Morgunblaðið - 09.12.1989, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 1989
MORGUNBLAÐIÐ UAUGARDAGUR 9. DESEMBER 1989
,’T 37
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
BjÖrn Jóhannsson,
ÁrniJörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift-
argjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið.
Hærri laun og
lægra vöruverð
egar rætt er um efnahags-
stöðu Vestur-Þýskalands
nota menn orðið „undur“ til að
lýsa þeim árangri sem þar hefur
náðst á þeim rúmlega fjörutíu
árum sem liðin eru síðan ríkið
var stofnað í rústum eftir síðari
heimsstytjöldina. Allt bendir til
þess að í ár verði afkoma þýska
þjóðarbúskaparins jafnvel betri
en nokkru sinni fyrr. Ýmsir telja
reyndar, að þessi bati geti ekki
haldið lengur áfram og brátt
komi að því að nauðsynlegt reyn-
ist að rifa seglin. Aðrir segja að
atburðirnir fyrir austantjald og
vaxandi hlutdeild Vestur-Þjóð-
veija í uppbyggingarstarfinUj
sem þar sé óhjákvæmilegt, eigi
eftir að verða nýr hvati fyrir
vestur-þýsku hagvélina.
Efnahagur vestur-þýskra
borgara hefur einnig batnað
jafnt og þétt á undaförnum
árum. Þar hefur þróunin orðið
sú, að laun hafa hækkað um leið
og vöruverð hefur lækkað. Fyrir
nokkrum árum þótti íbúum Vest-
ur-Þýskalands hagkvæmt að
skreppa yfir til Frakklands til
að kaupa margvíslegar vörur,
enda voru laun þar lægri en í
Þýskalandi. Þannig er ástandið
enn þegar borin eru saman laun
en nú er svo komið, að vöruverð
þykir lægra í Þýskalandi en í
Frakklandi.
Vestur-Þjóðveijar ráða ekki-
yfir miklum náttúruauðlindum.
Þvert á móti búa þeir við skort
í því efni, þótt hann sé ekki eins
mikill og hjá þeim sem eru jafn-
vel enn ríkari, Japönum. Ástæð-
urnar fyrir því hve Þjóðverjar
hafa náð langt eru margar.
Mestu skiptir að þeir sýna ein-
staka hugkvæmni og. hagsýni.
Þeim hefur tekist að nýta tækni
og mannafla með þeim hætti, að
framleiðni verður meiri en ann-
ars staðar - það er lykillinn að
því að unnt er að greiða hærri
laun og lækka vöruverð.
í þjóðfélagi þar sem umræð-
urnar snúast um skammtíma-
lausnir gefa menn sér alltof
sjaldan tíma til að líta á þessa
stóru þætti, sem taka verður mið
af til að varanlegur árangur ná-
ist. „Undrið" í Vestur-Þýskalandi
varð eftir að verðbólgunni hafði
verið útrýmt með því að tengja
gjaldmiðil þjóðarinnar, markið,
við raunveruleg verðmæti. Með
því að útrýma verðbólgu og
skapa trú á markinu var lagt af
stað í þessa sigurgöngu. Nú bíða
bankar og fyrirtæki eftir því sem
gerist í ríkjunum fyrir austan
Vestur-Þýskaland, hvort þróunin
þar verði með svipuðum hætti
að þessu leyti, hvort þar komi
einhver Ludwig Erhard fram á
sjónarsviðið sem hefur til þess
styrk að hreinsa stíflurnar sem
miðstýring marxista hefur skap-
að í hagvélinni.
Innan Evrópubandalagsins
(EB) hafa Vestur-Þjóðveijar tek-
ið forystu ásamt Frökkum í við-
Ieitni til að sameina myntkerfí
þjóðanna tólf. Margaret Thatch-
er, forsætisráðherra Breta, er
helsti andstæðingur þessa kerfis
og reynir enn einu sinni á það á
leiðtogafundi EB í Strassborg í
dag, hve samstiga EB-ríkin
verða í þessu máli. Hvernig sem
þau mál þróast er ljóst, að Bret-
ar geta ekki síður en allar aðrar
þjóðir í Vestur-Evrópu lært af
Vestur-Þjóðveijum, þegar stjórn
efnahagsmála er annars vegar.
