Morgunblaðið - 09.12.1989, Side 34
38
98er fl33M383(3 .6 MUOAaíIAOUAJ ÖKIAJaHUOJOM
34 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. DESÉMBÉR 1989
Slóvenía:
Vilja rjúfa öll
tengsl við Serba
Belgrað. Reuter.
Andkommúnískir stjórnarandstöðuhópar í júgóslavneska lýð-
veldinu Slóveníu hafa sameinast og krefjast þess nú einni röddu,
að hætt verði öllum samskiptum við Serbíu, sem er annað lýðveld-
ið frá.
Serbar, sem sækjast augljóslega
eftir forystunni meðal þjóðanna,
er byggja Júgóslavíu, drógu ný-
lega verulega úr samskiptum
sínum við Slóvena og var það gert
til hefna þess, að Slóvenar bönn-
uðu þeim að efna til fjöldafundar
í Ljubljana, höfuðborg Slóveníu. í
Slóveníu, sem liggur að Austurríki
og Italíu, eru margir ófoiTnlegir
flokkar, til dæmis jafnaðarmenn,
kristilegir demókratar og bænda-
flokksmenn, og þar eiga að fara
fram fijálsar kosningar að vori.
Leiðtogar Serba vilja hins vegar
halda fast við alræði eins flokks
og miðstýringu.
í Júgóslavíu eru sex lýðveldi og
tvö sjálfstjómarhéruð og tungurn-
ar eru enn fleiri og trúarbrögð
með ýmsum hætti. Hefur verið
fjandskapur með sumum þjóðanna
frá fornu fari. Ante Markovic, for-
sætisráðherra Júgóslavíu, sagði í
gær, að koma yrði í veg fyrir, að
ágreiningurinn tefði fyrir efna-
hagslegum umbótum í landinu en
verðbólgan mælist nú 2.000% og
að minnsta kosti 16% vinnufærra
manna eru atvinnulaus.
Reuter
Fagnandi stuðningsmenn Corazon Aquino Filippseyjaforseta á útifundi í Manílu í gær. Fremst er nunna
sem notar sjónauka til að sjá forsetann betur.
Filippseyjar:
Aquino heimtar af-
sögn varaforsetans
Manílu. Reuter.
CORAZON Aquino, forseti
Filippseyja, réðst harkalega á
varaforseta landsins, Salvador
Laurel, í gær og krafðist þess
að hann segði af sér embætti
vegna meints stuðnings við upp-
reisnarmenn. Aquino sagði þing-
ið verða að kanna hveijir hefðu
staðið að baki uppreisninni sem
nú hefiir að mestu verið kveðin
Virgilio Barco, forseti Kólombíu,
kenndi eiturlyfjakóngum landsins
um • verknaðinn. Almenn viðbrögð
voru þau að hvetja til þjóðarsam-
stöðu gegn hryðjuverkum af þessu
tagi sem hafa verið mjög tíð síðan
stjórnvöld lýstu stríði á hendur eit-
urlyfjasölum 24. ágúst síðastliðinn.
Talið er að síðan þá hafi 259
sprengjuárásir verið gerðar í
landinu. Kólombískt dagblað varaði
við því í vikunni að Bogota væri
að breytast í nýja Beirút.
Marques sagði í viðtali við frétta-
niður og nafiigreindi í því sam-
bandi tvo andstæðinga sína, þá
Juan Ponce Enrile, fyrrum varn-
armálaráðherra, og iðnjöftirinn
Eduardo Cojuangco. Sá síðar-
nefiidi fylgdi Ferdinand Marcos
heitnum í útlegðina en kom heim
á ný fyrir tveim vikum. Hann er
náinn ættingi Aquinos.
Um 100 þúsund manns söfnuð-
stofuna Colprensa að ungur Spán-
veiji hefði þjálfað eiturlyfjasalana
sem sprengdu höfuðstöðvar örygg-
islögreglunnar í loft upp. Þar væri
um fyrrverandi liðsmann ETA að
ræða og sérfræðing í sprengjugerð.
ETA var lengi í samstarfi við
hryðjuverkasamtökin Irska lýðveld-
isherinn (IRA) en undanfarin ár
hafa samtökin einangrast. Fyrr á
árinu hélt kólombíska öryggislög-
reglan því fram að eiturlyfjasalar
nytu aðstoðar málaliða frá Bret-
landi og ísrael.
ust saman í höfuðborginni Manílu
í gær og hylltu Aquino forseta.
„Engar byltingar" og „Við viljum
frið“ var hrópað. Forsetinn sagði
mannfjöldanum að hún teldi mögu-
legt að nota féð sem varið væri til
embættis Laurels varaforseta bet-
ur. Benti hún á að Laurel, sem oft
hefur lýst andstöðu við stefnu for-
setans, hefði alltaf verið staddur
erlendis þau sex skipti sem hermenn
hafa gert uppreisn frá því Aquino
tók við völdum. „Hann segir sífellt
við mig: „Cory, segðu af þér, segðu
af þér!“ Heldur hann að ég sé svo
mikill bjáni að segja af mér svo að
hann geti orðið forseti?" Aquino
sagði Laurel verða að gefa skýring-
ar á ýmsum málum. Laurel sagði í
sjónvarpsviðtali í gær að Aquino
og hann ættu bæði að segja af sér
og efna bæri til kosninga þegar í
stað.
Aquino sagði undarlegt að Coju-
angco skyldi koma heim frá Banda-
ríkjunum rétt áður en uppreisn her-
mannanna hófst. Bróðir forsetans,
Jose Cojuangco, segir auðuga fjár-
málamenn hafa styrkt uppreisnar-
menn með fé. Jaime Sin, erkibiskup
í Manila, fordæmdi í gær uppreisn-
ina og sagði hana harmleik sem
einnig hefði skaðað mjög efnahag
landsins.
Enn halda um 400 uppreisnar-
menn flugbækistöð í miðhluta
landsins og segir foringi þeirra
mennina reiðubúna að falla ef ráð-
ist verði á stöðina. Hann.hótar einn-
ig að sprengja í loft upp alls 32
flugvélar sem eru á flugvellinum
og í grennd við hann.
Kólombía:
Segir Baska hafa aðstoð-
að við sprengjuárásina
Bogota. Reuter.
YFIRMAÐUR öryggislögreglu Kólombíu, Miguel Maza Marques, heldur
því fram að Samtök aðskilnaðarsinnaðra Baska á Spáni (ETA) hafí
aðstoðað eiturlyfjasala í sprengjuárásinni í höfuðborginni Bogota á
miðvikudag. 59 manns fórust og 653 slösuðust í sprengingunni sem
varð fyrir utan höfuðstöðvar öryggislögreglunnar. Marques komst sjálf-
ur lífs af vegna þess að hann var í brynvarðri skrifstofu sinni á fímmtu
hæð byggingarinnar.
Unnustar og eiginmenn.
Jólagjöfin hennar.
Glæsilegur náttfatnaöur úr
silki, satíni og bómull.
Gjafakort.
Laugavegi7i II haeð Simi 10770
Fyrst og fremst
einstök gæöi