Morgunblaðið - 12.12.1989, Blaðsíða 36
Valdaeinaokun kommúnista lokið í Tékkóslóvakíu
MÖRGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1989
Kommúnistar í niinni-
hluta í nvju stj órninni
Borgaravettvangur:
Sameiginleg siðferðisviðhorf
Járnsmiður verður
félagsmálaráðherra
Richard Sacher, sem er ráðherra
án ráðuneytis í nýju ríkisstjórninni,
fékk ekkí leyfi yfii-valda til að
stunda nám á sjötta áratugnum og
vann m.a sem vörubílstjóri og náma-
verkamaður. Hann fékk loks leyfi
til að ganga í kvöldskóla og Iauk
prófi í lögfræði.
Við embætti atvinnu- og félags-
máiaráðherra tók járnsmiðurinn
Peter Miller. Hann lauk námi í
kvöldskóla. Árið 1969 hóf hann að
nema hagfræði en ári síðar var hann
rekinn úr skóla og neyddist þá til
að snúa sér aftur að járnsmíðinni.
Hann lauk sínum síðasta vinnudegi
í CDK-verksmiðjunni í Prag á föstu-
dag.
Prag. New York Times og Reuter.
SAMTÖK tékkneskra andófsmanna, Borgaravettvangur, eru
fjöldahreyfing þar sem liðsmenn hafa náð einingu um eitt, sameig-
inlegt baráttumál, þ.e. frelsi, og leiðtogamir eru kjörnir með lófa-
taki. Fundirnir hafa verið haldnir í kjallara leikhúss í Prag og
þeir eru langir, afar óformlegir og andrúmsloflið spennuþrungið.
Baráttuáætlun hefiir ekki verið samin fyrir Borgaravettvang sem
slíkan og viðhoríln breytast á hverri klukkustundu en samt heftir
tekist að hrinda í framkvæmd umbyltingu í landinu á ótrúlega
skömmum tíma með því að virkja almenning í baráttunni við
harðlínukommúnista.
Heimsfrægum gestum, sem
rekast inn, er ekki sinnt meira en
öðrum. Er Alexander Dubcek,
leiðtogi umbótanna árið 1968,
heimsótti leikskáldið Vaclav Ha-
vel og félaga hans í aðalstöðvum
Borgaravettvangs í síðustu viku
bauð Havel honum að setjast og
fylgjast með fundi þar sem menn
rökræddu málin í hálfa þriðju
klukkustund. Síðan hvarf Dubcek
á brott án þess að mikið bæri á.
Allir forystumenn andófsins vinna
endurgjaldslaust og stunda launa-
vinnu jafnframt pólitíkinni, máls-
verðir eru snæddir í flýti eða ails
ekki og margir eru augljóslega
vansvefta. Eiginkona eins leið-
toganna var spurð hvað hana
skorti einkum af vestrænum vam-
ingi og svaraði: „Við emm að
verða búin með vítamíntöflumar
sem halda honum gangandi."
Ný stjórnarskrá
Þrír menn luku síðastliðinn
miðvikudag við að semja tillögur
samtakanna að nýrri stjórnarskrá.
„Þrír dagar em langur tími þegar
tekið er mið af atburðarásinni að
undanförnu,“ segir einn þeirra,
hagfræðingurinn Josef Vavrousek
en hinir tveir em Ivan Havel,
tölvufræðingur og bróðir Vaclavs,
og Petr Pithart, lögfræðingur og
stjórnmálafræðingur. í tillögun-
um er gert ráð fyrir því að Tékkó-
slóvakía verði lýðræðislegt rétt-
arríki sem muni „aftur öðlast
virðulegan sess“ í samfélagi þjóð-
anna. Níu undimefndir vinna nú
að því að fullvinna ýmis atriði í
tillögunum. í samtali við Vavrou-
sek kom fram að andófsmenn vilja
engar fjöldahreinsanir eða of-
sóknir á hendur kommúnistum.
Prag. The Daily Telegraph.
NÝ ríkisstjórn tók við völdum í
Tékkóslóvakíu á sunnudag.