Og myndum við ekki fagna því
hér á landi, ef unnt væri að benda
á, að laun hækkuðu en vöruverð
lækkaði? Með hliðsjón af vand-
ræðunum við stjórn íslenskra
efnahagsmála telja áreiðanlega
flestir Islendingar það sannkall-
að undur að slíkt gerist.
ASÍ, BSRB
og flár-
málaráðu-
neytið
Hagdeild Alþýðusambands
íslands (ASÍ) hefur séð sér-
staka ástæðu til að mótmæla
fullyrðingum fjármálaráðuneyt-
isins um að skattbyrði ýmissa
hópa muni minnka um áramótin.
Þá hefur hagfræðingur Banda-
lags starfsmanna ríkis og bæja
haft í frammi gagnrýni á ráðu-
neytið vegna fullyrðinga um
lækkun skatta.
Reynslan af yfirlýsingum
Ólafs Ragnars Grímssonar fjár-
málaráðherra er því miður þann-
ig að full ástæða er til að taka
þeim með fyrirvara. Deilur hag-
fræðinga ASÍ og BSRB við fjár-
málaráðuneytið veikja trúverð-
ugleika. ráðuneytisins eins og
Bolli Þór Bollason hagfræðingur
þess hefur bent á um leið og
hann segir ASÍ og BSRB hafa
rangt fyrir sér.
Hér er alvarlegt mál á ferð-
inni, sem snertir fleiri þætti en
fjármálastjórn ríkisins. Áð koma
henni í viðunandi horf verður
ekki auðveldara eftir að slíkur
trúnaðarbrestur er kominn til
sögunnar.
Afvopnun þar —
skattastríð hér
Kristján Thorlacius í nýútkominni bók:
Litlu munaði að Jónatan Hall
varðsson færi í forsetafram-
boð í stað Kristjáns Eldjárns
eftir Þorstein
Pálsson
Fundir leiðtoga Bandaríkjanna
og Sovétríkjanna eru í sjálfu sér
miklir viðburðir. Síðustu fundir
þeirra hafa sannarlega aukið bjart-
sýni manna og gefið öllum almenn-
ingi nýjar vonir um friðvænlegri
heim og aukið samstarf og sam-
vinnu þjóða í milli.
Við minnumst enn fundar þeirra
hér í Reykjavík. Hann þótti að vísu
ekki skila miklum árangri. Eigi að
síður má rekja til þess fundar upp-
haf þeirrar markvissu þróunar í
afvopnunarmálum sem átt hefur sér
stað að undanförnu.
íslenskir hagsmunir
Þó að nýafstaðinn fundur Banda-
ríkjaforseta og leiðtoga Sovétríkj-
anna hafi ekki verið samningafund-
ur í eiginlegum skilningi er samt
sem áður ljóst að hann markar djúp
spor í bættri sambúð þjóða og
líklegt er að hann muni koma meira
skriði á afvopnunarviðræðurnar.
Við íslendingar hljótum eðlilega
að fagna þróun í þessa veru. Við
megum þó ekki einungis líta á það
sem er að gerast í afvopnunarmál-
um út frá almennum sjónarmiðum.
í þeim efnum hljótum við einnig
að meta sérstaklega íslenska hags-
muni og leggja það til málanna sem
helst treystir stöðu íslands.
Þegar byijað var að ræða um
fækkun kjarnavopna á landi hlaut
fyrsta spurningin af okkar hálfu
að vera sú hvort það myndi leiða
til þess að kjarnorkuvopnin yrðu
færð út á höfin. Við lögðum eðli-
lega áherslu á að um slíkan tilflutn-
ing á vopnabúnaði yrði ekki að
ræða.
