Morgunblaðið - 09.12.1989, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 1989
57
Fyrsta að-
ventuhátíð
Grafarvogs-
safhaðar
Biskup Islands
flytur hátíðarræðu
Nýtt kirkjuár hefur hafið göngu
sína. Það eru merkileg tímamót í
safnaðarstarfi kirkjunnar, ekki þó
síst í söfnuði sem er að hefja starf
sitt. Anægjulegt er, hve aðvent-
utimabilið hefur tekið á sig nýja
mynd, með síaukinni kirkjusókn á
síðustu árum. Síðastliðinn sunnudag
fjölmenntu fermingarbörn Grafar-
vogssóknar og foreldrar þeirra til
guðsþjónustu á fyrsta sunnudegi í
aðventu. Þá voru tendruð ljós sem
sannarlega lýsa upp allt myrkur sem
og lýsa fram á veginn og benda fram
til blómlegs starfs í nýstofnuðum
söfnuði,
Næstkomandi sunnudagskvöld
mun söfnuðurinn efna til síns fyrsta
aðventukvölds. Ræðumaður kvölds-
ins verður biskup íslands, herra Ólaf-
ur Skúlason. Fermingarböm munu
flytja aðventutexta við kertaljós,
nemendur úr fjórða bekk Foldaskóla
flytja Luciuleik. Fluttur verður tákn-
málsleikur. Nemandi úr 7. bekk leik-
ur einleik á píanó. Einsöngvari
kvöldsins verður Signý Sæmunds-
dóttir óperusöngkona. Dagskráin
mun heíjast með samleik trompet-
leikara og organistans Sigríðar Jóns-
dóttur. Kirkjukórinn, sem nú hefur
hafið starf, mun flytja sálminn, Kom
þú, kom vor Immanúel við texta Sig-
urbjarnar Einarssonar. I lokið verður
almennur söngur við kertaljós. Að-
ventukaffi er í boði sóknarnefndar
að lokinni dagskrá. _
Vigfús Þór Arnason,
sóknarprestur.
Aðventuhátíð
í kirkju Óháða
safhaðarins
Á morgun, sunnudaginn 10. des-
ember, verður aðventuhátíð í Kirkju
Óháða safnaðarins, og hefst hún kl.
20.30.
Góðir gestir koma í heimsókn og
verður dagskráin eftirfarandi:
— Ræðumaður kvöldsins verður
Baldur Sveinsson, kennari.
— Jóhanna Linnet syngur einsöng.
— Homaflokkur úr Sinfóníuhljóm-
sveit íslands leikur.
— Sálmasöngur blandaðs kórs.
— Ritningarlestur og bæn.
— Ljósin tendruð.
— Iættar veitingar í Kirkjubæ.
Aldrei hafa jafn margir kvatt sér
hljóðs hér á landi á aðventu og segja
má að boðskapurinn sé mismunandi.
Mjög þýðingarmikið er að kristnir
menn átti sig vel á því hvað sé krist-
indómur og hvað ekki. Aðventan er
undirbúningstími fyrir komu Jesú
Krísts, hann einn á að vera í miðdepli.
Foreldrar em hvattir til að koma
með börn sín, því jólin nálgast óðum
og mikilvægt er að hefja réttan und-
irbúning með hátíðarstund á aðven-
tunni. , . _
Þorsteinn Ragnarsson,
saínaðarprestur.
Basar, kaffi-
sala og
happdrætti
Basar, kaffisala og happdrætti
verður í safnaðarheimili Maríukirkj-
unnar Raufarseli 8, á morgun,
sunnudag 10. desember, kl. 15.00.
Á basarnum verða til sölu ýmsir
jólamunir og í happdrættinu verða
ýmsir góðir vinningar. Má þar m.a.
nefna mat fyrir tvo á ýmsum veit-
ingastöðum í borginni, námskeið í
jassballett, fótsnyrtingu, hár-
greiðslu og klippingu auk margra
annarra góðra vinninga.
Akranes:
AÐVENTUHÁTÍÐ
Það er orðin hefð í Akranessöfn-
uði að halda aðventuhátíð á öðrum
sunnudegi í aðventu. Svo verður og
að þessu sinni, nk. sunnudag, 10.
desember. Boðið verður upp á fjöl-
breytta hátíð fyrir alla ijölskylduna.
Kirkjuskóli yngstu barnanna og
barnaguðsþjónusta verða á sínum
venjulegu tímum, en hátíðin sjálf
hefst með stuttri helgistund í kirkj-
unni kl. 20.30. Að henni lokinni verð-
ur gengið beint yfir í Safnaðar-
heimilið Vinaminni, handan götunn-
ar. Þar hefst hátíðarsamkoma með
hljóðfæraleik nemenda úr Tónlistar-
skóla Akraness. Ræðumaður kvölds-
ins verður sr. Bragi Skúlason, sjúkra-
húsprestur, én hann er borinn og
bamfæddur Akumesingur. Inga
Backmann, sem einnig er Akurnes-
ingur að uppruna, syngur einsöng.
Þrír kórar koma fram, barnakór,
fermingarbarnakór og Kirkjukór
Akraness. Söngstjóri og organisti er
ungur Akurnesingur, Einar Örn Ein-
arsson.
Þá munu fermingarbörn flytja
jólaefni í óbundnu máli. í lokin verð-
ur helgistund í umsjá sóknarprests.
Þá verður kveikt á kertaljósum og
horft fram ti! heilagra jóla.
Það er okkar einlæga von, að þessi
aðventuhátíð verði fjölsótt svo sem
verið hefír hingað til.
Allir ættu að geta fundið' eitthvað
við sitt hæfi og iifað ljúfa undirbún-
ingsstund undir komu jólanna.
Björn Jónsson, sóknarprestur.
Maríukirkjan í Breiðholti.
Kaffið og kökurnar standa vissu-
lega fyrir sínu. \
Allir eru hjartanlega velkomnir.
ATH: Messan á morgun, sunnu-
dag 10. desember, verður kl. 2 e.h.
Engin messa_verður kl. 11.00 f.h.
Séra Ágúst K. Eyjólfsson
sóknarprestur.
Hafðu Braga
í bollanum
yfir hátíðarnar!
Hátíðablandan frá Braga
er jólakaffið í ár.
Kaffibrennsla Akureyrar hf.
-
31