Kommúnistar eru í minnihluta
meðal ráðherra- og er þetta í
fyrsta skipti frá árinu 1948 sem
það gerist í Tékkóslóvakíu. Það
var jafhframt síðasta embættis-
verk harðlínumannsins Gustavs
Husaks, forseta landsins, að stað-
festa valdatöku nýju stjórnarinn-
ar. í nýju stjóminni eru 10
kommúnistar, 7 óflokksbundnir
ráðherrar og 4 frá tveimur flokk-
um sem áður fylgdu kommúnist-
um að máli.
Rúm vika er síðan Ladislav Ad-
amec, þáverandi forsætisráðherra
Tékkóslóvakíu, tilkynnti myndun
nýrrar stjórnar þar sem kommúnist-
ar áttu sextán ráðherra og fyrrum
fylgispakir flokkar fimm. Þótti al-
menningi gengið of skammt enda
voru engir fulltrúar Borgaravett-
vangs, samtaka lýðræðissinna, í
þeirri stjórn. Var ríkisstjórnin knúin
til að fara frá með miklum og fjöi-
mennum mótmælum.
Hugsanlegir arftakar
Husaks
Þrír menn koma nú til greina sem
arftakar Husaks: Vaclac Havel
skáld, Alexander Dubeek, sem var
leiðtogi kommúnistaflokksins 1968
þegar Varsjárbandalagið undir for-
ystu Sovétríkjanna kæfði umbóta-
tilraunir hans, og Ladislav Adamec,
fyrrum forsætisráðherra landsins.
Þing landsins kýs nýjan forseta inn-
an tveggja vikna. Husak, sem er
76 ára gamall, tók á sínum tíma
við flokksformennsku af Dubcek og
með honum hverfur síðasti fulltrúi
þeirra, sem studdu innrásina árið
1968, af sjónarsviðinu.
Friðsamleg bylting
Þrjú hundruð þúsund manns
komu saman á Wenceslas-torgi í
Ráðamenn kommúnistaflokksins á fundi með fulltrúum Borgara-
vettvangs í Prag á laugardagskvöld er samkomulag náðist um
skip&n nýrrar ríkisstjórnar.
„Það er ekki hægt að segja: „Þú
ert kommúnisti svo að þú ert
ómögulegur." Það er 1,7 milljón
manna í flokknum svo að slíkar
aðfarir myndu enn einu sinni
valda afturför í iandinu,“ sagði
Vavrousek.
Siðferðisleg gildi
Hann sagði liðsmenn Bórgara-
vettvangs hafa sameinast af ýms-
um ástæðum en ákveðin siðferðis-
leg gildi hefðu verið samnefnari
allra þáttakenda. Sterkustu rökin
gegn harðlínumönnunum hefðu
verið siðferðisleg. Vaclav Havel
væri fremstur meðal jafningja, án
þess að vera hampað sérstaklega,
en hann nyti álits vegna óbifandi
staðfestu er hann var fangelsaður
vegna skoðana sinna.
Prag á sunnudag til að fagna hinni
nýju ríkisstjórn. Havel ávarpaði
mannfjöldann og lét svo ummælt
að friðsamleg bylting hefði átt sér
stað í Tékkóslóvakíu. Fólk hrópaði
hvatningarorð til Havels um að
bjóða sig fram til forseta. Ekki
leyndi sér heldur fögnuður yfir því
að tii stóð að hefja niðurrif jám-
tjaldsins milli Tékkóslóvakíu og
Áusturríkis. Allsheijarverkfalli sem
boðað hafði verið til í gær var af-
lýst og þess í stað var kirkjuklukk-
um hringt og lúðrar þeyttir á há-
degi.
Forsætisráðherrann, Marian
Calfa, sem er félagi í kommúnista-
flokknum, segir stjórnina sitja til
bráðabirgða og hafa tvö verkefni
fyrst og fremst; umbylta efnahag
landsins og undirbúa fijálsar kosn-
ingar til þings landsins. Calfa hefur
ekki viljað segja hvenær kosning-
arnar verði.
„Við höfiim gert friðsamlega byltingu," sagði Vaclav Havel leik-
skáld, þegar hann ávarpaði mörg hundruð þúsund manns í Prag.