íslendingar em nú í fyrsta sinn
aðilar að þeim afvopnunarviðræð-
um sem fram fara í Vín. Mikilvægt
er að lögð sé á það áhersla af Is-
Iands hálfu að næsta skref í af-
vopnunarmálum beinist að höfun-
um.
Frumkvæði Geirs
Hallgrímssonar
Það var Geir Hallgrímsson sem
fyrstur hóf að vekja máls á þessu
sjónarmiði á alþjóðavettvangi af
íslands hálfu. Hann vakti meðal
annars athygli á því hvaða áhrif
kjarnorkuslys gæti haft fyrir fisk-
veiðiþjóð eins og íslendinga.
í ræðu við setningu Stokkhólms-
ráðstefnunnar 1984 sagði hann:
„íslendingar eru eyþjóð sem lifir
að verulegum hluta af sjávarfangi.
Því má ljóst vera, að við höfum
miklar áhyggjur af hernaðarupp-
byggingu á höfunum. Kjarnorku-
slys á hafi úti getur ógnað lífsaf-
komu okkar og annarra þjóða, svo
ekki sé minnst á þann óbætanlega
skaða sem hlytist af flotaátökum,
engu síður en af vopnaviðskiptum
á landi.“
Þetta rpikilvæga frumkvæði
Geirs Hallgrímssonar hefur ásamt
með þeirri umræðu sem síðar hefur
farið fram um þessi efni af íslands
hálfu verið mikilvægt framlag í
þeim tilgangi að draga fram stöðu
Islands í þeirri þróun sem nú á sér
stað.
í minni tíð í stjórnarráðinu var
lögð á þessi sjónarmið rík áhersla
bæði innan Atlantshafsbandalags-
ins og á aukaþingi Sameinuðu þjóð-
anna um afvopnun. Núverandi
ríkisstjórn hefur haldið þessari
umræðu áfram. En mikilvægt er
að við slítum hana ekki úr tengslum
við annað það sem er að gerast í
afvopnunarmálum.
Við eigum ekki og megum ekki
láta á okkur skiljast að við ætlum
að tjúfa þessi mál út úr þeim far-
vegi sem afvopnunarviðræðurnar
eru í eða þeirri forgangsröð sem
menn hafa komið sér saman um
að hafa í þessum efnum og þar á
meðaWið sjálfir. En stundum hefur
borið á því af hálfu talsmanna nú-
verandi ríkisstjórnar.
Staðfesta og jaftivægi
Við hvikum aldrei frá því höfuð-
atriði að afvopnun verður að gerast
með gagnkvæmum samning og hún
má ekki raska því jafnvægi sem er
forsenda þess að við erum nú að
tala um svo mikilvæga áfanga í
afvopnunarmálum sem raun ber
vitni. Fijálsar siglingar eru líka
mikilvæg forsenda fyrir sameigin-
legum vömum Atlantshafsbanda-
lagsríkjanna báðum megin hafsins.
En að því kemur að menn þurfa
einnig að ræða um fækkun vopna
í höfunum.
Engum vafa er undirorpið að öll
þessi þróun hlýtur að leiða til þess
að menn endurmeta áherslur í vam-
armálum. Eftirlitshlutverk vamar-
liðsins hér hlýtur að aukast og verða
þýðingarmeira eftir því sem meiri
árangur næst á sviði afvopnunar.
Eftirlitið er ein af mikilvægustu
forsendum þess að afvopnun geti
farið fram með traustvekjandi hætti
og þannig að áframhaldandi jafn-
vægi haldist.
Skattastríð
ríkissljórnarinnar
En á sama tíma og leiðtogar stór-
veldanna halda með sér fundi og
boða frið og auka á bjartsýni
manna, situr ríkisstjórn íslands á
rökstólum og boðar áframhaldandi
stríð við þjóðina og kyndir undir
svartsýni og úrræðaleysi. Ríkis-
stjórn íslands stingur því sannar-
lega í stúf við allt það sem er að
gerast í heiminum umhverfis okkur.
