Morgunblaðið - 12.12.1989, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 12.12.1989, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1989 31 Jáen.. Tvær meginstefii- ur atvinnumála og fjármála eftir EyjólfKonráð Jónsson Ekki þarf að lýsa fyrir upplýstri íslenskri alþýðu þeim mögnuðu und- irstraumum sem eru að bijótast upp á yfirborðið í Evrópumálum, austan tjalds og vestan. Kommúnisminn hefur geispað golunni og ofstjórn- ar- og ofbeldisskoðanir e_ru á undan- haldi í álfunni allri, að íslandi einu undanskildu. Þegar miðstjórnarvald er maskað ytra er það magnað hér, og nú keyrir svo sannarlega um þverbak. Dýrkendur ríkisvalds beita hér sem annars staðar orðsnilld lyginnar og nauðgun hugtaka. Þeir segjast stanslaust vera að bæta hag lágtekjufólks með nýjum tekjum ríkisins sem síðan renni til þessa fólks beint og óbeint. Vita þeir þó vel að auknir skattar bitna verst á því í bráð og lengd. Þeir vita vel að skattar hveiju nafni sem þeir nefnast eru eignatilfærsla frá fólk- inu og fyrirtækjum til ríkisvaldsins, eignaupptaka. Þeir vita líka að þessi tilfærsla leiðir til minni framleiðslu og „þenslu". Það er þeim einkar geðfellt, þótt það komi verst niður á þeim sem minnst mega sín. Þegar þeir svo þrá að þjarma enn að fólki og fyrirtækjum spyija þeir í þaula: Hvar á að skera niður? Bendið þið á sparnað til að draga úr skattahækkunum eða til að lækka skatta; út með það, hvar ætlið þið að spara? Nú er það ljóst að víða er hægt að spara í ofþöndu ríkiskerfi sem vefur upp á sig ár frá ári. Margar ríkisstjórnir hafa reynt þetta með takmörkuðum árangri og því hellt sér út í stöðvun eða frestun brýnna framkvæmda. Það gerir núverandi stjórn í ríkari mæli en nokkur önnur. Saiht sem áður magnast fjárlagahalli og skuldasöfnun. Segir þetta mönnum enga sögu, sjá menn ekki að þetta er heimatilbúin kreppa? Halda menn að hún muni leiða til ein- hvers annars en hún hvarvetna í öðrum löndum hefur gert? Við skulum gefa okkur það að takmarkaður árangur geti náðst við niðurskurð kerfisins nema þá á nokkrum árum og huga að því að stöðvun ofvaxtarins væri ein og sér mikill árangur. Svo skulum við hug- leiða hvernig bæta má kjörin með aukinni auðlegð þjóðarinnar, á ann- an liátt verður það ekki gert til frambúðar. Heldur einhver að leiðin til þess sé að draga úr framleiðslu og framförum alltaf og alls staðar með þeim hætti að taka í sífellu starfsfé frá atvinnuvegunum og eigin aflafé frá borgurunum í aukn- um sköttum ár frá ári og lækkandi launum? Nei, þetta heldur enginn. Menn vita nú allir bæði hér og ann- ars staðar að ríkisvaldið verður að fara þveröfuga leið, stórlækka skatta og auka framkvæmdir ein- staklinga og fyrirtækja, m.ö.o. efla framtak með fijálsum peningum. Þessar augljósu staðreyndir þvælast þó fyrir mætum mönnum hér sem stöðugt tönglast á því að hag ríkissjóðs verði fyrst að tryggja, þá komi allt annað af sjálfu sér. Þetta er þjóðlygi enda þekkjast svo- kölluð hallalaus fjárlög hvergi þar sem framfarir eru og velmegun. Þetta getur ekki passað segir ein- hver, þótt það sé staðreynd. En um þetta er ekki fjallað nú heldur varp- að fram einni spurningu eða tveim: Fyllti Jón Baldvin, þá fjármála- ráðherra, upp í 2-3 milljarða gat á fjárlögum sem hann taldi fyrirsjá- Eyjólfur Konráð Jónsson „Þessar augljósu stað- reyndir þvælast þó fyrir mætum mönnum hér sem stöðugt tönglast á því að hag ríkissjóðs verði fyrst að tryggja, þá komi allt annað af sjálfu sér. Þetta er þjóð- lygi enda þekkjast svo- kölluð hallalaus fjárlög hvergi þar sem fram- farir eru og velmegun.