður á Bernhöftstorfu á föstu- dögum og laugardögum og rennur allur ágóði af sölu til líknarmála. Jólasveinamir koma í heimsókn öðra hvora. Boðið verður upp á heitt kakó og piparkökur. Fyrirtæk- y in sem staðsett era á Bernhöft- storfu eru veitingahúsin Lækjar- brekka og Punktur og pasta, ferðaskrifstofurnar Land og saga og íslenskar Qallaferðir, Sveinn bakari, Ull og gjafavörur, Lista- hátíð, Sinfónían og Asse. SAGAN GLEVMIR ENGUM. Ásgeir Jakobsson. Ásgeir segir sögur af sjómönnum og fiskiskipstjórum, sem voru miklir aflamenn og sjósóknarar fyrr á árum, auk sögunnar af skipherra landhelgisgæslunnar, sem Englendingar létu íslenskan forsætisrádherra reka. LÆKNINGAMÁTTUR ÞINN. Harold Sherman. Sherman greinir hér frá tilraunum sínum á lækningamætti hugans og setur fram ráðleggingar fyrir þá, sem þarfnast lækningar. Hann er fullviss um það, að Guðs- krafturinn er til staðar í hverjum manni til að endurvekja hug og likama. UNDIR HAMRINUM. Grétar Kristjónsson. Reynslusögur gjaldþrota einstaklinga. flér er fjallað um reynslu nokkurra einstaklinga, sem lent hafa í greiðsluerfið- leikum og gjaldþroti. Þetta eru áhrifaríkar frásagnir, þar sem þjáningin og reiðin koma berlega i Ijós. Oft er tekið sterkt til orða og ýmsir fá kaldar kveðjur. DULRÆN REYNSLA. Gudný Þ. Magnúsdóttir. Frásagnir af dulskynjunum sjö islenskra kvenna. Áhugi á dulrænum fræðum hefur alltaf verið mikill. Hér segja sjö islenskar konur frá reynslu sinni í þessum efnum, greina frá því sem fyrir þær hefur borið í lífinu á þessu sviði og svara um leið ýmsum áleitnum spurningum. OG ENN MÆLTI HANN. Finnbogi Gudmundsson. 20 ræöur og greinar. Hér fjallar Finnbogi um hin margvíslegustu efni, allt frá nýársdagshugleiðingu í Hafnarfjarðarkirkju til handknattleiks á fimmta tugnum og frásagnar af ferð til Albaníu. Þá er erindi um Þingvelli og Þjóðarbókhlöðu og sitthvað fleira. SKIPTIR ÞAÐ MÁLI? Árni Grétar Finnsson. Þetta erönnur IjóðabókÁrna Grétars. 1982 kom út Leikurað orðum, þarsem voru bæði frumort Ijóð og þýdd. Hér eru eingöngu frumort Ijóð, sem eru margbreytileg að efni og framsetningu og bera mörg með sér ákveðinn tón, sem sérkennir höf- undinn. Eirikur Smith myndskreytti. SKVGGSJÁ - BÓKABÚÐ OUVERS STEMS SF

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.