Ríkisstjómin er um þessar mund-
ir að vígbúast í stríðinu við fólkið
í landinu með gamalkunnum vopna-
búnaði: Nýjum sköttum. Tekju-
skattshækkunin sem ríkisstjórnin
hefur nú ákveðið er beinlínis ögmn
við fólkið í landinu; við innanlands-
friðinn.
Fjármálaráðherrann hefur farið
fram með hefðbundnum hætti.
Hann hefur fleytifyllt alla fjölmiðla
með villandi upplýsingum og full-
yrðingum um að það sé skattalækk-
un sem felur í sér stórkostlega
skattahækkun. Menn eru orðnir öllu
vanir í þessu efni. Hagfræðingar
stærstu launþegasamtakanna hafa
Þorsteinn Pálsson
„Það var Geir Hall-
grímsson sem fyrstur
hóf að vekja máls á
þessu sjónarmiði á al-
þjóðavettvangi af Is-
lands hálfii. Hann vakti
meðal annars athygli á
því hvaða áhrif kjarn-
orkuslys gæti haft fyrir
fiskveiðiþjóð eins og
Islendinga.“
að undanförnu verið að afhjúpa vill-
andi upplýsingar fjármálaráðherr-
ans.
Enginn vænir forystumenn Al-
þýðusambandsins eða opinbera
starfsmenn um pólitíska herferð
gegn fjármálaráðherra Alþýðu-
bandalagsins. Þeir verða einfald-
lega að segja sínu fólki satt og
komast því ekki hjá því að afhjúpa
málflutning og blekkingar fjár-
málaráðherrans.
Sú margumtalaða og fræga vísi-
tölufjölskylda. tapar fimm þúsund
krónum á mánuði vegna tekju-
skattsbreytinga ríkisstjórnarinnar.
Þessar skattahækkanir koma svo
ofan í þá gífurlegu kaupmáttar-
lækkun sem orðið hefur á þessu ári
sem nemur um 14%. Það er ekki
sennilegt að skattastríð ríkisstjóm-
arinnar á hendur fólkinu í landinu
auki líkurnar á hófsömum kjara-
samningum. Þvert á móti má búast
við því að þetta skattastríð geri
kjarasamningana erfiðari.
Mistök á mistök ofan
Skattahækkanir upp á sjö millj-
arða króna í fyrra áttu að leysa
allan vanda ríkissjóðs. Niðurstaðan
varð meiri hallarekstur en áður.
Nú á enn að auka skatta um 4-5
milljarða króna og við blasir enn
eitt metið í hallarekstri ríkissjóðs.
Það vantaði ekki hrokann í yfirlýs-
ingar ráðherranna í fyrra um
hversu mikilvægar skattahækkan-
irnar væru og hversu óábyrgir þeir
væru sem vöruðu við þeim.
Nú hefur allt komið á daginn sem
var uppistaðan í gagnrýni okkar í
fyrra. Við sjálfstæðismenn bentum
á að skattastríð eins og það sem
ríkisstjómin hóf fyrir ári myndi
ekki skila árangri varðandi rekstur
ríkissjóðs. Við bentum einnig á það
gífurlega óréttlæti sem fólst í þeim
skattabreytingum sem þá vom
ákveðnar, ekki síst ekknaskattin-
um. Á þau rök var blásið.
Nú er ríkisstjórnin hins vegar að
viðurkenna að við höfðum rétt fyrir
okkur og dregur því í land í þessu
efni. En hún hefur ekki manndóm
í sér á hinn bóginn til þess að stíga
skrefið til fulls og afnema með öllu
þá hækkun eignaskatta sem ákveð-
in var í fyrra. Það verk bíður nýrr-
ar ríkisstjórnar.
