Morgunblaðið - 09.12.1989, Page 23

Morgunblaðið - 09.12.1989, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 1989 23 Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson Klippt á borða. Haraldur Stefánsson, slökkviliðsstjóri, kapteinn Rich Goolsby og Ástvaldur Eiríksson, varaslökkviliðsstjóri, Vogar: Ný slökkvistöð „stöð 2“ tekin í notkun Vogum. Slökkviliðið á Keflavíkurflugvelli hefur tekið í notkun nýja slökkvi- stöð, „stöð 2“. Nýja stöðin verður einskonar hverfastöð og stendur á raóti Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þar verða þrjár slökkvibifreiðar og sex starfsmenn. Þá hefur nýtt æfíngasvæði verið tekið í notkun fyrir slökkviliðið þar sem tekist verður á við olíuelda í æfingaskyni. Með tilkomu aukinnar flugstarf- semi á Keflavíkurflugvelli vestan- verðum, ásamt Flugstöð Leifs Eiríkssonar við völlinn norðanverð- an, var ljóst að viðbragðstími slökkviliðsins frá slökkvistöðinni á austanverðu flugvallarsvæðinu myndi ekki í öllum tilvikum upp- fylla þær kröfur sem gerðar eru, þess vegna var farið út í að inn- rétta nýja slökkvistöð. Það var kapteinn Rich Goolsby, sem afhenti Haraldi Stefánssyni, slökkviliðsstjóra, nýju stöðina við hátíðlega athöfn. Kapteinn Rich Goolsby er eins- konar bæjarstjóri varnarliðsins, og sér um rekstur allra fasteigna í þjónustu á vellinum, þar með talinn flugvöllinn. - EG Slökkviðilið tekur æfíngu á nýja æfingasvæðinu. Einhverstaðar verður að byrja Helgi Jónsson, ungur Ólafsfirð- ingur, gefur sjálfur út sína fyrstu bók, unglingasöguna Skotin!, nú fyrir jólin. Helgi er 27 ára gamall með BA-próf í bókmenntum og ensku frá Háskóla íslands en kennir nú á Ólafsfirði þar sem sagan hans gerist. Bókin þín Ijallar öðrum þræði um einelti. Hefur þú kynnst því sem kennari? „Maður verður vitni að mörgu í skóla, vissar manngerðir eru lagðar í einelti og ástæðurnar fyrir því eru ótrúlega margar. Það er ekki aðeins líkamlegt heldur andlegt líka hvemig strákar og stelpur eru brotnar niður. Annars var hugmyndin ekki að skrifa um einelti fyrst og fremst en það var einn af þremur grunnpunktunum í sögunni — hinir eru ástin og einmana týpan.“ Persónurnar bera nöfn eins og Kári og Skarphéðinn og Njáll? „Frumhugmyndin var að skrifa sögu í anda fornsagnanna en láta hana gerast í nútímanum. Svo gekk það ekki. Orðfærið var ekki nógu heilsteypt eða sannfærandi. Ég byijaði á nýjan leik og dró úr forna stílnum en það var ekki fyrr en í þriðju atrennu, sem ég varð ánægður með útkomuna. Þá skrifaði ég söguna á venjulegu nútímamáli en læddi inn hér og þar setningum úr fornsögunum." Helgi Jónsson. Fyrir hvaða aldurshóp er sag- an? „Bókin er stíluð á ungt fólk og unglinga en það er ekki stefnan að skrifa unglingabækur. Ég var búinn að hugsa um þennan sögu- þráð lengi og ákvað að festa hann á blað en ég held líka að það hjálpi mér að komast af stað að skrifa um unglinga. Einhverstað- ar verður maður að byrja.“ GANGVIRKID - SEIDUR OG HÉLOG - DREKAR OG SMÁFUGLAR - EFTIR ÓLAF JÓHANN SIGURÐSSON eru komnar út í öskju. Þessi stórbrotni sagnabálkur um Pál Jónsson blaðamann er höfuðverk Ólafs Jóhanns Sigurðssonar sem var einn listfengasti sagnasmiður okkar, þýðandi og Ijóðskáld. Hann hlaut bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs, fyrstur slendinga, árið 1976. Sagnabálkurinn um Pál fjallar um ungan mann utan af landi, velviljaðan og auðtrúa, sem kemur til borgarinnar á stríðsárunum og verður að horfast í augu við grimman veruleik nýs tíma. Þetta er saga um tálsýnir og brostnar vonir, hræsni og siðleysi, en líka saga um óskir sem rætast, kærleik og mannlega góðvild. En umfram allt skemmtileg lesning sem lesandinn vill helst ekki leggja frá sér fyrr en á síðustu blaðsíðu. og menmng Síðumúla 7-9. Sfmi 688577. Laugavegi 18. Sími 15199-24240.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.