“ anlegt haustið 1987 og dengdi því yfir 5-6 milljarða sköttum til að „hafa borð fyrir báru“? Hefur halli fjárlaga núverandi fjármálaráð- herra farið lækkandi við síaukið skattrán eða eru horfur á að svo muni verða á næsta ári? Þessum spurningum getur hver sá svarað sem eitthvað fylgist með málum, en sá hinn sami getur ekki enn sett upp aulasvip og sagt: Já en . . . Höfundur er einn af alþingismönnuni Sjálfstæðisílokks fyrir Reykja víkurkjördæmi. Reykjavík: Lögreglan með viðbún- að vegna jólaumferðar Á tíinabilinu 16.—23. desember mun lögreglan takmarka umferð inn á Laugaveg, ef þörf krefur. Einkum má gera ráð fyrir tímabund- inni lokun Laugavegar laugardaginn 16. desember og á Þorláks- messu. Undanþágu njóta strætisvagnar og leigubílar, sem erindi eiga að húsum við Laugaveg. Enn fremur njóta undanþágu bílar með merki fatlaðra. Ökumenn eru hvattir til að aka ekki um Lauga- veg að ástæðulausu. Laugardagana í desember fyrir E. Bílastæði milli Sætúns og bæði fyrir akandi og gangandi veg- farendur. Ökutæki þessi verða fjar- lægð á kostnað ökumanna. (FVctÞitilkynning) pð02Un|“V »s p'bli ... jól verður ókeypís í stöðumæla, bílastæði og bílastæðahús á vegum Reykjavíkurborgar, þó með þeirri undantekningu að Kolaport verður aðeins opið laugardaginn 23. des- ember. Athygli er vakin á því að laugar- dagana í desember verða um 60 bílastæði við Skúlagötu, gamla út- varpshúsið, til ráðstöfunar. Eftirfarandi er yfirlit yfir bíla- stæðahús fyrir almenning í mið- borginni: A. Nýtt bílastæðahús á Vestur- götu 7. Ekið inn frá Mjóstræti. Þar eru um 100 stæði. B. Nýtt bílastæðahús við Berg- staðastræti. Ekið inn frá Berg- staðastræti sunnan Skólavörðu- stígs. Þar eru um 50 stæði. C. Kolaport — bílastæðahús, 180 stæði. Ekið inn frá Kalkofnsvegi. Stæðin eru lokuð laugardagana 2., 9\ og 16. desember, en opin á Þor- láksmessu 23. desember. Sérstök athygli er vakin á hinum nýju bílastæðahúsum við Vestur- götu og Bergstaðastræti. Eftirfarandi er yfirlit yfir helstu langtímabílastæði í miðborginni: D. Bakkastæði. Ekið inn frá Kalkofnsvegi. Þar eru um 350 stæði. Skúlagötu vestan bensínstöðvar Olís. Þar eru um 150 stæði. F. Vitatorg og opið svæði norðan Vitatorgs. Ekið inn frá Lindargötu og Vitastíg. Þar eru 150 stæði. G. Bílastæði á lóð Eimskips milli Vatnsstígs og Frakkastígs. Starfsmenn, sem koma á einkabílum, eru hvattir til að leggja bílum sínum fjær en venjulega fram að jólum. Fólk er eindregið hvatt til að notfæra sér strætisvagnana dag- ana fram að jólum til að létta á umferð og spara sér tíma og erfið- leika við leit að bílastæðum. Þessu er sérstaklega beint til starfsmanna verslana og annarra fyrirtækja í miðborginni. Fram að jólum mun leið SVR „Hlemmur-Lækjartorg“ hafa við- komu á Skúlagötu við Klapparstíg, þ.e. í grennd við stæði E hér að ofan. Lögreglan verður með aukna löggæslu, þar sem þess er þörf, fram að jólum og mun greiða fyrir umferð og aðstoða fólk í þeirri miklu umferð, sem framundan er. Lögreglan mun hafa kranabíla í sinni þjónustu og mun fjarlægja þau ökutæki, sem illa er lagt, skapa hættu og hindra eðlilega umferð JÓLASNYR TINGIN Kristín Stefánsdóttir snyrti- og förðunarfræðingur Kristín Friðriksdóttir förðunarfræðingur Ágústa Kristjánsdóttir fótaaðgerða- og snyrtifræðingur Kristín Guðmundsdóttir fótaaðgerða- og snyrtifræðingur 10% af sláttur til jóla Við bjóðum ykkur eftirfarandi þjónustu: Andlitsböð og einnig 3 tima kúra (ampúlur) - Húðhreinsun 20% skólaafsláttur - Litanir- Fótaaðgerðir- Spangarmeðferð fyrir inngrónar neglur- Gervineglurnar sívinsælu - Vaxmeðferð - Handsnyrtingu - Förðun, brúðar-, samkvæmis- og „fantasíu" Fórðun - Sylvia Lewis varanleg háreyðing Breyttur og lengri opnunarttmi Snyrtistoýan NN Laugavegi27 - sími 19660
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.