Ábyrgð Alþýðuflokksins
Það verk bíður einnig nýrrar
ríkisstjórnar að koma tekjuskattin-
um aftur í sama horf og ákveðið
var við upphaf staðgreiðslulaganna
sem sett vom að fmmkvæði okkar
sjálfstæðismanna vorið 1987. Það
kemur að því að ríkisstjórnarflokk-
arnir viðurkenna einnig þau mistök
rétt eins og ekknaskattinn. Augljóst
er að forystumenn Alþýðuflokksins
hafá tekið ákvarðanir í tekjuskatts-
málinu í einhverri geðshræringu.
Klaufaskapur af þessu tagi lýsir því
mæta vel að hræðslan ein sýnist
ráða ákvörðunum á þeim bæ. En
ábyrgð alþýðuflokksmanna er engu
minni þó að klaufaskapur og
hræðsla hafi ráðið ferðinni.
Á sama tíma og ríkisstjómin
boðar stríð með skattastefnu sinni
boða sjálfstæðismenn frið með fyr-
irheiti um að afnema vinstristjórn-
arskattana m.a. í þeim tilgangi að
örva atvinnustarfsemina og ýta
undir hagvöxt og auka á bjartsýni
íslendinga og tiltrú.
Höfundur er formaður
Sjálfstæðisflokksins.
ÚT ER komin hjá Bókaútgáfiinni
Reykholti bókin Kristján Thorlac-
ius — Þegar upp er staðið.
1 fréttatilkynningu Reykholts um
bókina segir: „Kristján er hreinskil-
inn og afar opinskár í þessari bók.
Margt af því sem fram kemur um
nærri 30 ára starfsævi Kristjáns sem
formaður BSRB á því eftir að vekja
athygli. Má þar nefna misjöfn sam-
skipti Kristjáns við yfirmenn og við-
semjendur. Þar koma fram nöfn eins
og Gunnar Thoroddsen, Grundart-
anga-Jón Sigurðsson, Höskuldur
Jónsson, Magnús frá Mel o.fl. Kristj-
án færir rök fyrir því að Ögmundur
Jónasson hafi lengi verið formanns-
kandídat Alþýðubandalagsins og
þegið BHMR-laun hjá Sjónvarpinu
þótt hann væri í BSRB. Sama gildi
reyndar um Ragnar Stefánsson jarð-
skjálftafræðing. Þá segir frá því að
„verkalýðsflokkarnir" séu oft verri
viðsemjendur en íhaldið og að
stærstu áfangarnir í kjarabaráttu
BSRB hafi náðst í samningum við
hægri stjómir. Enn má nefna uppi-
standið þegar Stefán Jónsson og Jón
Múli Árnason útvarpsmenn ruku á
í tillögu minnihlutans, sem Guðrún
Ágústsdóttir kynnti, er talað um að
um 450 manns væru á neyðarlista
vegna skorts á hentugu húsnæði eða
umönnun. Skipa ætti nefnd til að
finna fljótvirkar og góðar lausnir á
vanda þeirra, til dæmis með kaupum
dyr á BSRB-þingi, og minnisstætt
er þegar sá þriðji, Björgvin Guð-
mundsson, bauð sig fram gegn
Kristjáni með stuðningi Bjama
Benediktssonar. Eftirminnileg er
frásögn Kristjáns af því þegar for-
stjóri Skipaútgerðar ríkisins háði
stríðsleik gegn BSRB með stuðningi
ráðuneytisstjóra samgönguráðu-
neytisins, Ólafs Steinars Valdimars-
sonar. Um lífeyrissjóðamál kemur
fram það álit Kristjáns að BHMR-
menn séu fastir í skotgröfunum og
ASÍ-menn þjáðir af öfund.
Kristján skýrir frá ýmsu sem
tengist þátttöku hans í stjórnmálum.
