Morgunblaðið - 12.12.1989, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1989
v&ém
is&kur
’usund 00/100
Nýlokið er aðalsveitakeppni Brids-
félags Breiðfirðinga, og stóð sveit Hans
Nielsen uppi sem öruggur sigui-vegari
í lokin. í sveitinni eru, auk hans, þeir
Böðvar Guðmundsson, Skúli Einarsson,
Friðþjófur Einarsson, Hannes R. Jóns-
son og Sveinn Sigurgeirsson.
Staða efstu sveita að öðru leyti varð
þannig.
Hans Nielsen 250
SALSHA 222
ElíasR.Helgason 220
Ólfur Týr Guðjónsson 217
Kristján Sigurgeirsson 207
SigmarJónsson 200
Guðjón Bragason 200
Á eftir var spilaður tvímenningur
sem var forgefinn, 14 spil og urðu
hæstu pör þessi:
Guðjón Bragason - Daði Björnsson 66%
Magnús Oddsson - Jón Stefánsson 60,14%
Margrét Þórðardóttir - Dóra Friðleifsd. 59%
Guðlaugur Sveinsson - Magnús SveiTÍsson 58,53%
Eiríkur Hjaltason - ÓlafurT. Guðjónsson 58,07%
Anton R. Gunnareson - Sveinn Sigurgeirsson 56%
Karen Vilhjálmsd. - - Þorvaldur Óskarsson 55,2%
Næstkomandi fimmtudag verður
spilaður eins kvölds tvímenningur og
verða veitt verðlaun (rauðvín í jólamat-
inn) fyrir efstu sætin. Allir velkomnir.
Skráning í barómeterkeppni félags-
ins er einnig hafin, en hún hefur verið
mjög vinsæl í gegnum árin. Því er ráð
að skrá sig í tíma áður en skráningu
lvkur.__________________________________
Athugasemd vegna við-
tals við Gunnar Bjarnason
Vegna þess sem kom fram í sjón-
varpsviðtali við Gunnar Bjarnason
fyrrverandi ráðunaut 18. nóvember
sl. og snerti Búnaðarfélag íslands
og störf Gunnars hjá því, þykir
stjórn félagsins ástæða til að taka
eftirfarandi fram.
Gunnar sagði í viðtalinu: „Þeir
samþykktu aldrei ferð(ir) mína(r)
og hafa aidrei kostað mig í nokkurn
hlut“ og átti þar greinilega við
Búnaðarfélag íslands.
Af þessu mátti skilja að Gunnar
hafi ekki á sinni löngu starfstíð hjá
Búnaðarfélagi íslands fengið
starfsfé né greiddan ferðakostnað
eins og aðrir ráðunautar félagsins.
Að sjálfsögðu er það rangt. Gunnar
var „kostaður" af fjármunum BÍ
til ferðalaga innanlands og utan,
m.a. til fjölmargra ferða til að
kynna íslenska hestinn. Þetta veit
Gunnar vel þó að honum hafi hrot-
ið annað af munni.
Á öðrum stað í viðtalinu tók
Gunnar þannig til orða: „Mér hefur
fimm sinnum verið ýtt úr störfum
eða stöðum, sem ég átti að fá af
því að mér var ekki treyst." Ekki
er ljóst hvað hann á við með þessu
eða hvaða störf hann telur sig hafa
átt að fá í lífinu. En hitt er ljóst
að Gunnari var aldrei vikið úr starfi
hjá Búnaðarfélagi íslands. Hann
kom fyrst til starfa hjá félaginu
árið 1940 sem hrossaræktarráðu-
nautur og gegndi því til ársins 1961
að hann sagði starfi sínu lausu og
gerðist skólastjóri á Hólum.
Árið 1963 var hann aftur ráðinn
til félagsins, sem ráðunautur í ali-
fugla- og svínarækt í hálfu starfi
og var það til ársins 1978. Eftir
það var hann ráðunautur um út-
__________Brids___________
ArnórRagnarsson
Bridsfélag Kópavogs
Sl. fimmtudag lauk Barometer-
keppni félagsins. 32 pör tóku þátt í
keppninni og spiluð 5 spil milli para.
Úrslit urðu:
Sævin Bjarnason —
Magnús Torfason 622
Murard Serdal —
ÞórðurBjörnsson 280
Ragnar Jónsson —
Sigurðurívarsson 242
Grímur Thorarensen —
Guðmundur Pálsson 234
Úlfar Eysteinsson—
Eysteinn Einarsson 199
Valdimar Þórðarson —
Þorvaldur Þórðarson 175
Freyja Sveinsdóttir —
Sigríður Möller 172
Óli M. Andreasson —
Vilhjálmur Sigurðsson 147
Síðasta spilakvöld fyrir jól verður
nk. fimmtudag. Þá verða afhent verð-
laun fyrir keppnir haustsins.
Bridsfélag Breiðfirðinga
flutning hrossa í ’/iúr starfi fram
á árið 1987 að hann hafði einn um
sjötugt. Hann starfaði því sem
lausráðinn hjá félaginu að eigin ósk
í rúmt ár eftir að hann hafði náð
venjulegum eftirlaunaaldri. Jafn-
framt störfum sínum hjá BÍ gegndi
Gunnar Iengst af öðrum störfum,
sem hér verða ekki rakin.
Þá leyfir stjórn BÍ sér að gera
athugasemd við þau ummæli stjórn-
anda þáttarins, er hún hóf spurn-
ingu til Gunnars með þeim orðum
að gengið hefði á ýmsu í samskigt-
um Gunnars við Búnaðarfélag ís-
lands. Með þessu er verið að gefa
hluti í skyn sem ekki eru í samræmi
við raunveruleikann. Af hálfu Bún-
aðarfélagsins á þetta alls ekki við,
hvað sem Gunnari kann að finnast
nú.
Stjórn Búnaðarfélags íslands
þykir miður að Gunnar Bjarnason
skuli nú að loknum löngum starfs-
degi fyrir félagið og í þágu land-
búnaðarins vera svo neikvæður í
afstöðu sinni til fyrrverandi vinnu-
veitenda og samstarfsmanna, og
fara um þá niðrandi orðum eins og
hann gerði í umræddu sjónvarpsvið-
tali. Hún furðar sig m.a. á ummæl-
um Gunnars um dr. Halldór Páls-
son, sem alla tíð sýndi honum holl-
vild þó að skoðanir þeirra værú oft
mjög ólíkar. Enda - hefur Gunnar
aldrei verið látinn líða fyrir skoðan-
ir sínar, hvað þá að litið hafi verið
á hann sem „andstæðing" félagsins
á meðan hann starfaði fyrir það^
F.h. stjórnar
Búnaðarfélags íslands,
Hjörtur E. Þórarinsson
MYKT ER OKKAR STYRKUR
_______________ HEILDSÖLUB. JOHN LINDSAY H.F.
GODGJOF
SEM BER ÁVÖXT
Með gjafabréfum SPRON býðst þér
nýr gjafamöguleiki. Hér er á ferð bæði verðmæt
og skemmtileg gjöf.
Gjafabréf SPRON fást í 5.000, 7.500, 10.000 og
25.000 króna einingum, eru verðtryggð og
bera auk þess fasta vexti.
Þú færð gjafabréfin á öllum afgreiðslustöðum SPRON
Skólavörðustíg I I, Hátúni 2B, Álfabakka 14,
Austurströnd 3 og Kringlunni 5.
Sparisjóður Reykjavíkurog nágrennis