Morgunblaðið - 09.12.1989, Page 45

Morgunblaðið - 09.12.1989, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9j DESEMBER 19:8ftni 45m Kvikmyndir: Menning sem markaðsvara eftirÁgúst Guðmundsson Það er alltaf matsatriði hversu góð fjárfesting er í hinum ýmsu menningarmálum sem haldið er uppi af almannafé. Nú er ég reynd- ar ekki í þeim hópi sem býsnast yfir því hversu leikhúsin séu dýr í rekstri, né heldur finnst mér það spurning hvort hér eigi að vera starfandi sinfóníuhljómsveit eða ekki. Það sem mér er hins vegar ofarlega í huga er hvernig ein sú listgrein plumar sig sem kostar ríkið innan við tíunda part af því sem leiklistin kostar almenning: kvik- myndagerðin í landinu. Kvikmyndaframleiðslan hefur dregist saman undanfarin ár. Ein- ungis tvær bíómyndir voru frum- sýndar á árinu og ekki von á hærri tölu á næsta ári. Báðar fengu þess- ar myndir góðar viðtökur, umtal og gagnrýni virtust mér yfírleitt á jákvæðum nótum. Þar með finnst manni sem eitthvað hafi bæst við íslenska menningu, og það er nátt- úrulega meginmálið, þótt ekki ætli ég að fjölyrða um það hér. Aðsókn var mjög viðunandi á annarri mynd- inni og afbragðsgóð á hinni. Sam- anlagt hafa myndir þessar náð að- sókn sem jafngildir ársaðsókn að öðru atvinnuleikhúsinu í borginni. Síðar eiga myndirnar hugsanlega eftir að birtast í sjónvarpi eða á myndböndum, svo að lífdagar þeirra eru síður en svo taldir þegar sýning- um lýkur í kvikmyndahúsum. Þessar tvær kvikmyndir eru þeg- ar komnar á ról á kvikmyndahátíð- Ágúst Guðmundsson „Þetta er skrifað af því tilefiii að enn er verið að sneiða af lögskipaðri Qárveitingn í kvik- myndasjóð af Jjárlög- «« um heimsins, önnur hefur þegar unnið til verðlauna, en hin var til- nefnd til tvennra Evrópuverðlauna, sem hlýtur að teljast upphefð, þótt verðlaunin sjálf féllu öðrum í skaut. Ennfremur eru þær þegar famar að seljast í sjónvarpsstöðvar erlend- is og eiga eftir að berast fyrir augu milljóna. Svo Vestur-Þýskaland eitt sé tekið sem dæmi skal þess getið að báðar verða myndirnar sýndar á fyrstu rás þar í landi á besta fáan- lega útsendingartíma, þ.e.a.s. strax eftir fréttir á sunnudagskvöldum. Þetta er annars ekkert nýnæmi, því að þannig hefur gjarnan verið farið með íslenskar myndir í þýsku sjón- varpi. Það hefur bara enginn tekið eftir því hér á landi. Ég held ég skreyti ekkert þótt ég fullyrði að myndirnar hafi nú þegar aflað gjaldeyristekna upp á meira en tuttugu milljónir króna (sem nemur meira en helmingi af samanlögðu framlagi kvikmynda- sjóðs til mynda þessara). Óbeinu tekjurnar tel ég þó vera enn meiri. Af þessum sýningum fæst öflug auglýsing fyrir land og þjóð. Það er fleira landkynning en kvenleg fegurð. Stóraukinn ferðamanna- straumur frá Þýskalandi á árinu hefur verið rakinn til sjónvarps- þáttanna um Nonna og Manna. Hvað annað gæti svo sem verið orsökin? Varla stefnan í hvalveiði- málum. Þetta er skrifað af því tilefni að enn er verið að sneiða af lögskip- aðri fjárveitingu í kvikmyndasjóð af fjárlögum. Af íslenskri menningu má flytja út tvennt: Halldór Lax- ness og íslenskar kvikmyndir. Ef svo fer fram sem horfír verður Halldór innan tíðar einn eftir. Höfundur er formaður Sambands ísl. kvikmyndaframleiðenda. ___________Brids_____________ Arnór Ragnarsson Bridsdeild Skagfirðinga Eftir 6 umferðir í aðalsveitakeppni félagsins, er staða efstu sveita orðin þessi: Sveit Sigfúsar Amar Árnasonar 118 SveitAmarScheving 101 Sveit Hildar Helgadðttur 94 Sveit Lárusar