Hann segir frá því að eitt sinn þeg-
ar ungliðarnir í Framsóknarflokkn-
um greiddu atkvæði „rangt“ á aðal-
fundi, hafi atkvæðin verið geymd
ótalin í bankahólf i í Búnaðarbankan-
um þar til búið var að semja um
úrslitin. Einnig skýrir hann frá því
þegar Steingrímur Hermannsson
stofnaði atvinnurekendaklúbb innan
Framsóknarflokksins til mótvægis
við verkalýðsmálaráð, sem síðan var
lagt niður. Hann segir einnig frá því
að litlu hafi munað að Jónatan Hall-
varðsson ( hæstarréttardómari )
á íbúðum í nágrenni þjónustukjama,
kaupum eða leigu á húsnæði fyrir
sambýli aldraðra eða stóru húsnæði,
sem nýst gæti þeim er þyrftu mikla
umönnun.
Árni Sigfússon, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins sagði að hlut-
færi í forsetaframboð í stað Kristj-
áns Eldjáms á sínum tíma og að
Kristján hafi ekki gefið kost á sér
fyrr en ættingjar Bjama Benedikts-
sonar lýstu yfir stuðningi við hann.
Af skemmtilegum atvikum sem
nefnd eru í bókinni má nefna það
þegar alræmdir drykkjuboltar í
Framsóknarflokknum gerðu tillögu
um að flokkurinn yrði gerður að
bindindisflokki — til að skaprauna
Kristjáni. Þá segir Kristján frá því
þegar norskar konur hrópuðu „Vi
vil ha sex ...“, þegar hann hélt
ræðu í Noregi. Einnig em sagðar
skemmtilegar sögur af sr. Jakobi og
sr. Bjama og lýst fundi einum þegar
Björn Amórsson hagfræðingur
BSRB reifst hástöfum við Lúðvík
Jósepsson um vaxtamál þangað til
Lúðvík hótaði að ganga af fundi, en
hætti við þegar honum var bent á
að hann væri ekki Eysteinn.
Bókin er skrifuð af sóknarprestin-
um á Höfn í Hornafirði, sr. Baldri
Kristjánssyni. í henni tekur hann
skref frá viðtalsforminu, nýtir kosti
þess en kannar jafnframt baksvið
atburða".
fallslega væri mun meira af leiguhús-
næði í boði fyrir aldraða í Reykjavík
en hjá öðrum sveitarfélögum í
landinu. Hann sagði, að tillaga
minnihlutans byggði á röngum for-
sendum, 30 til 40 einstaklingar
byggju við verulega erfiðar aðstæður
vegna skorts á hentugu húsnæði, en
ekki 450. Þegar væri unnið að úr-
lausn vanda þessa fólks. Lagði Ámi
til, að henni yrði vísað frá og var
frávísunartillagan samþykkt með 9
atkvæðum sjálfstæðismanna gegn 6
atkvæðum minnihlutans.
Húsnæðismál aldraðra í Reykjavík:
Milli 30 og 40 búa nú við
verulega erfíðar aðstæður
BORGARSTJÓRN Reykjavíkur vísaði frá tillögu borgarfúlltrúa minnihlu-
taflokkanna um húsnæðismál aldraðra á fúndi sínum á fimmtudag. í
tillögunni var gert ráð fyrir skipun nefhdar til að leysa úr vanda þeirra
aldraðra í borginni, sem verst væru staddir. Árni Sigfússon, formaður
félagsmálaráðs borgarinnar sagði tillöguna byggða á röngum forsendum
og lagði tii að henni yrði vísað frá.
Fæðingarheimili Reykjavíkur:
Samið verður við
lækna um leigu á
tveimur hæðum
BORGARSTJÓRN Reykjavíkur samþykkti á fimmtudag, að ganga til
samninga við 11 lækna um leigu á 1. og 2. hæð í húsi Fæðingar-
heimilis Reykjavíkur. Borgarfúlltrúar minnihlutaflokkanna voru
andvígir því að leigja hæðirnar út, þar sem Fæðingarheimilið þyrfti
þær fyrir starfsemi sína. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins töldu hins
vegar, að ekki væri verið að taka húsnæði af stofnuninni, þar sem
hún hefði ekki nýtt hæðimar um nokkurt skeið. Sagði Davíð Odds-
son, borgarstjóri, að ekki væri fyrirhugað að breyta starfseminni á
Fæðingarheimilinu, enda væri þar
fyrir Reykvíkinga.