Ofsóttir og niðurlægðir
menntamenn snúa aftur
sættu ofsóknum og voru niðurlægð-
ir af yfirvöldum hafa nú aftur feng-
ið tækifæri til að hafa áhrif á stjórn-
máiaþróunina í landinu.
I fang-elsi í þrjú ár
Jiri Dienstbier var einn þekttasti
sérfræðingur Tékkóslóvakíu á sviði
erlendra málefna er Alexander Dub-
cek komst til valda í landinu árið
1968 og tók að innleiða umbóta-
stefnuna sem herafli Varsjárbanda-
lagsins braut á bak aftur sama ár.
Dienstbier var rekinn úr starfi sínu
við tékkneska ríkisútvarpið í miklum
hreinsunum sem fylgdu í kjöifarið.
Hann sat í fangelsi í þijú ár og var
þráfaldlega handtekinn vegna af-
skipta sinna af mannréttindabrotum
stjórnvalda málum og fengið starf
sem kyndari. Að undanförnu hefur
hann verið einn helsti talsmaður
Borgaravettvangs, hreyfingar tékk-
neskra stjórnarandstæðinga. Það
þótti enn eitt merkið um kaldhæðni
sögunnar að Gustav Husak forseti,
sem bar ábyrgð á hreinsununum og
ógæfu þúsunda manna, skyldi taka
embættiseiðinn af Dienstbier. Þetta
var jafnframt síðasta embættisverk
Husaks því hann sagði af sér eftir
að nýja ríkisstjórnin hafði tekið við
völdum.
Vaitr Komarek, einn þekktasti
hagfræðingur Tékkóslóvakíu, sór
embættiseið aðstoðarforsætisráð-
herra. Hann sætti löngum ofsóknum
vegna gagnrýni sinnar á miðstýr-
ingu efnahagslífisins og alræði
kommúnistaflokksins á þeim vett-
vangi. Árið 1984 fékk hann loks
leyfi yfirvalda til að stofna Spádeild
Efnahagsstofnunar tékknesku
vísindaakademíunnar þar sem fjöl-
tnargir sérfræðingar tóku að vinna
að róttækum áætlunum um breyt-
ingar á sviði efnhags- og stjórnmála.
Vaclav Klaus, hinn nýi fjármála-
ráðherra Tékkóslóvakíu, starfaði við
Efnahagsstofunina fram ti! ársins
1970. Hann vann ýmis störf fram
til 1984 er hann fékk leyfi til að
starfa við Spádeild stofnunarinnar.
Prag. Reuter.
JIRI Dienstbier tók á sunnudag
við embætti utanríkisráðherra
Tékkóslóvakíu. Skömmu áður
hafði hann sagt upp starfí sínu
sem kyndari og fyrsta verk hans
var að tilkynna yfírmönnum
sínum að hann gæti því maður
ekki mætt á vaktina. Líkt og fleiri
ráðherrum í nýju ríkisstjórninni
var Dienstbier meinað að sinna
hugðareftium sínum og að taka
þátt í pólitískri starfsemi eftir
innrásina árið 1968 en heríorin
gegn menntamönnum í Tékkósló-
vakíu hófst raunar með valdatöku
kommúnista árið 1948.
Hundruð þúsunda menntamanna
voru reknir úr starfi er kommúnist-
ar náðu völdum í landinu. Þeir sem
ekki höfnuðu í fangelsum eða vinnu-
búðum voru m.a. látnir vinna í nám-
um, stáliðjuverum eða fengin störf
í byggingariðnaði. Þekktasti Sha-
kespeare-sérfræðingur landsins var
t.a.m. gerður að salernisverði í Prag.
Reuter
Gífurlegur mannfjöldi safnaðist saman á Wenceslas-torgi í miðborg
Prag á sunnudagskvöld og fagnaði því að ný ríkissijórn með þátt-
töku andstæðinga kommúnista, hefði tekið við völdum.
Sagan endurtók sig árið 1968 er enda á umbótastefnu Alexanders
herafli Varsjárbandalagsins batt Dubceks. Margir þeirra sem þá