Hermannssonar 90 Sveit Helga Hermannssonar 89 Sveit Hjálmars Pálssonar 76 Sveit Málmeyjar 73 (og 2 leiki til góða) Næstu 2 umferðir verða spilaðar á þriðjudaginn kemur, en annan þriðjudag 19. desember, síðasta spilakvöld ársins, verður jólasveinakvöld. Þá verður létt spilamennska, með góðum jólaverðlaun- um (jólakonfekt). Öllum heimil þátttaka, án endurgjalds. Spilað er í Drangey v/Síðumúla 35 2. hæð og hefst spila- mennska kl. 19.30. Bridsdeild Húnvetningafélagsins Snorri Guðmundsson sigraði í 48 einstaklinga einmenningskeppni, hlaut 740 stig, sem lauk sl. miðvikudags- kvöld. Spilað var í tvö kvöld. Lokastaðan: Snorri Guðmundsson 740 Lárus Pétursson 733 GarðarBjömsson 733 Sigurþór Þorgrimsson 732 Kristín Jónsdóttir 730 Hreinn Hjartarson 722 Skúli Hartmannsson 718 ValdimarJóhannsson 713 Spilaður verður eins kvölds tvímenn- ingur næsta miðvikudagskvöld kl. 19,30 í Skeifunni 17, þriðju hæð. Bridsfélag Breiðholts Sl. þriðjudag var spilað eins kvölds tvímenningur með þátttöku 14 para. Efst urðu eftirtalin pör: BaldurBjartraarsson - Leifúr Jóhannesson 184 ÞorbergurÓlafsson-JensJensson 182 FriðrikJónsson-ÓskarSigurðsson 168 Gunnar Bragi Kjartansson - Valdimar Sveinss. 166 Næsta þriðjudag fer fram verðlauna- afhending fyrir aðalkeppnir haustsins og spilað verður rúbertubrids. Spilað er í Gerðubergi kl. 19.30. Bridsfélag Ilalnaríjaröar Sl. mánudagskvöld 4. desember voru spilaðar tvær umferðir í sveitakeppni félagsins. Staða efstu sveita eftir átta umferðir er eftirfarandi: Sveit Drafnar Guðmundsdóttur 172 SveitSverrisJónssonar 146 Sveit Alberts Þorsteinssonar 142 Sveit Kristófers Magnússonar 142 Sveit Ingvars Ingvarssonar 133 Sveit Böðvars Hermannssonar 132 HreyfiU — Bæjarleiðir Sex umferðir em búnar í hraðsveita- keppninni og er röð efstu sveita nú þessi: Tómas Sigurðsson 125 Cyrus Hjartarson 120 Ólafur Jakobsson 104 Jón Sigurðsson 96 Skjöldur Eyfjörð 87 Næsta umferð verður á mánudags- kvöld kl. 19.30 í Hreyfilshúsinu. Bridsfélag Reylgavíkur Nú er lokið 37 umferðum í þessari maraþonkeppni. Þorvaldur og Gísli sitja sem fastast á toppnum en Jón og Aðal- steinn kroppa í hæla þeirra: Nokkur pör fylgja þeim síðan eins og skugginn. Staðan: Þorvaldur Matthíasson - Gísli Hafliðason 185 Jón Baldursson - Aðalsteinn Jörgensen 181 HermannLárusson-ÓlafurLárusson 147 Sveinn R. Eiriksson - Steingrímur G. Pétursson 143 Sævar Þorbjömsson - Karl Sigurhjartarson 113 Jón Hilmarsson - Oddur Hjaltason 112 PállValdimarsson-MagnúsÓlafsson 109 JónÞorvarðarson-ÞórirSigursteinsson 100 Hæsta skor siðasta spilakvöld: ísak ðm Sigurðsson - Hrannar Erlingsson 64 Sveinn R. Eiríksson - Steingrimur G. Péturss. 55 Helgi Jónsson - Sverrir Ármannsson 48 HermannLámsson-ÓlafurLárasson 45 JónBaldursson-AðalsteinnJörgensen 41 GuðjónBragason-DaðiBjömsson 38 GrimurAmarson-HelgiGrétarHelgason 38 Blóm__________ Gjafavara SkreytingaL Afskorin blóm, pottaplöntur, þurrskreytingar. Mikiö úrval af hverskonar gjafavöru, gler, keramik og koparmunir. Skreytingar við öll tækifæri. Bmðholts &BLÓM Staðsetning: í Mjóddinni við hliðina á Sveini bakara. Ajgreiðslutími: alla daga frá kl. 9-21, sunnudaga kl. 13-21. ÁLFABAKKA 12 • S. 79060 / desembermánuði erum við í sérstöku hátíðarskapi og bjóðum gestum okkar valda sælkerarétti á sérstöku tiiboðsverði: ÍHJARTA Því ekki að „komast í æfingu" ogjólaskap lýá okkuryfir oeislumat á vægu verðl. m *5S25M Hafnarstræti 5 Pöntunarsími: 18484 T

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.