Á fundi borgarstjórnar á fimmtu-
daginn var lögð fram til staðfesting-
ar samþykkt borgarráðs frá 7. nóv-
ember um að leigja 11 læknum 1.
og 2. hæð í húsi Fæðingarheimilis
Reykjavíkur. Elín G. Olafsdóttir,
Kvennalista, mótmælti þessu harð-
lega og sagði að verið væri að skera
á lífæð Fæðingarheimilisins, þar
sem stofnunin þyrfti þessar tvær
hæðir fyrir starfsemi sína. Elín
sagði einnig, að hér væri á ferðinni
gerræði gagnvart konum og ófædd-
um börnum í Reykjavík.
Davíð Oddsson, borgarstjóri,
sagði að gera yrði skýran greinar-
um að ræða mikilvæga stofnun
mun á sölu hæðanna og leigu. Hér
væri eingöngu um að ræða leigu
tveggja hæða til fjögurra ára, en
þær hefðu nú verið lokaðar um
nokkurt skeið. Sagði hann að ekki
ætti að breyta starfseminni á þess-
ari góðu stofnun, enda væri hún
mikilvæg fyrir Reykvíkinga.
Borgarstjóri sagði að það væri
ótvírætt skylda ríkisvaldsins að sjá
um fæðingarþjónustuna, en þrátt
fyrir það hefði borgin, umfram
skyldu sína, rekið Fæðingarheimil-
ið. Það væri ekki ætlun meirihluta
sjálfstæðismanna í borgarstjórn að
Morgunblaðið/Sverrir
Fjölmennt var á áhorfendapöllunum í borgarstjórn á fimmtudaginn
meðan rætt var um málefhi Fæðingarheimilis Reykjavíkur.
draga úr þjónustunni sem þar væri
veitt.
Skúli Thoroddsen, Alþýðubanda-
lagi, gagnrýndi meðferð málsins í
borgarkerfinu og sagði óeðlilegt að
stjórn Sjúkrastofnana Reykjvíkur-
borgar hefði ekki verið spurð álits
á fyrirhugaðri leigu hæðanna. Hann
ítrekaði það sjónarmið sem fram
kom í ræðu Elínar G. Ólafsdóttur,
að Fæðingarheimilið þyrfti á þessu
húsrými að halda.
Katrín Fjeldsted, Sjálfstæðis-
flokki, sagðist telja, að ekki væri
verið að skerða starfsemi stofnun-
arinnar með því að leigja út hæðirn-
aq. Hún kynnti jafnframt tillögu,
um að tryggt yrði að heimilið væri
opið allt árið og að kannað yrði
hvort hægt væri að fækka legudög-
um til samræmis við það sem
tíðkaðist við eðlilegar fæðingar á
Landspítalanum.
Eftir nokkrar umræður var sam-
þykkt að leigja læknunum 11 hæð-
irnar. Atkvæði féllu þannig, að 6
fulltrúar minnihlutaflokkanna voru
leigunni andvigir, 8 fulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins fylgjandi, en Páll
Gíslason, Sjálfstæðisflokki, sat hjá.
Tillaga Katrínar Fjeldsted var sam-
þykkt með 9 atkvæðum sjálfstæðis-
manna gegn atkvæði Skúla Thor-
oddsen.
Launamál borgarstarfsmanna:
Munum greiða sömu
launahækkanir og ríkið
- segir borgarsljóri
MINNIHLUTINN í borgarstjórn lagði fram tillögu á fúndi borgar-
stjórnar á fimmtudaginn, þar sem lögð var áhersla á að í næstu kjara-
samningum yrði kappkostað að jafna launamun á milli borgarstarfs-
manna og starfemanna annarra sveitarfélaga fyrir sams konar störf.
Borgarstjórn vísaði tillögunni til athugunar og meðferðar við gerð
kjarasamninga. í umræðum á fundinum sagðist Davíð Oddsson, borg-
arstjóri, vera tilbúinn að geiða borgarstarfsmönnum sömu iaunahækk-
anir og fjármálaráðhera semdi um við ríkisstarfsmenn.
Kristín Á. Ólafsdóttir (Abl) mælti
fyrir tillögunni, en að hejini stóðu
fulltrúar allra minnihlutaflokkanna.
Vísaði Kristín í ræðu sinni til yfir-
iits frá Bandalagi starfsmanna ríkis
og bæja, þar sem borin voru saman
laun fyrir sams konar störf eftir
því fyrir hvaða sveitarfélög þau
voru unnin. Sagði hún að yfirlitið
sýndi, að borgarstarfsmenn væru
almennt með mun lægri laun en
aðrir starfsmenn sveitarfélaga og
væri það til skammar fyrir borgina.
Davíð Oddsson, borgarstjóri,
sagði að það væri öllum ljóst að á
þessum fundi yrði ekki gengið til
kjarasamninga. Hér væru fulltrúar
minnihlutans eingöngu að setja á
svið sýningu. Þeir hefðu borið fram
tillögur af þessu tagi reglulega í
þau 16 ár sem hann hefði setið í
borgarstjóm, að tímabilinu 1978 til
1982 undanskildu, en þá hefðu þeir
sjálfir verið í meirihluta.
Hann taldi samanburðinn í yfir-
liti BSRB á margan hátt óraun-
hæfan. Til dæmis væri það stað-
reynd, að sveitarfélög úti á landi
yfirborguðu starfsmenn sína til að
halda þeim á staðnum. Enn fremur
hefði borgin sérstöðu vegna stærðar
sinnar og væri því frekar ástæða
til að bera saman laun borgarstarfs-
manna og ríkisstarfsmanna.
Borgarstjóri sagði að á undan-
förnum árum hefði orðið mikið
kjarahrap í landinu. Kaupmáttur
launa hefði minnkað, vemlega
dregið úr yfirvinnu og að auki hefði
núverandi ríkisstjóm aukið skatt-
heimtu stórlega. Sagði hann að svo
nærri hefði verið gengið fólki að
von væri á einhveijum launahækk-
ununi og væri hann reiðubúinn að
samþykkja sömu launahækkanir og
Ólafur Ragnar Grímsson, fjármála-
ráðherra, semdi um við ríkisstarfs-
menn.
Lagði borgarstjóri að lokum til,
að tillögunni yrði vísað til borgar-
stjóra og borgarráðs, til meðferðar
og afgreiðslu við gerð kjarasamn-
inga og var það samþykkt sam-
hljóða eftir nokkrar umræður.
Símtöl til útlanda hækka
GJÖLD fyrir simaþjónustu til útlanda munu hækka 12. desember
næstkomandi um 11-12%. Símtöl
eins um 8-9,5%. í tilkynningu frá
sé vegna gengisbreytinga.
Tekizt hefur samkomulag við
símastjórnir í Malaysíu, Singap-
ore, Taiwan og Thailandi um að
lækka talsímagjöld milli íslands
og þessara landa. Sú lækkun kem-
ur á móti gengisbreytingunni, og
lækkar því verðið á símtölum til
þessara landa úr 214 kr. á mínútu
í 197 kr.
Sem dæmi um önnur gjöld má
nefna að hver mínúta í sjálfvirku
til Bandaríkjanna hækka þó að-
Pósti og síma segir að hækkunin
vali til Norðurlandanna, nema
Finnlands, mun kosta 60 kr., til
Bretlands og Vestur-Þýzkalands
73 kr. og til Bandaríkjanna 80 kr.
Fastagjald fyrir hvert símskeyti
mun verða 550 krónur. Hvert orð
til Evrópulanda mun kosta 23 kr.
og til Bandaríkjanna 26 kr. Sölu-
skattur, 7,5%, er innifalinn í þess-
um tölum.